Dagur - 02.12.1985, Side 4
4 - DAGUR - 2. desember 1985
á Ijósvakanum
J.R. í opinskáu
einkaviðtali við Dag:
„Er viðkvæniur
maður“
Hann kemur yfirleitt í heimsókn
til þín á miðvikudagskvöldum.
Þú hefur þekkt hann í nokkur ár.
Kannski líkar þér við hann,
kannski ekki. Það eru til dæmi
um menn sem beinlínis hata
hann. Samt er honum alltaf
hleypt inn. Hann er ómissandi.
Hann er J.R. Hann sagðist hafa
einfaldan smekk. „Mér líka kú-
rekahattar.“
J.R. féllst á að segja lesendum
Dags af sjálfum sér og fjölskyldu
sinni.
„Er ekki kalt á Akureyri?" var
það fyrsta sem J.R. sagði er við
hittumst á Vaxmyndasafninu í
London nýlega. Síðan lét hann í
Ijós mikinn áhuga á að koma hing-
að í heimsókn. „Ég verð sennilega
að kaupa mér húfu,“ sagði hann og
brosti góðlátlega út í annað.
- Þú getur verið ansi spaugsam-
ur, J.R.?
„Já, það er sagt um mig að
brandararnir mínir hitti stundum,
já eða eiginlega alitaf í mark. Ég
veit svo sem ekki hvað er hæft í
því.“ Alltaf hógvær J.R.
Égbað J.R. að segja mérofurlít-
ið af sjálfum sér.
„Ég er viðkvæmur maður. í
rauninni mjög viðkvæmur. Satt
best að segja ofboðslega viðkvæm-
ur. En sem karlmaður sem ég
óneitanlega er, þá get ég ekki og
má ekki láta í ljós tilfinningar
mínar. Ég verð að standa mig í
þeim harða heimi sem ég lifi og
hrærist í. En ég á mínar stundir
með sjálfum mér þar sem ég met
stöðuna og hvað mér beri að gera.
Ég reyni að bæta mig og ég tel mig
góðan mann. Góðan eiginmann og
góðan föður. Ég er góður við móð-
ur mína, enda er hún mér geysimik-
ils virði.“
Bisness er bisness
- Góður eiginmaður segirðu. Sofa
ekki góðir eiginmenn heima hjá
sér?
„Jú, þeir gera það, svona yfir-
leitt. En af viðskiptafræðilegum
ástæðum hef ég stundum neyðst til
að sofa annars staðar. Bisness er
bisness. Ég hef valið mér þetta starf
og verð að standa mig í því og þess
vegna verð ég stundum að gera
hluti sem mér eru allt að því á móti
skapi. Eins og ég sagði, ég er við-
kvæmur maður og . . .“
Við skulum víkja að öðru. Stað-
an á Southfork í dag, er hún ekki
umdeilanleg. Hver er í rauninni
staða þín gagnvart bróður þínum,
Bobby?
Er ekkert fyrir pukur
„Bobby er drengur góður. í öllum
aðalatriðum. Það sem spillt hefur
fyrir honum er að hann giftist inn í
ranga fjölskyldu. Þetta hefði verið
mikið auðveldara og ekki eins mik-
ið af vandamálum ef hann hefði
tekið mig til fyrirmyndar. Hann
lætur svo margt hlaupa með sig í
gönur, t.d. skapið og ástina. Þrátt
fyrir allt þetta, þá erum við nokkuð
góðir bræðurnir. En þú spyrð um
stöðu mína gagnvart bróður
mínum. Já, góð spurning. Þetta er
ósköp einfalt mál. Ég er og á að
vera leiðtoginn þá fer allt vel. Ég er
fæddur leiðtogi, enda í hrútsmerk-
inu. En Bobby hefur verið að reyna
að hrifsa til sín völdin og hann telur
sig hafa sterka réttlætiskennd og
allt það. Að því leytinu minnir
hann mig á kvennabaráttukonur
eða hvað þær heita. Ég hef einfalda
skoðun á þessu máli. Konur eiga
heima í eldhúsinu. Það er þeirra
vettvangur. Bobby á heima á
smurstöð. Já, ég er hreinskilinn
maður og kem til minna dyra eins
og ég er klæddur. Ég þori að segja
mína meiningu og er ekkert fyrir
pukur.“
Heiðarleg og
samhent fjölskylda
- Ef ég má koma með eina við-
kvæma spurningu. Þið á Southfork
eruð ríkari en gengur og gerist.
Hafið þið ávaxtað ykkar fé á heið-
arlegan hátt?
„Við erum vel efnuð, það er rétt.
