Dagur - 08.01.1986, Blaðsíða 7
8. janúar 1986 - DAGUR - 7
isni. Enda vakti hann mikla lukku hjá við-
yo vel við þig.“
nna
Höfum allt of ofl
lifað um efni fram
- Kafli úr áramótaávarpi forsætisráðherra, Steingríms Hermannssonar
í áramótaávarpi forsætisráð-
herra, Steingríms Hermanns-
sonar, kom hann m.a. inn á
þær miklu sveiflur sem ein-
kennt hafa íslensk efnahags-
mál á undanförnum áratugum.
Sýndi hann þetta með línurit-
um, sem á einkar glöggan hátt
skýrðu þessar staðreyndir.
Meginniðurstaðan er sú, að
þegar afli hefur brugðist og
þjóðartekjur minnkað háfa ís-
lendingar yfirleitt ekki dregið
úr neyslu og fjárfestingu, held-
ur brúað bilið með erlendum
lánum. Þetta sést mjög skýrt á
línuritunum. Einnig sést
hvernig verðbólgan hefur rok-
ið upp á hverju samdráttar-
skeiði, þar sem erfiðleikum
sjávarútvegsins hefur ekki ver-
ið mætt með því að draga úr
kostnaði, heldur með því að
fella gengið. Hér fer á eftir sá
kafli úr ræðu forsætisráðherra
þar sem hann fjallaði um þetta
mál:
Sagt hefur verið, að hagfræðin
sé fyrst og fremst saga. Og víst er
það, að mjög er fróðlegt að
skoða efnahagsþróun hér á landi
undanfarna áratugi.
Hagvöxtur hefur allt frá stríðs-
árum orðið að meðaltali um 2,5
af hundraði á mann á ári. Það er
meira en í flestum öðrum löndum
að Japan undanskildu. Þessi
mikli hagvöxtur hefur hins vegar
verið mjög breytilegur. Þetta sést
glöggt á línuriti, sem ég leyfi mér
að bregða hér upp.
Neðra línuritið sýnir breyting-
ar á þjóðarframleiðslu allt frá ár-
inu 1945. Segja má, að það sýni
samfelldar sveiflur frá miklum
hagvexti eitt árið, í samdrátt það
næsta. Mest verður hrun þjóðar-
framleiðslunnar á þremur tíma-
bilum, 1948-52, 1967-68 og 1982-
83. í öll skiptin stafar það af afia-
bresti. Aðrar sveiflur eru einnig
margar, ýmist vegna þess, að afli
er lakari, eða viðskiptakjör
versna. Ég þekki enga þjóð, sem
býr við slíkar sveiflur í þjóðar-
framleiðslu.
Það er sannfæring mín, að
þarna sé að leita grundvallar-
ástæðu fyrir efnahagserfiðleikum
okkar íslendinga. Sérstaklega
verður þetta ljóst, þegar þess er
gætt, hvernig aflaleysi og sam-
drætti hefur nánast undantekn-
ingarlaust verið mætt. Það sýnir
efra línuritið.
Brotna línan sýnir erlendar
skuldir. Athyglisvert er, að ná-
lega við hvern samdrátt þjóðar-
framleiðslunnar aukum við er-
lendar lántökur. Þannig er sam-
drættinum mætt, einfaldlega með
lántöku. Ekki er ástæða til að
fordæma í öllum tilfellum erlend-
ar lántökur, ef þau lán eru greidd
á góðu árunum. Staðreyndin er
hins vegar sú að skuldirnar halda
áfram að vaxa, þegar á heildina
er litið, og eru á árinu 1983
komnar á ystu hættumörk. Þá
voru þær orðnar rúmlega helm-
ingur þjóðar- eða landsfram-
leiðslu.
Með öðrum orðum, þegar afli
bregst og þjóðartekjur minnka,
höfum við íslendingar yfirleitt
ekki dregið úr neyslu eða fjár-
festingu, heldur brúað bilið með
erlendum lánum.
