Dagur - 19.11.1985, Side 11
19. nóvember 1985 - DAGUR - 11
Á að fóma Landsvirkjun
fyrir vanda Hitaveitunnar?
- Sigurður J. Sigurðsson flytur tillögu í bæjarstjórn Akureyrar
um að kannaðir verði möguleikar á sölu eignarhluts Akureyrarbæjar í Landsvirkjun,
til að rétta við fjárhag Hitaveitunnar
„Bæjarstjórn Akureyrar felur
bæjarráði að kanna þann
möguleika að selja sameignar-
aðilum Akureyrarbæjar í
Landsvirkjun, eða öðrum,
eignarhluta bæjarins í Lands-
virkjun. Þetta verði gert með
það í huga að fjármagn sem
bundið er í eignarhluta bæjar-
ins verði flutt til Hitaveitu Ak-
ureyrar sem eiginfjárframlag
Akureyrarbæjar í það orkufyr-
irtæki.“
Þannig hljómar tillaga, sem
Sigurður J. Sigurðsson, bæjar-
fulltrúi Sjálfstæðisflokksins, legg-
ur fram í bæjarstjórn Akureyrar í
dag. „Með þessari tillögu minni
er ég ekki að leggja til að hlutur
bæjarins í Landsvirkjun verði
seldur að óathuguðu máli, en ég
vil að bæjarráð kanni þennan
möguleika. Nú, ef hann reynist
ekki vænlegur, þá koma vonandi
fram aðrar leiðir til lausnar á
vanda Hitaveitunnar,“ sagði Sig-
urður í samtali við Dag.
í greinargerð Sigurðar með til-
lögunni kemur fram, að skuldir
Hitaveitu Akureyrar nema um
1.7 milljarði króna. Þar kemur
einnig fram, að reiknað var með
að orkukostnaður hjá veitunni
yrði um 40% af hitunarkostnaði
með olíu á árunum 1989-90, en
ljóst sé að það standist ekki, ef
ekkert verður að gert. Það þýði,
að neytendur veitunnar verði að
greiða mjög hátt orkuverð á
næstu árum. Slíkt geti haft veru-
leg áhrif á búsetuþróun, því hit-
unarkostnaður sé mun lægri í
öðrum byggðarlögum. í lok
greinargerðar sinnar segir Sig-
urður:
„Það er mitt mat að fljótvirk-
„Það er rétt
að skoða
allar tillögur“
- Rætt við Val Arnþórsson, stjórnarmann
í Landsvirkjun um tillögu
Sigurðar J. Sigurðssonar
„Eg hef ekki fengiö tækifæri
til aö kynna mér til neinnar
hlítar efni tillögu Sigurðar J.
Sigurðssonar. Bæjarstjórn
Akureyrar var fyrir fáum ár-
um einróma sammála um það
að sameina Laxárvirkjun
Landsvirkjun og kaus mig
sem sinn fulltrúa í stjórn
Landsvirkjunnar. Sigurður
hefur ekki séð ástæðu til að
ræða þetta mál við mig og því
hef ég ekki haft tækifæri til
að kynna mér það.“
Þetta sagði Valur Arnþórs-
son, stjórnarmaður í Lands-
virkjun, þegar tillaga Sigurðar
J. Sigurðssonar, um hugsanlega
sölu á eignarhlut Akureyrar-
bæjar í Landsvirkjun, var borin
undir hann. Valur var spurður
nánar um viðhorf hans til slíkra
hugmynda.
„Það má ljóst vera, að stund-
um eru menn í þeirri stöðu, að
þeir freistast til að slátra gull-
gæsunum til að ná í eggin.
Stundum eru menn í þeirri
stöðu, að þeir fórna langtíma-
hagsmunum fyrir skammtíma-
hagsmuni. Það er spurning
hvort Akureyri, höfuðborg
Norðurlands, og helsta von
dreifbýlisins til að skapa jafn-
vægi gegn höfuðborgarsvæðinu,
telji sig vera komna í það slæma
stöðu með hitaveituna, að
nauðsynlegt sé að fórna eign-
arhlutanum í Landsvirkjun.
