Dagur - 14.10.1985, Side 11
14. október 1985 - DAGUR - 11
Minning:
Rannveig Guðný Pétursdóttir
Fædd 4. apríl 1936 - Dáin 29. seplember 1985
Hún Agga er dáin. Það er varla
hægt að trúa því að hún Agga
systir okkar sé dáin, ekki nema
49 ára gömul.
Hún sem var svo hress og kát
fyrir þremur mánuðum, en þá
kom í ljós sjúkdómur sá sem
leiddi hana til dauða á svo
skömmum tíma.
Rannveig Guðný Pétursdóttir,
eins og hún hét fullu nafni, fædd-
ist 4. apríl 1936 á Akureyri. Eftir-
lifandi manni sínum, Guðlaugi
Gíslasyni, kynntist hún 17 ára
gömul og fluttust þau suður til
Reykjavíkur og hófu búskap í
Vallargerði 8. Þau eignuðust tvö
mannvænleg börn, Kristjönu, f.
1955 og Gísla Viðar, f. 1960. Síð-
ar fékk hún þrjú lítil barnabörn,
sem voru henni afar kær, þó sér-
staklega Rannveig litla, sem öll-
um stundum vildi vera hjá ömmu
sinni. Sakna börnin hennar nú
sárt. Á stundum sem þessari
hrannast minningarnar upp hjá
okkur systkinunum þegar við
vorum öll í foreldrahúsum heima
á Akureyri. Oft var glatt á hjalla
í Eiðsvallagötunni meðan for-
eldrar okkar lifðu. Þau létust
með suttu millibili fyrir allnokkr-
um árum og vitum við að þau
hafa tekið vel á móti elsku systur
okkar núna. Agga og Bói, eins og
Guðlaugur var oftast kallaður,
bjuggu sér fagurt heimili í Vall-
argerði og vitnaði þar allt um frá-
bæran smekk hennar og natni.
Að endingu viljum við þakka
eiginmanni Oggu og börnum fyr-
ir frábæra umönnun í veikindum
hennar og biðjum við góðan guð
að gefa þeim styrk í þeirra miklu
sorg.
Far þú í friði, friður guðs þig
blessi, hafðu þökk fyrir allt og
allt- Systkini.
Bókasafnavika hefst í dag
Samtök almenningsbókavarða
hafa ákveðið að helga vikuna
14.-20. október kynningu á
starfsemi bókasafnanna. Munu
söfnin hvert í sínu umdæmi
reyna að vekja athygli á starf-
semi sinni á einn eða annan
hátt.
En er ástæða til að kynna starf-
semi bókasafnanna? mun eflaust
einhver spyrja. Pví er óhætt að
svara játandi. Það gerist margt
annað á bókasöfnunum en bein
bókalán.
Sú þjónusta sem Amtsbóka-
safnið á Akureyri býður hefur ef
til vill ekki verið nægilega kynnt
öllum almenningi. Það er alls
ekki víst að allir þeir sem sækja
safnið reglulega, til að fá léðar
bækur, hafi komið á lestrarsalinn
á efri hæðinni. Það er langt því
frá að salurinn sé fyrir einhverja
lærða og útvalda og allur al-
menningur hafi ekkert þangað að
sækja.
Á lestarsalnum er hægt að sitja
og lesa í ró og næði - lesa innlend
og erlend tímarit, eldri blöð og
bækur, sem ekki fást lánaðar út.
Þar eru einnig handbækur ýmiss
konar, listaverkabækur, orða-i
bækur og margt fleira.
Skólanemar kjósa gjarnan að
vinna heimaverkefni sín á lestar-
salnum og hagnýta handbækur
sem þar finnast.
Þeir sem áhuga hafa á ættfræði
og öðru grúski hafa mikið til
safnsins að sækja. Þar er að finna
gömul manntöl, prestsþjónustu-
bækur og ættfræðibækur.
Ef fólk hefur áhuga á að fá
léða einhverja tiltekna bók er
ekki nauðsynlegt að gera sér ferð
- eða ferðir - til þess eins að
spyrja um hana. Það má nota
símann og sé bókin ekki tiltæk í
augnablikinu má í mörgum til-
fellum panta hana, gegn vægu
gjaldi.
Þjónusta við blinda og sjón-
skerta. Amtsbókasafnið hefur
ætíð dálítinn stofn bóka á snæld-
um - hljóðbækur frá Blindra-
bókasafni íslands, eru þær ein-
göngu ætlaðar þeim sem ekki
geta lesið venjulegar bækur sök-
um sjóndepru eða annarrar
fötlunar. Því miður er bókakost-
ur þessi mjög takmarkaður en fer
þó smám saman vaxandi.
Svo skal ekki síst nefna sögu-
stundir fyrir börn, þær eru fyrst
og fremst sniðnar við hæfi þriggja
til sex ára barna en að sjálfsögðu
er öllum heimilt að hlýða á sögu-
lesturinn.
Sögustundirnar eru á laugar-
dögum kl. 10.30 mánuðina októ-
ber-apríl. Mörgum finnst þægi-
legt að sækja bókasafnið á laug-
ardagsmorgnum og þá getur unga
fóikið hlýtt á sögulestur á meðan
mamma, pabbi eða eldri systkin
velja sér bækur í næði eða líta í
blað eða bók.
