Dagur - 02.12.1985, Side 8
8 - DAGUR - 2. desember 1985
2. desember 1985 - DAGUR - 9
Gunnar og Colin: „Gott að vera á Dalvík“.
Litið inn í Tónlistarskóla Dalvíkur:
„Þetta er
toppskoh
Við íslendingar eigum heims-
met í rnörgu. Þá er oftast mið-
að við fólksfjölda. Ætli við eig-
um ekki met í fjölda tónlistar-
skóla. Allavega eru þeir
margir, stórir og smáir víða um
land. Dalvíkingar eru ánægðir
með sinn tónlistarskóla. Þeir
sem til þekkja segja að það sé
eölilegt. Að minnsta kosti er
mikill áhugi á tónlist í þeim
ágæta bæ Dalvík. Gestur
Hjörleifsson söngstjóri stofn-
aði Tónlistarskóla Dalvíkur
árið 1961. Síðan þá hefur verið
mikill og ör vöxtur í tónlistar-
lífi staðarins.
Það gafst ekki mikill tími til að
ræða við kennara eða nemendur
er við litum inn í „Tónó“ á Dalvík
fyrir stuttu. Við gengum inn í
stórt og virðulegt húsið, sem áður
var heilsuverndarstöð og lækn-
isbústaður. Hefur það gengið
undir nafninu Gimli. Það var
ekki mannveru að sjá, en einhver
var í húsinu því tónlist heyrðist
úr einu herberginu. Það var ekki
um annað að ræða en bíða í ró-
legheitum eftir því að einhver léti
Myndir: ge.
Freydís með trefil við píanóið
sjá sig, kennari eða nemandi.
Það leið ekki á löngu þar til tón-
listin hætti og út úr stofu komu
bæði nemandi og kennari. Nem-
andinn var fljótur að drífa sig út,
en kennarinn gat ekki farið því
ennþá átti hann von á nemend-
um. Gunnar Jónsson heitir hann
og kom til starfa til skólans í
haust. Hann er Ólafsfirðingur að
uppruna. Var í tónlistarnámi hjá
Ragnari H. Ragnar og við Tón-
listarskólann á Akureyri, þar sem
hann lauk prófi í píanóleik. Síð-
an var hann við kennaranám í
Reykjavík og kom eins og áður
sagði til Dalvíkur s.l. haust.
- Hvers vegna fórstu ekki á
heimaslóðir til Ólafsfjarðar að
kenna?
„Það er einfalt mál, það vant-
aði ekki kennara þar, svo ég kom
hingað.“
- Rígur milli Ólafsfirðinga og
Dalvíkinga?
Gunnar hlær góðlátlega.
„Hann bitnar að minnsta kosti
ekki á mér, því mér líkar mjög
vel hérna. Svo er stutt fyrir Múl-
ann þegar færðin er góð.“
- Við Gunnar erum ekki
komnir lengra í samtalinu þegar
inn kemur Colin P. Virr, sem nú
er skólastjóri Tónlistarskóla Dal-
víkur. Hann er hressilegur ungur
maður, breskur að ætt og upp-
runa.
- Hvenær komst þú til Dalvík-
ur?
„í nóvember 1982. Þá var ég
búinn með tónlistarnám heima í
Bretlandi. Það var mjög erfitt að
fá vinnu þar, svo ég sló til og kom
hingað. Upphaflega ætlaði ég að
vera 1 ár. En eftir það tók ég
ákvörðun um að vera í 5 ár. Við
skulum sjá hvernig það fer.“
- Er mikill munur á ungum
nemendum í Bretlandi og
Dalvík?
Colin glottir. „Hann er mikill.
Krakkar í Bretlandi eru erfiðir.
Þeir eru í alls konar efnum,
sniffi, hassi og öðrum óþverra.
Það er svo slæmt að margir
kennarar hafa ekki kjark til að
vinna við skóla í London. Nem-
endurnir eru svo voðalega erfið-
ir. Þeir eiga það til að henda
borðum og stólum um allt. Marg-
ir kennara fara alveg á taugum
við þetta.“
- Kastaðir þú stólum og
borðum?
„Nei ég gerði það ekki.“ Þeir
félagarnir hlæja. „Nemendur hér
á Dalvík henda ekki húsgogn-
um.“ Þeir Gunnar og Colin voru
sammála um að áhugi væri mjög
mikill. „Hér er fólk á öllum aldri
við nám,“ segir Gunnar. „Margt
fólk sem komið er yfir þennan
venjulega skólaaldur er hér í
námi. Það vill kunna að spila fyr-
ir sig og sína, á gítar, orgel eða
píanó. Þetta er mjög skemmti-
legt. Enda held ég að þessi skóli
sé með þeim stærstu miðað við
þessa frægu höfðatölu. Það eru
134 nemendur í skólanum, sem
jafngildir því að þúsund nemendur
væru í slíku námi á Akureyri. Að
öðru leyti erum við ekki að miða
okkur við Akureyri að stærð, því
þar er mikill fjöldi kennara, en
við erum þrjú hér á Dalvík."
