Dagur - 18.12.1985, Blaðsíða 26

Dagur - 18.12.1985, Blaðsíða 26
26 - DAGUR - 18. desember 1985 Úr gömlum Degi Nú verður gluggað í gamla Daga! Við rifjum upp nokkur atriði frá árunum 1944, 1957 og 1961. Það var auðvitað algjör geðþóttaákvörð- un hvaða ár urðufyrir valinu og hvaða atburðir voru teknir út úr. Þetta er ekki úttekt á því sem merkilegast telst, fráleitt fréttaannáll. Bara svona hitt og þetta sem rekist var á er blöðunum var flett. Hvað um það, við byrjum bara að skoða. 1944 Við byrjum á að skoða árið 1944. í forsíðufrétt fyrsta tölublaðs árs- ins er frá því sagt að Dagur muni stækka um helming. Verði hér eftir 8 síður og komi út einu sinni í viku. Þá er frá því sagt að kaup verkamanna verði óbreytt í jan- úarmánuði, vegna óbreyttrar vísitölu. Mjólkursamlagið átti von á 5000 kílóum af amerísku smjöri og áttu þau að bæta mikla smjöreklu í bænum. Fjárhags- áætlun Akureyrarkaupstaðar var samþykkt á bæjarstjórnarfundi þann 18 janúar. Útsvarsáætlun var hækkuð um 43 þúsund krón- ur og voru niðurstöðutölur fjár- hagsáætlunarinnar 2.621.700. Gjöldin hækkuðu um 43 þúsund krónur og skiptust þannig: Verk- legar framkvæmdir hækkuðu um 30 þúsund, styrkur til Amtsbóka- safnsins 4000 og samþykkt var að greiða barnakennurum staðar- uppbót að upphæð 9000 krónur. Rauðakrossdeild Akureyrar fékk þetta ár nýja sjúkrabifreið frá Ameríku. Segir Dagur að þar hafi verið bætt úr brýnni þörf, því bifreiðin sem fyrir hafi verið hafi Iítt verið hæf til sjúkraflutninga. NÝKOMID FRÁ AMERÍKU: Samföst karlmanna NÆRFÖT (samfestingar).—Hlý og góð. BRAUNS VERZLUN Péll Sigurgeirsson Sjálfvirk símstöð var stofnsett á Akureyri og bærinn var talinn mesti skipasmíðabær á landinu. Skipasmíðastöðvar höfðu frá ár- inu 1940 smíðað 449 smálestir skipastóls. Hvar fáið þér herra- sokka á 2,55? spyr verslunin Vísir. „Ég giftist galdrakind.“ var sýnd í Nýja bíó í mars þetta árið. Kaup verkamanna við al- menna verkamannavinnu var 5,94 á klukkutímann í dagvinnu. Leikfélag Akureyrar frumsýndi Gullna hliðið annan páskadag og var hvert sæti leikhússins skipað. Höfundurinn, Davíð Stefánsson las „prologus“ að verkinu og var ákaft hylltur. Stórbruni varð í aprílbyrjun er húsið Túngata 1 brann til kaldra kola. Er slökkvilið kom á staðinn var húsið alelda og var því horfið frá því að reyna að slökkva í því. Áhersla var lögð á að verja næstu hús. Að sjálfsögðu var mikið um að vera í sambandi við þjóðarat- kvæðagreiðslu um sambandslaga- samninginn. Úrslit atkvæða- greiðslunnar urðu þannig að 98,6% kusu, 98,3% samþykktu sambandsslit og 95% samþykktu stjórnarskrá íslenska lýðveldis- ins. Þetta ár hóf göngu sína nýr þáttur í blaðinu sem var kvenna- dálkurinn „Móðir, kona, meyja“. Var dálki þessum ætlað að vera fræðslu og skemmtidálkur og flytja gagnleg húsráð, uppeldis- pistla og annað er fróðlegt þótti og nauðsynlegt hverri konu. Auk þess sem birta átti skemmtikorn annað veifið. Fyrsta húsráðið sem dálkurinn flutti lesendum sínum: Hvítir hringir undan heit- um ílátum á gljáfægðum hús- gögnum nást af með blöndu af spritti og bómolíu. Bletturinn er nuddaður af með ullarlepp. Á sama hátt má ná vaxblettum af húsgögnum. Einn brandari frá 1944: Hvern- ig gengur verslunin hjá þér? Guðsorðabókasalinn: Æi, minnstu ekki á það. Það koma Teygjii-simdbolir kr. 167.50. ---o-- Handklæðadregill kr. 43.00 7n. Klips og hárnálar Góð sápa í kössum Klæðaverzlun Sig. Guðmundssonar Útflutningsostarnir rannsakaðir í Mjólkursamlagi KEA. Frá vinstri: Þórhall- ur Halldórsson, Jónas