Dagur - 08.01.1986, Page 6

Dagur - 08.01.1986, Page 6
6 - DAGUR - 8. janúar 1986 íþróttafélagið Þór á Akureyri gekkst fyrir álfadansi og brennu á félagssvæði sínu í Glerárhverfi á þrettándanum. Þangað komu múgur og margmenni að fylgjast með ýmsum verum sem á kreiki voru, bæði furðufuglum ýmiss konar sem og góðkunningjum barnanna, Bjössa bollu og Óskari Iðnaðarbankans. Gleðin hófst klukkan átta og stormuðu þá álfakóngur og drottning ásamt fríðu föruneyti inn á svæðið. Álfakóngur flutti skörulegt ávarp og benti okkur mennskum mönnum á að með álfum ríkti friður og ættum við að láta af sundrungu og ófriði og taka álfana okkur til fyrirmyndar. Á meðan kóngur flutti ávarp sitt hlupu púkar og jólasveinar um svæðið og heilsuðu upp á börnin. í samtali púka eins við nokkur börn kom fram að á nýju ári hefðu þeir púkar tekið upp nýja stefnu og ætluðu að vera ósköp góðir. Og voru börnin hvött til að taka upp þessa sömu stefnu. Eftir danssýningu undir stjórn Sigvalda Þorgilssonar, sást besti vinur barnanna, Bjössi bolla koma kjagandi í jólafötunum. Hann söng nokkur lög fyrir gesti. „Hann er nú eitthvað ruglaður,“ sagði snáði á hestbaki. Bjössi var að syngja um hvað ungar stúlkur gerðu, og hvað haldið þið? „Þær taka í nefið!“ sagði Bjössi. Og gamlir menn vagga brúðu! En börnin voru ekki í vandræðum með að leiðrétta Bjössa. Hvað um það, eftir dálítið meira af skondnu gysi frá Birni Bjarnfríðarsyni kom Jóhann Már Jóhannsson og söng Stóð ég úti í tunglsljósi og fleiri „þrettándalög“. Og þar sem kraftmikill söngur hans hljómaði um svæðið var mál til komið fyrir eins árs stubba að fara að sofa, enda voru tærnar um það bil að detta af mér! - mþþ Hann er sko enginn asni þessi a stöddum. Alfakóngurinn ásamt drottningu sinni; Hann flutti ávarp og talaði um friðinn. „Mér er nú bara ekki meira en s' Kldgleypir að störfum. Kinn guttinn heyrðist segja: Ætlar hann kannski að gleypa álfahrenmina! Bjössi bolla á jólafötunum. Hann var voða voða fyndinn. Virðuiegur fararskjóti. Skyldi hann vera á Act-skóm? Þau voru ekki mikið hrædd við þetta <%. ófrýnilega tröll, börnin. Það var að sjálfsögðu stiginn álfa

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.