Dagur - 02.12.1985, Page 12
12 - DAGUR - 2. desember 1985
Konráð Óskarsson stóð sig best Þórsara um helgina.
________________Jþróttic_
Þór skoraði 13
síðustu stigin!
- og sigraði Reyni 66:57
Frábær endasprettur Þórsara
tryggði þeim sigur gegn Reyni í
1. deildinni í körfuknattleik á
laugardag er liðin léku í Sand-
gerði, úrslitin 66:57.
Endasprettur Þórs var stórgóð-
ur en áður en hann kom til benti
fátt til að liðið myndi hafa sigur í
þessum leik. Þegar 6 mín. voru til
leiksloka var staðan 57:53 Reyni
í vil, en Þórsarar settu þá í
kraftgír og skoruðu síðustu 13
stig leiksins og sigruðu örugg-
lega.
Þórsarar byrjuðu þennan leik
vel og náðu fljótlega forustunni
13:9. Reynismenn komust hins
vegar yfir 24:23 og juku síðan
muninn þannig að þeir leiddu í
hálfleik 33:29.
Framan af síðari hálfleik hélst
þessi munur svo til óbreyttur þar
til Konráð Óskarsson skoraði
þriggja stiga körfu fyrir Þór og
minnkaði muninn í eitt stig
52:53. Reynismenn juku við for-
skot sitt og komust yfir 57:53 og
lokamínútum leiksins var lýst hér
að framan.
Lið Þórs átti í heild góðan leik
og skorið dreifðist nokkuð jafnt
á milli manna. Mest áberandi í
liði Þórs var Konráð Óskarsson
en hann þyrfti að passa sig betur
í vörninni svo hann fái ekki jafn-
an dæmt á sig mikið af óþarfa
villum. Jóhann Sigurðsson og
Hólmar Ástvaldsson voru góðir
og börðust vel. Björn Sveinsson
var hins vegar heillum horfinn að
þessu sinni, átti talsvert af mis-
heppnuðum sendingum og skor-
aði ekki eitt einast stig í leiknum.
Stigahæstir í liði Þórs voru
Konráð með 20 stig, Hólmar 14,
Jóhann 12. Langbestu menn
Reynis voru Jón Sveinsson og
Gylfi Þorkelsson sem skoruðu
saman um 40 af stigum Reynis.
- AE
Oruggt
hjá Þór
„Vörnin vandamál
einn leikinn enn“
- þegar Völsungar töpuðu á Skaganum 23:32
„Ég er ánægður með fyrri hálf-
leikinn en það sem brást í síð-
ari hálfleik var að við létum
verja hjá okkur í dauðafærum
hvað eftir annað. Þá var vörn-
in vandamál einn leikinn enn,“
sagði Pétur Pétursson
leikmaður Völsungs eftir stór-
tap á Akranesi í 3. deildinn á
föstudagskvöld.
Það leit ekki vel út í byrjun
hjá norðanmönnum því þeim
tókst ekki að skora fyrr en á 8.
mínútu leiksins er Skagamenn
voru kómnir í 3:0. Völsungarnir
voru afskaplega daufir í byrjun
og eftir 20 mín. leik var staðan
12:7 ÍA í vil. Völsungar tóku þá
mikinn kipp og þegar flautað var
til leikhlés voru þeir komnir yfir
14:13 eftir að hafa skorað 7 mörk
síðustu 8 mín. hálfleiksins.
í upphafi síðari hálfleiksins
fóru Völsungarnir aftur á taugum
og Skagamenn skoruðu 5 fyrstu
mörk hálfleiksins, staðan orðin
18:14. Völsungar náðu ekki að
rétta sinn hlut eftir það og þegar
skammt var til leiksloka var stað-
an orðin 32:23 og urðu það úrslit
leiksins.