- Tracy Wheeler er þriðji
kennarinn við skólann. Þennan
eftirmiðdag var hún að kenna
tónlist við Húsabakkaskóla í
Svarfaðardal. Þar fer hluti
kennslunnar fram, svo nemendur
í þeim skóla þurfi ekki að fara
norður á Dalvík til að sækja
tíma.
- Þrír kennarar og hundrað
þrjátíu og fjórir nemendur. Þurfa
kennararnir ekki að vera mjög
fjölhæfir og kenna á mörg hljóð-
færi.
„Ekki veit ég um fjölhæfnina.
Ég kenni á píanó, gítar og
blokkflautu. Ég byrjaði að læra
á gítar og var við það nám í 5 ár.
Síðan söðlaði ég um og byrjaði á
píanóinu."
- Colin?
„Ég kenni á píanó, orgel,
blokkflautu, þverflautu og gítar.
Auk þess stjórna ég samkór Dal-
víkur.“
- Það er þá nóg að gera hjá
tónlistarkennurum á Dalvík.
Spilið þið á skemmtunum og
öðru slíku?
Colin hefur orðið. „Það er gott
að liafa nóg að gera. Við höfum
farið á staði hér í kring. Það hef-
ur verið farið í Hrísey, Grímsey
og fleiri staði.“ Gunnar skýtur
inn í: „Ég hef verið beðinn um að
spila á einni árshátíð eftir áramót-
in “ - gej
Var mikið sungið á þínu heimili?
Er titill nýrrar hljómplötu sem
er rétt nýlega gott ef ekki kom-
in á markaðinn. Líklegt þó að
hún sé komin. Þar hefur verið
þrykkt á plast hljómlist Skrið-
jöklanna. Hinnar góðkunnu
hljómsveitar sem allir íslend-
ingar þekkja.
Um daginn var „Átta stjörnu
kvöld í Sjallanum", þegar Skrið-
jöklar kynntu hina nýútkomnu
plötu sína. Að vísu var umslagið
þá komið til bæjarins, en það er
varla nóg.
Það var mikið fjör í drengjun-
um. eins og þeirra er von og vísa-
kort. Það var mál manna, að
aldrei áður hefðu Skriðjöklar
spilað jafn vel og þeir gerðu þetta
kvöld í Sjallanum.
- KGA.
_bækuc_____________
Saga
mannkyns
6. bindi
Síðmiðaldir í Evrópu
Bókaklúbbur Almenna bókafé-
lagsins hefur sent frá sér 6. bindið
af Sögu mannkyns. Það fjallar
um síðmiðaldir í Evrópu, tíma-
bilið 1300-1500 og ber heitið
Evrópa vid tímamót. Höfundur
er Káre Lunden, prófessor við há-
skólann í Osló, og þýðandi Snæ-
björn Jóhannsson, cand. mag.
Þetta tímabil síðast á miðöld-
um er eitt hið einkennilegasta
sem yfir Evrópu hefur gengið.
Lénsskipulagið var að hrynja til
grunna sem stafaði af því að
lénsmannastéttin kaus að leggja
fjármagn sitt í stríðsrekstur til að
efla samfélagsstöðu sína í stað
þess að leggja það í atvinnutæk-
in. Bændur voru félausir og
áhugalausir vegna þess hve lítið
þeir báru úr býtum. Afleiðingin
var einhver harðasta kreppa sem
yfir Evrópu hefur dunið og fólks-
fækkun um 50-60%.
Minnkandi tekjur lénsmann-
anna leiddu til innbyrðis ófriðar
sem gerði þessa stétt mjög mátt-
litla. Konungsvaldið styrktist við
það og samfara auknum sam-
skiptum milli þjóða og við áðrar
heimsálfur kom ný stétt til sög-
unnar - borgarastéttin (kaup-
menn og iðnaðarmenn) og bendir
fram til þess sem koma skyldi.
Samfara þessu þróuðust listir í
Evrópu ekki síst byggingar- og
myndlist eins og glöggt kemur
fram í myndaefni bókarinnar.
Þetta 6. bindi af Sögu mann-
kyns er með bóka- og nafnaskrá
272 bls. að stærð. Myndaefnið er
bæði mikið og frábært. Bókin er
sett og filmutekin í Prentsmiðj-
unni Ódda, en prentuð og bundin
í Belgíu.
Hljómur
hamingjunnar
- Ný ástarsaga
eftir Nettu Muskett
Hörpuútgáfan á Akranesi hefur
sent frá sér nýja bók eftir ensku
skáldkonuna Nettu Muskett í
þýðingu Snjólaugar Bragadóttur.
