Dagur - 19.11.1985, Qupperneq 2
2 - DAGUR - 19. nóvember 1985
ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
SKRIFSTOFUR:
STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI
S(MI: 24222
ÁSKRIFT KR. 360 Á MÁNUÐI
LAUSASÖLUVERÐ 35 KR.
RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAÐUR:
HERMANN SVEINBJÖRNSSON
RITSTJÓRNARFULLTRÚI:
GlSLI SIGURGEIRSSON
FRÉTTASTJÓRI:
GYLFI KRISTJÁNSSON
BLAÐAMENN:
ÁSLAUG MAGNÚSDÓTTIR, BRAGI V. BERGMANN,
GESTUR E. JÓNASSON, INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík),
YNGVI KJARTANSSON, KRISTJÁN G. ARNGRÍMSSON,
KRISTJÁN KRISTJÁNSSON, MARGRÉT P. ÞÓRSDÓTIR,
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRlMANN FRÍMANNSSON
ÚTBREIÐSLUSTJÓRI:
HAFDÍS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASlMI 25165
FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON
PRENTUN: DAGSPRENT HF.
UeiðarL
Sölumenn dauðans
Mikil umræða hefur verið í gangi hér á landi
undanfarna mánuði um fíkniefni og neyt-
endur þeirra. Nú orðið líður vart sú vika að
ekki verði uppvíst um tilraunir manna til að
koma eiturlyfjum inn í landið með einhverj-
um hætti.
Því hefur oft verið haldið fram að neyslu-
venjur íslendinga séu ekkert frábrugðnar
neysluvenjum annarra þjóða, við séum bara
einu til tveimur árum á eftir. Ótal dæmi hafa
sannað þessa fullyrðingu. Fyrir örfáum
árum var það viðkvæði almennings hér á
landi er rætt var um eiturlyf, að þau mundu
aldrei verða vandamál á íslandi. Fyrir fáum
árum voru engir heroínneytendur á íslandi.
Menn reyndu aðallega að smygla hassi til
landsins og lítið var um sterkari efni. En nú
er sem sagt öldin önnur.
Heimur eiturlyfjanna er harður heimur og
staðreyndirnar tala sínu máli. Sterkari efnin
hafa náð fótfestu á markaðinum og magnið
eykst dag frá degi. Eiturlyfin koma sjóleið-
ina til landsins. Hafnir eru margar og skipin
mun fleiri og augljóst að ómögulegt er að
stemma stigu við streyminu. í umræðunni
hefur því verið haldið fram að áætla megi að
það magn sem náist sé u.þ.b. 10% af því
magni sem er í umferð hverju sinni. Og þótt
það væri 50% af heildarmagninu er ljóst að
eiturlyfjavandamálið er tröllvaxið og stækk-
ar með ofurhraða.
Hér verða stjórnvöld að grípa í taumana
og það með eftirminnilegum og áhrifaríkum
hætti. Vænlegast er að þyngja refsingar við
eiturlyfjasmygli til mikilla muna. Eins og
staðan er í dag eru refsingarnar hjákátlegar.
í Malaysíu eru eiturlyfjasmyglarar sendir í
gálgann ef þeir finnast með meira en 15
grömm af heroíni í fórum sínum. Dauðarefs-
ing er ekki við lýði á íslandi en hitt er ljóst
að refsa ber eiturlyfjasmyglurum eftir eðli
brotsins. Þeir sem flytja inn eiturlyf og selja,
leggja líf fjölda fólks í rúst og það með full-
um ásetningi. Þar er um morð að ræða, lífið
er murkað úr þeim sem lætur ánetjast.
Eiturlyfjasmyglarar eru fjöldamorðingjar
og ekkert annað og ættu að verða dæmdir í
samræmi við það. Það er löngu kominn tími
til að breyta refsilöggjöfinni á þann hátt að
menn þurfi að hugsa sig lengi og vel um
áður en þeir hætta á að gerast sölumenn
dauðans.
_viðtal dagsins.
Það er engin spurning, maður-
inn er í jassi. Það er eins og
segja að einhver sé í vímu. Jass
er kannski víma á vissan hátt.
Paul Weeden talar ekki um
annað en jass og aftur jass.
Hann er einstaklega líflegur
maður og segir skemmtilega
frá. Talar svo mikið að erfitt er
að henda reiður á því öllu. Þó
skal reynt.