Það munu bæjarráð og bæjar-
stjórn að sjálfsögðu athuga og
ég vil fyrir mitt leyti treysta
þeim aðilum til að meta hlutina
rétt.
Valur Arnþórssun.
Það má hins vegar ljóst vera,
að þátttaka Akureyrar í Lands-
virkjun hefur þegar verið mjög
þýðingarmikil fyrir Akureyri og
fyrir dreifbýlið og ég sé ekki
annað en að svo geti orðið til
frambúðar. Ég tel það liggja í
augum uppi, að ef Akureyri
fórnar sínum hagsmunum í
Landsvirkjun, þá eflist höfuð-
borgarsvæðið að sama skapi.
Það er bæjarráðs og bæjar-
stjórnar Akureyrar að fjalla um
þetta mál og komast að niður-
stöðu. Og eftir henni hljóta
bæjarbúar að bíða, en einnig
dreifbýlið, sem hefur litið til
Akureyrar sem forystuafls,"
sagði Valur Arnþórsson. - GS
Sigurður J. Sigurðsson.
asta og raunhæfasta leiðin til þess
að breyta þessum þætti orkumála
sé að flytja fjármuni Akureyrar-
bæjar úr Landsvirkjun í þetta
orkuöflunarfyrirtæki Akureyrar.
Þetta er skynsamleg ráðstöfun
sem ætti að ná fram að ganga
þegar á næsta ári. Bættur rekstr-
argrundvöllur Hitaveitu Akur-
eyrar myndi gera það aðlaðandi
fyrir nýja notendur að tengjast
veitunni. Það gæfi viðbótartekjur
og aukna möguleika til þess að
tryggja farsælan rekstur Hita-
veitu Akureyrar í framtíðinni.
Það er því augljóst mál að þetta
er gott fjárfestingardæmi fyrir
bæjarsjóð þegar til lengri tíma er
litið. Akvörðun um sameiningu
Laxárvirkjunar og Landsvirkjun-
ar var algjörlega óháð því hvort
Akureyrarbær yrði eignaraðili að
slíku landsfyrirtæki um alla
framtíð. Ef hægt er að nýta
fjármuni bæjarins til enn jákvæð-
ari verkefna fyrir íbúana þá er
það skylda bæjarstjórnar að leita
slíkra leiða.
A sama hátt og Akureyrarbær
réðist í byggingu raforkuvers var
ákveðið að ráðast í byggingu
hitaveitu fyrir Akureyri til þess
að nýta innlenda orku til upphit-
unar húsa. Þótt áætlanir um upp-
byggingu Hitaveitu Akureyrar
hafi ekki náð fram að ganga á all-
an hátt, þá er það augljóst mál að
hér er um fyrirtæki að ræða, sem
er þjóðhagslega hagkvæmt þegar
til lengri tíma er litið. Með þess-
ari tillögu er ekki verið að biðja
um ríkisstyrk eða neitt sambæri-
legt, einungis bent á leið til þess
að bjarga fyrirtæki sem hefur
ekki bolmagn til þess að standa
undir skuldum sínum nema með
þeirri einu leið að auka sífellt
álögur á notendur. Það er líka
ljóst að Akureyrarbær hefur ekki
möguleika á því að ráðstafa
neinum af sínunt fjármunum til
veitunnar sem breytt gæti rekstr-
argrundvelli hennar. Slík fjár-
magnstilfærsla myndi aðeins hafa
þau áhrif að draga niður aðra
þætti í bæjarrekstrinum. Bæjar-
sjóður á hiklaust að geta náð
jafngóðum arði af þessu fjár-
magni sínu sem nú er bundið í
Landsvirkjun með því að flytja
það til Hitaveitu Akureyrar."
Tvíeggjað mál
„Eignir bæjarins eru ekki óum-
breytanlegar,“ sagði Sigurður
Sigurður Jóhannesson.
Jóhannesson bæjarfulltrúa Fram-
sóknarflokksins, þegar tillaga
nafna hans Sigurðssonar var borin
undir hann. „Það má hugsa sér
sölu
á eignum eins og Krossanesverk-
smiðju, eða hlutabréfum bæjar-
ins í Slippstöðinni og Útgerðar-
félaginu, rétt eins og umrædda
sölu á hlutabréfum bæjarins í
Landsvirkjun. Þetta er alltaf
spurning um hvort við fáum
nægjanlegt endurgjald fyrir þau
verðmæti sem urn er rætt og
hvaða langtímahagsmuni við
erum að hugsa um með sölunni.
