Dagur - 19.11.1985, Qupperneq 9
19. nóvember 1985 - DAGUR - 9
-JþróttÍL.
Umsjón: Kristján Kristjánsson
„íslendingar eru
gott fólk“
-
- Rudi Knapp skíðakennari í viðtali
Fyrir skömmu var staddur á
Akureyri maöur sem flestir
þekkja sem farið hafa í skíða-
ferðir til Austurríkis á undan-
förnum árum. Rudi Knapp er
maðurinn en hann hefur einnig
þjálfað íslenskt skíðafólk bæði
heima og eriendis. Rudi var
hér á vegum Flugleiða, að
kynna skíðaferðir til Mayrhof-
en í Austurríki, en þar starfar
hann sem fararstjóri og skíða-
kennari.
gegndi minni herskyldu sem er 8
mánuðir í Austurríki.
Það var síðan eftir það sem ég
kynntist íslendingum fyrst, ég
þjálfaði skíðafólk frá íslandi fyrst
úti í Austurríki og síðan á ís-
landi.“
kom til ís-
- Þjálfaðir þú skíðafólk frá
Akureyri?
„Já, en þegar ég
lands um haustið var enginn
snjór á Akureyri svo ég byrjaði
að þjálfa skíðafólk úr Ármanni
Blaðamaður Dags hitti Rudi
að máli á skrifstofu Ferðaskrif-
stofu Akureyrar og spjallaði lítil-
lega við kappann. Hann var fyrst
spurður um sín fyrstu kynni af
skíðaíþróttinni.
„Ég hreinlega man það ekki,
ég var svo ungur og man bara
ekki svo langt aftur í tímann. í
Innsbruck þar sem ég er fæddur
var ekkert annað fyrir krakka að
gera utan við skóla en að fara
upp í brekku á skíði. Og ég man
eftir því að þó ekki væri kominn
snjór snemma á haustin, þá gát-
um við þó rennt okkur niður
grasbrekkurnar fyrir hádegi á
meðan grasið var frosið, en eftir
hádegið var sólin búinn að eyði-
leggja færið þann daginn."
- Kepptir þú á skíðum?
„Aðeins sem unglingur, ég
hætti að mestu á skíðunum þegar
ég fór í framhaldsskólanám. Ég
tók próf í byggingaverkfræði og
vann eftir það í Þýskalandi í þrjú
og hálft ár, fór síðan í herinn og
Bláfjöllum. Fór síðan til Akur-
eyrar seinna um veturinn og
þjálfaði þar. Þetta var Veturinn
’83-’84. Um vorið stofnaði ég
ásamt öðrum fyrsta seglbretta-
skólann á íslandi og kenndi á
seglbretti bæði hér fyrir norðan, á
Laugarvatni og í Nauthólsvík.
Að stunda seglbrettaíþróttina er
mjög gott fyrir skíðamenn, því
þetta á vel saman, þú notar sömu
vöðvana, þetta æfir jafnvægið þú
ert einn úti í náttúrunni og er eins
og að stunda skíði, mjög hollt.
Ég fékk um 200 manns á þessi
námskeið sem ég hélt, fólk á öll-
um aldri frá 12 ára og upp í 57
ára.“
- Hvenær ferð þú síðan að
vinna hjá Flugleiðum?
,(Ég hafði samband við þá hjá
Flugleiðum um haustið eftir að
ég hætti að kenna á seglbretti og
athugaði með vinnu hjá þeim
sem fararstjóri og skíðakennari í
Austurríki. Það var auðsótt mál,
þar sem ég var farinn að tala svo-
lítið í íslensku. Ég var síðan í
1-X-2 1-X-2 1-X-2 1-X-2 1-X-2 1-X-2
Jónas sigraði
móður sína
Jónas sigraði mömmu sína naumlega um heigina með því að vera
með 4 ieiki rétta á móti 3 leikjum hennar. Inga Hrönn er því úr leik
(því miður) og þökkum við henni þátttökuna. Jónas hefur ákveðið
að snúa sér að KA-mönnum um næstu helgi og hefur hann skorað
á engan annan en hinn eitilharða KA- og Liverpoolaðdáanda
Gunnar Níelsson baðvörð, tímavörð og margt fleira. Gunnar virðist
ekki hafa mikla trú á sínum mönnum því hann spáir þeiin aðeins
jafntefli gegn Birmingham. Gunnar sagðist þó myndi „salta“ Jónas
strax um helgina. Yið sjáum til með það, hér er spá þeirra félaga.
Jónas
Gunnar
Birmingham-Liverpool 2
Coventry-West Ham x
Everton-Nottm.Forest 1
Leicester-Man.United 2
Man.City-Newcastle 1
Oxford-Ipswich 1
Sheff.Wed.-Southampton 1
Tottenham-Q.P.R. 1
Watford-Luton 1
Blackburn-Charlton x
Hull-Wimbledon 1
Sunderland-Brighton 1
Birmingham-Liverpool x
Coventry-West Ham 1
Everton-Nottm.Forest 1
Leicester-Man.United 2
Man.City-Newcastle x
Oxford-Ipswich 1
Sheff.Wed.-Southampton 1
Tottenham-Q.P.R. 1
Watford-Luton 1
Blackburn-Charlton 1
Hull-Wimbledon x
Sunderland-Brighton x
Athugið!
