Dagur - 17.12.1985, Blaðsíða 9
17. desember 1985 - DAGUR - 9
1-X-2 1-X-2 1-X-2 1-X-2 1-X-2 1-X-2
1-X-2 1-X-2 1-X-2 1-X-2 1-X-2 1-X-2
Desembermót Óðins í sundi:
Glæsilegt (slands-
met Birnu
Birna Björusdóttir sundkona úr Óðni.
Eins og sagt var frá í blaðinu í
gær, setti Birna Björnsdóttir
glæsilegt íslandsmet í 50 m
skriösundi meyja, á Desem-
bermóti Oöins sem lauk um
helgina. Þá synti Svavar Þór
Guðmundsson undir íslands-
meti í 50 m baksundi en sundið
var dæmt ógilt.
Fjölmörg Akureyrarmet féllu
eins og svo oft áður þegar krakk-
arnir úr Óðni hafa verið að
keppa. Hér á eftir verður getið
um þau met er féllu á mótinu.
Birna Björnsdóttir setti
Ak.met í eftirtöldum greinum: í
1500 m skriðsundi á 22:03,00, í
800 m skriðsundi á 11:18,90, í
400 m skriðsundi á 5:22,60, í 200
m baksundi á 2:50,70, í 50 m
baksundi sem hún tvíbætti, fyrst
í 37,00 og svo við íslandsmet til-
raun 36,80, í 200 m fjórsundi á
2:58,40 að ógleymdu íslands-
metinu í 50 m skriðsundi 30,80.
Svavar Þór Guðmundsson setti
Ak.met í eftirtöldum greinum:
1500 m skriðsundi á 18:33,80, í
400 m skriðsundi á 4:38,90, í 200
m skriðsundi á 2:13,80, í 50 m
baksundi á 31,50 sem er annar
besti árangur í 50 m baksundi frá
upphafi. í metatilraun synti Svav-
ar undir íslandsmeti en sundið
var dæmt ógilt. Svavar setti einn-
ig Ak.met í 100 m baksundi á
1:08,70, í 200 m flugsundi á
2:39,60 og í 200 m fjórsundi á
2:30,20.
Elsa Guðmundsdóttir setti
Ak.met í 400 m bringusundi á
6:50,30 og 100 m flugsundi á
1:36,30.
Gunnar Ellertsson synti 800 m
Skíðafólk við
skriðsund á 12:19,80 sem er
Ak.met sveina. Sonja Gústafs-
dóttir synti 50 m flugsund á 58,00
:sem er Ak.met í hnátuflokki,
(10 ára og yngri). Hlynur Túlin-
íus synti 100 m skriðsund á
1:22,90 sem er Ak.met í hnokka-
flokki (10 ára og yngri). Að lok-
um má geta þess að Ármann H
Guðmundsson setti Ak.met í 50
m skriðsundi í karlaflokki á
26,70.
Af þessum tölum má sjá að
sundfólk frá Óðni er til alls lík-
legt í framtíðinni og eru framfarir
greinilega miklar.
æfingar í Noregi
Fyrir skömmu héldu til Geilo í
Noregi, þeir Ingólfur Gíslason,
Guðmundur Sigurjónsson og
Rúnar Kristinsson til skíðaæf-
inga. En þessir ungu skíða-
menn eru í svokölluðu b-lands-
liði þó þeir hafi farið þarna út á
eigin vegum.
~Alþjóða-
skíðamót
á Akureyri
Ákveðið hefur verið að halda á
íslandi Alþjóðleg skíðamót í
alpagreinum á næsta ári. Þetta
eru Fis-mót og munu þau verða
4 að töiu. Þar af munu 3 af þess-
um mótum verða haldin á Ak-
ureyri, það fyrsta í mars á næsta
ári.
Er stefnt að því að fá erlenda
keppendur á mótin og eru allar
líkur á að svo verði. Nánar
verður sagt frá þessum mótum
innan tíðar.
