Dagur - 30.12.1985, Page 10
10 - DAGUR - 30. desember 1985
5. Afköst rafbræðsluofns Stein-
ullarverksmiðjunnar á Sauðárkróki
reyndust minni en framleiðendur
hans höfðu ábyrgst, og leiddi það
m.a. til þess að orkukostnaður á
hvert tonn af steinull var hærri en ráð
hafði verið fyrir gert.
9. Ökumenn á Akureyri þurftu
að greiða 1,2 milljónir króna í sektir
fyrstu 9 mánuði ársins fyrir að aka of
hratt og leggja bifreiðum sínum ólög-
lega. Fyrir þessa upphæð hefði mátt
kaupa sex Skoda bifreiðar eða
þokkalega íbúð í fjölbýlishúsi.
10. AKVA sf. á Akureyri gerði
milljónasamning um sölu á vatni til
dansks aðila sem síðar ætlar að selja
vatnið til S.-Evrópu og Bandaríkj-
anna. Trygging er fyrir sölu á 4 millj-
ónum ferna á næsta ári og fer magnið
síðan vaxandi og verður orðið 12
milljónir ferna eftir 5 ár.
10. „Við höfum alltaf tekið hæsta
tilboði,“ saagði Ragnar Guðjónsson
hjá Fiskveiðasjóði er hann var spurð-
ur hvort Húsvíkingar myndu fá að
ganga inn í hæsta tilboðið í Kolbeins-
ey ef þeir ættu það ekki sjálfir. Málin
standa þannig í dag að 6 tilboð bárust
í skipið, og hefur ekki verið gefið
upp enn hverjir buðu eða hversu
hátt.
13. „Allur ullariðnaður er rekinn
með verulegum halla um þessar
mundir,“ sagði Jón Siguröarson for-
stjóri Iðnaðardeildar Sambandsins á
Akureyri. Jón sagði að ullariðnaður-
inn sæti við sama borð og fiskvinnsl-
an, megnið af afurðunum væri greitt
í dollurum sem hækka nánast ekki
neitt á sama tíma og kostnaður allur
fer upp á við.
16. „Það þorir enginn að afskrifa
Kröfluelda alveg, en mér finnst flest
benda til þess að þeim sé lokið í bili
a.m.k.,“ sagði Ármann Pétursson á
skjálftavaktinni í Mývatnssveit í
samtali við Dag.
16. Útgerðarfélag Kópaskers hf.
var stofnað. Stefnt var að því að
safna hlutafé að upphæð 10 milljón-
um króna og markmið félagsins var
að komast yfir skip til rækjuveiða.
Gert var tilboð í Helga S. sem boð-
inn var til kaups hjá Fiskveiðasjóði
en enn er ekki ljóst hvort skipið fer
til þessa nýja félags.
17. Frumvarp að fjárhagsáætlun
Bæjarsjóðs Akureyrar var tekið til
fyrri umræðu í bæjarstjórn. Gert er
ráð fyrir að heildartekjur verði 559,5
milljónir króna sem er 36,8% aukn-
ing. Þessum tekjum er ráðstafað
þannig í frumvarpinu að 410,6 millj-
ónir fara í rekstrargjöld, 60,3 millj-
ónir í gjaldfallinn stofnkostnað og
88,6 milljónir til eignabreytinga.
17. Menntamálaráðherra hefur
skipað nefnd til að gera tillögur um
hvaða háskólanám skuli bjóða upp á
í háskóla á Akureyri.
19. „Ég sé ekki, því miður, að Ak-
ureyringar hafi efni á því að greiða á
þriðja tug milljóna í verðjöfnunar-
gjald, sem notað er til að greiða nið-
ur húshitunarkostnað annars staðar
en á Akureyri, þegar það er sannað
mál að Akureyringar búa við ein-
hvern hæsta húshitunarkostnað á
landinu,“ sagði Jón Sigurðarson í
samtali við Dag. „Það er órökrétt að
við Akureyringar greiðum þetta
gjald eins og málum er háttað. Það
væri nær að við notuðum þessa pen-
inga til að greiða niður hitaveitu-
reikningana okkar,“ bætti Jón við.
19. 202 Húsvíkingar fengu greidd-
ar atvinnuleysisbætur en atvinnuleysi
er þar nú meira en um langt árabil.
Er það að sjálfsögðu til komið vegna
þess að Húsvíkingar hafa misst ann-
an togara sinn, Kolbeinsey.
