Dagur - 17.12.1985, Blaðsíða 3
17. desember 1985 - DAGUR - 3
Landbúnaðartæki,
flestar gerðir.
Leikfangaúrval
í sérflokki
fyrír stráka og
stelpur.
rmrmmmm
HAFNARSTRÆTI 96 SÍMI 96*24423 AKUREYRI
Framkvæmdir við Síðuskóla fóru 16 milljónum króna fram úr áætlun á árinu.
Framkvæmdafé bæjarsjóðs:
35 milljónum króna
minna en í fyrra
- segir Sigurður Jóhannesson forseti bæjarstjórnar
Ráðstöfunarfé Bæjarsjóðs
mun samkvæmt fjárlagafrum-
varpinu verða minna á næsta
ári en nú er og er munurinn um
4%.
„Það eru einkum þrjú atriði
sem valda því að ráðstöfunarfé
Bæjarsjóðs er minna nú en í
fyrra“, sagði Sigurður Jóhannes-
son forseti bæjarstjórnar.
„í fyrsta lagi fóru framkvæmdir
við Síðuskóla 16 milljónum
króna fram úr áætlun, sem er
100% umfram áætlun.
í öðru lagi er framlag úr Jöfn-
unarsjóði sveitarfélaga nánast
óbreytt frá fyrra ári í krónum tal-
ið en hefði átt að hækka um 12
milljónir króna til þess að halda í
við verðbólguna. En breyttar
reglur stjórnvalda gera það að
verkum að sjóðurinn hefur úr
minna fjámagni að spila nú en
áður.
í þriðja lagi lækka framlög
ríkisins til framkvæmda hér í bæ
um 1 milljón frá fyrra ári en
hefðu átt að hækka um 6 milljón-
ir króna til þess að ná sömu
krónutölu og framreiknuð fjár-
veiting fyrra árs. Þessir þrír liðir
valda því að framkvæmdafé er 35
milljón krónum minna en ella
hefði orðið.
Þá má benda á að verðbólgan á
þessu ári varð meiri en gert var
ráð fyrir í fjárhagsáætlun í ár og
launaliðir fóru þess vegna um 15
milljón krónum fram úr áætlun
Þar valda kjarasamningarnir við
STAK, sem gerðir voru á árinu,
mestu um,“ sagði Sigurður.
„Eina nýframkvæmdin sem við
veitum fé til er bygging Verk-
menntskólans og þótt framlagið
sé ekki eins hátt og við hefðurn
kosið stöndum við þó fyllilega við
okkar hluta. Að öðru leyti stefn-
um við að því að ljúka eldri fram-
kvæmdum. Þar má nefna endur-
nýjun á húsnæði leikskólans
Árholts, lokafrágang Flúða og
svo áframhaldandi uppbyggingu í
Hlíðafjalli, en ný skíðalyfta verð-
ur keypt á næsta ári.
Suðurhluti Norðurgötu verður
endurbyggður ásamt fleiri götum
bæjarins og þá verður því átaki
haldið áfram að malbika gang-
stéttir í bænum en alls er áætlað
að verja 34,5 milljónum til
endurbyggingar og malbikunar
gatna og gangstétta,“ sagði Sig-
urður.
Hann benti á að töluvert hefði
reynt á gjaldþol húseigenda
vegna hárra hitaveitugjalda en
nú væri komið til móts við þá
með lækkun vatnsskatts og fast-
eignagjalda. BB.
AJkureyringar - Norðlendingar
Höftun opnað
raftækjaverslun
að Brekkugötu 7, Akureyri.
Fjölbreytt úrval af rafmagnsvörum til heimilisnota.
^ Yfír 30 ára þjónusta við Norðlendinga. ^
Veriö velkomin.
Ingvi R. Jóhannsson, löggiltur rafverktaki,
Brekkugötu 7, sími 26383 og Óseyri 6, sími 24223.
Það kemst
tilskilaíDegi
Áskrift og auglýsingar S (96) 24222^^
„Smellur“ er
kominn út
Út er komið 4. tbl. af tónlistar-
tímaritinu Smelli. Smellur er
stærri en nokkru sinni áður, 40
blaðsíður. Fjölbreytt efni um
tónlist og komið víða við. M.a.
greinar um Herbert Guðmunds-
son, Art, U2, Toyah, Rikshaw,
Þrek, Depeche Mode, Bryan
Ferry og Centaur. Viðtöl við
Addý og Mána Svavarsson í Cosa
.Nostra, Eddie Van Halen,
Wham!, Allt um „Eþíópuplöt-
una“ Hjálpum þeim, kíkt inn á
Rás 2 þegar verið var að velja
vinsældalistann. Einnig fréttir
frá Mezzoforte, David Bowie,
Jennifer Rush, Arcadia, Phil
Collins, Simon Le Bon, George
Michael, Paul Young, Pat Benat-
ar, Go West, Mouern Talking,
Marillion, Stevie Wonder, ofl.
ofl.
í nýjasta Smelli er líka að finna
vinsældakosningu fyrir árið
1985, þar sem lesendum gefst
kostur á því að taka þátt í vali um
vinsælustu íslensku og erlendu
hljómsveitina, söngvarann,
hljómplötuna, lagið. Einnig
verður kosið um björtustu vonina
1986 ásamt vali á vinsælasta tón-
listarþættinum á Rás 1 & Rás 2.
Tónlistarkrossgátan er á sínum
stað ásamt verðlaunagetraun þar
sem spurt er um ákveðna pers-
ónu. Lesendur Smells velja lög á
vinsældarlista sem birtist í hverju
blaði.
Jólaávextír
Epli, rauð amerísk ex. fancy
kr. 58,00 kg. Ks. kr. 980,00 (I8V2 kg í ks.)
Epli, rauð amerísk Washington
kr. 78,00 kg. Ks. kr. 1.250,00 (I8V2 kg í ks.)
Epli, gul frönsk
kr. 55,00 kg. Ks. kr. 860,00 (17'/2 kg í ks.)
Appelsínur, spánskar
kr. 70,00 kg. Ks. kr. 950,00 (15 kg í ks.)
Klementínur
kr. 57,50 kg. Ks. kr. 589,00 (IOV2 kg í ks.)
Auk þess höfíun við
úrval af öðrum ávöxtum.