Engar vanskilasektir
í bókasafnavikunni
Eins og fyrr er getið er bóka-
safnavika áformuð 14.-20. októ-
ber. Mjög er misjafnt hvað bóka-
söfnin ætla að gera í því tilefni,
en eitt munu þó allflest söfnin
sameinast um. Það verða engar
vanskilasektir innheimtar þessa
viku.
Er nú upplagt tækifæri fyrir þá
sem eru í vanskilum við Amts-
bókasafnið að gera skil, sér að
kostnaðarlausu. Starfsfólk safns-
ins mun taka við öllum gömlum
vanskilabókum með þakklæti og
bros á vör.
Tvær bókasýningar hafa verið
settar upp á Iestrarsal Amtsbóka-
safnsins. Er önnur helguð Eiríki
Sigurðssyni rithöfundi og fyrrum
skólastjóra, en hin Sigurbirni
Sveinssyni hinum ástsæla barna-
bókahöfundi, en báðir þessir
mætu höfundar eiga afmælisdag í
bókasafnavikunni.
Menningarstofnun Bandaríkj-
anna hefur komið á fót dálitlu
farandbókasafni nútímabók-
mennta frá Bandaríkjunum.
Þetta safn, sem gengið hefur milli
bókasafna hér á landi, er nýkom-
ið til Amtsbókasafnsins og verð-
ur sett fram til afnota þessa dag-
ana. Safnið verður hér til ára-
móta.
Hér hefur verið drepið á nokk-
uð af því sem fram fer á bóka-
safninu en það ættu sem flestir að
leggja leið sína þangað og sjá
hvort þeir finna þar ekki eitthvað
við sitt hæfi.
Sjón er sögu ríkari, sjáumst á
safninu, það er opið mánudaga til
föstudaga kl. 13-19 og á laugar-
dögum yfir vetrarmánuðina kl.
10-15.
-----------------------------------
Tilboðsverð á
smáauglýsingum
í tilefni þess aö Dagur kemur nú út daglega
bjóöum við smáauglýsingar í Degi á aöeins
kr. 100.00 gegn staðgreiðslu. Tilboð þetta
gildir út októbermánuð.
wmm
Strandgötu 31,
Auglýsingamóttaka frá kl. 8-12 og 13-17.
Framsóknarfélag Akureyrar
Bæjarmálafundur veröur haldinn mánudaginn 14.
október kl. 8.30 e.h. að Eiðsvallagötu 6.
Fulltrúar í nefndum eru sérstaklega hvattir til að
mæta.
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á Grænumýri 20, Akureyri, þingiesin eign
Yngva Loftssonar, fer fram eftir kröfu innheimtumanns ríkis-
sjóðs, Gunnars Sólnes hri„ Hreins Pálssonar hdl., Hákonar
Árnasonar hdl., Ólafs Gústafssonar hdl., Guðmundar Óla
Guðmundssonar hdl., Helga V. Jónssonar hrl., Benedikts
Ólafssonar hdl., Ásgeirs Thoroddsen hdl. og Steingríms
Þormóðssonar hdl. á eigninni sjálfri föstudaginn 18. okfóber
1985 kl. 14.15.
Bæjarfógetinn á Akureyri.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 95., 99. og 102. tbl. Lögbirtingablaðsins
1985 á fasteigninni Ásabyggð 4, austurenda, Akureyri, talin
eign Auðar Ólafsdóttur o.fl., fer fram eftir kröfu Ólafs B. Árna-
sonar hdl. á eigninni sjálfri föstudaginn 18. október 1985 kl.
17.15.
Bæjarfógetinn á Akureyri.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 23., 40. og 45. tbl. Lögbirtingablaðsins 1985
á fasteigninni Borgarsíðu 21, Akureyri, talin eign Sigmundar
H. Jakobssonar, fer fram eftir kröfu bæjargjaldkerans á Akur-
eyri á eigninni sjálfri föstudaginn 18. október 1985 kl. 13.45.
Bæjarfógetinn á Akureyri.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 64., 66. og 68. tbl. Lögbirtingablaðsins 1982
á fasteigninni Álfabyggð 6, Akureyri, þingl. eign Friðriks
Steingrímssonar, fer fram eftir kröfu Tryggingastofnunar rikis-
ins, Steingríms Þormóðssonar hdl. og veðdeildar Landsbanka
íslands á eigninni sjálfri föstudaginn 18. október 1985 kl.
14.45.
Bæjarfógetinn á Akureyri.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 64., 66. og 68. tbl. Lögbirtingablaðsins 1982
á fasteigninni Mánahlíð 3, Akureyri, þingl. eign Árna Magnús-
sonar o.fl., fer fram eftir kröfu Gunnars Sólnes hrl. og bæjar-
gjaldkerans á Akureyri á eigninni sjálfri föstudaginn 18. októ-
ber 1985 kl. 17.00.
Bæjarfógetinn á Akureyri.
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á Eyrarlandsvegi 29, Akureyri,- þinglesin
eign Dúa Björnssonar, fer fram eftir kröfu Gunnars Sólnes hrl.
á eigninni sjálfri föstudaginn 18. október 1985 kl. 16.00.
Bæjarfógetinn á Akureyri.
Ritstjórn
Auglýsingar
Afgreiösla
Sími (96) 24222