Dagur - 14.10.1985, Síða 6
6 - DAGUR - 14. október 1985
14. október 1985 - DAGUR - 7
Ámi
sigraði
Islands-
meistarann
Á laugardag fór fram á veguni Tennís- og
badmintonfélags Akureyrar opið meistara-
og A-flokksmót í badminton. Mótið hófst á
laugardag og áttu úrslit að fara fram á sunnu-
dag, en vegna þess að nokkrir af þátttakend-
um frá öðrum stöðum af landinu hættu við
þátttöku var mótið klárað á laugardag.
Þátttakendur voru aðeins frá TBA og
TBR fyrir utan einn keppanda frá Hvera-
gerði.
Til úrslita í meistaraflokki karla léku þeir
Guðmundur Adolfsson íslandsmeistari og
Árni Hallgrímsson ungur og efnilegur spilari
úr TBR og gerði Ámi sér lítið fyrir og sigraði
íslandsmeistarann eftir harða og skemmti-
lega keppni, 15:12, 11:15 og 15:12.
í A-flokki karla var einnig spennandi og
skemmtileg virðureign, en þar áttust við í
úrslitum þeir Krístinn Jónsson úr TBA og
Ármann Þorvaldsson úr TBR og sigraði
Ármann eftir harða keppni 5:15, 15:7 og
18:16.
í A-flokki kvenna sigraði Bima Petersen
TBR Guðrúnu Erlendsdóttur TBA 11:1 og
11:2.
í A-flokki kvenna tvíliðaleik sigruðu Jako-
bína Reynisdóttir og Guðríin Erlendsdóttir
TBA þær Birnu Petersen TBR og Þuríði
Gísladóttur frá Hveragerði 15:12 og 15:12.
í tvenndarleik A-flokki sigruðu Ármann
Þorvaldsson og Birna Petersen TBR þau
Jakobínu Reynisdóttur og Kristinn Jónsson
TBA 15:4 og 15:10 í úrslitum.
í tvíliðaleik karla A-flokki sigruðu í úrslit-
um þeir Ármann Þorvaldsson og Guðmund-
ur Bjarnason TBR þá Girísh Hirliker og
Kristinn Jónsson TBÁ 15:4 og 15:0.
Og ioks era úrslit úr meistaraflokki karla
tvíliðaleik en þar áttust við sunnanmenn,
þeir Ámi Hallgrímsson og Snorrí Ingvarsson
gegn þeim Guðmundi Adolfssyni og Sigfúsi
Ægi Arnasyni allir frá TBR og sigruðu þeir
Ámi og Snorri 15:6 og 15:9.
Það var athyglisvert að það var yfirleitt
sama fólkið í úrslitum og tafði það mótið
mikið. Kannski er ástæðan sú hversu margir
þátttakendur hættu við þátttöku í þessu
móti, en það gaf stig til landsliðs.
íþróttÍL
Umsjón: Kristján Kristjánsson
Á laugardag tapaði KA fyrir
Fram í 1. deild íslandsmótsins í
handknattleik með 18 mörkum
gegn 20.
Leikurinn var Iítið fyrir
auðgað og mikið sást af mis-
tökum vegna taugaveiklunar
að því er virtist. Sérstaklega
var þetta áberandi hjá KA-lið-
inu og liðsmenn þess geta eng-
um nema sjálfum sér um kennt
hvernig fór. Þegar Iiðið mis-
notar fjöldann allan af góðum
færum í hraðaupphlaupum er
ekki von á góðu.
KA-menn byrjuðu leikinn af
krafti og komust í 3:2 með mörk-
um frá Guðmundi Jóni og Þor-
leifi. Eftir það hvorki gekk né rak
hjá liðunum og KA-menn mis-
notuðu tvö vítaköst með örstuttu
millibili. Staðan hélst óbreytt
fram á 16. mínútu, en þá tóku
Framarar góðan sprett og komust
í 5:3 og hélst sá munur út fyrri
hálfleik.
Staðan í leikhléi 9:7 fyrir
Fram. í seinni hálfleik héls þessi
munur fyrstu 10 mínúturnar, en
þá skora Framarar 3 mörk á með-
an KA skorar aðeins 1 og staðan
breyttist úr 13:11 í 16:12. Tæpar
15 mínútur til leiksloka og KA-
menn 4 mörkum undir. En þá
tóku norðanmenn sig heldur bet-
ur á ög skoruðu 3 mörk í röð,
fyrst Jón svo Þorleifur og loks
Erlingur. Munurinn aðeins 1
mark og 6 mínútur til leiksloka.
