Dagur - 22.01.1986, Blaðsíða 8
8 - DAGUR - 22. janúar 1986
VERKMENNTASKÓLINN
Á AKUREYRI
Kvöldkennsla
Verslunardeild veröur starfrækt á vorönn. Eftir-
taldar námsgreinar verða kenndar ef næg þátt-
taka fæst:
Bókfærsla (BÓK 203) Stæröfræöi (STÆ 212)
Danska (DAN 202) Tölvufræði (TÖL103)
Verslunarenska (ENS 433) Vélritin (VÉL102 og 302)
Hagnýt skrifstofustörf (HAS 202) Þjóöhagfræöi (ÞJÓ102)
íslenska (ÍSL 202)
Innritun og innheimta fer fram 27. og 28. janúar
n.k. kl. 16-19 á skrifstofu skólans.
Skólameistari.
LYFTARAR
Eigum til afgreiöslu nú þegar mikið úrval notaöra rafmagns-
og diesfellyftara, ennfremur snúninga- og hliðarfærslur.
Tökum lyftara upp í uppgeröan, leigjum lyftara, flytjum lyft-
ara.
Varahluta- og viögeröaþjónusta.
Líttu inn - við gerum þér tilboð.
Tökum lyftara í umboössölu.
LYFTARASALAN HF.
Vitastíg 3, símar 26455 og 12452.
Frá Krókeyrarstöð
Muniö eftir grillréttunum okkar.
Samlokur meö skinku, osti og ananas.
Kjúklingar með sósu, salati og frönskum.
Pizzur 4 teg., samlokur, hyrnur, langlokur.
Tilboðsverð á hamborgurum með
sósu, osti og ananas. Verð kr. 115-
Opið frá kl. 9-23.30 alla daga nema
föstudaga og laugardaga frá kl. 9-04.
Munið heimsendingarþjónustuna föstud. og
laugard. frá kl. 21-04.
PÖNTUNARSÍMI21440
> m 1 EIGNAMIÐSTÖÐ1N
Skipagötu 14, 3. hæð (Alþýðuhúsinu)
Síminn er 240604
Bújörð
Góö bújörö a Eyjafjarðarsvæðinu. Oll ný
uppbyggð. Selst með allri áhöfn. Skipti á eign á
Akureyri möguleg.
Nánari upplýsingar á skrifstofunni.
Sölustjori: Björn Kristjansson. Heimasimí 21776
Lögmaður: Olafur Birgir flrnason
Umboðsmenn Dags
Sauðárkrókur: Sísí Steindórsdóttir, Furuhlíð 1, sími 5828.
Siglufjörður:
Blönduós:
Ólafsfjörður:
Hrísey:
Dalvík:
Grenivík:
Húsavík:
Mývatnssveit:
Kópasker:
Raufarhöfn:
Kópavogur:
Matthías Jóhannsson, Aðalgötu 5, sími 71489.
Snorri Bjarnason, Urðarbraut 20, sími 4581.
Helga Jónsdóttir, Hrannarbyggð 8, sími 62308.
Halla Jóhannsdóttir, Norðurvegi 9, sími 61728.
Gerður Jónsdóttir, Miðtúni, sími 61247.
Anna Rósa Pálmarsdóttir, sími 33112.
Ingibjörg Magnúsdóttir, Sólbakka 5, sími 41529
Þuríður Snæbjörnsdóttir, sími 44173.
Anna Pála Kristjánsdóttir, Boðagerði 10, sími 52128.
Friðmundur H. Guðmundsson, sími 51225.
Guðbjörg Bjarnadóttir, Vallhólma 12, sími 641562.
-orð í belg.
Um þekkingarfræði,
siðgæði og Aids
Nú er röðin komin að okkur sem
erum heterosexual að gæta okkar
á ónæmistæringunni HTLV-3.
Þannig tala sérfræðingarnir til
okkar sem erum heterosexual.
Nú er allt mannkynið í hættu,
eins og sakir standa, ef ekkert
nýtt og jákvætt gerizt á þessum
sviðum.
Einstaklingarnir þurfa ekki að-
eins að auka þekkingu sína í
þessum efnum, heldur einnig að
auka sína siðgæðisvitund og jafn-
vel breyta venjum sínum til hins
betra. Góður og sterkur persónu-
leiki hefur mjög mikið gildi undir
slíkum kringumstæðum.
