Dagur - 14.10.1985, Qupperneq 12
Akureyri, mánudagur 14. október 1985
RAFGEYMAR viðhaldsvfEl2rétt
í BÍLINN, BÁTINN, VINNUVÉLINA MERKI
CM
CM
■
CD
o>
</)
Fyrsli í rjúpu
á morgun
Þá er hann að renna upp, dag-
urinn þegar menn mega byrja
rjúpnaveiðar. Á morgun er
heimilt að byrja veiðarnar.
Stendur veiðitíminn fram und-
ir jól.
Bóndinn
slökkti í
bílnum
Um tvöleytið í gærdag valt
fólksbfll við bæinn Syðri-Skál í
Kinn. Ók bfllinn útaf og valt
fjórar veltur. Við það kviknaði
í bflnum.
Bóndinn að Syðri-Skál varð vitni
að veltunni og greip með sér
slökkvitæki og tókst að ráða
niðurlögum eldsins. Að sögn lög-
reglunnar á Húsavík, sem var
tilkvödd, var mesta mildi að ekki
urðu slys á fólki. Þrír voru í bíln-
um og var ökumaður í bílbelti.
Bifreiðin er gjörónýt. -mþþ
Að sögn manna sem hafa verið
að kanna aðstæður með því að
fara til fjalla í þeim tilgangi að at-
huga veiðimöguleikana, var tölu-
vert af fugli fram að fyrstu
snjóum. Þá hvarf hann.
Að sögn Ævars Petersen fugla-
fræðings hjá Náttúrufræðistofnun
íslands virðist sem stofninn sé á
uppleið. Búast má við því að
hann nái hámarki á næsta ári, ef
marka má þær kenningar sem
uppi eru varðandi sveiflur í stofn-
inum. Þar segir að rjúpnastofn-
inn nái hámarki þegar ártal endar
á tölustafnum 6. Ævar sagði að
árin 1956 og 1966 hafi verið mjög
mikið um rjúpu. Einnig segðu
gamlir menn sem myndu árið
1926, að það ár hafi verið óhemju
mikið af rjúpu. „Svo fer það eftir
veðurfari og hegðan rjúpunnar
hvort menn ná henni,“ sagði
Ævar.
Hjá versluninni Eyfjörð sem er
einn stærsti seljandi skotvopna á
Akureyri fengust þau svör að
menn væru farnir að kaupa
„pakka og pakka af skotum“,
eins og Einar Long verslunar-
stjóri sagði í stuttu samtali. Hann
sagði að rnenn væru sammála um
að mikið væri af rjúpu í ár. - gej
I OFTt^
f ÍLA
[ ** *Jm
1 f m * ..M* jjl- * J
Busavígsla
fór fram í MA á föstudaginn, nýnemar voru tolleraðir og slettir skyri. Um
það sáu ófrýnilegar verur - 4. bekkingar í dulargervi. Síðan var gengið fylktu
liði um miðbæinn. Mynd: KGA.
Löðnulöndun:
leystist
„Það má segja að við höfum
mæst á miðri leið,“ sagði
Sverrir Leósson formaður Ut-
vegsmanna á Norðurlandi er
Dagur innti hann álits á nýrri
tilhögun um hvernig sýni skuli
tekin úr löðnuförmum.
Sjómenn komu sér saman um
að landa ekki á Krossanesi og á
Siglufirði fyrir síðustu helgi
vegna þess að þær bræðsluverk-
smiðjur höfðu ákveðið að taka
sýni úr loðnuförmum eftir
löndun, en ekki um borð í
skipunum við bryggju.
Verðlagsráð sjávarútvegsins
kom saman sl. föstudag og var þá
samþykkt að frá og með 20. októ-
ber muni sýni verða tekin í hverri
lest fiskiskips tvisvar á meðan á
löndun stendur á þrennskonar
mismunandi dýpi, jafnframt
verður haldið áfram að taka sýni
við skipshlið. Greitt verður fyrir
loðnuna sem meðaltal þessara
sýna. Talið er að með þessu móti
fáist nákvæmari mynd af ástandi
loðnunnar, en óneitanlega er
þessi aðferð bæði tímafrekari og
flóknari. „Við munum gera kröf-
ur til þess að sýni verði tekin um
borð í skipunum og við munum
fylgja því stíft eftir,“ sagði Sverr-
ir Leósson. „Þetta er spurning
um sanngirni, aflinn er seldur
þegar hann fer frá borði og þá
gerum við þá kröfu að hann verði
metinn þegar hann fer frá borði.
