Dagur - 29.10.1985, Síða 5

Dagur - 29.10.1985, Síða 5
lesendahornið. 29. október 1985 - DAGUR - 5 Auðveld rjúpnaveiði Hraðahindranir á Norðurgötuna Konur mætið í reglubundna krabbameinsleit Á fundi er undirritaðar héldu fyrir skömmu spunnust töluverðar um- ræður um krabbamein og Leitarstöð Krabbameinsfélagsins en um ágæti þeirrar stofnunar vita allir og störf þeirra er þar vinna eru ómetanleg, þar sem barist er við þann ógnvald sem sjúkdómurinn er. Viljum við fundarkonur skora á allar konur, að mæta í hinar reglu- bundnu skoðanir er okkur standa til boða, þarna höfum við forréttindi til að berjast fyrir heilbrigði og lífgjöf, og það er engin afsökun til fyrir því að nota ekki þá aðstöðu. Allar höf- um við spurnir af, eða þekkjum af eigin reynslu þær hörmungar er af sjúkdómnum leiða ef ekki er tekið fyrir í tíma og því er bæði furðulegt og sorglegt til þess að vita að enn vantar mikið á, að allar konur mæti er kvaddar eru til skoðunar. í fram- haldi af þessu vaknaði sú spurning, hvort fyrirhugað væri að taka í notk- un hér á Akureyri, tæki til nákvæm- ari leitar á brjóstakrabbameini? Þar eð sú brjóstaskoðun sem nú er fram- kvæmd er ekki talin nógu örugg. Þarna er verðugt verkefni fyrir kon- ur að sameinast um og fylgja eftir, því þarna er svo sannarlega um brýnt málefni að ræða. Og vonum við að nú láti fleiri konur til sín heyra um þessi mál. Lifið heilar. Kvenfélagið Gleym mér ei, Glæsibæjarhreppi. Flestir Akureyringar kannast við Norðurgötuna. Hún er ekki upp- byggð sem umferðargata, en þó er mikil umferð um hana, og hraðinn oft mikill. Þar af leiðandi er hún orðin hættuleg gangandi fólki, og þá sérstaklega börnum. Nemendur í Oddeyrarskóla þurfa margir hverjir yfir götuna á leið í skólann eða á ferð um hverfið. Sérstaklega margir fara yfir hana til að fara í Hagkaup. Á Eyrinni eru mörg börn eins og annars staðar og þau eru mikið við götuna, sérstaklega sunnan við Eyrarveg, t.d. við Fjólugötu og Eiðsvöllinn. Þetta þýðir að öll Norðurgatan er hættusvæði fyrir gangandi vegfarendur. Tillaga okkar er að setja upp hraða- hindranir og helst gangbrautir. Og staðsetja þær þá eftir þörfum fólksins sem vill brenna við að ekki sé gert. Þess má líka geta að syðst í Norðurgötunni er gatan mjög þröng, þar er oft lagt bílum báðum megin götunnar og því næstum ófært að þar mætist tveir bílar, þar eru einnig gangstéttir mjög slæmar. Hraðatakmarkanir (,,bump“) og sebrabrautir eru bráðnauðsynlegar í Norðurgöt- una, og ef útlit er fyrir að góða veðrið haldist væri best að úrbæt- urnar yrðu gerðar fyrir veturinn. Margar gangstéttir voru malbik- aðar á Oddeyrinni nú í haust og er það lofsvert framtak, en Norðurgatan bíður! Tvær Eyrarrósir. Rjúpnaskytta skrifar. Sl. laugardag fór ég til rjúpna í Hlíðarfjalli ofan Akureyrar. Mjög gott veður var, logn og stilla, og hugsaði ég mér gott til veiða í Fjallinu fyrir ofan skíða- hótelið. Eg gekk sem leið liggur upp í svokallaðan Stromp. Þar var reytingur af rjúpu, en hún var stygg og náði ég fáum. Síðan færði ég mig norður fyrir hrygg einn er nefndur er Mannshrygg- ur. Þar er stór og viðamikil skál með miklu lausagrjóti, hrauni og smágróðurtoppum. Eftir mikið príl og brölt og eftir að hafa út- hellt mörgum svitadropum hafði ég náð í 13 rjúpur. Ég gekk vand- lega frá þeim við stóran stein, breiddi veiðistakkinn minn yfir og bar grjót að. Skyldi nú halda norður á Moldhaugnaháls, upp undir Hnjúk, og leita þar fanga. Þar var lítið að hafa, en þegar ég hafði náð 7 rjúpum hélt ég til baka að steininum góða. En þeg- ar þangað kom brá mér í brún, því allar rjúpurnar voru horfnar, en veiðistakkurinn var eftir, enda gamall og slitinn. Tveir ónefndir menn voru í skálinni auk mín. Heyrði ég mörg skot frá þeim, en lítill mun árangur þeirra hafa orðið. Það hefur því ef til vill verið freist- andi, að auka við veiðina með skjótfengnum rjúpum undan steini. Síðar um daginn sáust þessir menn á mikilli ferð að skíðahótelinu, en þar áttu þeir bíl sinn. Nú þætti mér vænt um, að þeir ágætu veiðimenn sem tóku rjúp- urnar mínar, skili þeim til mín aftur. Mun ég þá að sjálfsögðu þakka þeim fyrir burðinn á þeim úr Fjallinu. SK0DA120 LS Á AÐEINS KR. 209.900 Okkur tókst það sem Dönum hefur ekki tekist, að fá lúxusgerðina af Skoda 120 LS er sérlega hentugur, fjölskyldubíll, búinn hagkvæm- Skoda á frábæri afsláttarverði. Þar með skutum við þeim ref fyrir um eiginleikum. Getum einnig afgreitt Skoda 120 L á sérlega hag- rass. stæðu verði kr. 189.000,- og Skoda 105 S. Verð kr, 168.000,-. ALLT ÞETTA FÆRÐU í SKODA 120 LS: vél 1200 cc m5. 58 din hö • 55 amperstunda alternator Allt aö 1700 I farangursrými • Fellanleg sætisbök afturí • Halogen framljós €> Þokuljós að aftan • Læst bensín- lok • spegill aö utan h/v • Rafmagnsrúöusprautur • Barna- læsingar í afturhurðum • Ceymslu- hólf v/gírstöng • Öskubakkar í afturhuröum • Lúxus hljóð- einangrun • Aflhemlar • Tann- stangarstýri • Afturrúöuhitari • 2ja hraöa miöstöö • Vindskeið („spoiler") aö framan og aftan # Sportfelgur • Snúningsmælir Hert öryggisgler • Piussáklæöi á sætum • Aövörunarljós f. bensín # Stillanlegir höfuöpúöar • Feröa- mælir („Dailv trip recorder") • Styrktargrind í farþegarými • Hallanleg sætisbök á framstólum • Sjálfstæö gormafjöðrun viö hvert hjól • Lungamjúkir radiai hjól- baröar (165 SR13)® ÞÚ CETUR MEIRA AÐ SECJA SOFIÐ í HONUM. Hægt er aö leggja sætisbökin niöur og skapast þá ágætis svefnaöstaöa. KOMDU, SKOÐAÐU OG SKELLTU ÞÉR í PRUFU- AKSTUR. 1700 LÍTRA FARANGURSRÝMI. Meö því aö leggja aftursætið fram myndast mjög gott farangurs- rými. SKÁLAFELL SF Draupnisgötu 4 Akureyri Sími 22255

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.