Þekkingarfræðin (logica mat-
erialis), virðist ekki vera nægi-
lega vel ástunduð af þeim er telj-
ast menntaðir eða lærðir. Rétt er
nú það, að sitt hvað sé gáfa og
kunnátta. Menn geta lært eitt og
annað í háskólum nútímans og
verksmiðjum, þótt þá skorti gáfur
til að geta hagnýtt sinn lærdóm á
vituriegan hátt. Já, lærdómur og
gáfur er sitt hvað.
Vitnar þessi ægilegi sjúkdómur
ekki um almennan skort á bæði
þekkingarfræði og lifandi sið-
gæðisvitund? Hefur hin raun-
verulega þekkingarfræði hins nú-
tíma vísindamanns ekki gengið
út á of einhliða braut „sérgreina-
fræði" þar sem aðeins hlutaðeig-
andi vísindamaður einangrar sig í
einni sérgrein og án þess að vita
nokkurn skapaðan hlut um það
sem gerizt fyrir utan þessa sér-
grein sína? Og getur slík einhliða
þekking ekki orðið skaðleg fyrir
hina svokölluðu „heildarþróun"
sem nú á sér stað um alla jörð-
ina?
I einu Reykjavíkurblaðinu sá
ég athyglisverða grein eftir unga
íslenzka húsmóður úr Mosfells-
sveitinni sem kallar sig Hrefnu
Magnúsdóttur. Hún kallar grein
sína „Hugleiðingar um Aids“.
Hrefna byrjar grein sína með því
að ræða um DDT, lífefnafræðinga
og lífefnaverksmiðjur er fram-
leiða hin ýmsu eiturlyf sem notuð
eru m.a. í matvælaiðnaðinum, og
hún endar grein sína með þessum
orðum Schweitzer: „Maðurinn
hefur glatað hæfileikanum til að
sjá fyrir afleiðingar gerða sinna.
Að lokum mun hann tortíma
jörðinni".
í raun og veru er ekki hægt að
lýsa betur kapitalisma nútímans
en Hrefna gerir með þessari grein
sinni. Og bæta má því við, að
Marx-Leninisminn hefur aðeins
bætt gráu ofan á svart.
Ástæðan fyrir því, að ég bendi
á þessa grein Hrefnu úr Mosfells-
sveitinni er sú, að hún minnist lít-
ið eitt á skordýrin í þessu sam-
bandi í grein sinni. Það er athygl-
isverð tilviljun þegar á þessi
vandamál er litið. Eða var það
tilviljun?
Svo er mál með vexti, að
bandarískur héraðslæknir í Flór-
ída, nánar tiltekið í Biscayne
Bay, sveitaþorpi norður af Mi-
ami, heldur því fram, eða grunar
það, að sjúkdómurinn Aids komi
upphaflega frá mauraflugu, og að
sjúkdómurinn Aids breiði sig
fyrst út þar sem mauraflugum
þessum hefur fjölgað sérstaklega
mikið meðal íbúanna.
Þessi bandaríski héraðslæknir
bendir einnig á það, að loftslagið
þarna í Biscayne Bay, og fátækt
íbúanna þar, sé mjög líkt því,
sem það er í Mið-Afríku, Haiti,
Jamica og þar sem álitið er að
Einar Freyr
skrifar
Aids sé upphaflega upprunnin.
Héraðslæknirinn bendir einnig á
þá staðreynd, að hvergi í heimin-
um séu eins margir íbúar sjúkir af
Aids og einmitt í Biscayne Bay.
Á öllum þeim stöðum sem álit-
ið er að Aids eigi upptök sín, rík-
ir mikið hirðuleysi er rekja má til
hinnar miklu og óbæriíegu fá-
tæktar íbúanna. Af þeim ástæð-
um er Aids fyrst og fremst
kapitalískur sjúkdómur.
Ef þetta reynist vera rétt, þá
verða hlutaðeigandi vísindamenn
að breyta rannsóknaraðferðum
sínum, eða útvíkka þær í sam-
ræmi við hinar nýju upplýsingar
frá Biscayne Bay. Þetta er að
vísu aðeins tilgáta en ekki
sönnun, en þó svo alvarleg tilgáta
að skylt er að reyna að komast að
hinu sanna.