Og ég held ég geti svarað spurningu
þinni játandi. Við erum heiðarleg
og samhent fjölskylda sem höfum
unnið saman að því að skapa okkur
fallegt og gott heimili. Kærleiks-
heimili vil ég kalla það. Þar líður
okkur vel og okkur liði ekki vei
nema af því við vinnum heiðarlega
vinnu. Hins vegar þá er því ekki að
neita að fólk talar mikið um okkur
og telur jafnvel að maðkur hljóti að
vera í mysunni. En ég lýsi því hér
með yfir að ég get bara sýnt þessu
sama fólki í mysuflöskuna okkar og
þá ættu allir að sjá að þar er enginn
maðkur. En allt umtalið fer illa
með mig, ég er viðkvæmur maður
eins og ég sagði áður og tek þetta
nærri mér. Saumaklúbbar eru að
tala um sundlaugina okkar, eins og
við séum eina fólkið í landinu sem
eigum sundlaug! Við viljum hafa
okkar sundlaug í friði og það er
með mínum bestu minningum þeg-
ar allt lék í lyndi, að ég kem gang-
andi út á veröndina sólríkan morg-
un í júní. Held á kúrekahattinum
mínum undir hendinni, tek glas af
appelsínusafa af morgunverðar-
borðinu, kyssi mömmu létt á kinn-
ina og geng að sundlauginni þar
sem kona mín SuEllen er að synda
sér til hressingar. Og þar sem hún
kemur á skriðsundinu fersk og
vatnið drjúpandi af henni, þá brýst
sólin fram og sendir lítinn geisla
yfir okkur hjónin bæði. Þessu er
mér ógleymanlegt að gleyma . . .“
# Reksturinn
aldrei
gengið
betur...
Það er skýtur óneitanlega
dálitið skökku við að
heyra framkvæmdastjóra
þekkts fyrirtækls á Akur-
eyri lýsa því yfir í út-
varpsviðtali í síðustu viku
að reksturinn hefði aldrei
gengið betur en siðasta
ár. A sama tfma eru að
birtast auglýsingar um að
eignir vfðkomandl fyrir-
tækis skuli seldar á nauð-
ungaruppboði. En þetta er
e.t.v. dæmigert fyrir þá
stöðu sem margir eru
komnir f vegna þess að
reksturinn stendur ekki
undir afborgunum með
háum vöxtum.
# Ðaulaðu
nú....
Uppboðsauglýsingar eru
því miður orðnar mjög al-
gengar i blöðum. Þeir sem
hafa verið viðstaddir upp-
boðshald vita að ótrúleg-
ustu hlutir eru þar falir, oft
gegn vægu gjaldi.
I Vestfirska fréttablaðínu
sem kom út í síðustu viku
er m.a. auglýsing um
nauðungaruppboð. í aug-
lýsingunni er talið upp
hvað verði selt á uppboð-
Inu og þar sést að Búkolla
verður seld hæstbjóð-
anda. S&S þykir hart til
þess að vita að Búkollu
bíði svo ömurleg örlög að
verða seld á uppboði. Það
er þó kannski ekkert
skrýtíð því hún hefur
greinilega glatað töfra-
mætti sínum. Þelr sem
lesið hafa söguna um
Búkollu vita að ef eigandi
hennar komst f einhver
vandræði var nóg fyrlr
hann að slíta hár úr hala
hennar og leggja það á
jörðína og þá reddaði
Búkolla málunum. Það er
af sem áður var....
# Gjaldþrota-
skriða
Auglýslngar um nauðung-
aruppboð hafa sjaldan
verið fleiri en nú siðustu
daga. Ýmis fyrirtæki og
einstaklingar eru orðin
svo illa stödd að ekkert
getur bjargað þeim frá
gjaldþroti. Ottast sumir að
gjaldþrotin kunni að reyn-
ast keðjuverkandi þar
sem ýmsir fari á hausinn
þegar í Ijós kemur að
skuldunautar þeirra eru
gjaldþrota og geta ekki
borgað.
Félagamir í Hananú birtast á skjánum í kvöld.
sionvarpi
MÁNUDAGUR
2. nóvember
19.00 Aftanstund.
Endursýndur þáttur frá 27.
nóvember.
19.25 Aftanstund.
Bamaþáttur. Tommi og
Jemii, Hananú, brúðu-
mynd frá Tékkóslóvakíu
og Dýrin í Fagraskógi,
teiknimyndaflokkur frá
Tékkóslóvakíu.
19.50 Fréttaágrip á tákn-
máli.
20.00 Fréttir og veður.
20.30 Auglýsingar og dag-
skrá.
20.45 Móðurmálið -
Framburður
Áttundi þáttur: AðaUega
um atkvæði og hljóðbreyt-
ingar.
Umsjónarmaður: Ámi
Böðvarsson.
21.05 íþróttir.
Umsjónarmaður: Bjami
Felixson.
21.45 Húsnæði til leigu.
(Villa zu vermieten)
Þýskt sjónvarpsleikrit eftir
Heinz Meising.
Leikstjóri: Thomas Engel.
Aðalhlutverk: Edith Heer-
degen og Ruth Hellberg.
Aldraðar tvíburasystur
taka upp á því að auglýsa
húsnæði til leigu til að
komast á ný í samband við
annað fólk. Auglýsingin
ber tilætlaðan árangur og
gott betur.