Það verður okkar krafa við næstu
verðlagningu, en það er um ára-
mótin.“ - mþþ
Landssamtök afurðastöðva í mjólkuriðnaði:
Skipuleggja hver
framleiðir hvað
Húsavík:
Skóflustunga tekin að
nýrri sýsluskrifstofu
Á finimtudag tók Siguröur
Gizurarson sýslumaður fyrstu
skóflustungu aö húsi, þar sem
í framtíðinni verða sýsluskrif-
stofur og lögreglustöð. Húsið
verður tæplega 900 fm og á
tveim hæðum.
Fyrsta áfanga byggingarinn-
ar, sem eru sökklar og plata á
að skila í jan. af verktaka, sem
er Norðurvík hf.
Á næsta ári er meiningin að
húsið verði gert fokhelt og von-
ast er til að hægt verði að taka
bygginguna í notkun eftir tvö til
þrjú ár.
Húsið mun standa við Auð-
brekku og verður aðkoma að
sýsluskrifstofu á efri hæð húss-
ins frá þeirri götu. En lögreglu-
stöðin verður á neðri hæðinni
og verður aðkoman að henni frá
nýrri götu sem nefnast mun Út-
garður. IM
Mánudaginn 7. október voru
stofnuð í Reykjavík, Lands-
samtök afurðastöðva í mjólk-
uriðnaði. Markmið þessara
samtaka er að koma fram fyrir
hönd mjólkursamlaganna við
framkvæmd nýrra laga um
framleiðslu, verðlagningu og
sölu á búvörum.
Helsta hlutverk þessara sam-
taka er að: „. . . gera samkomu-
lag um verkaskiptingu á milli
mjólkursamlaga að því er varðar
framleiðslu einstakra mjólkur-
vara með tilliti til heildarafkomu
framleiðslugreinarinnar og hags-
muna mjólkurframleiðenda og
neytenda," eins og segir í ofan-
greindum lögum. Einnig sjá þessi
samtök um að skipa tvo menn í 5
manna nefnd sem ákveður heild-
söluverð á mjólkurvörum. Að
þessu sinni voru þeir Magnús
Gauti Gautason og Vilhelm
Andersen skipaðir í þá nefnd.
í stjórn Landssamtaka afurða-
stöðva í mjólkuriðnaði voru þess-
ir menn kjörnir: Grétar Símonar-
son mjólkurbússtjóri á Selfossi,
Guðlaugur Björgvinsson fram-
kvæmdastjóri Mjólkursamsöl-
unnar, Þórólfur Sveinsson bóndi
á Ferjubakka, Brynjólfur Svan-
bergsson mjólkurbússtjóri á
Hvammstanga, Þorsteinn Sveins-
son kaupfélagsstjóri á Egilsstöð-
um, Jóhannes Geir Sigurgeirsson
bóndi á Öngulsstöðum í Eyjafirði
og Óskar Gunnarsson fram-
kvæmdastjóri Osta- og smjörsöl-
unnar.
Fyrir þessari stjórn liggur það
Sfldarverksmiðjur ríkisins á
Raufarhöfn hafa tekið á móti
rúml. 28 þús. tonnum af loðnu
síðan 3. ágúst.
Það hefur verið svo til stans-
laus bræðsla á þessu tímabili og
gengið vel að sögn Árna Sörens-
sonar verksmiðjustjóra. „Það er
langt síðan það hefur komið
loðna á þessum tíma árs, og að-
eins einu sinni áður hefur verið
byrjað svona snemma á loðnu-
verkefni að skipuleggja verka-
skiptingu mjólkurstöðva á land-
inu og verður það áreiðanlega
ekki létt verk þar sem gífuriegir
hagsmunir eru í húfi. T.d. má
nefna að heildarvelta Mjólkur-
samlags KEA verður líklega á
bilinu milli 650-700 milljónir
króna á þessu ári, að sögn Jó-
hannesar Geirs Sigurgeirssonar.
-yk.
bræðslu. í fyrra fengum við enga
loðnu fyrr en síðast í október.
Svo það er mikið betri útkoma á
þessu núna,“ segir Árni.
36 manns vinna að bræðslunni.
Auk þess er vélaverkstæði fyrir
bræðsluna í byggingu og skapar
það fleirum atvinnu. Hráefnið
sem bræðslunni hefur borist hef-
ur verið ágætt. Framleidd hafa
veriö 5 þús. tonn af lýsi og 4.400
tonn af mjöli. IM.
Raufarhöfn:
Loðnubræðsla gengur vel
28 þúsund tonnum landað síðan í ágústbyrjun