Dagur - 14.10.1985, Page 9
Jjækuc
14. okfóber 1985 - DAGUR - 9
Meö nokkrum orðum langar mig
að vekja athygli foreldra,
kennara og annarra, sem áhuga
hafa á börnum og bókum, á að nú
á dögunum komu út hjá Skjald-
borg á Akureyri nokkrar bækur.
Bækur þessar henta sérstaklega
hæglæsum börnum á aldrinum 7-
9 ára.
Talið er að 15-20% allra barna
og unglinga eigi í einhverjum
erfiðleikum með lestur. Lestrar-
örðugleikar eru ein algengasta
fötlun sem til er. Við sem unnið
höfum með hæglæs börn vitum
að mikill skortur er á bókum sem
henta þeim. Léttlestrarbækur
þurfa að hæfa þroska barnsins.
Bækumar heita:
Þjófarnir og svínslærið.
Dagur í lífi Busa.
Þrír Tommar og api sá fjórði.
Sámur, Hámur og Glámur.
Lína.
Litli grái maðurinn.
Anna Dóra Antonsdóttir
þýddi bækurnar úr dönsku.
Letur bókanna þarf að vera
greinilegt, setningar stuttar og
bókin þarf að vera vel mynd-
skreytt og spennandi aflestrar.
Æskilegt er að lítið lesmál sé á
hverri síðu. Þá kemst barnið
hraðar yfir. Það að geta lokið við
eina bók er mikill sigur fyrir hæg-
læst barn. Líklega em til u.þ.b.
_orð í belg.
Afsökunarbeiðni til
hinna háæruverðugu
Kristín
Aðalsteinsdóttir
skrifar
20 bækur sem uppfylla þessi skil-
yrði. Það munar því mikið um
þessar 6 bækur sem nú hafa kom-
ið út.
Skjaldborg hefur áður gefið út
léttlestrarbókina Óli og Geirí eft-
ir Indriða Úlfsson. Hún hentar
vel hæglæsum bömum á aldrin-
um 11-13 ára.
Börn þurfa mikið á bókum að
halda í dag, jafnvel meira en
áður fyrr. Börn taka sífellt á móti
upplýsingum í gegnum hina ýmsu
miðla en samband þeirra við full-
orðna fer minnkandi af ýmsum
ástæðum. Þetta er alvarleg
þróun. Börn þurfa sjálf að hugsa,
skapa og mynda tengsl við full-
orðna. Við þurfum því að gefa
bömum tækifæri til þessa, t.d.
með því að velja fyrir þau góðar
bækur til lestrar, lesa fyrir þau og
tala við þau. Það er okkar að
vekja áhuga barnanna.
Að boði móður sinnar hefur
undirritaður fallist á að láta af að
nota uppnefni og aðrar niðrandi
nafngiftir um vini hennar og sam-
borgara sem og utanbæjarfólk
sjái hinn sami sér ástæðu til þess
að ýfast á opinberum vettvangi.
Er það krafa þeirrar ágætu konu
að undirritaður biðjist afsökunar
á niðrandi nafngiftum í áðurrit-
uðu svo að illur hugur fái ei ætlað
að orðavalið sé ættað úr föður-
garði undirritaðs, samkvæmt
kenningunni um eplið og eikina.
Er það beiðni þeirrar orðvöru og
hrekklausu konu í síðbúinni til-
raun hennar til uppeldis sonar
síns að hann noti kurteisislegt
orðaval, finni hann sig knúinn til
að gera athugasemdir við líðandi
stund. Vil ég sem „hlýðinn og
góður“ sonur verða við þessum
umleitunum og bið hér með alla
þá sem tekið hafa til sín illmælgi
mína afsökunar og einnig bið ég
foreldra mína afsökunar vegna
hinna illu hugsana sem ætluðu að
skrif mín væru ættuð annars stað-
ar en úr mínu eigin brjósti. Heiti
ég því hér með að brúka ei fram-
ar stóryrði né illmælgi og vonast
með því eftir fyrirgefningu þeirra
sem ég hef á móti gert.
Hinu lofa ég engu um að þykj-
ast láta vel líka með þegjandi
þögninni vinnubrögð þeirra sem
falast hafa eftir trausti til að fara
með umboð annarra á opinber-
um vettvangi og ekki reynst
traustsins verðir.
Nú þegar vetur gengur í garð
er kvíði í mörgum þó ekki þurfi
að koma til sá hrollur sem fylgir
þeim pólitíska vetri sem hér hef-
ur geisað fulllengi. A meðan
veisluborðin svigna hér fyrir vest-
an okkur með Blönduvirkjun, al-
þjóðaflugvelli og nýjum fyrir-
tækjum hefur okkar mönnum
tekist að afþakka þann eina
brauðmola sem okkur var ætlað-
ur. Höfum við efni á að hafa í
forsvari fyrir okkur þá rómant-
ísku byggðasafnsunnendur sem
telja það helgispjöll að hrófla við
eyfirskri mold til annarra hluta
en til offramleiðslu á landbúnað-
arvöru? Ef íbúar kjördæmisins
eru skuldfærðir eins og aðrir
þjóðfélagsþegnar fyrir erlendum
skuldum þá er það sanngirnis-
krafa að við fáum að stofna til
hluta þeirra skulda í sama mæli
og aðrir. En þær hetjur sem nú
ríða um héruð og vísitera telja
sig hafa gildar ástæður fyrir að-
gerðaleysi sínu í tertuslagnum.
