Dagur - 14.10.1985, Side 3
14. október 1985 - DAGUR - 3
™wmmm■■mmmmw
HH "■V. |R . i WHRIH
Fundarmenn frá Akureyri og Húsavík við Skógargerði, hús dúfnaræktarmanna á Húsavík.
Bréfdúfumar njóta
vaxandi vinsælda
Veist þú
hvar þú færð Ijoskast-
ara í storkostlegu úr-
vali frá kr. 349.-
Blomtierq
Stílhrein hágæða heimilistæki
2ja ára ábyrgð
Komið og gerið kjarakaup í nýju
versluninni Raf í Kaupangi.
% ■ NYLAGNIR
BkAp s°;
Kaupangi v/Mýrarveg. Sími 26400.
Verslift hjá fagmanni.
- Sameiginleg verðlaunaafhending á Húsavík
Félagar úr Bréfdúfufélagi Ak-
ureyrar og Bréfdúfufélagi
Húsavíkur komu saman til
fundar á Húsavík á Iaugardag.
Þar fór fram sameiginleg verð-
launaafhending fyrir keppnir
sem haldnar voru í sumar.
Sameiginlega héldu félögin
tvær keppnir til Norðurlands-
meistara. Þá var dúfunum sleppt
við Möðrudal á Fjöllum. Þessi
mót voru eingöngu ætluð norð-
lenskum dúfum og tóku 40 fuglar
þátt í hvorri keppni. Húsvíkingar
unnu bæði mótin samanlagt, þó
Akureyri ætti fyrsta sæti í seinna
mótinu. Norðurlandsmeistari
varð Oddur Örvar Magnússon.
Dúfa sem Oddur á náði besta
hraða á Norðurlandi 1054 m á
mín., sem er rúml. 60 km hraði á
klst.
Húsvíkingar héldu tvö mót og
var dúfum þá sleppt við Reykja-
Hofsós:
Nýtt ákvæði
í kjarasamninga
- Sérstök þóknun
fyrir góðar mætingar
Á Hofsósi er nú unnið að gerð
nýs kjarasamnings við starfs-
fólk Hraðfrystihússins, en að
sögn Gísla Kristjánssonar
framkvæmdastjóra Hraðfrysti-
hússins hf. er málið í biðstöðu.
Verið er að bíða eftir að Ein-
ing Ijúki sínum samningum.
1 hinum nýja kjarasamningi
sem nú er unnið að, er lagt til að
inn í samninginn verði tekið nýtt
ákvæði þess efnis að starfsmenn
fái greidda sérstaka þóknun fyrir
góðar mætingar.
„Við teljum hiklaust að þetta
ákvæði eigi að vera inni í samn-
ingum,“ sagði Gísli Kristjánsson
framkvæmdastjóri, en hann vildi
að öðru leyti ekki tjá sig um þetta
nýja ákvæði á þessu stigi málsins.
- ntþþ
hlíð. Oddur varð Húsavíkur-
meistari og Hákon Rafn Sigurðs-
son unglingameistari Húsavíkur.
Akureyringar héldu einnig eitt
mót frá Reykjahlíð en tvö frá
Möðrudal. Bræðurnir Ágúst og
Bergþór Ásgrímssynir urðu Ak-
ureyrarmeistarar; dúfur þeirra
unnu báðar Möðrudalskeppnirn-
ar. Dúfur Friðriks Árnasonar
unnu 1. og 3. sæti í Reykjahlíðar-
keppninni og náðu besta hraða
sumarsins á Akureyri. Dúfa Arn-
ars Stefánssonar náði öðru sæti í
keppninni.
Á fundinum var rætt um vænt-
anlegar keppnir á næsta ári. Fé-
lögin ætla að standa fyrir keppni
sem allir geta tekið þátt í.
Bréfdúfufélag Akureyrar ætlar
að gefa út blað þriðja árið í röð.
Meðal efnis í blaðinu verða fé-
lagaskrár allra félaga sem starfa á
þessu sviði, myndir af verðlauna-
höfum, þýddar greinar til fróð-
leiks og skemmtunar og úrslit í
keppnum sumarsins verða birt.
Blaðið verður 40 síður. Um 15 fé-
lagar eru virkir í félaginu. Starf-
semi þess er í örum vexti. Akur-
eyrarbær sér þeim fyrir húsnæði
að Mýrarlóni og þar er góð að-
staða fyrir dúfurnar og pláss fyrir
fleiri.
