Dagur - 19.11.1985, Page 5
19. nóvember 1985 - DAGUR - 5
_orö í belg___________
Er nokkm ábótavant
í fegrun Akureyrar?
Þeir sem eiga gamlar og góðar
endurminningar frá Akureyri, en
hafa komið þangað síðar sem
gestir og fylgst með þeim breyt-
ingum, sem þar hafa átt sér stað
á undanförnum áratugum, gleðj-
ast að sjálfsögðu yfir öllu sem til
framfara má telja, en þó ekki síst
því sem augað gleður. Má nefna
Lystigarðinn uppi á Brekkunni,
er skarar fram úr öllum hliðstæð-
um hérlendis, skógræktina sem
alls staðar blasir við, og hina
mörgu og fögru heimilisgarða.
Samt sem áður gæti þó svo bor-
ið við, að einhverjum þætti eitt-
hvað mega betur fara, ekki síður
heimamönnum en gestum. Ég vil
leyfa mér að benda á það, sem
mér finnst stinga í stúf við allt hið
ánægjulega, en það er svæðið frá
flugvellinum í átt til bæjarins.
Þarna hefur fyrir nokkru verið
lagður ágætur vegur meðfram
Sæmundur
Stefánsson
skrifar
árfarveginum og sjónum á aðra
hönd og um leið mynduð stór
tjörn á hina. Umhverfið virðist
hins vegar ekki hafa mætt neinni
hirðu né tilraun gerð til fegrunar.
Þetta stingur ónotalega í stúf
við umhverfi Brekkunnar fyrir
ofan.
Sums staðar þar sem ég hef far-
ið erlendis, og séð hliðstæðar að-
stæður og þarna er um að ræða,
t.d. tjörnina (eða öllu heldur
vatnið) við Hyde Park í London,
þar blasir að nokkru leyti við
hvað hægt væri að gera við tjarn-
arstæðið og umhverfi þess á Ak-
ureyri. Þar mætti prýða ósegjan-
lega mikið með fagurræktuðum
eyjum, þar sem fuglalífið kæmi
alveg sjálfkrafa, og mér er sagt
að silungur gangi í vatnið um
leiðslur undir veginum. Annars
staðar þarf að flytja slíkt lífríki
að, og síðan halda því við með
ærnum kostnaði. Aðstaðan þarna
er því næstum einstæð hvað þetta
snertir. Annars kæmi að sjálf-
sögðu í hlut sérfróðra manna að
hanna allt svæðið.
Ef til vill er þetta aðeins ósk-
hyggja manns, sem dvaldi ungur
um skeið á Akureyri, en sér enn
fyrir sér sólskrýddar Súlurnar.
Sæmundur Stefánsson.
Konan í list
Ásmundar Sveinssonar
Hönnuð
auglýsing
selur meira
Hendiö ekki háum fjárupphæðum
í birtingarkostnaö án þess aö
hugsa málið. Látiö gera fast
verðtilboð í hönnun hjá Delfi
delíi
DELFI AUGLÝSINGASTOFA • GEISLAGATA 5
SÍMI 25845 OG HEIMA í SÍMA 24849
Nú stendur yfir í Ásmundarsafni
við Sigtún sýning sem ber yfir-
skriftina Konan í list Ásmundar
Sveinssonar. Er sýningunni skipt
í fjórar einingar sem sýndar eru í
fjórum sölum safnsins: Kona og
karl; kona og barn; kona við
vinnu og kona sem tákn. Er hér
um að ræða myndefni sem tekur
yfir mest allan listferil Ásmundar
og birtist í fjölbreytilegum út-
færslum. í tengslum við sýning-
una hefur Ásmundarsafn gefið út
níu litprentuð kort þar sem gefur
að líta konur í myndverkum Ás-
mundar Sveinssonar.
Ásmundarsafn er opið þriðju-
dag, fimmtudag, laugardag og
sunnudag frá kl. 14—17.
Ásmundarsafn hefur nýverið
gefið út litskyggnubók um list
Ásmundar Sveinssonar. Er hér
um að ræða 36 litskyggnur af
höggmyndum eftir listamanninn
ásamt bók sem hefur að geyma
yfirlit yfir listferil Ásmundar og
ítarlega skýringartexta við hvert
verk. Ljósmyndirnar tók Kristinn
Helgason en Gunnar B. Kvaran
listfræðingur valdi myndirnar og
ritaði textann. Litskyggnubókin
er til sölu í Ásmundarsafni og
kostar 1200 kr.
Stjórn Ásmundarsafns hefur
látið steypa í brons 5 tölusett ein-
tök af verkinu Tónagyðjan (H:
43 sm) eftir Ásmund Sveinsson
frá árinu 1926.
Myndirnar eru til sýnis og sölu
í Ásmundarsafni við Sigtún.
Umboðsmenn Dags
Sauðárkrókur:
Siglufjörður:
Blönduós:
Ólafsfjörður:
Hrísey:
Dalvík:
Grenivík:
Húsavík:
Mývatnssveit:
Kópasker:
Raufarhöfn:
Sísí Steindórsdóttir, Furuhlíð 1, sími 5828.
Matthías Jóhannsson, Aðalgötu 5, sími 71489.
Snorri Bjarnason, Urðarbraut 20, sími 4581.
Helga Jónsdóttir, Hrannarbyggð 8, sími 62308.
Halla Jóhannsdóttir, Norðurvegi 9, sími 61728.
Gerður Jónsdóttir, Miðtúni, sími 61247.
Anna Rósa Pálmarsdóttir, sími 33112.
Ingibjörg Magnúsdóttir, Sólbakka 5, sími 41529
Þuríður Snæbjörnsdóttir, sími 44173.
Anna Pála Kristjánsdóttir, Boðagerði 10, sími 52128.
Friðmundur H. Guðmundsson, sími 51225.
Húsvflángar -
Þingeyingar
Dagur hefur fastráðið starfsmann á Húsavík. Það er Ingibjörg
Magnúsdóttir, sem auk blaðamannsstarfa mun sjá um dreif-
ingu og auglýsingamóttöku fyrir blaðið.
Við hvetjum lesendur blaðsins til að hafa samband við Ingi-
björgu varðandi ábendingar um fréttir og efnisval.
Einnig bendum við lesendum á, að Ingibjörg tekur á móti smá
auglýsingum og tilkynningum í dagbók, t.d. varðandi stór-
afmæli og dánarfregnir (mynd má fylgja) svo eitthvað sé
nefnt. Sú þjónusta er lesendum að kostnaðarlausu.
Ingibjörg hefur aðsetur í Garðarsbraut 5, II hæð, sími 41225.
Fastur skrifstofutími kl. 9-11, en er auk þess við á skrifstof-
unni á öðrum tímum.
Heima: Sólbrekka 5, sími 41529.