Dagur - 17.12.1985, Side 2
2 - DAGUR - 17. desember 1985
ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
SKRIFSTOFUR:
STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI
SÍMI: 24222
ÁSKRIFT KR. 420 Á MÁNUÐI
LAUSASÖLUVERÐ 40 KR.
RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAÐUR:
HERMANN SVEINBJÖRNSSON
RITSTJÓRNARFULLTRÚI:
GÍSLI SIGURGEIRSSON
FRÉTTASTJÓRI:
GYLFÍ KRISTJÁNSSON
BLAÐAMENN:
ÁSLAUG MAGNÚSDÓTTIR, BRAGI V. BERGMANN,
GESTUR E. JÓNASSON, INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík),
YNGVI KJARTANSSON, KRISTJÁN G. ARNGRlMSSON,
KRISTJÁN KRISTJÁNSSON, MARGRÉT Þ. ÞÓRSDÓTTIR,
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRlMANN FRlMANNSSON
ÚTBREIÐSLUSTJÓRI:
HAFDlS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASlMI 25165
FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON
PRENTUN: DAGSPRENT HF.
____leiðari.________________________
Gjaldþrot Hafskips,
hæira vömverð
Fólk á landsbyggðinni veltir því nú fyrir sér
hvaða áhrif gjaldþrot Hafskips geti haft á
vöruflutninga og vöruverð út um landið. Líkur
eru á því að þetta geti haft áhrif til hækkunar
farmgjalda innanlands og þannig hærra
vöruverðs.
Hafskip setti innfluttar vörur í framhalds-
flutninga innanlands með skipum frá Skipa-
útgerð ríkisins og mun þar hafa verið um að
ræða um 34 þúsund tonn árlega, en með í
þeirri tölu eru vörur sem Ríkisskip sá um að
flytja utan af landi til Reykjavíkur og Hafskip
flutti síðan út.
Allt virðist því benda til þess að Ríkisskip
verði fyrir verulegu tekjutapi vegna þessa
gjaldþrotamáls og verði að mæta því með
hærri farmgjöldum eða auknum ríkisstyrk.
Einnig gæti farið svo að Ríkisskip yrði sam-
keppnisfært við Eimskipafélagið, sem vafa-
laust hugsar sér til hreyfings í innanlands-
flutningunum.
Ríkisskip hefur gegnt mjög þýðingarmiklu
þjónustuhlutverki fyrir landsbyggðina, varð-
andi flutninga milli landshluta, þó menn hafi
deilt um það hvort betur mætti að standa.
Það hlýtur því að valda landsbyggðarfólki
verulegum áhyggjum ef rekstrargrundvöllur
Ríkisskips veikist, þannig að vöruflutningar
verði dýrari og vöruverð á landsbyggðinni þar
með hærra.
Akureyri fær sinn
skerf í samdrættinum
Fjárhagsáætlun fyrir Akureyrarbæ hefur verið
lögð fram og er samstaða um hana, eins og
oft áður undanfarin ár, með örfáum undan-
tekningum þó.
Það hefur verulega áhrif á þessa fjárhags-
áætlun að ríkið hefur dregið mjög úr framlög-
um sínum, bæði til framkvæmda og til Jöfnun-
arsjóðs sveitarfélaga, sem dregur tekjur Ak-
ureyrarbæjar saman um 18-19 milljónir króna
þegar tekið er mið af verðbólguþróun. Upp-
hæðin er sú sama í krónutölu í ár og í fyrra,
sem þýðir um 30% lækkun raunvirðis. Fram-
lög ríkisins vegna ákveðinna framkvæmda
halda ekki einu sinni sömu krónutölu, heldur
lækka um 6 milljónir.
Það er því greinilegt að Akureyringar fá
sinn skerf af niðurskurðinum og samdrætti í
ríkisrekstrinum, sem hlýtur að koma fram í
minni framkvæmdum en æskilegar væru.
-viðtal dagsins________________________________________________________________
„Erum kræklótt
eins og íslenska birkið“
- segir Ingibjörg Sveinsdóttir, en Gigtarfélag íslands verður
100 ára á næsta ári og hyggst gera átak í félagasöfnun
„Gigtarfélag íslands var stofn-
að 9. oktober 1966 og verður
því 10 ára næsta haust. í því til-
efni er fyrirhugað að stofna
deildir víða um landið og einn-
ig ætlum við að gera verulegt
átak í þá átt að etla félagið,“
sagði Ingibjörg Sveinsdóttir fé-
lagi í Gigtarfélaginu.
