Dagur - 14.10.1985, Page 1
68. árgangur Akureyri, mánudagur 14. október 1985 119. tölublað
Mál Bifreiðastöðvar Húsavíkur gegn skipaafgreiðslunni:
Hæstiréttur hnekkti
dómi undirréttar
Slökkvistarfið gekk greiölega. Hér ráðgast tveir slökkviliðsmenn um gang
mála. Mynd: KGA.
Eldur í símabekk
Laust fyrir klukkan 5 sl.
föstudag var slökkvilið Akur-
eyrar kvatt að bænum Kaup-
angi í Öngulsstaðahreppi.
Var eldur laus í einu herbergi
hússins.
Greiðlega gekk að ráða
niðurlögum eldsins, en
skemmdir urðu talsverðar. Er
eldurinn kom upp voru tvö
börn, 6 og 8 ára gömul ein
heima. í bókunum lögreglu
kemur fram að þau hafi verið að
leika sér með eldspýtur og misst
eina í símabekk með þessum af-
leiðingum. - mþþ
Framleiðsla húseininga:
Mikill samdráttur - Hver
vill reksturinn feigan?
Skorið á opinbera lánafyrirgreiðslu
Dómur er fallinn í Hæstarétti í
máli Bifreiðastöðvar Húsavík-
ur gegn Skipaafgreiðslu Húsa-
víkur hf. Málið snerist um það,
hvort skipaafgreiðslunni væri
leyfilegt að nota eigin bíla við
útskipun á kísilgúr. Það vildi
bifreiðastöðin ekki sætta sig
Slátrað í
Grímsey
„Það er nóg að gera í Grímsey
á þessum fallegu haustdög-
um, “ sagði Steinunn Sigur-
björnsdóttir í samtali við Dag.
Nú stendur yfir slátrun í eynni,
ekkert er þó sláturhúsið.
„Petta er svokölluð heimaslátr-
un, “ sagði Steinunn.
Sagði hún að um 3-400 kindur
væru í eynni og er um 100 lömb-
um siátrað á þessu hausti. Sagði
Steinunn það aðallega eldra fólk-
ið sem héldi kindur í eynni. Það
yngra fær sínar sláturafurðir
sendar út í eyju með Drangi.
-mþþ
við og hún vann málið fyrir
héraðsdómi. En Hæstiréttur
var ekki á sama máli, því dóm-
ur hans var skipaafgreiðslunni
í hag. Hún má sem sé nota eig-
in bíla vð útskipunina.
Á sínum tíma gerði skipaaf-
greiðslan samning við Kísiliðjuna
um útskipun á kísilgúr. Af-
greiðslan notaði eigin vörubíla til
að aka kísiigúrnum frá skemmu í
skip. Bifreiðastöð Húsavíkur
kærði þennan flutning til lögreglu
og saksóknari ríkisins höfðaði
síðan mál. í vor kvað héraðs-
dómur upp þann úrskurð, að
þessir flutningar væru ólöglegir.
Skipaafgreiðslan áfrýjaði málinu
til Hæstaréttar og þar féll dómur
sl. þriðjudag á þá leið, að skipa-
afgreiðslan væri sýkn saka.
Á meðan á þessum málaferlum
stóð hefur skipaafgreiðslan notað
gáma og lyftara við þessa flutn-
inga. Á föstudaginn var skipaaf-
greiðslan hins vegar farin að nota
vörubíla við útskipun.
„Þessi málaferli hafa komið sér
mjög illa fyrir okkur, þar sem við
höfum þurft að breyta aðstöðu og
vinnubrögðum. Það hefur verið
kostnaðarsamt og því óvíst að við
tökum vörubílana aftur í notkun
við kísilgúrflutninginn," sagði
Árni Grétar Gunnarsson hjá
Skipaafgreiðslu Húsavíkur.
Hann vildi hins vegar ekki tjá sig
um efnisatriði dómsins, þar sem
hann hafði ekki fengið hann í
hendur og því ekki haft tækifæri
til að kynna sér forsendur
dómsins. Sömu sögu var að segja
um forráðamenn bifreiðastöðvar-
innar. IM/GS
Mikíll samdráttur hefur verið í
ár hjá þeim fyrirtækjum sem
framleiða og selja svokölluð
einingahús. Til þess að
grennslast fyrir um ástæður
þessa hafði blaðamaður sam-
band við Konráð Baldvinsson,
stjórnarformann Húseininga
hf. á Siglufirði.
„Það er rétt að hér hefur orðið
samdráttur eins og annars staðar.
Einingafjöldinn sem heftur verið
seldur í ár er samsvarandi 30
meðal einbýlishúsum miðað við
54 í fyrra. Það lætur því nærri að
um helmings samdrátt sé að
ræða." sagði Konráð Baldvins-
son.
