Dagur - 14.10.1985, Side 5
14. október 1985 - DAGUR - 5
- En útsendingartíminn hentar sennilega ekki öllum
Vantar
almennileg
brauð
Kona úr Þorpinu hringdi og sagði
að sér gremdist það oft hversu
erfitt væri að fá keypt almenni-
legt brauð hjá KEA í Sunnuhlíð í
hádeginu.
„Bakaríið uppi er lokað í há-
deginu og oftast fæst ekkert í
kjörbúðinni nema rúgbrauð og
soðið brauð. Forráðamenn versl-
unarinnar í Sunnuhlíð hafa oft
kvartað undan því að íbúar
hverfisins versli lítið í þessari
fínu verslunarmiðstöð. Þetta
brauðahallæri í hádeginu gæti
verið næg ástæða til þess að mað-
ur beindi frekar viðskiptum sín-
um til annarra,“ sagði konan að
lokum.
_lesendahorniá
Starfsmenn RÚVAK að störfum.
Mynd: KGA.
Ég er mjög ánægð
með svæðisútvarpið
Bridgenétmskeið
Bridgenámskeiö á vegum Bridgefélags
Akureyrar hefst fimmtudaginn 17. október
kl. 19.30 í Gagnfræðaskóla Akureyrar.
Kennari verður Magnús Aðalbjörnsson.
Innritunar- og upplýsingasími er 23351.
Bridgefélag Akureyrar.
Björn Sigurðsson • Baldursbrekku 7 • Símar41534 ■ Sérleyfisferðir •
Hópferðir ■ Sætaferðir • Vöruflutningar
Húsavík - Reynihlíð - Laugar - Akureyri
VETRARÁÆTLUN 1985-86
S M Þ M Fl FÖ
FráReynihlíð kl. ★ 08.00
Frá Laugum kl. 09.00
Frá Húsavík kl. 18.00 09.00 09.00 09.00
FráAkureyri kl. 21.00 16.00 16.00 17.00
Frá Akureyri í Laugar og Mývatnssveit kl. 17.00
L
* Vöruflutningab. á þriðjud. Brottför um kl. 15.00
frá Ríkisskip Akureyri.
Farþegar frá Mývatnssveit og Reykjadal eru sérstaklega hvattir
til að panta fyrir brottför á Hótel Reynihlíð sími 22170 eða hjá
Flugleiðum Húsavík sími 41140.
Afgreiðsla Húsavíkur: Flugleiðir, Stóragarði 7,
s. 96-41140 og 41292.
Farþegaafgr. Akureyrar: Öndvegi hf., Hafnarstr. 82,
s. 96-24442 og 22908.
Öll vörumóttaka Akureyri: Ríkisskip v/Sjávargötu s. 96-23936.
ATH. Vörur sem flytja á frá Akureyri þurfa að berast tímanlega.
Sérleyfishafi.
Bóndakona í Firðinum hringdi:
Undanfarna daga hef ég séð
nokkur lesendabréf í Degi og að
mig minnir í fleiri blöðum, varð-
andi svæðisútvarpið okkar hér
nyrðra. Það hefur verið sam-
merkt með þessum bréfum, að
bréfritarar hafa fundið svæðisút-
varpinu flest til foráttu.
Astæðan virðist mér sú, að
ráðamenn útvarpsins ákváðu út-
sendingartíma útvarpsins frá 5—61
á daginn. Þar með falla út ákveðn-
ir þættir á Rás 2. Þetta hefur farið
í taugarnar á bréfriturum, sem
mér virðist að séu að meirihluta
ungt fólk. Fyrir vikið er svæðisút-
varpið dæmt óalandi og óferj-
andi.
Þetta finnst mér ósanngjörn
gagnrýni, því að efnislega finnst
mér margt gott í svæðisútvarp-
inu. Stjórnendum þess tekst með
einhverjum hætti að komast „nær
okkur“ hér á svæðinu, með því
að færa okkur fréttir af því mann-
lífi sem hér þrífst. Þetta hefur
fallið í góðan jarðveg, þannig að
það liggur við verkfalli á mínu
heimili á meðan útsendingar
svæðisútvarpsins standa yfir. Og
ég veit að frá mörgum öðrum
heimilum í minni sveit er svipaða
sögu að segja. Að vísu má benda
á smávægilega hnökra við vinnslu
þessara þátta, en þeir skrifast á
byrjunarerfiðleika og þeir eru
svo smávægilegir, að kostirnir
kaffæra þá.
Hitt skal viðurkennt, að tíma-
setningin orkar tvímælis. Hún
hentar mér og mínum að vísu
bærilega, en ég get vel ímyndað
mér að fólk sem hættir vinnu um
kl. 5, og á þá eftir að versla og
koma sér heim, eigi í erfiðleikum
með að hlusta á svæðisútvarpið.
Auk þess er unga fólkið orðið
„rótgróið" við Rás 2 og vill þaðan
enga mínútu missa, að því er
virðist. Þess vegna held ég að
ástæða sé til að skoða það grannt,
Dalvíkingur skrifar:
Kæra lesendahorn.