„Við ætlum að reyna af fá sem
flesta til liðs við okkur, því í því
liggur okkar styrkur. Á íslandi
eru um 20 þúsund manns sem
þjást af gigt á mismunandi háu
stigi. Þetta er dýrasti sjúkdómur
okkar íslendinga."
Ingibjörg sagði að í tilefni af 10
ára afmælinu færi nú fram átak í
félagasöfnun og er þegar farið af
stað. Þegar menn ganga í félagið
þá taka þeir sér þrjá garnspotta í
hönd og mæla einn faðm. Litirnir
eru þrír, rauður, grænn og blár.
Rauði liturinn táknar kærleika,
„Okkur veitir ekki af allri þeirri
vináttu og kærleika sem býðst,“
sagði Ingibjörg. Græni liturinn er
tákn vonarinnar, „Við vonumst
til að verða heldur betri á morg-
un en við vorum í gær,“ og blái
liturinn er tákn trúarinnar, „en
við trúum því að einhvern tíma
verði komist að því af hverju
gigtin stafar.“ Hver faðmur sem
nýir félagar taka er undinn upp í
hnykil og er það von þeirra sem
að félagasöfnuninni standa að
þegar upp verður staðið þá nái
hnykillinn hringinn í kringum
landið.
Nú stendur yfir sala happ-
drættismiða á vegum Gigtarfé-
lagsins. „Við höfum aðallega
gengið með miðana í fyrirtæki og
hefur okkur verið ákaflega vel
tekið. Enda hlýtur það að vera
vinnuveitendum mikið kappsmál
að starfsfólkið sé hraust og
vinnustaðir ættu að fá til sín iðju-
og sjúkraþjálfara til að leiðbeina
um réttar vinnustellingar og
slökun. Slíkt getur komið í veg
fyrir vöðvabólgu og er þá ekki
svo lítið unnið.“
Gigtarfélagið gefur út tímarit
sem kemur út fjórum sinnum á
ári. í því eru upplýsingar um
ýmis lyf og varnir gegn gigtinni.
Gigtarfélagið hefur þegar komið
upp gigtlækningastöð í Reykja-
vík, en það er markmiðið að
koma upp fleiri slíkum stöðvum
víðar um landið og sagði Ingi-
björg að á Eyjafjarðarsvæðinu
væri mjög vel við hæfi að setja
upp eina stöð.
„Ég vil líkja okkur gigtarsjúkl-
ingum við íslenska birkið. Við
erum kræklótt eins og það, en við
seiglumst áfram. Gefumst ekki
upp. Birkið gefst ekki upp þó við
hlið þess sé gróðursett falleg
planta, það stendur fyrir sínu. Og
birkið springur ekki út fyrr en
vorið er örugglega komið. Það
gerum við gigtarsjúklingar líka,
við liðkumst öll þegar sólin fer
að skína.
Veturnir eru okkur verstir.
Hreyfing er okkur nauðsynleg,
en að vetrinum eigum við erfitt
með að klæða okkur í þykk föt og
það er líka erfitt að hreyfa sig
mikið klæddur. Auk þess sem
erfitt er að ganga í færðinni hér-
lendis. Það er ákaflega nauðsyn-
legt fyrir gigtarsjúklinga að klæða
sig rétt og vera ekki í gerviefnum.
íslenska ullin er mjög góð og
heldur vel hita, og mokkaskinns-
jakkarnir okkar eru stórkostlegar
flíkur. Eiginlega er það okkur
ómetanlegt að geta klæðst slíkum
fötum á hörðum vetri.“
Ingibjörg sagði að á næsta ári
væri fyrirhugað að fá skógræktar-
félög í landinu til liðs við gigtar-
félagið og yrði þá farið af stað
með herferð þar sem kjörorðið
væri „Gróðursetjum fyrir gigtar-
sjúka.“ „Hver planta sem sett
yrði niður veitir okkur skjól og
við gigtarsjúklingar þurfum á öllu
því skjóli að halda sem mögulegt
er,“ sagði Ingibjörg.
Að lokum vildi Ingibjörg
hvetja alla til að hafa samband,
en hún veitir allar upplýsingar
um gigtarfélagið og hefur með
sölu happdrættismiðanna að
gera. „Fólk sem þjáist af gigt á
erfitt með að hreyfa sig og því er
hætta á að það einangrist. Ég vil
endilega hvetja fólk til að hafa
samband, það verður að láta í sér
heyra. Við verðum að tala hvort
við annað.“ -mþþ
Ingibjörg Sveinsdóttir með hnykilinn góða. „Hver nýr félagi í gigtarfélaginu
tekur einn faðm af von, trú og kærleika og við vindum upp í hnykil. Vonandi
verður hann stór þegar upp verður staðið!! Mynd: KGA