En það var eins og KA-menn
væru búnir eftir þennan sprett,
því Framarar skoruðu næstu 2
mörk og komust í 19:16. Á þess-
um tíma voru Framarar einum
fleiri þar sem Jóni hafði verið vís-
að af leikvelli fyrir að gefa dóm-
aranum illt auga.
Þegar liðið var svo fullskipað á
ný minnkaði Erlingur muninn í
19:17 og fengu KA-menn tæki-
færi til þess að minnka muninn í 1
mark, en Jens markvörður Fram-
ara varði glæsilega þrisvar í röð.
Þegar 20 sekúndur voru til leiks-
loka skoruðu Framarar 20. mark
sitt og Þorleifur skoraði 18. mark
KA, þegar aðeins nokkrar sek-
úndur vour eftir af leiktímanum.
KA-liðið spilaði ágætlega á
köflum í þessum leik og margar
fallegar fléttur gengu upp hjá
því. Línuspilið var með ágætum
og voru þeir Sigurður og Jón iðn-
astir við það. Það sem fór úr-
skeiðis í þessum leik var nýting
dauðafæra, því KA-menn ýmist
brenndu af eða létu verja frá sér
jafnt úr hraðaupphlaupum sem af
línu. Auk þess einungis 1 víta-
kast af 4 nýtt.
Bestir í liði KA voru Sigurður
sem átti fallegar línusendingar,
Jón og svo Sigmar sem varði 14
skot og auk þess 1 víti. Logi var
sprækur en var einstaklega
óheppinn með skot sín.
Lið Framara er ekkert
sérstakt. í því eru stórir og sterk-
ir strákar, en lítið fer fyrir fínu
spili. Langbestur Framara var
Jens markvörður en hann varði
19 skot. Þá voru Agnar og Ragn-
ar þokkalegir. Framarar voru
reknir útaf í 8 mínútur en KA-
menn í 6.
Mörk KA: Jón 5, Guðmundur
4, Þorleifur 3, Sigurður 3, Erhng-
ur 2 og Pétur 1.
Mörk Fram: Agnar 5, Ragnar
5, Egill 3, Hermann 2, Jón Arni,
Dagur, Andres og Tryggvi 1
mark hver. AE/Reykjavík.
Sigmar varði mjög vel í báðum leikjunum.
Mynd: GK.
Þessir ungu KA-menn verða í baráttunni úm næstu helgi.
Erhngur Kristjánsson skoraði grimmt fyrir sunnan um helgina.
Mynd: KGA.
Dómarahneyksli í Laugardalshöll
þegar KR vann KA í 1. deild
Staðan í 1. deild íslandsmóts-
íns i handknattleik eftir Ieiki
helgarinnar er þessi:
FH-Stjaman 19:28
Fram-KA 20:18
KR-KA 22:21
Valur-Víkingur 21:17
Valur 5 5 0 0 113:99 10
Víkingur 6 5 0 1 138:112 10
Stjarnan 6 3 1 2 141:123 7
Frara 6 3 0 3 129:132 6
KR 6 2 1 3 132:135 5
KA 6 2 0 4 121:127 4
FH 6 2 0 4 140:150 4
Þróttur 5 0 0 5 110:142 0
Haust-
mót
HKRA
- yngri flokka
Sunnudaginn 20. október
fer fram í íþróttahöUinni
haustmót yngri flokka í
handknattleik á vegum
Handknattleiksráðs Akur-
eyrar og hefst það kl. 10.30.
Leikið verður með a, b og c
lið í 6. og 5. flokki, a og b lið
í 4. flokki og a lið í 3. flokki.
Mótið hefst eins og áður
sagði kl. 10.30 með leik 6.
flokks c, síðan kl. 11 spila b lið
sama flokks og kl. 11.30 spila
a liðin í 6. flokki.
5. flokur c spilar kl. 12, 5.
flokkur b kl. 12.40 og 5. flokk-
ur a kl. 13.20.
Kl. 14 spila b lið 4. flokks og
kl. 14.40 a lið 4. flokks.
Síðasta leik mótsins spila
svo a lið 3. flokks og hefst
hann kl. 15.20.
Eru foreldrar, forráðamenn
þessara upprennandi hand-
boltastjarna svo og allir
áhugamenn um handbolta
hvattir til að mæta í Höllina á
sunnudaginn kemur.
Það voru dómarar leiksins þeir
Guðmundur Kolbeinsson og
Þorgeir Pálsson sem voru í
aðalhlutverkum í þessum leik.