Það er athyglisvert að skoða
hvert þessar húseiningar eru
seldar. í ár hafa Húseiningar hf.
selt nær alla sína framleiðslu í
Húnavatnssvslur. Skagafjörð og
Eyjafjörð. I fyrra fór hins vegar
um 80% af þeirra framleiðslu á
Stór-Revkjavíkursvæðið og þá
aðallega í nýju bvggðina í Graf-
arvoginum.
..Eg er ansi hræddur unt að í
hinu opinbera lánakerfi sé tölu-
vert unnið á rnóti þ\ í að eininga-
húsaverksmiðjurnar fái að lifa."
sagði Konráð. ..Aðilum á
Revkjavíkursvæðinu þótti nóg
um í fvrra að ýmsir einingafram-
leiðendur vfirtóku stóran hluta
markaðarins. Afleiðingin varð sé
að lánafvrirgreiðslan sent við
höfðum var tekin af okkur."
sagði Konráð ennfremur.
Lánafyrirgreiðsla þessi var í
því fólgin að einingahúsakaup-
endur t'engu Húsnæðisntála-
stjórnarlán sín greidd út í tvennu
lagi og á mun skemntri tíma en
þeir sem bvggðu hefðbundið.
Var það gert vegna þess að ein-
ingahús hafa ntjög skamman
byggingartíma.
..Og nú vorum við að frétta að
einingahúsakaupendur hefðu
verið settir aftur fyrir aðra hús-
bvggjendur varðandi þau lán sent
eiga að korna til afgreiðslu hjá
Húsnæðisstofnun í október. Það
verður eins til tveggja mánaða
dráttur á þeirri afgreiðslu." sagði
Konráð Baldvinsson að lokum.
Þess má geta að Húseininga-
menn á Siglufirði eru ekki á þeim
buxunum að gefast upp þótt á
móti blási.
í vor var samþykkt hlutafjár-
aukning í Húseiningum hf. að
fjárhæð 8 milljónir króna og fvrir
stuttu var 2 milljónum bætt við.
Heildarhlutafé fyrirtækisins er
því núna rúmar 14 ntilljónir
króna og hluthafar 130.
Ráðinn hefur verið nýr fram-
kvæmdastjóri. Bergsteinn Gunn-
arsson. rekstrartæknifræðingur.
og nú t'er í hönd endurskipulagn-
ing og uppstokkun hjá fvrirtæk-
inu. BB.
Mjög
róleg
helgi
Lögreglumenn víðasl hvar á
Norðurlandi voru satnniála um
að helgin hafi verið mjög
róleg.
Á Blönduósi valt bíll í gær-
morgun. lítil nteiðsli urðu á fólki.
en bíllinn skemmdist nokkuð.
Ökumaður bifreiðarinnar revnd-
ist ölvaður.
Aðfaranótt sunnudags var ekið
á folald á Vatnsskarði. Að sögn
lögreglu á Blönduósi er talið að
folaldið hafi drepist fljótlega. en
unt atburðinn var ekki tilkynnt.
þótt slíkt hefði átt að vera hægðar-
leikur þar sem atvikið varð við
heimreið að bæ. Talið er að bif-
reiðin hafi skemmst talsvert því
ntikið var unt glerbrot á svæðinu.
- ntþþ
„Virinn of grannur“
- ekki tókst að ná
„Já, þetta hefur verið of
grannt, helvítis helvíti,“ sagði
Heiðar Baldvinsson eigandi
bátsins Þórunn ÞH-130 frá
Grenivík þegar mistókst að ná
honum af 130 metra dýpi út
af Hvannadalabjörgum sl.
föstudag.
Báturinn fórst þar 22. nóvem-
ber 1984, en þrír menn sent
voru um borð björguðust giftu-
samlega. Allt síðan þetta gerð-
ist hefur það verið draumur
Þórunni ÞH 130 af hafsbotni á föstudag
vera 2,5 tommu sver sögðu
menn.
Heiðars að ná bátnum upp og
29. sept. sl. tókst að koma vír
um bátinn.
Á föstudag var svo farið með
Drangi og litlum bát er Heiðar á
og þess freistað með útbúnaði
Drangs að hífa bátinn upp af
hafsbotni og um borð í
Dranginn. Menn höfðu orð á
því á útleiðinni frá Grenivík að
sennilega væri vírinn sem kom-
ið hafði verið um bátinn of
grannur. Hann var af sverleika
1,5 tomma en hefði þurft að
Og þegar báturinn var að lyft-
ast frá botninum gaf vírinn sig.
Mikil vonbrigði fyrir þá sem að
þessu stóðu og auðvitað mest
fyrir Heiðar eiganda Þórunnar
sent hefur lagt á sig ómælt erf-
iði, fyrirhöfn og fjárútlát til þess
að björgunin rnætti takast. Það
var því skiljanlegt að vonbrigða
gætti í rödd hans í talstöðinni.
En Heiðar er ekki búinn að gefa
upp alla von eins og sjá má á
bls. 8. " ' gk-.