Heila línan sýnir verðbólguna.
Hún rýkur upp á hverju sam-
dráttarskeiði. Erfiðleikum sjávar-
útvegsins er ekki mætt með því
að draga úr kostnaði, heldur með
því að fella gengið. Afleiðingin
verður stöðugt vaxandi verð-
bólga, sem fer að lokum úr bönd-
um í upphafi ársins 1983.
Hvaða lærdóm má af þessu
draga? Að sjálfsögðu getur verið
eðlilegt að taka lán erlendis til
þess að fjárfesta í nýjum fram-
leiðslutækjum. Öllum má vera
ljóst, að lífskjör hér væru ekki
nema brot af því, sem þau eru, ef
þetta hefði ekki verið gert, og
m.a. fiskveiðiflotinn endur-
byggður og vinnslustöðvar reist-
ar, byggðar vatnsaflsvirkjanir og
hitaveitur eða vegir lagðir, svo
dæmi séu nefnd.
Niðurstaða mín verður þó sú,
að of geyst og óvarlega hafi verið
farið. Allt of oft á samdráttar-
tímum hafa erlend lán verið tekin
til neyslu eða óarðbærrar fjárfest-
ingar. Með öðrum orðum, allt of
oft höfum við lifað um efni fram.
Svipað má segja um hinar tíðu
gengisfellingar. Ef menn vilja,
geta þær að sjálfsögðu verið tæki
til þess að bæta afkomu útflutn-
ingsatvinnuveganna, en þegar
þeim fylgir jafnharðan hækkun
verðlags og launa, leiða þær að-
eins til aukinnar verðbólgu og
enn meiri erfiðleika.
Þegar vaxandi erlendar skuldir
og verðbólga fara saman, sýnir
reynslan, að við ekkert verður að
lokum ráðið.
Verðlagsþróun á íslandi, erlendar skuldir og
þjóðarframleiðsla 1945-1985
1945 1950 1955 1960 1965 1970 1975 1980 1985
% Breytingar þjóðarframleiðslu 1945-1985 %
’2| A [\ _ a 12
8
Mývatnssveit:
Blómlegt félagslíf í
Starfsemi hjá ýmsum félögum
og klúbbum í Mývatnssveit
hefur verið með blómlegra
móti í vetur, mun gott tíðarfar
samhliða því hversu greiðfært
hefur verið um sveitina hafa
haft sitt að segja fyrir félagslíf-
ið.
Ungmennafélagið Mývetning-
ur gekkst fyrir leiklistarnám-
skeiði í lok október, leiðbeinandi
var Jónína Kristjánsdóttir. Nám-
skeið þetta var öllum opið og vel
sótt, um 12 manna hópur tók þátt
í námskeiðinu, auk fólks sem
mætti eitt og eitt kvöld.
I framhaldi af þessu námskeiði
setti félagið upp sýningu á leikrit-
inu Margt býr í þokunni og var
það frumsýnt í byrjun desember.
Þann 28. des. hélt félagið sinn
árlega jólafund sem er samkoma
þar sem eingöngu er flutt frum-
samið efni og síðan dansað á
eftir, hátt í 200 manns sóttu þessa
samkomu.
Undanfarið hefur félagið unn-
ið að undirbúningi spurninga-
keppni aðildarfélaga HSÞ. í ár
verða skemmtiatriði sem flutt
verða á þeim samkomum með
nýju sniði. Flutt verður fram-
haldsleikrit og verður leikritið
samið jafnóðum, þannig að félag-
vetur
ar í Mývetningi semja og flytja
fyrsta þátt, þeir sem sjá um næstu
keppni fylgjast með sýningu hans
semja síðan og flytja annan þátt í
næstu keppni og síðan koll af
kolli. Gaman verður að sjá
hvernig til tekst með þessa ný-
breytni, en Mývetningar vilja
ekkert gefa upp um efni leikrits-
ins, segja aðeins að það sé hörku-
spennandi. IM