Dagur - 22.01.1986, Síða 11
22. janúar 1986 - DAGUR - 11
75 ára:
Fanney Sigtvyggsdóttir
húsmæðrakennari
Fanney Sigtryggsdóttir fæddist á
Stóru-Reykjum í Reykjahverfi,
S.-Þing. 23. janúar 1911.
Foreldrar: Sigtryggur bóndi á
Stóru-Reykjum Hallgrímsson
Jónatanssonar, og kona hans
Ásta Lovísa Jónasdóttir Krist-
jánssonar.
Fanney stundaði nám á Lauga-
skóla 1929-30 og á Húsmæðra-
skólanum á Laugum 1936-37.
Hún sótti sauma- og handavinnu-
námskeið á Siglufirði og í
Reykjavík og lauk námi við
handavinnudeild Kennaraskóla
fslands.
Hún var handavinnukennari
við Laugaskóla 1939^10 og hafði
jafnframt með höndum umsjón-
arstörf til 1942. Hún var handa-
vinnukennari við Húsmæðraskól-
ann á Staðarfelli í Dölum 1944-
46 en var þá ráðin handavinnu-
kennari við Húsmæðraskóla
Þingeyinga á Laugum, og gegndir
því starfi til 1975. Jafnframt var
hún þar skólastjóri í tvo vetur.
Eitt af árum sínum á Laugum
fékk hún orlof til framhaldsnáms.
Þegar hún hætti kennslu hafði
hún stundað það starf í 32 ár.
Jafnframt kennslunni vann
Fanney Sigtryggsdóttir að búi
foreldra sinna á Stóru-Reykjum
á sumrin og veitti þeim aðhlynn-
ingu svo sem hún gat við komið
á meðan bæði lifðu. Móðir
hennar, Ásta Lovísa andaðist
árið 1965, níutíu og tveggja ára
og faðir hennar Sigtryggur, 1979,
níutíu og fimm ára.
Árið 1967 giftist Fanney Páli
H. Jónssyni rithöfundi og fyrr-
verandi kennara, sem þá var
ekkjumaður. Árið 1975 fluttust
þau til Húsavíkur og hafa átt þar
heima síðan.
í tilefni sjötíu og fimm ára af-
mælis síns tekur Fanney Sig-
tryggsdóttir á móti gestum í fé-
lagsheimilinu í Reykjahverfi
fimmtudaginn 23. janúar kl. 20 til
23.
Frá fræsöfnunarieiðangri til
Alaska og Yukon haustið 1985
í byrjun sejttember á nýliðnu ári
fóru fjórir íslendingar í 8 vikna
fræsöfnunarferð vestur til Alaska
og Yukon. Söfnunin var undir
leiðsögn Óla Vals Hanssonar
fyrrv. garðyrkjuráðunauts Bún-
aðarfélags Islands, en aðrir þátt-
takendur voru Ágúst Árnason
skógarvörður, Hvammi, Skorra-
dal, Böðvar Guðmundsson skóg-
arvörður í Þjórsárdal og Kári
Aðalsteinsson garðyrkjufræðing-
ur, Laufskálum, Stafholtstung-
um.
Safnarar ferðuðust í fyrstu um
strjálbýl héruð í norður- og vest-
urhluta Alaska. Böðvar og Óli
flugu til Kotzebue og Ambler en
báðir þessir staðir eru aðeins
norðan heimskautsbáugs. Síðan
héldu þeir suður á Seward-skaga
og leituðu fanga á svæðum út frá
Nome og umhverfis þorpið Elim,
sem er nokkru austar, við
norðurströnd Nortonflóa, en þar
teygir hvítgreni sig alveg niður
undir Sjávarmál. Síðan-var haldið
til Unalakleet sem er fámennt
þorp við botn flóans að austan-
verðu, en þar var fengist við söfn-
un í tvo daga.
Ágúst og Kári flugu til Bethel
en það er 3400 manna kauptún út
undir mynni Kuskokwimfljóts.
Eftir söfnun við Bethel héldu
þeir félagar til St. Marys við
Yukonfljót, en það er fámennt
þorp innfæddra. Siglt var upp eft-
ir Andreafsky ánni sem rennur í
Yukonfljót. Fengust nokkur
áhugaverð sýnishorn trjátegunda
frá báðum þessum svæðum, en
þarna er mjög raklent og gróð-
urfjölbreytni takmörkuð.
Þessu næst héldu fjórmenning-
arnir út á Alaskaskaga og dvöldu
í fáeina daga við söfnun í Iliamna
og við Clarkvatn. Við Clarkvatn
er mikil gróðursæld, bæði barr-
og laufskógar ásamt runnagróðri.
Þarna fékkst töluverður fjöldi
sýnishorna af mörgum tegundum
viðarplantna, jafnt græðíingar
sem fræ. Þá var haldið suður á
Kenaiskaga og dvalið þar í 2
vikur. Haldið var til í bækistöð
USDA Forest Service við Kenai-
vatn. Víða á skaganum, einkum
vesturhluta hans, er vegakerfi
mjög gott, en þar var ýmist ekið
um eða þræddir skógarstígar í
leit að plöntum. Náðist mikill
fjöldi sýnishorna á Kenaiskaga.
Þá var lagt upp í 10 daga ökuferð
til Yukon í Kanada, en Yukon
umdæmið er tæplega 484.000 km
landsvæði sem liggur næst Alaska
að austanverðu. Var fyrst stefnt í
átt til Whitehorse sem er aðal-
bærinn í Yukon með tæplega
15000 íbúum af þeim 26000 sem
byggja allt landsvæðið. Frá
Whitehorse var haldið til Car-
cross og þaðan inn í Bresku
Kolumbíu og síðan suðvestur til
Skagway í Alaska.