Áður hefur Hörpuútgáfan gefið
út fjórar bækur eftir þennan
höfund.
Árum saman hafði Anne starf-
að sem kennslukona við héraðs-
skóla. Svarta skólataflan og
töflukrítin var það sem líf hennar
snerist um. Övænt hittir hún
hefðarkonuna Gillina, sem er svo
lík henni að ógerningur er að
Hijómur
þekkja þær í sundur. Gillian
ákveður að notfæra sér þessar
óvenjulegu aðstæður og fær
Anne til þess að vera staðgengil
sinn á óðalssetrinu Wynchombe.
Við það verða straumhvörf í lífi
kennslukonunnar. Hún er
skyndilega orðin miðdepill sam-
kvæmislífsins. Öskubuskan er
orðin glæsibúin hefðarkona í
hópi fjölda aðdáenda. Vandinn
er mikill að sneiða hjá óvæntum
uppákomum í þessu nýja hlut-
verki.
Þetta er hrífandi og spennandi
ástarsaga sem veldur ekki von-
brigðum. Netta Muskett er met-
söluhöfundur. Bækur hennar eru
gefnar út í milljónum eintaka.
Hljómur hamingjunnar er 171
bls. Prentuð og bundin í Prent-
verki Akraness hf.
Hannes Þ. Hafstein
Svo segja spakir menn að ævi
hinna góðu og gegnu þjóðfélags-
þegna líði allt of fljótt. Mér koma
þessi orð í hug þegar ég verð að
horfast í augu við þá staðreynd
að bekkjarbróðir minn og vinur
er allt í einu orðinn sextugur.
Enda þótt það séu brátt 4 tugir
ára síðan leiðir skildu eftir stúd-
entsprófið í MA er engu líkara
en ég hafi lifað í þeirri dul að tím-
inn standi kyrr þegar gamlir vinir
eru annars vegar, enda er til gam-
alt orðtak sem segir að „sjaldan
eldast skólabræður".
Hannes Þórður Hafstein fædd-
ist 29. nóvember 1925 og var
yngstur í stórum og glæsilegum
systkinahópi. Foreldrar hans
voru Þórunn og Júlíus Havsteen
sýslumaður í Þingeyjarsýslu.
Eftir stúdentspróf fóru sumir
að fullnuma sig í „Iagabraski og
refjum", aðrir að kynna sér betur
för Þórs til Útgarða-Loka, reikna
út „burðarmagn og þensluþol“ og
guð veit hvað, en það var hafið
sem heillaði Hannes Hafstein.
Hann réðst til bandarísku strand-
gæslunnar á Norður-Atlantshafi
til að kynna sér landhelgisgæslu
og annað eftirlit. Á þeim Kalda-
dal fann hann þróttinn í sjálfum
sér og sú reynsla átti síðar eftir að
koma í góðar þarfir. Eftir þetta
fór hann í Stýrimannaskólann og
að prófi loknu var hann stýrimað-
sextugur
ur á Gullfossi um árabil, en oft
fer það svo að sjómaður kemur í
land og sú varð raunin með
Hannes Hafstein. Hann réðst til
Slysavarnafélagsins og er nú
framkvæmdastjóri þess. Þar hefir
hann haft ærið að starfa og stríða
við björgunarstörf og leit á landi
og sjó. Hann hefir átt marga and-
vökunótt í beig og kvíða þeirra
sem vonast eftir björgun og hjálp
á stund neyðarinnar. Raunar
held ég að Hannes hafi notið þess
að heyja þessar erfiðu glímur viö
höfuðskepnurnar og hann er um
margt mikill hamingjumaður og
vil ég í því sambandi nefna fyrst
konu hans frú Sigrúnu Stefáns-
dóttur. Ég minnist margra góðra
stunda á heimili þeirra og þeim er
gefið mikið barnalán. Eitt er enn
ótalið - hann hefir alla tíð verið
lífið og sálin í að halda við sam-
bandi okkar bekkjarsystkinanna.
Hann hefir alltaf verið hinn sjálf-
sagði og sjálfkjörni foringi, en
jafnframt hinn besti félagi og
vinur. Ég ætla að það séu margir
fleiri en ég sem hugsa til hans
með þakklæti á þessum tímamót-
um og ég vil enda þessar fáu og
fátæklegu línur með þökkum fyr-
ir „góða, gamla tíð með gull í
mund“ og hugheilum árnaðar-
óskum - „noch lebt die alte
Treue“. a.K.
Tinni, Tobbi og Kolbeinn vita vel aö safnast
þegar saman kemur. Tinnasparibaukurinn fæst aðeins
hjá okkur.
Landsbanki
íslands
Banki allra landsmanna