Dagur - 14.10.1985, Qupperneq 8
8 - DAGUR - 14. október 1985
Vírinn slitnaði
Það er óhætt að segja að það
hafí verið hópur eftir-
væntingarfullra manna sem
hélt frá Grenivík sl. föstu-
dagsmorgun á flóabátnum
Drangi og bátnum Óskari frá
Grenivík. Það átti að reyna
að ná 12 tonna bát af hafs-
botni út af Hvannadalsbjargi.
Bátinn fórst þar á síðasta ári
og liggur á 130 metra dýpi.
Fyrir hálfum mánuði tókst
Heiðari Baldvinssyni eiganda
bátsins og félögum hans að
koma vír um bátinn sem heitir
Þórunn. Var það mikið afrek en
tók ekki langan tíma. Einn af
þeim sem aðstoðuðu Heiðar við
það verk var Hreinn Gíslason
frá Grenivík og sagði hann í
spjalli við Dag að þeir hefðu
kastað 1.5 tommu vír í kring um
þann stað þar sem Þórunn ligg-
ur og síðan hefði verið hert að.
Þegar báturinn var síðan
skoðaður í neðansjávarmynda-
vél kom í ljós að kastið hafði
heppnast fullkomlega, Þórunn
var komin „í bönd“ og næsta
stig var að freista þess að hífa
bátinn upp.
Það var sem sagt ætlunin þeg-
ar lagt var úr höfn á Grenivík sl.
föstudag og átti Dagur þess kost
að vera viðtaddur þennan
merkilega atburð, en skipi hef-
ur ekki verið náð upp af þessu
dýpi hér við land. Þess má geta
hér til gamans að þegar þyrla
Landhelgisgæslunnar var hífð
upp í Jökulfjörðum, var hún á
um 80 metra dýpi.
Menn reyndu að dylja spenn-
una á útleið og um borð í
Drangi útbjó Gunnar Jónsson
matsveinn stórgóða máltíð.
Menn gleyptu í sig og sífellt
nálgaðist sá staður þar sem Þór-
unn er. Þegar þangað kom sást
hnísa ein mikil bylta sér rétt við
baujurnar þar sem báturinn var.
Drangur lagðist að baujunum,
það var krækt í þær og síðan var
byrjað að hífa.
Þetta voru spennandi augna-
blik og Heiðar Baldvinsson var
í námunda á bát sínum Óskari
og fylgdist með af áhuga og
sennilega hefur enginn verið
jafn spenntur og hann.
Þegar híft hafði verið í um 15
mínútur fór skyndilega að
þyngjast drátturinn. „Nú fer
hann að lyftast" hrópuðu menn
og spennan leyndi sér ekki.
Skyldi vírinn halda? Menn
höfðu nefnilega rætt það á út-
leiðinni að hætta væri á að vír-
inn væri of grannur, hann þyrfti
að vera af sverleika 2.5 tommur
en ekki 1.5 tomma eins og stað-
reyndin var. Og skyndilega gaf
vírinn sig. Menn bölvuðu upp-
hátt og í hljóði, enda von. Þetta
hafði litið svo vel út, það mun-
aði svo litlu að afrek væri unnið.
Heiðar eigandi Þórunnar
bölvaði hressilega í talstöðina,
en tók þessu annars með miklu
jafnaðargeði. Hann sagðist ekki
vera búinn að ákveða það hvort
hann myndi reyna aftur, enda
er hér um fjárfrekt fyrirtæki að
ræða. En þeir Grenvíkingar
hafa sýnt að það er góður
möguleiki að ná bátunum upp,
sennilega er sverari vír allt sem
þarf auk viljans.
Menn voru því ekki eins glað-
beittir á landleiðinni þótt þeir
reyndu að taka ósigrinum með
jafnaðargeði. Áhöfn Drangs
sem er skipuð þeim Hákoni fs-
akssyni skipstjóra, Gunnari
Jónssyni, Ebeneser Bárðarsyni
og Guðmundi Júlíussyni hafði
staðið sig með mikilli prýði,
sömuleiðis aðrir leiðangurs-
menn, en því miður hafðist
þetta ekki í þetta skiptið hvað
sem síðar verður. gk-.
Bátur Hreiðars Baldvinssonar, Óskar, var aldrei skammt undan. Óskar er í stýrishúsinu.
í brúnni á Drangi á útleið. Hrcinn Gíslason, Gunnar Jónsson og Hákon
Isaksson skipstjóri.
Áhöfnin á Drangi að störfum við spilið.
Myndir: gk-. Komið að baujunum þar sem Þórunn var undir.
Guðlaugur Arason, mágur Hreiðars, með vírendann eftir að slitnaði.