Dagur - 30.12.1985, Blaðsíða 2
2 - DAGUR - 30. desember 1985
ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
SKRIFSTOFUR:
STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI
SÍMI: 24222
ÁSKRIFT KR. 420 Á MÁNUÐI
LAUSASÖLUVERÐ 40 KR.
RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAÐUR:
HERMANN SVEINBJÖRNSSON
RITSTJÓRNARFULLTRÚI:
GfSLI SIGURGEIRSSON
FRÉTTASTJÓRI:
GYLFI KRISTJÁNSSON
BLAÐAMENN:
ÁSLAÚG MAGNÚSDÓTTIR, BRAGI V. BERGMANN,
GESTUR E. JÓNASSON, INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavik),
YNGVI KJARTANSSON, KRISTJÁN G. ARNGRlMSSON,
KRISTJÁN KRISTJÁNSSON, MARGRÉT Þ. ÞÓRSDÓTTIR,
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRlMANN FRlMANNSSON
ÚTBREIÐSLUSTJÓRI:
HAFDÍS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASlMI 25165
FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON
PRENTUN: DAGSPRENT HF.
Ueiðari.___________________________
Við áramót
Þegar árið er liðið líta menn gjarnan til baka
- skoða það sem áunnist hefur og velta
vöngum yfir því sem betur hefði mátt fara.
Gjarnan líta menn í eigin barm og því er
ekki úr vegi að athuga örlítið þá miklu
breytingu sem varð á Degi á árinu 1985.
í septembermánuði varð Dagur að dag-
blaði, hinu fyrsta utan höfuðborgarsvæðis-
ins, eins og flestir landsmenn vita. Þar með
var brotið blað í fjölmiðlun í landinu, stigið
skref í málefnum landsbyggðarinnar og það
ekki svo lítið. Nær öll fjölmiðlun í landinu
hefur haft rætur í Reykjavík - henni er
stjórnað frá Reykjavík, að undanskildum
svokölluðum landsmálablöðum og héraðs-
fréttablöðum. Að eitt þessara blaða skuli
nú hafa þróast upp í það að verða dagblað
hlýtur að teljast til nokkurra tíðinda, ekki
síst þar sem málefni landsbyggðarinnar
hafa á síðari árum orðið að lúta í lægra haldi
fyrir sífellt ágengari og ómengaðri þéttbýl-
ispólitík. Er vonandi að landsbyggðarfólk,
hvar í flokki sem það stendur, skynji og
kunni að hagnýta sér það baráttutæki sem
Dagur er.
Það að landsbyggðin skuli eignast sitt
fyrsta dagblað er ekki síður athyglisvert
þegar litið er til þeirrar þróunar sem er í
dagblaðaútgáfu í Reykjavík. Þar hafa íhalds-
blöðin tvö algjöra sérstöðu, en í alvöru hefur
verið talað um að sameina hin blöðin þrjú,
þótt vart verði séð að sú leið sé fram-
kvæmanleg. Þessi þrjú blöð hafa fyrst og
fremst verið hugsuð sem málgögn þeirra
flokka sem að þeim standa. NT reyndi að ná
til fólks á breiðara grundvelli en það
mistókst, því miður, því mótvægi verður að
skapast við nær einlita hægrifjölmiðlun á
höfuðborgar s væðinu.
Dagur hefur alla tíð barist fyrir málefnum
landsbyggðarinnar og staðið vörð um þau
öfl í þjóðfélaginu sem vinna á sama grund-
velli. Dagur hefur lagt lið samvinnuhugsjón,
jöfnuði og þeirri grundvallarstefnu fram-
sóknarmanna að manngildið skuli ofar auð-
gildinu. Dagur hefur þó ekki lent í þá gryfju
að verða einlitt flokksblað, heldur hefur ver-
ið bent á það sem betur mætti fara í barátt-
unni fyrir jöfnuði og réttlæti öllum til handa,
hvar sem þeir búa á landinu og burtséð frá
því hvaða störf þeir inna af hendi.
Með von um áframhaldandi velvilja og
stuðning óskar Dagur lesendum sínum
gæfuríks nýs árs.
/iðtal dagsins.
Margrét Ása Jóhannsdóttir 9 ára: „Ég teiknaði mynd af stelpu með hjólið sitt.“ Mynd: - KGA.