Bergþór í síma 22383 gefur
þeim sem hug hefðu á að kynna
sér starfsemina, upplýsingar.
Bæði félögin hafa yfir dúfna-
stofnum að ráða sem eru lang-
ræktaðar afreksdúfur frá Bret-
landi.
Hjá Bréfdúfufélagi Húsavíkur
er starfsemin í fullum gangi. Þeir
hafa yfir rnjög góðu húsnæði að
ráða sem bæjarfélagið lætur í té,
og eru þeir mjög þakklátir fyrir
þann stuðning.
Almenn ánægja ríkti meðal
fundarmanna, hve vel gengi hjá
þeim í ekki eldra „sporti". Þeir
voru sammála um að mjög
skemmtilegt væri að þjálfa fugl-
ana. Og sjá hvað þeir væru fljótir
heirn í keppnum oft á undan eig-
endunum. Dúfnaræktarmennirn-
ir sögðu þetta tómstundagaman
gefa sér ntikla lífsfyllingu. 1M
Viðgerðir Verslun
'qfíÍbVlNNUSTOFAN
Kaupangi sími 22817
AEG
heimilistæki
AEG heimilistæki eru
frábær aö gæðum.
Áratuga reynsla og
fyrsta flokks þjónusta.
AEG ryksugur
AEG eldavélar
AEG þvottavélar
AEG ísskápar
AEG fyrstikistur
AEG straujárn
Járn- og
glervörudeild
Siguftar Gubtmmdssomr hf.
HAFNARSTRÆTI96 SÍMI 96*24423 AKUREYRI
V Töh/uskóli MA
Ný námskeið hefjast
21. október
Oll námskeiðin standa yfir í þrjár vikur, tvisvar í
viku, samtals 18 tímar auk opinna æfingatíma.
Kennsla fer fram í tölvuveri Menntaskólans á Akur-
eyri klukkan 17.45-20.00 eða 20.00-22.15. Hámarks-
fjöldi nemenda á hverju námskeiði er 12 en lág-
marksfjöldi 6. Athugið að hver þátttakandi hefur
tölvu fyrir sig. í lok námskeiðsins fá nemendur
viðurkenningarskjal.
Námskeiðsgjald er óbreytt frá í vor kr. 4.600. Öll
kennslugögn eru innifalin í þessu verði.
Einstaklingar sem sækja fleiri en eitt námskeið fá
afslátt og fyrirtæki geta samið um sérstakan afslátt
ef um fleiri en einn þátttakanda er að ræða.
Bent er á að margir endurmenntunarsjóðir stéttarfé
laga veita styrki til þátttöku í þessum námskeiðum.
Skráning og allar upplýsingar á skrifstofu Mennta-
skólans á Akureyri, sími 25660.
1. Einkatölvur og notkun stýrikerfis
(MS-Dos/PC-Dos) (21. okt.-8. nóv.)
Námskeiðið hentar öllum sem vilja kynnast mögu-
leikum einkatölvunnar. Megináhersla verður lögð á
stjórnun tölvunnar og umgengni við tölvur og tölvu-
gögn. Kynnt verða ýmis notendaforrit svo sem rit-
vinnsla, áætlanagerð, gagnagrunnur o.fl.
2. Gagnasafnskerfi (dBase II). (21. okt.-8. nóv.)
Nú aðlagað íslensku bæði í texta og uppröðun.
Námskeiðið hentar öllum sem vilja kynna sér þessa
öflugu tækni við gagnavinnslu og þurfa að vinna við
uppsetningu skráa og meðferð gagna svo sem
áskrifendaskrár, félagaskrár, nemendaskrár, ein-
kunnaskrár, rannsóknaskrár o.fl. o.fl.
3. Tölvubókhald. (21. okt.-8. nóv.)
Námskeiðið hentar öllum sem vilja fá þekkingu á
notkun PC tölva við bókhald fyrirtækja. Nokkur bók-
haldsþekking nauðsynleg. Farið verður í:
Bókhaldslykla og uppsetningu fyrirtækjabókhalds.
Fjárhagsbókhald.
Skuldunautabókhald.
Pantana- og sölunótukerfi.