Þeir dæmdu aUs 19 vítaköst og
ráku leikmenn útaf 11 sinnum.
Undir lokin kórónuðu þeir svo
frammistöðuna er þeir dæmdu
KA-mönnum hornkast þegar
áttu réttílega að fá vítakast.
í fyrri hálfleik var jafnræði
með liðunum og þau skiptust á
um að hafa forystu. Fyrst komust
KA-menn í 2:0 með mörkum frá
Erlingi og Loga. Erlingur skoraði
svo næstu 4 mörk KA þar af tvö
úr vítum sem Logi fiskaði og
staðan þá orðin 6:6 þar sem KR-
ingar höfðu á sama tíma skorað 5
mörk. Þá skoruðu Sigurður og
Þorleifur sitt hvort markið og
komu KA í 8:6, en KR-ingar
svöruðu með þremur mörkum í
röð. Guðmundur jafnaði 9:9, en
KR-ingar áttu síðasta orðið í
fyrri hálfleik. Staðan í hálfleik
10:9.
Fyrstu 9 mínútur seinni hálf-
leiks lifðu án þess að KA-mönn-
um tækist að skora márk og á
þessum tíma gekk allt á afturfót-
unum hjá þeim. KR-ingar skor-
uðu hins vegar 4 mörk á sama og
komust í 14:9. Það var svo loks
Sigurður Pálsson sem lyfti sér
upp á 9. mínútu og_skoraði gull-
fallegt mark. KR-ingar svöruðu
með tveimur mörkum og komust
í 16:10 og tæpar 20 mínútur til
leiksloka. Þá fóru KA-menn loks
að spila almennilega og skoruðu á
stuttum tíma 8 mörk á móti 2
mörkum KR-inga, flest úr hraða-
upphlaupum.
Þegar 7 mínútur voru til leiks-
loka var staðan jöfn 18:18 og allt
á suðupunkti. KR-ingar komust
síðan í 20:18 en Erlingur minnk-
aði muninn í 20:19. KR-ingar
bættu við 21. markinu þegar 5
mínútur voru eftir til leiksloka.
Enn minnkaði Erlingur muninn í
21:20 og rúmar 3 mínútur til
leiksloka. KR-ingar hófu sókn en
misstu knöttinn, en Pétur átti
ótímabært skot í þverslá og KR-
ingar skoruðu 22:20. KA-menn
minnkuðu muninn þegar rúmlega
hálf mínúta var eftir af leiknum.
KR-ingar hófu sókn en KA-
menn náðu knettinum með því
að spila maður á mann og brun-
uðu í hraðaupphlaup þegar um
10 sekúndur voru eftir. Boltinn
var gefinn á Þorleif sem sveif inní
teiginn en einn KR-ingur skutláði
sér á eftir honum og sló boltann
úr hendi hans. Og viti menn!
dómararnir dæmdu hornkast
þegar 3 sekúndur voru eftir af
leiktímanum. KA-mönnum tókst
ekki að nýta sér þann tíma og
töpuðu því ieiknum 22:21.
KA-liðið var mjög köflótt í
þessum leik, átti góða spretti en
datt algjörlega niður þess á milli.
Slæmur kafli í upphafi seinni
hálfleiks gerði útslagið og þrátt
fyrir stórgóðan kafla þegar liðið
var að vinna upp forskot KR-inga
urðu leikmennirnir að bíta í það
súra epli að tapa þessum leik
vegna slæmrar dómgæslu. Bestir
í liðinu voru Erlingur, Sigmar
Um helgina fóru fram á Húna
völlum í Húnavatnssýslu tveir
leikir í 2. deild karla í körfu-
bolta. Á föstudagskvöld áttust
við lið USAH sem nú sendir
lið í fyrsta sinn í keppnina og
lið Skallagríms úr Borgarnesi.
Og fóra leikar þannig að
Skallagrímur sigraði naumlega
með 74 stigum gegn 63 stigum
USAH-manna.
Leikurinn var jafn í fyrri hálf-
sem varði 12 skot þar af 4 víti og
Þorleifur. Þá átti Logi mjög góð-
an fyrri hálfleik.
KR-liðið er ekki gott og sókn-
arleikur þess er mjög lélegur en
vörnin nokkuð sterk. Ólafur Lár-
usson og Haukur Geirmundsson
voru bestir KR-inga.
Dómararnir voru slakir og
leik og staðan í hálfleik var eins
stigs munur Skallagrím í vil. En í
seinni hálfleik var Skallagrímur
yfirleitt með forystu frá 2 upp í 8
stig en í lokin skildu 11 stig og
Skallagrímur sigraði 74:63 eins
og áður sagði.
