Dagur - 19.11.1985, Side 1
68. árgangur Akureyri, þriðjudagur 19. nóvember 1985 145. tölublað
Filman þín
áskiliðþaö
besta!
FILMUHUSIÐ
Hafnarstræti 106- Sími 22771 • Pósthólf 198
gæðaframköllun
Filman inn fyrir
kl. 10.45.
Myndirnar tilbúnar
kl. 16.30.
Opið á
laugardögum
frá kl. 9-12.
Hjalteyri:
Tveir
bátar
sukku
við
biyggju
I óveðrinu á sunnudag sukku
tveir smábátar við bryggju á
Hjalteyri. í samtali við Dag
sagði eigandi annars bátsins
Jón Jónsson að ekki hefði ver-
ið hægt að koma í veg fyrir
óhappið vegna veðurs.
Ég varð að horfa á þetta úr
fjarlægð, en bátarnir fóru niður í
þremur öldum, þeir voru bundnir
hlið við hlið og fóru báðir í einu.
Það gekk yfir bryggjuna og ofan f
bátana hinum megin og þeir
þurftu ekki meira. Bátarnir eru
lítið sem ekkert skemmdir, við
ætlum að reyna að ná þeim upp í
dag og þá kemur það betur í ljós.
Þá fóru tveir gámar af stað sem
stóðu hérna á bryggjunni, að vísu
náðum við að binda annan gám-
inn því annars hefði hann lent
ofan í bátunum tveimur sem
sukku,“ sagði Jón.
Þá myndaðist stórt skarð í
garðinn sem liggur út á bryggjuna
og sagði Jón að grjótið í garðin-
um væri allt of smátt, það hyrfi í
hafið þegar vel gæfi. KK
S.R. Siglufirði:
Dýrar
rafmagns-
truflanir
Það getur verið kostnaðarsamt
fyrir sum fyrirtæki ef rafmagn
fer fyrirvaralaust af. Það hafa
þeir m.a. fengið að reyna hjá
Sfldarverksmiðju ríkisins á
Siglufirði.
Rafmagnið fór af á sunnudags-
kvöldið vegna óveðursins sem
þá gekk yfir landið og þó að raf-
magn kæmist fljótlega á aftur var
loðnubræðslan ekki komin í éðli-
legt horf fyrr en seinnipartinn í
gær.
Mörg skip lágu inni á Siglufirði
vegna brælu í gær. Dagur innti
einn skipstjórann, Ögmund
Magnússon á Gullberginu, eftir
því hvernig veiðarnar gengju.
Hann sagði að þær gengju vel
þegar ekki væri bræla og eru þeir
núna farnir að fá loðnu austur af
Kolbeinsey, 7 tíma siglingu frá
Siglufirði. -yk.
Skemmdirnar á varnargarðinum á Hjalteyri. Eins og sjá má er hafnargarðurinn mikið skemmdur. Einnig sést í möstur annars bátsins sem sökk í höfninni
og þar fyrir ofan er minni gámurinn sem nærri var farinn í sjóinn yfir bátinn. - Á innfelldu myndinni er Jón Jónsson. Mynd: KGA.
Lögbann a vatnstöku
Raufarhafnarhrepps?
Þorsteinn Halldórsson bóndi
á Hóli í Raufarhafnarhreppi
hefur krafist lögbanns á vatns-
töku Raufarhafnarhrepps í
landi sínu.
Hreppurinn fær allt sitt neyslu-
vatn úr landi Hóls og hefur gert í
mörg ár. Samkvæmt heimildum
Dags mun upphaflega hafa verið
gert ráð fyrir að hreppurinn fengi
vatnið endurgjaldslaust en
greiddi bætur vegna landspjalla.
Undanfarin ár hefur staðið í
stappi á milli Þorsteins og Rauf-
arhafnarhrepps því Þorsteinn vill
fá greitt fyrir vatnið sem tekið er
í landi hans. Mun hreppurinn
hafa verið fús til þess að greiða
fyrir vatnið en samt sem áður
munu samningar ekki hafa tekist.
Þorsteinn Halldórsson fór hins
vegar fram á það að lögbann yrði
sett á vatnstöku hreppsins úr
landi Hóls. Til stóð að afgreiða
málið fyrir helgina hjá sýslu-
mannsembættinu í N.-Þingeyjar-
sýslu. Af því gat ekki orðið vegna
þess að lögmenn hreppsins sem
eru á Akureyri komust ekki aust-
ur og mun eiga að afgreiða málið
í vikulokin.
Ef af lögbanninu verður, er
ljóst að það hefði geysileg áhrif
á atvinnulíf á Raufarhöfn. Öll
starfsemi frystihússins og Síldar-
verksmiðju ríkisins myndi t.d.
leggjast niður og ekkert kalt vatn
yrði í krönum Raufarhafnarbúa.
Ekki náðist í Sigurð Gizurar-
son sýslumann í gær til að fá hjá
honum upplýsingar um málið og
fulltrúi hans vissi ekkert um það.
gk--
•Ififlf
Fyrsti Kanadatogarinn í breytingum hjá Slippstöðinni
Mynd: KGA
Kanadatogararnir:
Samiö um breyt-
ingar á tveimur
í janúar
Gunnar Ragnars, forstjóri
Slippstöðvarinnar og Sigurður
Ringsted, yfirverkfræðingur,
eru nýkomnir úr ferð til Kan-
ada sem þeir fóru til þess að
mæla upp þriðja og fjórða
togarann sem samið hefur ver-
ið um að Slippstöðin breyti fyr-
ir Kanadamenn.
í samtali við Dag sagði Sigurð-
ur að líklega yrði gengið til samn-
inga um næstu tvö skip, það
fimmta og það sjötta, í janúar
nk. Ætlunin er að semja um tvö
skip í senn og virðast Kanada-
mennirnir ánægðir með þá vinnu
sem Slippstöðin hefur innt af
hendi til þessa við breytingar á
fyrsta togaranum. Reiknað er
með að breytingum á þeim fjór-
um skipum sem búið er að semja
um verði lokið um páska. -yk.