Dagur - 17.12.1985, Side 12
Akureyri, þriðjudagur 17. desember 1985
Vantar þig
smurt brauð, snittur, cocktailsnittur, ostapinna,
ostabakka, smurbrauðstertur eða rjómatertur,
hafið samband við smurbrauðsstofu Bautans sími 21818
og hún uppfyllir óskir þínar fljótt og vel.
gengið vel og ökumenn virðast
vera tillitssamir nema hvað varðar
að leggja bílum sínum löglega.
T.d. leggja menn mikið í Skipa-
götunni, austan götunnar gegnt
Alþýðuhúsinu og skapa með því
slysahættu. Lögreglan beinir því
til ökumanna að leggja á merkt
bifreiðastæði í Miðbænum og
skapa með því aukið öryggi um
leið og þeir koma í veg fyrir það
að þurfa að greiða sektir vegna
þess að hafa lagt þar sem það er
ekki heimilt.
Útibú Búnaöarbankans á Akureyri varð 55 ára í gær. Ekki var þó efnt til veislu, heldur látið nægja að bjóða upp
á piparkökur með kaffínu sem viðskiptavinum bankans er jafnan boðið upp á. Myndina hér að ofan tók KGA af
starfsfólki bankans á Akureyri í gær.
Þótt nokkuð niikil umferð væri
á Akureyri í gær urðu fá um-
ferðaróhöpp að sögn lögregl-
unnar. Þó urðu tveir smávægi-
legir árekstrar í umferðinni,
annar á Þingvallastræti en hinn
í Undirhlíð. Þá kom einn bif-
reiðaeigandi til lögreglunnar en
heybaggi hafði fallið af annarri
bifreið og á hans bifreið sem
dældaðist eitthvað.
Lögreglan á Akureyri er með
aukinn viðbúnað vegna jólaum-
ferðarinnar. Umferðin hefur
Húsavík:
Fjörutíu mynd-
bönd úr umferð
Lögreglan á Húsavík hefur lagt I barst á leiguna frá dreifingar-
hald á um 40 myndbönd frá aðila, sem orðið hafði var við
einni myndbandaleigunni hér í fjölfaldaða mynd þaðan.
bæ undanfarna daga. Kæra | í framhaldi af því fékk lögregl-
Frumvarp að fjárhagsáætlun:
Ekki króna
til Iþrótta-
hallarinnar
„Jólin - já já, styttist í þau.“ Og ekki síst þess vegna þarf margt að spjalla.
Mynd: KGA.
Heimavistir vantar
- fyrir hundruð utanbæjarnema á Akureyri
Til þess að Ijúka við byggingu
íþróttahallarinnar á Akureyri
þarf 20.019.000 krónur miðað
við vísitölu byggingarkostnað-
ar eins og hún var I. október
s.l. íþróttaráð bæjarins fór
fram á 12 milljónir króna á
fjárhagsáætlun næsta árs, en
samkvæmt frumvarpi að fjár-
hagsáætlun Bæjarsjóðs Akur-
eyrar sem lagt verður fram til
fyrri umræðu á fundi bæjar-
stjórnar í dag, er ekki gert ráð
fyrir einni einustu krónu til
framkvæmda við íþróttahöll-
ina.
Gísli Kr. Lórenzson sagði í
samtaii við Dag að það hefði
valdið sér miklum vonbrigðum
að sjá hvernig óskir íþróttaráðs
um fjárveitingu til íþróttahallar-
innar væru sniðgengnar í frum-
varpi að fjárhagsáætlun. Þeir
verkþættir sem íþróttaráð vildi
láta vinna á næsta ári lúta flestir
að því að uppfylla kröfur og regl-
ur um öryggi og hollustu, að sögn
Gísla. Hann sagðí ennfremur að
íþróttaráð hefði tekið þá stefnu
við gerð tillagna um fjárveitingar
til íþróttamannvirkja að gera
ákveðin verkefni að forgangs-
verkefnum og láta ljúka þeim
sem fyrst en önnur fengju að bíða
á meðan. Þau verkefni sem
íþróttaráð vildi láta hafa forgang
á næsta ári voru, auk íþróttahall-
arinnar, skíðalyfta í Hlíðarfjalli
og aðstaða Skautafélags Akur-
eyrar. Af þessum þremur verk-
efnum er aðeins skíðalyftan inni í
frumvarpi að fjárhagsáætlun en
raunar var þegar búið að ganga
frá kaupum á henni. -yk.
an heimild til að gera húsrann-
sókn í myndbandaleigunni og
fann bæði myndir og eftirtökur
mynda, sem ekki virtust komnar
rétta boðleið frá rétthöfum
myndbandanna.
Stóran hluta þessara mynda
hafði eigandinn keypt í góðri trú
frá Akureyri.
Haft var samband við lögmann
rétthafa myndbanda og kom
hann norður og fór í fleiri leigur
en fann ekkert athugavert.
Myndir þær sem hald var lagt
á eru ótextaðar og sumar gamlar.
Lögreglan skilaði aftur stórum
hluta þess magns sem lagt var
hald á í upphafi en þar er um að
ræða efni sem enginn rétthafi er
fyrir. En sem fyrr segir eru enn
um 40 spólur í vörslu lögreglunn-
ar á Húsavík.
Fimm myndbandaleigur eru
nú á Húsavík og er töluverð sam-
keppni þeirra á milli. Ýmis tilboð
hafa verið í gangi og lægsta verð
á spólu, sem fram til þessa hefur
verið auglýst, er 10 krónur!
IM - Húsavík
„Sameiginlegur fundur skóla-
meistara og aöstoðarskóla-
meistara Menntaskólans á Ak-
ureyri og skólameistara og
skólanefndar Verkmennta-
skólans á Akureyri, mælist til
þess að á næsta fjárhagsári
leggi Ríkissjóður og Bæjar-
sjóður Akureyrar fram fé til að
hanna nýjar heimavistir, þann-
ig að unnt verði að hefja smíði
á árinu 1987.
Heimavistirnar rísi í tengslum
við núverandi heimavistir
Menntaskólans á Akureyri, rúmi
allt að 150 manns og þjóni nem-
endum beggja skólanna.“
Ofangreind samþykkt var gerð
10. desember s.l. I greinargerð
skólameistara beggja skólanna
sem lögð var fram með sam-
þykktinni, kemur fram að í vetur
eru 574 aðkomunemendur í þess-
um tveimur skólum á Akureyri.
Heimavistir Menntaskólans rúma
hinsvegar ekki nema 160 nem-
endur þannig að á fimmta hundr-
að framhaldsskólanemenda á
Akureyri þarf að leita sér að hús-
næði á almennum markaði ár
hvert.
Lokaorð greinargerðar skóla-
meistaranna eru þessi: „Fram-
haldsskólanemar hefja nám sem
unglingar, ljúka því fullorðnir,
þeim er því nauðsyn á öryggi til
náms og þroska, enda eru þeir
flestir að hleypa heimdraganum í
fyrsta skipti. Því þykir okkur að
brýnni nauðsyn beri nú til en
áður að gera myndarlegt átak í
húsnæðismálum nemenda." -yk.
Akureyri:
Jólaumferðin
gengur vel