Það sem réði baggamuninn var
stærðarmunur liðanna og hirtu
Skallagrímsmenn svo til öll
fráköst, en þeir voru með tvo vel
stóra menn í sínum röðum.
dæmdu KR-ingum 13 vítaköst og
KA-mönnum 6.
Mörk KA: Erlingur 8(5), Þor-
leifur 4, Logi 3, Sigurður 2, Guð-
mundur 2 og Pétur 2.
Mörk KR: Ólafur Lárusson
10(5), Haukur Geirmundsson
5(3), Haukur Ottesen 2 og aðrir
minna. AE/Reykjavík.
Daginn eftir eða á laugardegin-
um léku síðan lið Tindastóls og
Skallagríms í sömu deild.
Leikurinn var jafn og spenn-
andi og jafnt á öllum tölum. Og
að loknum venjulegum leiktíma
var jafnt og eftir framlengingu
stóð Tindastóll uppi sem sigur-
vegari, þeir skoruðu 80 stig gegn
77 stigum Skallagríms.
Þannig að þeir voru sendir
heim með eitt tap á bakinu.
Körfubolti:
Tindastóll sigraði
eftir framlengingu
on IIQAI4 tonoAi
- en USAH tapaði
Mistök á mistök ofan
þegar Fram vann KA
Knatt-
spymu
úrslit
Úrslit leikja í 1. og 2. deild
ensku knattspymunnar um
helgina urðu þessi:
1. deild
Aston Villa-Nottm.Forrest 1:2 2
Chelsea-Everton 2:1 1
Ipswich-Newcastle 2:2 x
Leicester-W.B.A. 2:2 x
Liverpool-Southampton 1:0 1
Man.United-Q.P.R. 2:0
Oxford-Luton 1:1 x
Sheff.Wed-Coverntry 2:2 x
Tottenham-Birmingham Fr. 1
Watford-Man.Cit) 3:2 1
West Ham-Arsenal 0:0
2.deild
Bradford-Barnsley 2:0
Carlisle-Nonvich 0:4
C.Palace-Oldham 3:2 1
Grimsby-Sheff.United 0:1 2
Leeds-Middlesbro 1:0
Millvall-Blackbum 0:1
Portsmouth-Charlton 1:0
Shrewsbury-HuddersÐeld 3:0
Stoke-Bríghton 1:1 x
Sunderland-Hull City 1:1
Wimbledon-Fulham 1:0
STAÐAN
1. deild
Man.United 12 111 0 30:4 34
Liverpool 12 732 27:13 24
Chelsea 12 732 17:11 24
Arsenal 12 633 15:12 21
Sheff.Wed. 12 633 19:20 21
Everton 12 624 21:14 20
Watford 12 6 1 5 26:21 19
Newcastle 12 543 20:18 19
Q.P.R. 12 606 15:17 18
Tottenham 11 5 2 4 23:13 17
West Ham 12 453 19:15 17
Birmingham 11 5 1 5 10:16 16
Nottm.Forest 12 516 18:19 16
Luton 12 363 15:16 15
Coventry 12 354 18:16 14
Aston Villa 12 354 16:15 14
Southampton 12 255 13:14 11
Oxford 13 2 5 6 18:26 11
Leicester 13 2 5 6 14:27 11
Man.City 12 2 3 7 12:22 9
Ipswich 12 228 7:20 8
W.B.A. 12 039 10:34 3
STAÐAN
2. deild
Portsmouth 12 92 1 23:6 29
Blackburn 12 723 17:10 24
Oldham 12 723 21:14 23
Wimbledon 12 723 12:10 23
Bríghton 12 633 20:11 21
Charlton 11 623 18:13 20
Norwich 12 534 21:15 18
C.Palace 12 5 3 4 18:17 18
Sheff.United 12 4 5 3 16:15 17
Huddersf. 12 4 53 11:13 17
Leeds 12 4 4 4 15:13 16
Bamsley 12 444 11:10 16
Hull City 12 3 5 4 18:17 14
Fulham 11 4 1 6 10:12 13
Bradford 10 406 13:16 12
Stoke Gty 12 2 64 13:16 12
Miliwall ' 11 3 2 6 13:16 11
Grimsby 12 2 5 5 14:16 11
Mrddlesbr. 11 2 4 5 4:11 10
Shrewsbury 12 2 4 6 15:19 10
Sunderland 11 236 9:18 9
Chariisle 11 128 8:29 5