Þeir munu dvelja í Noregi í
mánuð og munu þeir koma til liðs
við þá, Daníel Hilmarsson og
Hafsteinn Sigurðsson landsliðs-
þjálfari. Strákarnir munu jafnvel
taka þátt í einu til tveimur mót-
um á meðan dvöl þeirra stendur
yfir. Þá fór Gréta Björnsdóttir út
til Noregs á sunnudag og mun
hún dvelja með strákunum við
æfingar í hálfan mánuð en Gréta
er í unglingalandsliðinu á
skíðum.
lngólfur Gíslason er einn þeirra skíðamanna sem æfir í Noregi um jólin.
Þorieifur skorar
á Heiðar
Þorleifur heldur áfram að slá menn út í getraunaleiknum og núna
síðast Val Arnþórsson. Þorleifur hafði 7 leiki rétta en Valur 6. Þor-
leifur hefur ákveðið að skora á Heiðar Jóhannsson dekkjaviðgerð-
armann og þá aðallega vegna þess að honum finnst svo gaman að
vinna Þórsara, á hvaða sviði sem það nú er. Heiðar er brjálaður
aðdándi Everton en eins og flestum er kunnugt lágu þeir heima um
helgina fyrir Leicester. En við skulum sjá hvernig þeim félögum
tekst til um næstu helgi.
Birmingham-Chelsea 2 Birmingham-Chelsea
Coventry-Everton 2 Coventry-Everton 2
Liverpool-Newcastie 1 Liverpool-Newcastle 1
Luton-West Ham 2 Luton-West Ham 2
Man.United-Arsenal 1 Man.United-Arsenal x
Sheff. W ed-Man .City 1 Sheff.Wed-Man.City 1
Tottenham-Ipswich 1 Tottenham-Ipswich x
Charlton-Grimsby 1 Charlton-Grimsby 1
Fulham-Middlesbro 1 Fulham-Middlesbro 1
Huddersf.-Oldham x Huddersf.-Oldham 2
Stoke-Barnsley x Stoke-Barnsley 2
Wimbledon-Sheff.U x Wimbledon-Sheff.U 2
Athugið!
Fólk sem spilar í getraunum er minnt á að skila seðlunum inn fyrir
hádegi á fimmtudögum, svo enginn verði nú af vinningi.
Þorleifur.
Heiðar:
Víðir Sigurðsson með bækur sínar.
r
Mynd: AE.
Islensk knatt-
spyrna og saga
West Ham
Nýlega gaf Bókhlaðan út tvær
bækur fyrir knattspyrnuáhuga-
inenn. Það eru annars vegar
íslensk Knattspyrna 1985 eftir
Víði Sigurðsson, og hins vegar
Saga West Ham í þýðingu fyrr-
nefnds Víðis. Þetta er í fimmta
sinn sem Islensk Knattspyrna
kemur út, en að þessu sinni er
nokkuð breytt form á henni,
og eru þær breytingar til hins
betra.
Bókin er mjög skemmtilega
uppsett og auðvelt er að finna
þær upplýsingar sem ætlunin er
að finna. í byrjun bókarinnar er
farið yfir stórviðburði ársins í
dagbókarformi, en síðan tekur
við rækileg umfjöllun um deildar-
keppnina síðastliðið sumar þar
sem farið er yfir hverja umferð
fyrir sig í öllum deildunum
fjórum, auk þess sem kvenna-
knattspyrnan og yngri flokkarnir
eru tekin fyrir. Þá er umfjöllun
um hvert lið fyrir sig, árangur
þéss rakinn og tölulegar upplýs-
ingar gefnar um leikmenn. Auk
þessa eru í bókinni sérkaflar um
landsleiki, Evrópuleiki og ís-
lenska landsliðið. Auðséð er að
mjög hefur verið vandað til allrar
vinnu við upplýsingaöflun og
óhætt er að fullyrða að bókin er
hin gagnlegasta sem uppflettirit
um Islenska knattspyrnu 1985.
Saga West Ham er í bókaröð
þar sem áður hafa komið út saga
Liverpool og Manchester United
og er í henni að finna flestar upp-
lýsingar um liðið sem mönnum
getur dottið í hug að leita að.
Bókin er ágætlega unnin og Þýð-
ing Víðis er hin ágætasta.
AE