Þegar þetta er haft í huga má
minna á j)að, að mæðiveikin í fs-
lenzku sauðfé er mjög lík Aids.
Gæti mæðiveiki þá ekki stafað af
einhverjum veirum sem skordýr
bera með sér? Hvað er raunveru-
lega vitað um t.d. maðkafluguna
eða fiskifluguna svo eitthvað sé
nefnt? Og er ekki algjörlega
rangt og órökrétt hugsun, að gera
miklu minni hreinlætiskröfur til
dýrafóðurs en matvæla sem ætlað
er til manneldis? Þarf ekki að efla
vísindastarfsemina á þessum þýð-
ingarmiklu sviðum?
Fyrstu 10.000 Aids-sjúkling-
arnir hafa kostað bandaríska
þjóðfélagið 6,3 milljarða dali í
sjúkrahjálp, svo og vinnutap og
dauða mjög ungs fólks. Og þessi
kostnaður fer vaxandi með degi
hverjum.
Aðeins í kringum eitt þúsund
persónur af fjögur þúsund, sem
grunað er um að hafi Aids-veiru í
Svíþjóð, hafa komiö í læknis-
skoðun. Hins vegar eiga ný lög er
gengið hafa þegar í gildi í
Svíþjóð, að geta auðveldað eftir-
litið með sjúkdómnum og heftað
útbreiðslu hans.
Hvað snertir Aids almennt í
Svíþjóð, þá hafa hin nýju lög gert
það auðveldara fyrir vísinda-
menn og lækna að stemma stigu
við þessum alvarlega sjúkdómi.
Til dæmis eru homosexualistar
ekki taldir eins hættulegir og
áður hefur verið talað um. Auk
þess verður auðveldara en áður
að hafa eftirlit með vændiskonum
og eiturlyfjaneytendum.
Einn nópur manna er þó enn
talinn mjög hættulegur í þessu
sambandi, en það eru hinir svo-
kölluðu bisexuellu karlmenn.
Bisexuell maður er mjög oft
giftur og á börn. Og það kemur
fyrir að eiginkonan og börnin
komi fagnandi á móti honum er
hann kemur heim úr vinnunni.
En svo á þessi sami eiginmaður
og heimilisfaðir til með að laum-
ast út að kvöldi til og hafa kyn-
ferðileg mök við unga pilta.
En bisexuellisminn getur einn-
ig komið út í sjúklegri árásar-
hneigð á hinu andlega sviði. Sál-
fræðingar, sérstaklega Freud-
sinnar hafa m.a. bent á það, að
samvizka hinna bisexuella manna
sé fremur illa gerð, og hættir
þeim við, fremur en mörgum
öðrum, að hafa það sem Freud
kallar „sjúklegan narkisma"
(narcissus). Slíkt kemur oft út í
árásarhneigð, og sérstaklega hjá
þeim er vinna á sviði menningar-
mála eins og við blöð, sjónvarp,
hljóðvarp eða í leikhúsunum.
Bisexuell rithöfundur er vanalega
fullur af „narkisma" og árásar-
hneigð. Hans vilji er fremur sjúk-
legur og eigingjarn.
Rannsóknir á slíkum mann-
gerðum eru í raun og veru mjög
þarflegar frá mörgum sjónarmið-
um, og ekki hvað sízt fyrir alla
jákvæða þróun menningarlífsins.
Það var ekki að ástæðulausu, að
t.d. Freud reyndi að hvetja suma
af nemendum sínum til að skrifa
monografí um vissa menn svo að
hægt væri með góðu móti að gera
sér rétta grein fyrir þeim einstakl-
ingum sem reyna, með sínum
sjúklegu vinnubrögðum og sjúkri
eigingirni, að ákveða sjálfa þróun
menningarinnar.
Þekkingarfræði og gott siðgæði
eru nú mjög aðkallandi hlutir í
menningarbaráttu nútíma fólks.
Þegar litið er yfir hina þjóðfé-
lagslegu þróun síðustu áratugina
verður ljóst, að það eru kapital-
istarnir sem nú eru stærstu and-
legu sóðar jarðarinnar. En Len-
insinnarnir bæta aðeins gráu á
svart.
Gautaborg, 10.1. 1986.
Einar Freyr.