Dagur - 18.12.1985, Blaðsíða 18

Dagur - 18.12.1985, Blaðsíða 18
18 - DAGUR - 18. desember 1985 - voru kveðjumar sem utanríkisráðherra Breta heilsaði Einari Ágústssyni með, þá utanríkisráðherra í landhelgisstríði - nú sendiherra í Kaupmannahöfn „Ég er ekki í neinum vafa um það að okkar sigrar í landhelgisdeilunum við Breta og Pjóðverja flýttu mjögfyrir hafréttarþróuninni. Frá þessum tíma, þeg- ar við stóðum í samningaviðrœðum við Breta, eru fyrstu ferðirnar til London ákaflega minnisstœðar. Við fórum saman, ég og Lúðvík Jósepsson, sem þá var sjávarútvegsráðherra, og við fengum vœgast sagt ákaflega fálegar móttökur í breska utanríkisráðuneytinu. Ég get ekki gleymt því þegar Magnús Magnús- son, sá frægi sjónvarpsmaður, kenndi mér ensku á einum degi, þ.e. að segja hann kenndi mér þá ensku sem dugði á blaðamennina í London. Hann sagði mér hvernig blaðamennirnir myndu spyrja mig og hvernig best væri að svara þeim. Ef ég hef einhvern tíma komist velfrá blaðamannafundi þá á ég honum mikið að þakka. Við höfðum ekki nema einn dag til umráða og við lokuðum okkur inni. Hann dældi í mig spurningum eins og harðasti blaðamaður myndi gera, hafði rök Bretanna á takteinum. Stundum álpaðist ég til að svara honum rétt en stundum benti hann mér á að e.t.v. væri heppilegra að svara öðruvísi — hafði góða tilfinningu fyrir því hvað gengi í þessa menn. Nú, síðan útvegaði hann mér aðgang að breska útvarpinu og sjónvarpinu þar sem égfékk tækifœri til að koma á framfœri þessum lífsnauðsynjakröfum Islendinga. Þannig að ég tel mig standa í stórri þakkarskuld við Magnús. Við áttum svo fjölmarga fundi með breskum ráðamönnum, eins og t.d. Alex Douglas-Hume, utanríkisráð- herra Breta sem ég hitti í New York. Hann sagði ekki komdu sæll eða neitt í þá veruna, heldur: Hvern andskotann heldur þú að þú sért að gera, eða með hans orðum: „What the devil do you think you’re doing. “ Þannig heilsaði hann mér, en kvaddi mig aftur á móti með miklum virktum og fylgdi mér út að lyftu. “ Það er Einar Ágústsson, sendiherra í Kaupmannahöfn, sem er í viðtali við Dag. Hann var utanríkisráðherra íslands þegar þjóðin átti í tveimur þorskastríðum við Breta. íslendingar unnu bæði eins og kunnugt er - fyrst 50 mílna og síðan 200 mílna stríðið. Að flestra mati var Einar Ágústsson mjög góður fulltrúi íslands á er- lendri grund, virðulegur og hæglátur, afl- aði sér virðingar og sinni þjóð. Viðbrögð breska utanríkisráðherrans sem áður var lýst leiða til þeirrar spurningar, hvort pers- ónur manna geti vegið þungt í samskiptum sem þessum - hvernig þeir koma fram? í spurningunni átti að felast einhver tónn í þá veru, að persóna Einars hafi jafnvel átt einhvern þátt í því að leysa milliríkjadeilu. Takið eftir svarinu, sem e.t.v. lýsir Einari, hógværð hans og hæglæti: „Það er enginn vafi á því að sú lausn sem fannst í Osló 1976 byggðist að mjög verulegu leyti á persónunni Anthony Crossland, sem þá var orðinn utanríkis- ráðherra. Hann var þingmaður fyrir Grimsby, sem átti nú einna mest undir því komið að Bretar fengju áfram að fiska á ís- landsmiðum. Hann gerði sér grein fynr þvi að þetta mál var tapað, sem best sést á þvi að fljótlega eftir að undirskrifað var í Osló lentu Bretar í fiskistríði innan Efna- hagsbandalagsins og notuðu nákvæmlega sömu rök og við höfðum notað gegn þeim. Leystu brandarar landhelgis- deiluna við Breta? Við vorum á tímabili, þegar nokkrum fundum var lokið, alveg gjörsamlega von- lausir um að það þýddi yfirleitt nokkuð að vera að tala um þetta við Bretana - harkan og andstaðan var svo mikil. Ég minnist t.d. fundar í Reykjavík þar sem Lafði Tweeds- more hafði samningagerð með höndum af Bretlands hálfu. Ég átti svo að heita gest- gjafi í matarboði um kvöldið og kveið því mjög hvernig unnt yrði að komast fram úr því - allt var nánast í ófriði. Svo ég segi við Hans G. Andersen, sem alltaf var með mér: Nú verður þú að redda þessu kvöldi. Og hvernig á ég að gera það, svarar Hans. Með því að segja brandara, segi ég. Svo þegar við vorum sest að borðum tók Hans upp sinn mikla sjóð af gamansögum og úr

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.