Kristjánsson, Árni Jóhannesson verkstjóri. KVENNAFAR RÆTT k jUJMNM SVONEFNDAR landgönguli/W- sveitir vamarliðsins hér á landi héldu árshátið 10. nóv. og buðu - ' ^iVum stófr Hátið þeMarí lauk kl.'l ufa nóttina. og hinar 50 íslenzku stúlkur, sem sumar voru vsrt „af bamsaldri, áttu ,«ð yfijK£|j þó einstöku djöflar og kaupa eina og eina sálmabók! Annáll úr Mývatnssveitinni: Fjórir ungir bændasynir keyptu dráttarvél með tilheyrandi áhöld- um til jarðvinnslu. Lék mönnum hugur á að færa út kvíarnar í jarðrækt. Bændasynirnir voru Böðvar Jónsson á Gautlöndum, Þorgrímur Björgvinsson í Garði og Arnljótur og Sverrir Sigurðar- synir á Arnarvatni. Þetta ár vann 15 ára stúlka, Sigrún Sigtryggsdóttir frá Breiða- bóli á Svalbarðsströnd frækilegt sundafrek er hún synti yfir Akur- eyrarhöfn þvera. Frá svokölluð- um Veigastaðabás og að hafnar- bryggjunni að Torfunefi. Vega- lengdin var tveir kílómetrar og var Sigrún hin hressasta er hún steig á land. Hafði Sigrún verið á sundnámskeiði hjá ungmennafé- laginu Æskunni á Svalbarðs- strönd. Gúmmískór íá böm og fullorðna. L(Tékkneskir) SKÓÐEHD KEA Ungi maðurinn, hér á myndinni hafði heppnina með sér og varð bíleigandi fyrir jólin. Hlaut hann þennan bfl í happdrætti DAS. Drengurinn heitir Bene- dikt Ásmundsson, Höfða í Grýtubakkahreppi og er tveggja ára. JÓLADRYKKIR Ávaxtadrykkin - Kjamadrykkin Þá er dregið nær jólum, eplin voru væntanleg með e.s. Selfossi, félagsmenn voru beðnir að vitja skömmtunarmiða á skrifstofu kaupfélagsins. Og menn voru áminntir um að kaupa laukinn á meðan hann fengist. Til jólagjafa voru ágætar tegundir af dömu- undirfötum, silkiblússum og ís- garnssokkum til hjá Ragnheiði O Björnsson. Jólatré í hentugum stærðum voru væntanleg í byrj- um desember með Esjunni. Jóla- bók drengjanna þetta árið var „Lærið að fljúga“. 1957 Árið er 1957 og kílóið af appels- ínum kostaði 18 krónur. Innflú- ensufaraldur geisaði víða um sveitir norðanlands. Mývetningar dorguðu í janúar silung upp um ís og fengu einn daginn 100 sil- unga. í Nýja bíói var myndin 500 menn og 1 kona sýnd, sjálfsagt við góða aðsókn. Björn Guð- mundsson lagði til að íslenska nafnið hermir yrði tekið upp í stað útlenda orðsins grammó- fóns. Á Siglufirði var mikið hvass- viðri í endaðan janúar. Járnplöt- ur fuku af mjölskemmu og lenti ein þeirra inn um glugga íbúðar- húss og hafnaði við rúmstokk hjónanna. Kvenfélagið Hlíf minntist hálfrar aldar afmælis síns með veglegu hófi. ★ KVENBUXUR fyrirliggjandi. Verzlunin London lEyþór H. Tómasson.__________ Þær fréttir bárust utan úr hin- um stóra heimi að ungir menn í Uganda hefðu hafið verkfall gegn hjónaböndum. Ástæðan var ekki áhugaleysi heldur vildu þeir ekki borga tengdafeðrum sínum svo mikið fyrir konuefnin sem sett var upp. Hér á Akureyri var hins vegar ekkert í veginum og mikið var um trúlofanir. Samkvæmt skýrslum lögregl- unnar frá fyrra ári var 21 öku- maður sviptur ökuleyfi vegna ölvunaraksturs. Á fundi útvarpsráðs var sam- þykkt að fela Ríkisútvarpinu að undirbúa útsendingar íslensks sjónvarps. Stórmyndarlegt fé- lagsheimili í Öngulsstaðahreppi var vígt við hátíðlega athöfn sumardaginn fyrsta. Hlaut það nafnið Freyvangur. Alþingi samþykkti þingsálykt- unartillögu um jöfn laun karla og kvenna. Og á vordögum var unn- ið sleitulaust og af fullum krafti við framkvæmdir Útgerðarfélags Akureyringa. Búist var við að fiskmóttaka gæti hafist í júlí. Síld var mikil fyrir öllu Norð- urlandi, allt frá Hornbanka og

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.