Dagur - 19.11.1985, Side 12
Fjölskyldutilboð
sunnudaginn 24. nóvember.
Rjómalöguð kremsúpa með selleri og skinku.
Hamborgarareykt grísakótiletta gljáð sýrópi
með ristuðum ananas og rauðvínssósu.
Frítt fyrir börn 12 ára og yngri í fyígd með foreldrum.
Hádegi og kvöld í Bauta kr. 350.- Hádegi í Smiöju kr. 400.-
„KerfimT
tvískipt
- Tillaga að breyttu stjórnskipulagi Akureyrar
Nefnd sem fjallar um breytt
stjórnskipulag Akureyrarbæj-
ar hefur nú starfað um nokkurt
skeið. Á bæjarráðsfundi s.l.
þriðjudag voru hugmyndir
nefndarmanna teknar til um-
ræðu og kom ekki fram nein
athugasemd við þær hugmynd-
ir í veigamiklum atriðum.
Að sögn Sigurðar Jóhannes-
sonar forseta bæjarstjórnar, sem
situr í nefndinni ásamt Sigríði
Stefánsdóttur og Sigurði J. Sig-
urðssyni, er ekki um neinar bylt-
ingarkenndar breytingar að
ræða. Þær tillögur sem nefndin
hefur lagt fram er að fækka
nefndum, sameina málaflokka og
skipta kerfinu upp í tvennt. í fé-
lagslega þætti annars vegar, sem
mundu heyra undir embætti
bæjarritara, og tæknilega þætti
hins vegar, sem tilheyrðu em-
bætti bæjarverkfræðings. Auk
þess yrðu þær leiðir sem mál
þurfa að fara í gegn um kerfið
settar í fastari skorður en nú er.
„Við höfum helst verið gagn-
rýnd fyrir að ganga ekki nógu
langt í tillögum okkar,“ sagði
Sigurður Jóhannesson. „En
nefndin mun vinna að áframhald-
andi undirbúningi þessa máls svo
hægt verði að leggja þetta form-
lega fyrir bæjarráð og bæjar-
stjórn fljótlega."
Sigurður sagðist telja að breyt-
ingarnar gætu þá gengið í gildi
seinni hluta vetrar þannig að
hægt yrði að kjósa í nefndir sam-
kvæmt þeim í byrjun næsta kjör-
tímabils. BB.
Þeir komu mörgum furðulega fyrir sjónir, skórnir sem voru á söguskósýningu í anddyri Sjallans á föstudagskvöldið.
Það voru skór sem voru einu sinni í tísku - nú þykja þeir blátt áfram hlægilegir. Um kvöldið var heilmikil ACT-
hátíð, skósýning - það nýjasta - og fatasýning. Mynd: KGA.
Kópasker:
hefur reynt að skipta niður
vinnu í sláturhúsinu við slátur-
gerð, kjötvinnslu og þess hátt-
ar en eigi að síður blasir at-
vinnuleysi við ef ekki tekst að
útvega rækju í vinnsluna.
Að sögn Kristjáns Ármanns-
sonar oddvita er í athugun að
kaupa 150-200 tonna bát til
rækjuveiða en ekki er um auðug-
an garð að gresja á þeim mark-
aði. Fiskveiðasjóður hefur eignast
230 tonna bát og hafa Kópa-
skersbúar augastað á honum.
Kristján segir að þeir geri sér
ljóst að hann yrði svo dýr að ekki
næðist rekstrargrundvöllur öðru-
vísi en að hafa aðstöðu til fryst-
ingar rækju um borð. Rækjan
yrði flokkuð og það unnið í landi
sem ekki yrði sett beint í útflutn-
ingspakkningar. Mjög góður
grunnur fyrir rækjuvinnsluna
mundi skapast eigi að síður.