Þýðandi: Kristrún Þórðar-
dóttir.
23.10 Fréttir í dagskrárlok.
útvarpM
MÁNUDAGUR
2. desember
11.10 Úr atvinnulífinu -
Stjómun og rekstur.
Umsjón: Smári Sigurðsson
og Þorleifur Finnsson.
11.30 Stefnur.
Haukur Ágústsson kynnir
tónlist. (Frá Akureyri).
12.00 Dagskrá • Tilkynning-
ar.
12.20 Fréttir.
12.45 Veðurfregnir • Til-
kynningar ■ Tónleikar.
13.30 í dagsins önn - Sam-
vera.
Umsjón: Sverrir Guðjóns-
son.
14.00 Miðdegissagan: „Sög-
ur úr lífi mínu" eftir Sven
B. F. Janson.
Þorleifur Hauksson les
þýðingu sína (6).
14.30 íslensk tónlist.
15.15 Á ferð
með Sveini Einarssyni.
(Endurtekinn þáttur frá
laugardagskvöldi).
15.50 Tilkynningar • Tón-
leikar.
16.00 Fréttir • Dagskrá.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Síðdegistónleikar.
17.00 Barnaútvarpið
Meðal efnis: „Ivik bjam-
dýrsbani" eftir Pipaluk
Freuchen.
Sigurður Gunnarsson
þýddi. Guðrún Guðlaugs-
dóttir les (4).
Stjórnandi: Kristín Helga-
dóttir.
17.40 íslenskt mál.
Endurtekinn þáttur frá
laugardegi sem Gunnlaug-
ur Ingólfsson flytur.
17.50 Tónleikar • Tilkynn-
ingar.
18.45 Veðurfregnir • Dag-
skrá kvöldsins.
19.00 Fréttir.
19.30 Tilkynningar.
19.35 Daglegt mál.
Margrét Jónsdóttir flytur
þáttinn.
19.40 Um daginn og veginn.
Brynjólfur Bjarnason fyrr-
verandi ráðherra talar.
20.00 Lög unga fólksins.
Þorsteinn J. Vilhjálmsson
kynnir.
20.40 Kvöldvaka.
a. Spjall um þjóðfræði.
Dr. Jón Hnefill Aðalsteins-
son tekur saman og flytur.
b. Einsöngur.
Þorsteinn Hannesson
syngur.
c. Stjáni litli til sjós og í
sveit.
Ragnar Þorsteinsson les
frásöguþátt um Kristján
Jóhannesson.
Umsjón: Helga Ágústs-
dóttir.
21.30 Útvarpssagan: „Saga
Borgarættarinnar" eftir
Gunnar Gunnarsson.
Helga Þ. Stephensen les
(22).
22.00 Fréttir Dagskrá
morgundagsins.
22.15 Veðurfregnir • Orð
kvöldsins.
22.25 Rif úr mannsins síðu.
Þáttur í umsjá Sigríðar
Árnadóttur og Margrétar
Oddsdóttur.
23.10 Frá tónleikum Sinfón-
íuhljómsveitar íslands í
Háskólabíói 28. f.m.
24.00 Fréttir • Dagskrárlok.
ÞRIÐJUDAGUR
3. desember
7.00 Veðurfregnir • Fréttir •
Bæn.
7.15 Morgunvaktin.
7.20 Morguntrimm.
7.30 Fréttir • Tilkynningar.
8.00 Fréttir • Tilkynningar.
8.15 Veðurfregnir.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barn-
anna: „Elvis, Elvis" eftir
Mariu Gripe.
Torfey Steinsdóttir þýddi.
Sigurlaug M. Jónasdóttir
les.
9.20 Morguntrimm • Til-
kynningar • Tónleikar,
þulur velur og kynnir.
9.45 Þingfréttir.
10.00 Fréttir.
10.05 Daglegt mál.
Endurtekinn þáttur Mar-
grétar Jónsdóttur frá
kvöldinu áður.
10.10 Veðurfregnir.
10.25 Lesið úr forystugrein-
um dagblaðanna.
10.40 „Ég man þá tíð."
Hermann Ragnar Stefáns-
son kynnir lög frá liðnum
árum.
I rás 21
MANUDAGUR
2. desembor
10.00-10.30 Ekki á morg-
un... heldur hinn.
Dagskrá fyrir yngstu
hlustenduma frá barna-
og unglingadeild útvarps-
ins.
Stjórnendur: Kolbrún Hall-
dórsdóttir og Valdis Ósk-
arsdóttir.
10.30-12.00 Morgunþáttur.
Stjórnandi: Ásgeir Tómas-
son.
Hlé.
14.00-16.00 Út um hvippinn
og hvappinn.
Stjórnandi: Inger Anna
Aikman.
16.00-18.00 Allt og sumt.
Stjómandi: Helgi Már
Barðason.
3ja mín. fréttir kl. 11,15,16,
og 17.
17.00-18.00 Ríkisútvarpið á
Akureyri - Svæðisútvarp.