23. Jóhann Sigurjónsson var settur
skólameistari við Menntaskólann á
Akureyri til fjögurra ára, en Tryggvi
Gíslason skólameistari verður í leyfi
frá störfum þann tíma.
27. Akureyringar slettu úr
klaufunum að kvöldi annars dags
jóla og var mikið annríki hjá lögregl-
unni. Ung kona kastaði sér í sjóinn,
maður nokkur fór á eftir henni í
björgunarhugleiðingum og saman
voru þau flutt í sjúkrahús til aðhlynn-
ingar að þessu loknu.
ar. 10 af 11 bæjarfulltrúum greiddu
atkvæði hinu nýja deiliskipulagi.
20. Bæjarstjórn Akureyrar sam-
þykkti einnig að frá næstu áramótum
skuli veitustofnanir bæjarins lúta
einni yfirstjórn.
25. Mikið hitamál er ígangi á milli
Raufarhafnarhrepps og bænda að
Hóli í Presthólahreppi, en Raufar-
hafnarbær fær kalt vatn úr landi
Hóls. Er málið nú á því stigi að beðið
er úrskurðar Hæstaréttar um hvort
dómari í málinu skuli víkja sæti.
25. Jón Helgason tilkynnti að
hann myndi hætta sem formaður
Einingar og mun Sævar Frímannsson
varaformaður gegna formannsstarf-
inu fram að næsta aðalfundi a.m.k.
en Jón Helgason hefur mælst til þess
að Sævar verði þá kjörinn eftirmaður
sinn.
27. „Það eina sem að er hjá okkur
í augnablikinu er að okkur vantar
húsnæði til að geta tekið við fleira
fólki sem gæti fengið hér vinnu“
sagði Sigfús Jónsson sveitarstjóri á
Skagaströnd. Á Hvammsfanga var
hins vegar rnikið framboð á íbúðum
til sölu en kaupendur vantaði.
Desember
Svæðisútvarp hófst á Akureyri. Hér sést Jónas Jónasson forstöðumaður þess sýna útvarpsráðsmönnum húsakynni RUVAK.
Sverrir Hermannsson þáverandi iðnaðarráðherra sést hér gangsetja vélar Steinullarverksmiðjunnar á Sauðárkróki.
24. „Ég hef aldrei séð annað eins
og þetta fangelsi. Hvorki það né lög-
reglustöðin er mönnum bjóðandi"
sagði Viktoría Gestsdóttir heil-
brigðisfulltrúi á Norðurlandi
vestra eftir að hafa skoðað fangelsið
á Siglufirði. „Ég mun leggja þetta
fyrir Hollustuvernd ríkisins og dóms-
málarráðherra" bætti Viktoría við.
25. Konur víða um land héldu upp
á lok kvennaáratugar með því að
taka sér frí frá vinnu. Var mikil og al-
menn þátttaka í hátíðahöldum þeirra
þennan dag og máttu „grobbgeltir"
(nýyrði fyrir karlrembusvín) taka að
sér störf þennan dag sem þeir sinna
ekki að öllu jöfnu.
28. „Við höfum lagt mikla áherslu
á vöruvöndun og finnst þetta ákaf-
lega leiðinlegt“ sagði Hlífar Karlsson
mjólursamlagsstjóri á Húsavík. Þar
vildi það óhapp til að vélarbilun upp-
götvaðist ekki fyrr en um seinan og
varð að innkalla þúsundir lítra af ó-
nýtri mjólk sem dreift hafði verið.
29. Hass fannst á Raufarhöfn, um
var að ræða nokkur grömm og var
þetta fyrsta mál sinnar tegundar sem
þar hefur komið upp.
29. Kaupfélag Svalbarðseyrar á í
miklum fjárhagserfiðleikum og á
stjórnarfundi félagsins var ákveðið
að leita eftir viðræðum við Kaupfélag
Eyfirðinga um hugsanlega samein-
ingu.
Nóvember
4. Húsavíkurtogarinn Kolbeinsey
var boðinn upp og var skipið slegið
Fiskveiðasjóði. Nú nýlega er svo út-
runninn frestur til að skila inn tilboð-
um til sjóðsins sem ætlar að selja
skipið aftur og þegar þetta er skrifað
er mikil spenna ríkjandi varðandi
það hverjir fá skipið, og mun spenn-
an ekki vera rninnst á Húsavík enda
lífsnauðsynlegt að fá togarann þang-
að aftur.