Eftir fund hagsmunaaðila á
staðnum hefur sveitarstjórn skrif-
að ríkisstjórninni bréf og óskað
eftir aðstoð. Þar segir meðal
annars:
„Hreppsnefnd Presthóla-
hrepps óskar hér með aðstoðar
ríkisstjórnarinnar við lausn á
neyðarástandi sem blasir við í at-
vinnumálum á Kópaskeri og ná-
grenni. Aðstoðin þarf að miðast
við að gera heimamönnum kleift
að kaupa skip til hráefnisöflunar
fyrir rækjuvinnsluna á staðnum.
Það sem af er þessu ári hefur
stöðvun á rekstri rækjuvinnsl-
unnar á Kópaskeri verið í samtals
rúma fjóra mánuði vegna hráefn-
isskorts. Þegar nú bætist við að
Flogið í gærkvöld
Flugleiðir flugu ekkert til
Norðurlands á föstudaginn og á
sunnudaginn en þeir farþegar
sem áttu pantað flug á föstu-
dag komust leiðar sinnar á
laugardag.
í gær var svo ekki hægt að
fljúga fyrr en komið var fram
undir kvöldmat en þá var send
þota til Akureyrar og tvær Fokk-
er vélar að auki. Sömuleiðis var
lagt af stað til Húsavíkur og
Sauðárkróks síðdegis í gær og
stóð þá til að reyna að koma
til skila öllum þeim sem biðu eftir
fari.
Flugfélag Norðurlands varð
einnig að fella allt flug niður á
sunnudag en tókst að komast til
flestra áætlunarstaða síðdegis í
gær, nema hvað flug til ísafjarðar
féll niður. Flogið var til Kópa-
skers, Egilsstaða, Raufarhafnar,
Þórshafnar, Vopnafjarðar og
einnig var farin ein ferð til
Reykjavíkur. .yk.
Hvar er taskan mín? Það var mikil örtröð á Akureyrarflugvelli seinnipartinn í gær, þegar loksins gaf til flugs. Far-
þegar sem komu með Boeing þotu Flugleiða, bíða hér eftir farangri sínum. Mynd: KGA
Plastiðjan Bjarg:
Aukið við
framleiðslu
Plastiðjan Bjarg á Akureyri
hefur keypt mót og vélar til
framleiöslu á rafmagnsdósum
frá Plastmótun í Ölfusi.
Að sögn Sveins Björnssonar,
deildarstjóra hjá Bjargi, falla
þessi mót ágætlega inn í þá fram-
leiðslulínu sem fyrir er á Bjargi.
Reiknað er með að 2Vi ársstarf
bætist við hjá Plastiðjunni með
þeirri framleiðsluaukningu sem
fyrirsjánleg er þegar nýju mótin
verða tekin í gagnið. Nokkur bið-
listi er eftir störfum hjá Bjargi og
kemur þessi aukning sér því vel.
Sveinn sagði að á Bjargi störf-
uðu bæði fatlaðir einstaklingar
sem ekki koma til með að geta
farið út á almennan vinnumarkað
og aðrir sem hafa þennan vinnu-
stað að einskonar stökkpalli yfir í
aðrar atvinnugreinar. -yk.
Neyöarástand í
atvinnumálum
Nú stefnir í um 20% atvinnu-
leysi á Kópaskeri því engin
veiöanleg rækja fannst í Öxar-
firði í haust og rækjuvinnslan
því ekki í gangi. Kaupfélagið
rækjuveiðar í Öxarfirði virðast
ætla að bregðast enn á ný, telur
fundurinn óhjákvæmilegt að
keypt verði skip, sem stundað
geti rækjuveiðar allt árið og
tryggt þannig ákveðinn grunn
fyrir rækjuvinnsluna og komið í
veg fyrir atvinnuleysi.
Bann stjómvalda við innflutn-
ingi og nýsmíði fiskiskipa hefur
haft í för með sér að ekki hefur
verið unnt að komast yfir skip
sem hentaði.“ IM./BB.