Dagur - 18.12.1985, Síða 24
24 - DAGUR - 18. desember 1985
Af hveiju fara menn á fjöll
- þegar þeir geta haft þad notalegt heima í stofu?
„Og þóttist vera töff“
Við búum við margslungna og oft á tíðum óblíða náttúru, við íslendingar. Veðurfarið er rysj-
ótt og veðrabreytingar tíðar. Mörgum þykir nóg um að þurfa að búa við dynti náttúrunnar
niðri í bæ en til eru þeir sem láta sig hafa það að æða upp um fjöll og firnindi um hávetur
°g liggja þar í frosti og misjöfnum vcðrum. Þetta háttalag þykir öðrum oft á tíðum hálf
undarlegt og ætla ég að segja hér stutta sögu sem útskýrir aðeins nánar hvað ég á við.
Sjálfur er ég áhugasamur um fjallaferðir og nokkur ár í röð eyddi ég páskum á fjöllum. Þessar
páskaferðir kröfðust mikils undirbúnings og því notaði ég flestar helgar seinni hluta vetrar til
æfingaferða. Þær fölust ýmist í daglöngum gönguferðum eða lengri ferðum þar sem maður gisti á
fjöllum, eina nótt eða tvær. Oftast var þá gist í tjöldum en stundum í skálum eða snjóhúsum og fyrir
kom að maður svaf undir berum himni. Oft hef ég rekið mig á að þeir sem ekki hafa reynt það að
sofa úti að vetrarlagi eiga bágt með að skilja hvað rekur menn til að gera siíkt án þess að brýn nauð-
syn reki þá til. Einn góður vinur minn sagði eitthvað á þessa leið um áðurnefnt hátterni mitt, þegar
honum varð hugsað til þeirra ára sem ég var hvað duglegastur við fjallaferðirnar: „Alveg var hann
Yngvi ómögulegur. Um miðjan vetur bilaði hann þannig að það var ómögulegt að fá hann með sér
á ball eða til að gera eitthvað annað skemmtilegt um helgar. Heldur vildi hann æða upp á fjöll um
hverja helgi til að grafa sig niður í skafl og láta sér verða kalt. Og þóttist vera töff!“
Ég ætla að láta þessar skýringar félaga míns á ferðum mínum duga, en til að reyna að gefa les-
endum einhverja innsýn í það hvað menn sækja á fjöll hafði ég samband við tvo forfallna fjallamenn
og bað þá að svara spurningunni; af hverju þeir færu á fjöll til að liggja úti um reginvetur, þegar þeir
gætu í stað þess legið heima í stofu og haft það notalegt.
-yk.
Vilhelm Ágústsson:
,J\4enn hafa cdltaf
sóst eftir svdoilfönm“
„Að vera á Sprengisandi á fal-
legum degi, inni á milli jökla
og hafa möguleika á að renna
upp á topp á þeim á nokkrum
stundarfjórðungum, það er al-
veg dásamleg tilfinning.“
Þetta hafði Vilhelm Ágústs-
son að segja um tilfinninguna
sem hann finnur fyrir þegar
hann er kominn upp á regin-
fjöU, akandi á vélsleða með fé-
lögum sínum. Vilhelm er for-
maður Landssambands ís-
lenskra vélsleðamanna og hef-
ur notað vélsleða til fjallaferða
í ein fimmtán ár, eða frá því í
árdaga vélsleða á íslandi.
„Vélsleðar eru þannig verkfæri
að mér finnst ekki að menn eigi
að vera mikið á þeim í bæ eða
byggð. Þetta er mesti ósiður þeg-
ar strákar eru að þjóta á sleðum
um göturnar. Þeir eiga að nota
þetta til að fara í leiðangra inn í
landið. Þeir sem einu sinni hafa
farið svona ferð verða alveg snar-
vitlausir í þetta og vilja hvergi
annars staðar tolla en uppi á
fjöllum, þegar fallegt veður er
seinnipart vetrar.
Menn fá það út úr þessu ^ð
þeir svala einhverri ævintýralöng-
un. Allir hafa gaman af því.
Maður kemur þreyttur heim og
er ánægður lengi á eftir en svo
kviknar fiðringurinn aftur, hugs-
anlega strax næstu helgi á eftir.
Kannski eru það túrarnir sem
hafa verið erfiðastir, þegar mað-
ur hefur lent í einhverjum þrek-
raunum, sem maður man lengst
eftir. Maður hefur lent í því oftar
en einu sinni að þurfa að labba til
byggða vegna óveðurs, hefur
orðið veðurtepptur í marga daga
uppi á fjöllum.“
- Hefur það ekki hvarflað að
þér þegar þú hefur verið að basla
við að komast til byggða í vit-
lausu veðri að hætta þessu nú,
vera ekki að leggja þetta á þig að
óþörfu?