„Ætlaði að teikna múrara
að múra biokk“
- sagði Margrét Ása Jóhannsdóttir
sem vann myndiistarkeppni Iðnaðarbankans
í tilefni af tuttugu ára afmæli
útibús Iðnaðarbankans á Ak-
ureyri var nýlega efnt til
myndlistarsamkcppni á meðal
9-11 ára barna á Akureyri. í
dómnefnd voru Helgi Vilberg
skólastjóri Myndlistarskólans á
Akureyri, Hringur Jóhannes-
son listmálari og Sigurður
Ringsted útibústjóri iðnaðar-
bankans á Akureyri. Hlut-
skörpust í myndlistarkeppni
þessari varð Margrét Ása Jó-
hannsdóttir, nemandi í þriðja
bekk í Glerárskóla.
„Ég teiknaði mynd af stelpu með
hjólið sitt. Hún var gerð úr vax-
litum og líka dálitlu af máln-
ingu,“ sagði Margrét Ása.
Fimmtíu myndir fengu viður-
kenningu og var haldin sýning á
þeim í Gamla Lundi við Éiðsvöll
dagana 21. nóvember til 1. des-
ember. Auk þess að veita viður-
kenningu fimmtíu myndum
keypti Iðnaðarbankinn tólf
myndanna og er mynd Margrétar
Ásu á jólakorti bankans í ár.
„Teiknikennarinn minn, sem
heitir Sigríður sagði við okkur að
við mættum teikna mynd í þessa
keppni. Við máttum ráða hvort
við yrðum með. Já, þetta er
fyrsta keppnin sem ég tek þátt í.
Eg veit ekki hvort ég ætla að taka
þátt í fleiri svona myndlistar-
keppnum, það getur vel verið.
- Hvað varstu lengi að teikna
myndina?
„Ég held ég hafi verið þrjá
teiknitíma að gera hana. Hún er
dálítið stór.“
- Varstu lengi að ákveða hvað
þú ætlaðir að teikna?
„Fyrst ætlaði ég að teikna múr-
ara, því kennarinn sagði að
myndin ætti að vera um iðnað.
Ég ætlaði að teikna múrara sem
var að múra blokk. Svo hætti ég
við það og þá ætlaði ég líka að
hætta við að vera með í keppn-
inni. En svo byrjaði ég á mynd-
inni með stelpunni og hjólinu.“
- Og vannst keppnina. Var
það ekki gaman?
„Jú, jú.“
- „Fékkstu verðlaun?
„Já, ég fékk bankabók með
2000 krónum.“
- Hvað ætlarðu að gera við
peningana?
»Ég er ekki alveg búin að
ákveða það. Ætli ég safni þeim
ekki bara. Nei, ég er ekki að
safna fyrir neinu sérstöku.“
- „Teiknarðu mikið?“
„Ég teikna stundum, já. Núna
er ég mest að teikna jólasveina.
Já, mér finnst gaman að teikna.
Að verða teiknikennari? Nei, ég
held ekki. Ég er ekki búin að
ákveða hvað ég ætla að verða
þegar ég verð stór.“
- Hvað er skemmtilegast í
skólanum?
„Mér finnst leikfimi skemmti-
legust, en er samt best í reikn-
ingi. Kennarinn minn heitir Val-
þór Þorgeirsson og hann er alveg
ágætur.“
- Lestu mikið?
„Já, svolítið. Mér finnst
ævintýrabækur skemmtilegastar,
en uppáhaldsbókin mín heitir
Við Guð erum vinir.“
- En hvað með tónlist, held-
urðu með Wham?
„Nei! Ég held með Duran
Duran. Nei, ég á ekkert uppá-
haldslag og ekki heldur með Dur-
an Duran. Það eru bara öll lögin
góð með þeim.“
- Hvað gerir þú skemmtilegt
á sumrin?
„Kannski ætla ég að passa
næsta sumar. En ég er oftast í
sveitinni á sumrin. Hef verið á
Bakkafirði og þar er gaman að
vera. Ég á bú þar sem er gömul
eldavél og líka gömul þvottavél.
Þar leik ég mér mest. Annars
finnst mér skemmtilegast að
hjóla held ég.“
- Að lokum, Margrét Ása,
ertu með á nótununv.....?
Margrét hlær og segir: „Ég á
alla vega Óskar. Ég'er að safna í
hann og hann er alveg að verða
fullur." -mþþ