Það eru eflaust fleiri en þeir sem
láta sig það engu skipta hver
framvinda verður í uppbyggingu
norðlenskra byggða jafnvel þó
Akureyri verði gerð að minja-
safni.
Lögfræðingur einn hér á Akur-
eyri mótmælti því að atvinnu-
ástandið á staðnum væri bágbor-
ið, það væri meira en nóg að gera
fyrir alla ef helvítis ræflarnir
nenntu að vinna. (Sjálfur hefur
hann nóg að gera í uppboðunum
og við að selja félagasamtökum
utan af landi orlofsíbúðir á spott-
prís.) Hann kvartaði undan því
hvað erfitt væri að fá iðnaðar-
menn en flest vitum við reyndar
hvað varð um þá.
Gagnvart því að nóg sé að gera
fyrir alla er vandinn sá að það
hefur enginn efni á þeim störfum
sem í boði eru. Vinnan er nefni-
lega flestum lifibrauð en ekki
hugsjón. Framboð á vinnu er
enginn mælikvarði á gott at-
vinnuástand þegar skuldasöfnun
fylgir þeim störfum sem í boði
eru. Þess vegna finnst manni það
ósköp hógvær krafa að þeir aðilar
sem troða sér fram til þess að
taka þátt í tertuslagnum fyrir
okkar hönd gleymi okkur ekki í
taumlausri keppni um að seðja
sitt eigið hungur þarna syðra.
Það geta verið hrópandi and-
stæður að vilja vel og að gera vel.
Enginn efast um hlýjan hug sem
þingmenn kjördæmisins bera til
byggðarlagsins en við lifum ekki
á hugarfari þeirra einu saman. Á
meðan allur þingheimur virðist
standa einhuga að nauðsyn þess
að Akureyri veiti Reykjavíkur-
svæðinu heiðarlegt mótvægi þá
standa okkar menn eins og klett-
ur gegn slíkum hugmyndum. Þeir
vilja ef til vill vernda okkur gegn
spilltum móral samborgara sinna
þarna syðra meðan þeir horfa
rómantískum augum gegnum lit-
að gler til grasigróinna heima-
slóðanna. En því miður hafa þeir
tapað tengslum við vinnuveitend-
ur sína eftir áralanga búsetu
þarna syðra og svo virðist sem
þeir telji lífshamingju okkar
fólgna í því einu að þeir birtist
hér endrum og eins og hefji upp
raustir sínar með ávörpum eins
og: Sælir eru þeir sem bíða, trúa
og treysta á okkur því þeir munu
mannlaus og ómenguð byggðar-
lög erfa. Sælir eru þeir sem eru
með allt undir hamrinum því það
eru líka uppboð hér syðra. Sælir
eru þeir sem þreyja þorrann og
góuna því þeir munu helling af
þorrum og góum þreyja fá. En
við vitum hins vegar að sælir eru
þeir sem ætla okkur þetta hlut-
skipti en búa í sælunni syðra.
Bernharð Steingrímsson.
Súkkulaðiverksmiðjuna Lindu hf. vantar
nokkrar stúlkur
til vinnu strax fram að jóium.
Reglusemi og heilbrigði skilyrði.
Sími 22800 frá kl. 9-19.
Tvo vana
flatningsmenn
eða menn vana fiskvinnslu vantar nú þegar.
Mikil vinna framundan. Upplýsingar í síma 61712
á daginn og 61748 á kvöldin.
Borg hf. Hrísey.
Stýrimann vantar
á 70 tonna bát sem er á togveiðum. Upplýsingar
í síma 97-5610.
$ SAMBANDISLENZKRA SAMVINNUFÉLAGA
Iðnaðardeild - Akureyri
Óskum að ráða
tölvuritara
allan daginn.
Góð vélritunar- og enskukunnátta æskileg svo og
starfsreynsla í tölvuritun.
Umsóknarfrestur er til 25. október nk.
Upplýsingar hjá starfsmannastjóra sími 21900
(220-222).
Glerárgata 28 Pósthólf 606 Sími (96)21900
1—1 1 ' ............................■
Kjördæmisþing
framsóknarmanna í Norðurlandskjördæmi eystra
verður haldið á Akureyri dagana 1 .-2. nóv. nk.
Félög eru hvött til að kjósa fulltrúa á kjördæmisþing
hið allra fyrsta.
Nánar auglýst síðar.
Stjórn K.F.N.E.
Híisvíkingar -
Þingeyingar
Dagur hefur fastráðið starfsmann á Húsavík. Það er Ingibjörg
Magnúsdóttir, sem auk blaðamannsstarfa mun sjá um dreif-
ingu og auglýsingamóttöku fyrir blaðið.
Við hvetjum lesendur blaðsins til að hafa samband við Ingi-
björgu varðandi ábendingar um fréttir og efnisval.
Einnig bendum við lesendum á, að Ingibjörg tekur á móti smá
auglýsingum og tilkynningum í dagbók, t.d. varðandi stór-
afmæli og dánarfregnir (mynd má fylgja) svo eitthvað sé
nefnt. Sú þjónusta er lesendum að kostnaðarlausu.
Ingibjörg hefur aðsetur í Garðarsbraut 5, II hæð, sími 41225.
Fastur skrifstofutími kl. 9-11, en er auk þess við á skrifstof-
unni á öðrum tímum.
Heima: Sólbrekka 5, sími 41529.