Fólk sem spilar í getraunum er minnt á að skila seðlunum inn fyrir
hádegi á fimmtudögum, svo enginn verði nú af vinningi.
1-X-2 1-X-2 1-X-2 1-X-2 1-X-2 1-X-2
Austurríki í fyrravetur og í sum-
ar var ég fararstjóri í Þýskalandi á
vegum Flugleiða við sumarhús og
einnig kenndi ég tennis og á
seglbretti. Það er með þetta eins
og skíðin, að þegar ég var ungur
var maður alltaf að þvælast í
kringum ferðamenn maður ólst
upp við þetta.“
- Hvernig kanntu svo við ís-
lendinga?
„Alveg frábærlega vel, ég hef
kynnst mörgu fólki um ævina frá
ýmsum löndum og ég get sagt þér
það að íslendingar eru alveg sérs-
takt fólk. Það er svo gott að
vinna fyrir þá, þeir treysta manni
100% og maður reynir að standa
sig. Ég á marga íslendinga sem
vini.“
Að lokum vildi Rudi geta þess
að hann væri að reyna að útvega
akureyrsku skíðafólki austur-
rískan skíðaþjálfara sem kæmi þá
til starfa um áramót. Þá er ungur
skíðamaður frá íslandi að fara til
Austurríkis sem þjálfari við
skíðaskóla þar á hans vegum.
Rudi er mjög fær skíðamaður.
Mynd: HS
Aðalfundur Golfklúbbs Akureyrar:
Glæsilegu afmælis-
ári er lokið
Tekjuafgangur Golfldúbbs Ak-
ureyrar á yfirstandandi ári sem
er 50. starfsár klúbbsins nam
tæplega 1200 þúsund krónum.
Þetta kom fram á aðalfundi
klúbbsins sem haldinn var sl.
föstudagskvöld. Tekjur
klúbbsins námu um 5,4 millj-
ónum króna en gjöld um 4,2
milljónum.
í skýrslu stjórnar kom fram að
ötullega hefur verið unnið að
málefnum klúbbsins. Af stór-
framkvæmdum á árinu má nefna
að viðbygging við skála klúbbsins
var vígð. Átak var gert í véla-
kaupum og mikið starfað við vall-
arframkvæmdir. Þá hélt klúbbur-
inn landsmót 1985, afmælismót
klúbbsins í ágúst, golfþing var
haldið í febrúar og áfram mætti
telja.
Á aðalfundi klúbbsins fyrir ári
kom fram að félagar voru
þá 224 talsins, en á fundinum
núna voru félagar skráðir 353.
Fjölgunin er því 129 og er það
geysigott á einu ári. í fyrsta skipti
var starfandi framkvæmdastjóri í
fullu starfi á vegunt GA auk ann-
arra starfsmanna sem voru fjöl-
margir við völlinn og störf í
skálanum. Um 50 kappleikir voru
háðir á árinu og var þátttaka í
þeim yfirleitt góð.
Á aðalfundinum var aflientur
„Stigabikar" sem gefinn var til
minningar um Jón Steinbergsson
af nokkrum félögum hans. Var
keppt um bikarinn í nokkrum
helstu mótum sumarsins og það
var Þórhallur Pálsson sem vann
bikarinn í fyrsta skipti.
Gísli Bragi Hjartarson var
endurkjörinn formaður klúbbsins
en aðrir í stjórn eru Heimir Jó-
hannsson, Jónína Pálsdóttir,
Guðjón H. Sigurðsson, Árni
Ketill Friðriksson, Patricia Jóns-
son og Bj arni Ásmundsson. gk-.
Knattspyrna:
KR-ingar fá
Argentínumenn
- í 1. deildarlið sitt
Gísli Bragi Hjartarson var endur-
kjörinn formaður GA um helgina.
Eins og flestum er kunnugt er á
haustin mikiö um mannabreyt-
ingar í knattspyrnuliðum
landsins. Hrossakaup ganga á
víxl og lið í lægri deildunum
þurfa að horfa á eftir sínum
bestu mönnum.
Ný þróun virðist vera að byrja
í þessum málum, því Dagur hef-
ur fyrir víst að tveir Argen-
tínumenn er spilað hafa með
landsliði Argentínu séu gengnir í
raðir KR-inga fyrir komandi
keppnistímabil. Þessir menn eru
í eldri kantinum en víst má telja
að þeir kunni eitthvað fyrir sér í
íþróttinni.
Ekki er að efast um að áhorf-
endur rnuni kunna vel að meta
þessa nýju leikmenn þeirra KR-
inga. Skyldi þetta verða svar fé-
laganna við því þegar þeirra
bestu menn fara t.d. í atvinnu-
mennsku. Ef svo er þá vonar um-
sjónarmaður íþróttasíðunnar að
reynt verði að fá Maradona til
að koma í Þór eftir nokkur ár.