- Er dónaskapur að spyrja
hvenær þú byrjaðir að leika jass?
Paul Weeden hlær og segir:
„Elsku vinur, ég er búinn að spila
jass frá því að ég man eftir mér.
Spurðu mig bara ekki hvað ég sé
gamall.“
- Hvað ertu gamall?
Mikill hlátur. „Ég verð 63 í
janúar, en það er óþarfi að skrifa
það. Ef ég á að vera nákvæmur,
byrjaði ég að spila og syngja
1945. Það má segja að ég hafi
verið í „showbusiness" alla ævi.
Ég kynntist jassinum heima í
Bandaríkjunum. Ég er fæddur
þar. í Indianapolis, Indiana.
- Nú býrð þú í Noregi. Hvers
vegna?
„Ég var í Svfþjóð á árunum
1966-71, var á heimleið og ætlaði
að stoppa í Noregi í 10 daga. Ég
er þar enn. Þar á ég fjölskyldu.
Að vísu kvæntist ég konunni
minni í Svíþjóð. Hún er norsk og
við eigum einn son.“
- Hvers vegna ísland?
„Ég var beðinn að koma og
kenna hér á landi. Bæði í
Reykjavík og á Akureyri. Það
var árið 1982. Síðan hef ég komið
á hverju ári til íslands að kenna.“
- Hvernig gengur að kenna
Norðurlandabúum jass?
„Það gengur mjög vel. Það er
sagt að allir hafi jass í sér. Það sé
málið að nálgast hann og ná hon-
um út úr fólki. Jass í norðri er
góður jass.“
Paul Weeden er heimsþekktur
jássleikari og hefur spilað með
mörgum „stórum“ körlum í jass-
heiminum. Hann er engu að síð-
ur ánægður með það sem er að
gerast í jassi á Akureyri. Hann
nefnir menn eins og Edward
Frederiksen, Roar Kvam og
Gunnar Jónsson, sem mjög góða
jassleikara sem starfa hjá Tónlist-
arskólanum á Akureyri. En þar
er Weeden að kenna þessa dag-
anna. „Ég vildi gera allt til að
koma á árlegri jasshátíð á Akur-
eyri. Þið eigið þennan yndislega
garð hér uppi á hæðinni. Þar
mætti spila í góðu veðri á sumrin.
Það þarf að kynna jassinn fyrir
fólki. Unga fólkið hefur ekki heyrt
jass leikinn. Um leið og þetta
sama unga fólk hefur heyrt jass,
segir það: „Þetta vil ég læra.“ í
stað þess hlustar það á allt aðra
tónlist. Hins vegar sé ég mikla
framför hér á Akureyri. Það er
Mynd: KGA
- Paul Weeden gítarleikari í viðtali dagsins
líka gaman að finna fyrir áhugan-
um sem er hér í kringum nám-
skeiðið. Mér finnst að það þyrfti
að skipuleggja „Big-band“ hér
sem væri eingöngu skipað ungu
fólki. Þar væri góður grunnur að
framhaldi í jasstónlistinni. Svo er
eitt, fólk vill dansa eftir jasstón-
list. Sjálfur lærði ég að dansa eftir
jassi. Sumir vilja láta fólk sitja og
hlusta og jafnvel þegja. Ég vil að
allir dansi sem vilja dansa. Sjálf-
ur segi ég fólki sem er að hlusta á
mig spila, að það megi dansa ef
það vilji. Það á að vera frjáls til-
finning í jassi."
- Er mikill munur á jassi í
Bandaríkjunum og á Norður-
löndum?
„Mjög mikill fyrir nokkrum
árum. Þessi tvö afbrigði eru að
nálgast hvort annað. Það er mjög
ferskur tónn í Norðurlandajassi.
Ég þekki hann úr.“
- Hvað dvelurðu lengi á ís-
landi í þetta sinn?
„Því miður, aðeins í tvær
vikur. Það er allt of stutt.“ gej-
„Jass í norðri
er góður jass“
íj
M
O
■
M
A
N
U
o
A
Gí
U
R
PÚ ERT VELKOMINN MEÐ
I RÖÐUK MUNDI MINN,
UM LE/Ð OG ÉG EÆ VIÐ-
BÖT/LRKVÓT/INNr HJÁ
HONUM H/LLLDÓRI "■
BB.