I sambandi við þessa hugmynd
nafna míns, þá verður að hafa í
huga, að raforkukaup á hvern
íbúa á Akureyri eru þau mestu
sem þekkjast á landinu. Það gerir
sá gróskumikli iðnaður, sem hér
er. Þess vegna held ég að það sé
brýnt að við höldum okkar ítök-
um í Landsvirkjun. Á meðan við
eigum þar stjórnarmann, getum
við haft áhrif á stjórn fyrirtækis-
ins, t.d. hvað varðar virkjanir og
verðlagningu raforku.
Ég get ekki séð í augnablikinu,
að aðstöðu okkar í Landsvirkjun
sé fórnandi til að létta á í rekstri
annars orkufyrirtækis. Þetta er
þó alltaf spurning um fjármagn.
Vissulega á okkar hitaveita við
erfiðleika að stríða, en það sama
á við um fleiri hitaveitur í land-
inu, sem voru byggðar á svipuð-
am tíma. Þess vegna held ég að
þarna sé um vanda að ræða, sem
þarf að leysa á breiðum grund-
velli, í samræmi við yfirlýsingar
fyrrverandi iðnaðarráðherra,“
sagði Sigurður Jóhannesson.
Dagur bar tillögu Sigurðar undir
fleiri bæjarfulltrúa. Freyr
Ófeigsson, bæjarfulltrúi Alþýðu-
flokksins sagðist sjá rök með og
á móti þessari tillögu, en hann
sagðist ekki hafa tekið afstöðu til
hennar. Hins vegar sagði hann
fulla ástæðu til að skoða hana
grannt.
„Það er ekki hægt að taka af-
stöðu til þessarar tillögu, nema
að vel athuguðu máli. Það eru
líka rök fyrir því, að Akureyri er
aðili að Landsvirkjun, því okkar
fulltrúi er eini fulltrúi lands-
byggðarinnar í þeirri stjórn. Ef
við seljurn okkar hluta erum við
þar með að afhenda stjórn virkj-
unarinnar algerlega til Reykja-
víkurborgar og rfkjsins. Og þó
við séum litlir þar, þá getum við
haít veruleg áhrif á stjórn Lands-
Sigríður Stefánsdóttir.
Freyr Ófeigsson.
Valgerður Bjarnadóttir.
virkjunar, ef við viljum," sagði
Freyr.
Sigríður Stefánsdóttir, bæjar-
fulltrúi Alþýðubandalagsins, tók
í sama streng og Freyr. Ég hef
ekki haft ráðrúm til að kynna
mér þessa tillögu. Við fyrstu sýn
virðist mér þetta vera kostur,
sem full þörf er á að kanna, en ég
vil líka athuga betur hvaða hags-
munum við værum að afsala okk-
ur með því að selja hlut okkar í
Landsvirkjun. Ég geri mér held-
ur ekki grein fyrir því hve
mikla peninga er hér um að ræða.
Hagstæðasti kosturinn fyrir okk-
ur í þessu sambandi væri náttúr-
lega að fá aftur Laxárvirkjun, en
það er víst ekki til umræðu. Þar
tel ég að við höfum gefið Lands-
virkjun gullmalara," sagði Sigríð-
ur Stefánsdóttir.
Valgerður Bjarnadóttir, bæjar-
fulltrúi Kvennaframboðsins,
sagði tillöguna athyglisverða.
„En ég er ekki tilbúin að segja
neitt af eða á um hana á þessu
stigi. Ég er ekki búin að kynna
mér nægilega vel hvað þetta þýð-
ir allt saman, en í fljótu bragði
get ég ekki mælt á móti þeim rök-
um sem Sigurður færir fyrir sinni
tillögu. Það er því ástæða til að
skoða þetta mál grannt," sagði
Valgerður.
Tillaga Sigurðar verður til um-
ræðu í bæjarstjórn Akureyrar í
dag, á fundi sem hefst kl. 16.00.