Ég vil leggja orð í belg í sam-
bandi við svæðisútvarpið. Ég er
mjög óánægður með það að því
leyti, að tíminn er mjög slæmur.
í fyrra gat ég alltaf hlustað á
svæðisútvarpið, vaknaði fyrr á
morgnana til að hlusta á morgun-
þættina og var kominn heim úr
vinnunni til að hlusta á síðdegis-
þættina. En nú get ég ekki hlust-
að og er mjög sár út af því. Svo hef
ég heyrt marga tala um að þeir
hvort ekki er hægt að finna hag-
stæðari útsendingartíma fyrir
svæðisútvarpið, þannig að allir
geti unað glaðir við sitt. Ég hef
enga „patent“ lausn, en þó held
ég að tvískipt útsending, að
morgni og kvöldi, eins og var í
fyrra, henti okkur betur. Einnig
finnst mér vel koma til álita, að
hafa útsendinguna á kvöldin og
þá jafnvel lengur en í klukku-
stund. En ég treysti ráðamönnum
RÚVAK til að finna á þessu hag-
kvæma lausn, sem fjöldinn getur
sætt sig við.
missi af Rás 2, en einmitt á þess-
um tíma eru þar góðir þættir, t.d.
Frístund, sem allir unglingar
hlusta á og hafa gott af. Þess
vegna tel ég þetta ekki gott fram-
lag RÚVAKS til árs æskunnar.
Ég held að það sé nauðsynlegt að
finna nýjan útsendingartíma fyrir
svæðisútvarpið. Svona gengur
þetta aldrei til lengdar, með stór-
an hluta fólks á móti.
Með von um úrbætur.
Einn mjög óánægður.
Rnnið nýjan útsendingar-
tíma fyrir svæðisútvarpið
Hvað finnst ykkur?
- Ég sé ekki hvaða tilgangi þessir „sneplar" þjóna
„BIaðakarl“ hringdi og vildi
koma eftirfarandi á framfæri:
Fyrst langar mig til þess að óska
ykkur á Degi til hamingju með
dagblaðið ykkar. Það var hins
vegar ekki aðalerindið, heldur
það að segja nokkur orð um hinn
ágæta útvarpsþátt Arnar Inga hjá
RÚVAK sem var á dagskrá í
sl. miðvikudag.
Þar ræddi hann við nokkra að-
ila um fjölmiðlabyltingu á Akur-
eyri og var það vel til fundið. Mér
fannst fólkið koma ágætlega fyrir
sig orði en það var ekki fyrr en al-
veg undir lok þáttarins að ég
sperrti verulega eyrun.
Ragnar Lár myndlistarmaður
ræddi þá um hinar svokölluðu
dagskrár sem gefnar eru út á Ak-
ureyri, en það eru auglýsingapés-
ar sem bornir eru í hvert hús og
troðið inn um hverja bréfalúgu,
hvort sem fólki líkar betur eða
verr. Ég er einn þeirra sem sé
ekki hvaða tilgangi þessir sneplar
þjóna, nema þá að þeir séu
gróðalind þeirra sem þá gefa út.
Ragnar sagði réttilega að
sennilega hefðu þessar dagskrár
orðið til þess að í dag koma að-
eins út tvö blöð á Akureyri en
þau voru fjögur fyrir nokkrum
árum. Þessar dagskrár undir-
bjóða auglýsingar gegn blöðun-
um, en veita enga þjónustu á
móti. Það gera blöðin tvö í bæn-
um og ég vil bara taka undir þau
orð Ragnars að auglýsendur at-
hugi sinn gang þegar þeir moka
peningum í þessa snepla, frekar
en að styðja við blöðin sem veita
okkar margs konar þjónustu og
flytja okkur fréttir. Orð Ragnars
í þessum ágæta þætti voru orð í
tíma töluð, eða hvað finnst
ykkur?
Hjól-
barðar
v nýirog
sólaðir
í miklu úrvali.
Gúmmíviðgerð
sími 21400. Óseyri 2
Véladeild
símar 22997 og 21400.
Umboðsmenn Dags
Sauðárkrókur: Sísí Steindórsdóttir. Furuhlíð 1, sími 5828.
Siglufjördur: Matthias Jóhannsson, Aðalgötu 5, sími 71489.
Blönduós: Snorri Bjarnason, Urðarbraut 20, sinii 4581.
Ólafsfjörður: Helga Jónsdóttir, Hrannarbyggð 8, sími 62308.
Hrísey: Halla Jóhannsdóttir, Norðursegi 9, sími 61728.
Dalvík: Gerður Jónsdóttir, Miðtúni, sími 61247.
Grenivík: Anna Rósa Pálmarsdóttir, sími 33112.
Húsavík: Ingibjörg Magnúsdóttir, Sólbakka 5, sími 41529
Mývatnssveit: Þuríður Snæbjörnsdóttir, sími 44173.
Kópasker: /,nna Pála Kristjánsdóttir, Boðagerði 10, sími 52128.
Raufarhöfn: 1 riðmundur H. Guðmundsson, sími 51225.