4. í óformlegri könnun sem gerð
var á Akureyri kom í ljós að Akur-
eyringar leigja um 150 þúsund vídeó-
spólur á ári og eyða í það um 22
milljónum króna.
7. Dagur skýrði frá því að bræð-
urnir Haukur og Örn Snorrasynir
hefðu keypt skíðabát frá Póllandi og
myndi báturinn verða í siglingum frá
Akureyri til Hríseyjar og Grímseyjar
næsta sumar.
11. Húsvíkingar tóku höndum
saman og stofnuðu hlutafélagið íshaf
sem hefur það að markmiði að kaupa
togarann Kolbeinsey af Fiskveiða-
sjóði. Stærstu hluthafarnir eru Fisk-
iðjusamlag Húsavíkur, Kaupfélag
Þingeyinga og bæjarsjóður en einnig
eiga Verkalýðsfélag Húsavíkur og
Starfsmannafélag Húsavíkurbæjar
aðild að félaginu. Samþykkt var að
hámarkshlutafé yrði 45 milljónir
króna og fengust loforð fyrir 28 millj-
ónum strax á stofnfundinum.
12. Dalvíkingar höfðu áhyggjur af
miklum rottufaraldri í bænum. Var
ákveðið að ráðast gegn þessum vá-
gesti og fór bæjarverkstjóri í farar-
broddi með eitur til að vinna gegn
plágu þessari.
13. Þegar talin voru atkvæði í at-
kvæðagreiðslu starfsfólks fisk-
vinnsluhúsa í Eyjafirði um nýgerða
bónussamninga kom í ljós að yfir-
gnæfandi meirihluti var samþykkur
samningnum, en samningur þessi
sem var nokkuð flókinn þótti marka
nokkur tímamót.
13. Halldór Kristinsson bæjarfó-
geti í Bolungarvík var skipaður
sýslumaður í Þingeyjarsýslum og
bæjarfógeti á Húsavík, en umsækj-
endur um þessa stöðu voru 6 talsins.
14. „Við teljum að okkar hug-
myndir séu betri en þau drög að
stjórnarskrá sem stjórnarskrárnefnd
hefur skilað af sér. Við ætlum okkur
að leita eftir stuðningi þingmanna við
þær hugmyndir okkar“ sagði Örn
Bjarnason einn talsmanna Samtaka
um jafnrétti milli landshluta í samtali
við Dag. Fundurinn með þingmönn-
um var haldinn og voru undirtektir
þeirra jákvæðar.
20. Endurskoðaður deiliskipu-
lagsuppdráttur af Innnbæ Akureyrar
var samþykktur á fundi bæjarstjórn-
2. Undirritaður var á Akureyri fimm
ára samningur Sambands íslenskra
samvinnufélaga og sovésku sam-
vinnusamtakanna Centrosoyuz um
viðskipti næstu fimm árin. Þetta var í
þriðja sinni sem slíkur samningur var
undirritaður og gerir samningurinn
ráð fyrir aukningu viðskipta og að
þau verði að andvirði tæpra 200 mill-
jóna króna á ári, auk þess sem kveð-
ið er á um að leita skuli leiða til enn
frekari aukningar.
3. Tveir togarar Siglfirðinga lentu
í erfiðleikum. Siglfirðingur missti
stýrið er skipið var að veiðum út af
Sléttugrunni, en skipverjum tókst að
stýra heim með toghlerunum. Svein-
borg fékk á sig brotsjó um 150 mílur
suð-austur af Vestmannaeyjum er
skipið var á leið til Englands í sölu-
ferð. Var skipinu snúið við til Vest-
mannaeyja enda mjög miklar
skemmdir í brú skipsins.
3. Óvenju mikið atvinnuleysi var
á Húsavík í nóvember enda Kol-
beinsey farin. Atvinnuleysisbætur í
S-Þingeyjarsýslu fyrir nóvember
námu um 1800 þúsund krónum til
260 einstaklinga sem langflestir eru
búsettir á Húsavík.
5. Stjórn og fulltrúaráð Starfs-
mannafélags Akureyrarbæjar ákvað
á fundi sínum að segja upp gildandi
kjarasamningum STAK og Akureyr-
arbæjar frá og með 28. febrúar 1986.
Gunnlaugur Búi Sveinsson formaður
STAK sagðist ekki eiga von á hörð-
um slag við gerð nýs kjarasamnings.