Dagur - 18.12.1985, Blaðsíða 30

Dagur - 18.12.1985, Blaðsíða 30
30 - DAGUR - 18. desember 1985 Jólaundirbúningur: Hérnókn á Lwdarsel - Allir að búa til jólasveina Þau byrja snemma að undirbúa komu jólanna, blessuð börnin. Enda þeirra hátíð kölluð. Fyrir nokkru áttu blaða- maður og Ijósmyndari Dags leið um leikskólann Lundar- sel, hvar hin unga kynslóð var önnum kafin við jólaveina- gerð. Á Bangsadeildinni sátu börn- in umhverfis borð og klipptu, heftu og límdu í óða önn. Úr varð hinn glæsilegasti jóla- sveinn, sem hengdur var upp í loft stofunnar. Þar voru þeir tæplega þrjátíu saman og hafa eflaust skemmt sér vel við að horfa yfir áhugasaman barna- hópinn. „Minn á að heita Stúfur, en af því að Stúfur stelur alltaf skíðum, þá ætla ég að kalla hann Skyrgám,“ sagði lítil fimm ára gömul Rósa. Gunni varekki búinn að ákveða nafnið á sínum jólasveini, en Hanna var ákveð- in í að skíra sinn Hurðaskelli. „Þetta tekur allt sinn tíma?“ sögðu fóstrurnar, „þannig að við byrjum snemma.“ Börnin á Lundarseli höfðu lokið við að gera jólaskó. Þegar þau voru spurð hvað gera ætti við skóinn var svarið: „Setja hann út í glugga.“ - Hvenær má setja skóinn út í glugga? Það stóð ekki á svarinu: „Þrettán dögum fyrir jól, af því jólasveinarnir eru þrettán.“ En það er fleira en jólasveinar og jólaskór. Börnin höfðu líka útbúið skemmtilegar krukkur, sem þau límdu á hjörtu og fleira skrautlegt. - En hvað ætlið þið að gera við krukkurnar ykkar? „Við setjum í þær piparköku- kúlur. Við fáum bráðum að baka þær sjálf. Piparkökukúlur eru líka langbestu kökurnar.“ Og þá er það rúsínan í pylsu- endanum. Leyndarmálið. Undanfarna daga hafa börnin á Lundarseli verið að vinna að mjög leyndardómsfullu verk- efni. Eru meira að segja í sér herbergi við það. Leyndarmálið „Minn jólasveinn heitir Stúfur, en ég ætla að kalla hann Skyrgám!“ Á Kisudeildinni voru bömin að skreyta piparkökuboxin sín. er jólagjöf til mömmu og pabba. Blaðamaður fékk að sjá leyndarmálið, og það var. . . Nei, það má ekki segja frá leyndarmálum. Mömmurnar og pabbarnir verða bara að bíða þangað til pakkarnir verða opn- aðir á aðfangadagskvöld. Þegar við fórum yfir á Kisu- deildina hittum við þrjá hressa stráka, þá Jónas, Jóa og Gumma. Þeir sátu uppi í glugga og voru í indíánaleik. Sögðust þeir vera búnir að búa til bæði jólasveina og jólaskó. „Bráðum setjum við skóinn út í glugga,“ sögðu þeir. - Hvað haldið þið að komi í skóinn? „Örugglega eitthvert dót. Kannski líka mandarína." - Þið eruð í indíánaleik, eruð þið ekkert farnir að hugsa um vinnu tókst það. „Það má setja skóinn út í glugga þrettán dögum fyrir jól. jólin? „Við byrjum á því bráðum,“ var svarið. - Hvað gerið þið heima hjá ykkur fyrir jólin? „Kannski skreytum við her- bergin okkar. Við eigum svolít- ið af jólaskrauti." Jónas: „Ég á jólasvein sem er indíáni,hann ermeð jólasveina- húfu og skegg. Svo er hann líka með kúrekahatt.“ Kúreka- hatt? „Já, sko ofan á jólasveina- húfunni.“ Þegar við kvöddum börnin á Lundarseli, voru Atli Már og Heimir að búa til sína jóla- sveina. Það gekk dálítið erfið- lega að klippa húfuna. „Það er dálítill vandi að klippa . . . “ sögðu þeir, en héldu engu að síður áfram einbeittir á svip. -mþþ Joi, Jonas og tiummi. I indíánaleik uppi í glugga. „Við förum bráðum að hugsa um jólin.“ a krúsina mína,“ sagði þessi dama. urnar okkar,“ sögðu krakkarnir á Bangsadeildinni.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.