Dagur - 19.11.1985, Side 3
19. nóvember 1985 - DAGUR - 3
Eins og fram kemur í frétt á forsíðu í dag, urðu töluverðar skemmdir á hafnarmannvirkjum á Hjalteyri í óveðrinu
um helgina. Tveir bátar sukku í höfninni og hér má sjá í möstrin á öðrum þeirra, og á myndinni til hægri grillir í
annan bátinn á kafí í höfninni. Myndir: KGA.
Námskeið í farseðlaútgáfu
og fargjaldaútreikningi
Nýlega lauk fyrsta námskeiði
sem haldið hefur verið fyrir al-
menning hér á landi í far-
gjaldaútreikningi og farseðla-
útgáfu. Ferðaskrifstofan Sam-
vinnuferðir-Landsýn stóð fyrir
þessu námskeiði. Sóttu hátt í
300 manns um að komast á
það. Sýnir það glöggt þann
mikla áhuga fólks á að vita og
læra um hluti er varða ferða-
iðnaðinn.
Úr þessum stóra hópi voru 14
valdir á þetta fyrsta námskeið, en
ákveðið er að halda annað slíkt
námskeið í janúar á næsta ári.
Það stóð yfir í 11 kvöld.
Námskeiðsstjórnandi var Auð-
ur Björnsdóttir og leiðbeinendur
Jónas Jónasson frá Flugleiðum
og Gunnar Steinn Pálsson hjá
Auglýsingaþ j ónustunni.
Tókst námskeiðið mjög vel að
áliti kennara og nemenda sjálfra.
Þeir 14 nemendur sem luku nám-
skeiðinu eru nú mun betur undir
það búnir að sækja um störf hjá
flugfélögunum og ferðaskrifstof-
unum, en þangað vantar oft fólk
til starfa með einhverja þekkingu
á farseðlaútgáfu og öðru sem
henni tilheyrir.
Leiðrétting
í fréttatilkynningu í blaðinu í
gær þar sein sagt var frá ráð-
stefnu um jafnrétti kynja og
skólastarf féll niður nafn
Skólanefndar Akureyrar sem
er einn þeirra aðila er að ráð-
stefnunni standa.
Pá var ein prentvilla í fréttatil-
kynningunni. Parsagði: „Á þess-
ari ráðstefnu verður m.a. fjaliað
um hvernig staðan er í þessum
málum í skólum landsins í dag
s.s. hvaða viðhorf birtast í náms-
leiðum skólabarna og í sjálfri
kennslunni sem stuðla að því að
viðhalda ríkjandi misrétti . . .“
í þessari setningu átti orðið
námsbókum að vera í stað orðs-
ins námsleiðum og leiðréttist
þetta hér með.
Fuglar -
Fuglaveidar
Dr. Arnór Garðarsson heldur fyrirlestur og svarar
spurningum um ofangreint efni að Hótel Varðborg
fimmtudaginn 21. nóvember kl. 20 stundvíslega.
Umræðuefni m.a. rjúpur, gæsir, helsingjar, endur.
Kanadískt skemmtispil
fer sigurför um heiminn
Allt áhugafólk um fuglaveiðar og/eða fugla
er hvatt til að nota þetta einstæða tækifæri.
Fundarstjóri verður Steinar Porsteinsson.
Skotveiðifélag Eyjafjarðar.
Spilið sem farið hefur sigurför
um heiminn að undanförnu
heitir „Trivial pursuit“ á frum-
málinu en sumir hafa viljað
kalla það „Fróðleikur um fá-
nýta hluti“ á íslensku. Það er
ekki ofsögum sagt að þetta spil
hafi slegið í gegn frá því það
kom fyrst á markaðinn í
Kanada.
Nú er spilið að hefja sigurför
sína um Evrópu og er því spáð
álíka velgengni þar og vestan-
hafs. Spilið er væntanlegt á mark-
aðinn hér á landi eftir nokkra
daga og er varla við öðru að bú-
ast en að hér geri það lukku sem
annars staðar.
Leikurinn fer fram á leik-
spjaldi og mynda reitir spjaldsins
hjól með 6 teinum og miðreitur-
inn er sexhyrndur. Leikurinn
felst í því að fara um hjólið eftir
því sem leikmaður má hverju
sinni eftir að hann hefur kastað
teningi og sigrar sá sem fyrstur er
að svara ákveðnum fjölda spurn-
inga sem lagðar eru fyrir hann á
hinum ýmsu viðkomureitum.
Spil þetta hefur það fram yfir
flest önnur svipuð afþreyingarspil
að vera um leið fræðandi. Því
fylgja 6 þúsund spurningar og
geta þeir sem spila valið sér mála-
flokk og er hægt að velja landa-
fræði, dægradvöl, sögu, bók-
menntir og listir, vísindi, íþróttir
og leiki, svo eitthvað sé nefnt.
Sem dæmi um vinsældir „Triv-
ial pursuit“ má nefna að í
Kanáda þar sem spilið er upp-
fundið seldist það í 200 þúsund
eintökum árið 1983 en þar í landi
þykir yfirleitt gott að selja um 10
þúsund spil svipaðrar tegundar.
Á undanförnum árum hefur spil-
ið farið sigurför um Norður-Am-
eríku og nú hin síðari misseri hef-
ur það selst í ótrúlegu magni í
Englandi.
Petta spil á án efa eftir að ná
miklum vinsældum hér á landi, af
ástæðum eins og þeim hversu
fræðandi það er, um leið og að
vera spennandi og aðgengilegt
fyrir alla.
AKUREYRARBÆR
Viðtalstímar
bæjarfulltrúa
Miðvikudaginn 20. nóvember 1985 kl. 20-22
verða bæjarfulltrúarnir Sigurður Jóhannesson og
Sigurður J. Sigurðsson til viðtals í fundastofu
bæjarráðs í Geislagötu 9, 2. hæð.
Bæjarstjóri.