„Nei, ég held að það sé þvert
á móti. Maður er sjálfsagt var-
kárari á eftir. Ég held að það sé
mjög fátítt að maður sem lendir í
erfiðleikum á fjöllum hætti að
ferðast vegna þess. Mannskepn-
an er nú einu sinni svona gerð að
menn þurfa sífellt að sækja
lengra og lengra. Ef þú skoðar
söguna þá sérðu að menn hafa
alltaf sóst eftir því að komast í
einhverjar svaðilfarir.
Allur útbúnaður til fjallaferða
er orðinn miklu léttari og betri en
hann var fyrir tiltölulega fáum ár-
um. Þessir skálar sem víða eru
komnir upp bjóða upp á fínustu
gistingu.
Hvað viðvíkur einstökum
ferðalögum þá lifa þau lengst sem
eru erfiðust en alltaf er þetta nú
jafn gaman. Það sem ég er
óánægðastur með núna er að
hafa ekki fengið norðlenska stór-
hríð hér í tvö, þrjú ár. Ég er glað-
astur þegar öll gil eru full af snjó
og allar girðingar á kafi. Þá liggur
vel á okkur vélsleðamönnum,"
sagði Vilhelm að lokum.
Vilhelm Ágústsson.
Friðrik Sigurðsson.
Friðrik Sigurðsson:
Fyrst ogfremst
er þetta gaman
Þótt Friðrik Sigurðsson sé ekki
nema 20 ára hefur hann stund-
að fjallaferðir í 7 ár. Hann
ferðast mest á gönguskíðum og
hefur meðal annars gert tvær
tilraunir til að ganga yfir
Vatnajökul um páska með fé-
lögum sínum. Hvorug tilraunin
tókst og þurftu þeir félagar í
bæði skiptin að fá aðstoð, i
fyrra skiptið fékk Friðrik
snjóblindu og varð að fá flutn-
ing heim og í seinna skiptið féll
félagi hans í jökulsprungu í
Kverkfjöllum. Það atvik er
flestum kunnugt því flestar
björgunarsveitir landsins tóku
þátt í að reyna að koma þeim
til aðstoðar. Þeim hefði reynd-
ar dugað að komið væri til
þeirra nægilega sterkum kaðli
til að ná manninum upp úr
sprungunni, en það er önnur
saga sem ekki verður sögð hér.
Nú hefur Friðrik hafið undir-
búning enn einnar ferðar og
enn á að Ieggja á jökulinn og
freista þess að komast suður
yfir. Hvað er það sem dregur
Friðrik og félaga á fjöllin?
„Fyrst og fremst er þetta
gaman. Maður hefur allt út af
fyrir sjálfan sig eða þann hóp sem
maður er í og þarf ekki að hafa
áhyggjur af neinu öðru. Fjalla-
sýnin getur verið alveg stórkost-
leg. Kannski er maður líka að
leita eftir tilbreytingu. Maður
reiknar alltaf með að geta fengið
slæmt veður og er við því búinn.
Það er jafn skemmtilegt að ferð-
ast í slæmu veðri eins og góðu.
Það er kannski önnur hugsun á
bak við. Maður er að reyna sjálf-
an sig, takast á við náttúruna. Oft
koma einhverjir gallar fram hjá
manni og þá reynir maður að
bæta úr þeim fyrir næstu ferð.
Sjálfsagt tekst þó aldrei að kom-
ast fyrir alla galla.
Ég er félagi í Flugbjörgunar-
sveitinni á Akureyri og það kem-
ur sér vel að vita svolítið um
landið og þekkja á veðurfarið á
íslandi þegar á reynir og maður
þarf að fara í björgunarleið-
angra.“
- Hefur einhvern tíma hvarfl-
að að þér þegar þú hefur lent í
erfiðleikum og vondu veðri að
hætta þessu nú og vera heima í
stofu um næstu páska?
„Þetta kom upp í huga okkar
á Vatnajökli í vor, kvöldið áður
en félagi minn féll í jökul-
sprunguna. Þá töluðum við um
að þetta yrði síðasta langa ferðin
sem við færum. Það væri of langt
að vera 10 til 12 daga, við. færum
ekki svona langt aftur, heldur
myndum við stytta ferðirnar nið-
ur í svona 6 daga. Þá vorum við
búnir að vera í leiðindaveðri all-
an tímann og orðnir þreyttir á
veðrinu en samt var þetta búið að
vera mjög gaman og við hefðum
ekki viljað hafa misst af þessu þó
að það hefði óneitanlega verið
skemmtilegra að geta séð eitt-
hvað frá okkur á þessum háu
bungum sem við höfðum labbað
yfir. En við vorum ekki fyrr
komnir heim til okkar en við vor-
um búnir að ákveða að reyna
einu sinni enn að komast yfir
jökulinn án þess að þurfa að
hætta við, einn eða fleiri."