Á leiðinni voru tekin sýni af
Mótmæli til
Mörgum hnykkti við þeirri um-
ræðu um Hólmfríði Karlsdóttur
er kom fram í þættinum „Á líð-
andi stundu“ síðastliðið miðviku-
dagskvöld.
Konur á Húsavík sömdu um
helgina mótmælabréf, vegna
þessara ummæla, til útvarpsráðs
og söfnuðu á skömmum tíma
undirskriftum fjörutíu kvenna.
Bréfið er svohljóðandi:
Til útvarpsráðs,
Ríkisútvarpinu,
Skúlagötu 4, Reykjavík.
Við undirritaðar, konur á Húsa-
vík, mótmælúfn umræðunni um
Hólmfríði Karlscfóttur, fóstru, í
þættinum „Á líðandi stundu"
miðvikudaginn 15. janúar sl. Sér-
staklega mótmælum við forræðis-
hugmynduni og kvenfyrirlitningu
í máli Davíðs Oddssonar, borg-
arstjóra. Við bendum útvarps-
ráði á að þótt kvennaáratugi sé
lokið, er ástæðulaust að hampa í
Ríkisútvarpinu þeim nátttröllum,
er enn vinna gegn jafnrétti kynj-
anna.
Húsavík, þann 17. janúar 1986.
stafafuru, öspum, greni, ýmsum
víðitegundum og runnum. Frá
Skagway var haldið með ferju til
Haines og ekið síðan norður til
Yukon á ný og staldrað víða við í
leit að gróðri. Ferðast var norður
eftir Yukon til Mayo og Keno en
þar eru nyrstu vaxtarsvæði fjalla-
þins. Við Keno var komið að
dreifðum þinskógi í 1000 m hæð
yfir sjó. Þar var þá mikill snjór
(14.10.) og þinurinn að mestu
leyti búinn að fella fræ.
Áfram var haldið til Davson
City við Yukonfljót og síðan yfir
fljótið með ferju, en sakir snjóa
á fjallvegum í Alaska varð að
snúa við og halda sömu leið til
baka allt suður til landamæra-
stöðvarinnar við Beaver Creek,
en þaðan var haldið til Anchor-
age.
Lokakafli söfnunar var flug-
ferð suður til Cordova við Prins
William flóa. Þar var dvalið í
húsakynnum skógarþjónustu
fylkisins. I þessari lotu var tekið
verulegt magn sýna af lauftrjám:
ösp og víði. Sömuleiðis af ýmsum
runnum. Einnig var flogið norður
til Ceder Bay til tínslu á könglum
af Alaskasípress. Er staður þessi
á meginlandi Alaska vestan
Columbíujökuls. Að síðustu var
haldið til Yakutat sem er um 340
km suðaustan Cordova. Náðist
þar í ýmislegt áhugavert efni
bæði í nágrenni þorpsins og við
Harlequin Lake. Meðan á
Yakutatdvölinni stóð byrjaði að
snjóa enda nálguðust óðum októ-
berlok. Batt þetta enda á söfnun-
ina. Var því haldið til Anchorage
þar sem gengið var frá síðustu
sendingum heim og síðan búist til
brottfarar.
Leiðangursmenn söfnuðu alls
liðlega 720 skrásettum sýnum á
þeim 8 vikum sem dvalið var
vestra, en ferðast var yfir 14000
km í lofti og á landi. Aðallega er
hér um fræ og græðlinga að ræða,
en einnig smávegis af rótum og
smáplöntum. Af græðlingum var
tekinn greinafjöldi sem gæti gefið
12000-15000 græðlinga þegar
bútað hefur verið niður. Teg-
undafjöldi er takmarkaður, að-
eins um 130, en af honum eru um
70 trjá- og runnategundir. Eru
sumar þeirra með öllu óreyndar
hér, og aðrar koma frá svæðum
þar sem aldrei hefur verið leitað
fanga áður. Gildir þetta t.d. um
vestur- og norðursvæði Alaska og
Yukon.
(Fréltatilkynning frá Alaskaleiðangri
Óli Valur Hansson).
Skíðaskólinn í Hlíðarfjalli
Ný námskeið hefjast á hverjum mánudegi.
Innritun og upplýsingar í síma 22280 eða 22930.
Langir dráttarsleðar
Kraftmiklir sportsleðar
Artic-Cat
Umboðið á Norðurlandi
Bílasalinn
v/Hvannavelli
Símar: 24119-21715.
Nýir vélsleðar frá
Artic-Cat
fyrirliggjandi.
^ Jörð til sölu
í nágrenni Grenivíkur er til sölu jörðin Hvammur-
Arbær ásamt íbúðar og útihúsum. Möguleiki er á að
taka íbúð á Akureyri upp í söluverð.
> Til sölu
Til sölu er Hafnarstræti 67, Akureyri.
Húsið er tilvalið fyrir ýmiss konar
félagsstarfsemi.
r n
REKSTRARRAÐGJOF
FELL hf. Kaupvangsstræti 4 -Akureyri ■ simi 25455
Gjaldkeri
Laus er til umsóknar staða gjaldkera á skrifstofu
Dalvíkurbæjar.
Um heilsdagsstöðu er að ræða.
Umsóknarfrestur til 29. jan. nk.
Nánari upplýsingar veitir undirritaður í síma 96-
61370.
Bæjarritarinn á Dalvík.
Starfsstúlkur
óskast í eldhús að Skíðastöðum.
Upplýsingar veitir forstöðumaður í síma 22280.