Bestir Völsunga voru Helgi
Helgason, Ómar Rafnsson og
Sigmundur Hreiðarsson. Mörk
Völsunga gerðu Ómar Rafnsson
6, Sigmundur Hreiðarsson 4,
Bjarni Bogason 3, Sigurður
Þrastarsson 3, Helgi Helgason 3,
Pétur Pétursson 2 og Pálmi
Pálmason 2. - KK
Á föstudagskvöld léku Þórsar-
ar gegn Skallagrími í 3. deild-
inni í handknattleik og fór
leikurinn fram í Borgarnesi.
Þórsarar unnu öruggan sigur
24:18.
Fyrri hálfleikur var jafn allan
tímann og staðan í hálfleik 11:10
fyrir Þór. í byrjun síðari hálfleik
gerðu Þórsarar hins vegar út um
leikinn er þeir skoruðu 7 mörk í
röð og staðan var orðin 18:10.
Skallagrímsmönnum tókst ekki
að skora fyrr en eftir 15 mínútur
og á fyrstu 20 mfn. hálfleiksins
skoruðu þeir aðeins tvö mörk.
Þetta var því létt hjá Þór og
fengu allir leikmenn Þórs að
spreyta sig að þessu sinni.
Bestir í liði Þórs voru mark-
vörðurinn Hermann Karlsson
sem varði 16 skot í leiknum og
Axel Stefánsson, ungur og efni-
legur leikmaður úr 3. flokki. í liði
Skallagríms var Björgvin Björg-
vinsson langbestur og skoraði
hann 14 af mörkum liðsins þótt
hann væri tekinn úr umferð allan
leikinn!!!
Mörk Þórs skoruðu Ingólfur
Samúelsson 7(4), Jóhann Sam-
úelsson 5, Kristinn Hreinsson 5,
Gunnar Gunnarsson 3, Sigurpáll
Aðalsteinsson 3 og Ólafur Hilm-
arsson eitt. - KK
Þórsarar töpuðu
á lokamúnútunum
„í þessum leik misnotuðum
við vítakast á örlagastundu og
einnig var vörnin ekki nógu
góð. Hins vegar er ég nokkuð
ánægður með þessa ferð, sér-
staklega ef miðað er við síðasta
heimaleik okkar sem var
hörmulegur,“ sagði Gunnar
Gunnarsson þjálfari Þórs í
handknattleik eftir naumt tap
Þórs gegn ÍA í leik liðanna í 3.
deild á Akranesi um helgina.
Leikurinn var jafn framan af
og jafnt á öllum tölum upp í 8:8.
Þá skoruðu Skagamenn tvö mörk
í röð og breyttu stöðunni í 10:8.
Þórsarar voru ekki af baki dottnir
og svöruðu með þremur mörkum
í röð og komust yfir 11:10. Næstu
tvö mörk komu frá heimamönn-
um sem þar með komust yfir
12:11. Liðin skoruðu síðan á víxl
en í hálfleik leiddi Akranesliðið
15:14.
- Akranes - Þór 29:26
í síðari hálfleik var sama uppi
á teningnum. Jafnt var 19:19 og
aftur var jafnt 25:25. Þá skoruðu
Skagamenn 3 mörk í röð og stað-
an orðin 28:25, tvær mfnútur eftir
og úrslit leiksins ráðin. Þó voru
tveir Skagamenn reknir útaf eftir
þetta og Þórsliðið fékk vítakast
sem var misnotað. Þór náði að-
eins að skora eitt mark eftir þetta
og Pétur Ingólfsson skoraði síð-
asta mark leiksins fyrir Skaga-
menn úr aukakasti eftir að leik-
tíma var lokið. Úrslitin því 29:26
Akranesliðinu í vil.
Bestir Þórsara voru Sigurpáll
Aðalsteinsson og Kristinn
Hreinsson en Pétur Ingólfsson
bestur í liði heimamanna.
Mörk Þórs skoruðu Jóhann
Samúelsson 5, Sigurpáll 5, Ing-
ólfur Samúelsson 5 (4), Kristinn
Hreinsson 4, Gunnar Gunnars-
son 4 og Ólafur Hilmarsson 3.
Pétur Ingólfsson skoraði 10 af
mörkum Skagamanna. - KK
Jóhann Samúelsson skoraði 5 mörk
gegn Skagamönnum.