Dagur - 22.01.1986, Síða 12
Akureyri, miðvikudagur 22. janúar 1986
Ritstjóm • Auglýsingar • Afgreiðsla Síminn er 2 4 222
Dráttar-
bíll fór
þversum
-og lokaði veginum milli
Siglufjarðar og Fljóta
Fyrir hádegið í gær lokaðist
vegurinn milli Siglufjarðar og
Fljóta, ekki vegna fannfergis
heldur vegna þess að dráttar-
bfll með tengivagn fór þversum
á veginum og teppti þannig
alla umferð.
Að sögn Símonar Gestssonar,
útibússtjóra Kaupfélags Skag-
firðinga í Fljótum varð óhappið
með þeim hætti að þegar bílstjóri
flutningabílsins var að leggja í
bratta brekku í Hraunadal,
skammt utan við Hraun, kom
snörp hviða á móti honum og
byrgði honum sýn fram á veginn.
Því varð bílstjórinn að hægja á
bílnum og missti hann svo mikla
ferð að hann hafði sig ekki upp
brekkuna, þrátt fyrir keðjur á öll-
um hjólum. Kafaldsbylur var á
þessum slóðum og færð í þyngra
lagi. í brekkunni slóst tengivagn-
inn til þannig að bíllinn fór þvers-
um á veginum og var ekki talið
vogandi að reyna að koma bíln-
um frá nema með utanaðkom-
andi aðstoð.
Fenginn var veghefill Vega-
gerðar ríkisins sem staðsettur er í
Ketilási í Fljótum, en áður en
hægt var að hefjast handa varð að
bíða eftir stjórnanda hefilsins
sem er búsettur á Sauðárkróki og
kom akandi þaðan. Það gekk
fljótt og vel að losa bílinn og opn-
aðist vegurinn þar með aftur eftir
tveggja og hálfs tíma lokun. -yk.
Blóðsýni tekið úr einum meðlima blóðgjafasveitairinnar. Mynd: KGA.
Gífurleg
kaffihækkun
- Heimsmarkaðsverð á kaffi hækkaði um
30-35% í haust og önnur álíka eða
meiri hækkun er framundan
Mikil hækkun varð á heims-
markaðsverði á kaffibaunum í
haust og enn á kaffibaunaverð
eftir að hækka á næstu mánuð-
um. Að sögn Gunnars Karis-
sonar framkvæmdastjóra
Kaffibrennslu Akureyrar nam
hækkunin 30-35% í haust og
framundan er önnur eins
hækkun. Kaffibaunaverð á
heimsmarkaði hefur því hækk-
að um 90-100% þegar þessar
hækkanir verða komnar til eft-
ir nokkra mánuði.
Pessar hækkanir stafa af mikl-
um þurrkum, og uppskerubresti í
Brazilíu í kjölfar þeirra. Mikið
drapst af kaffiplöntum, sérstak-
lega af betri tegundunum, og
þegar svo var komið fóru menn
að treysta á kaffibaunir frá Kol-
umbíu. Þar urðu hins vegar mikl-
ar náttúruhamfarir og sagði
Gunnar að í kjölfar þess hefði
nánast orðið sprenging á kaffi-
baunaverði á heimsmarkaði.
„Kaffibaunirnar eru lang-
stærsti útgjaldaliðurinn hjá
okkur,“ sagði Gunnar Karlsson.
„Ég tel að það sé rúmlega 70%,
og þetta leiðir auðvitað til mikilla
hækkana hjá okkur á næstunni.
Þeir sérfræðingar sem ég hef rætt
við, telja að ekki verði neinar
breytingar til bóta næstu mánuði.
Ég vil hins vegar vekja athygli á
því að þrátt fyrir þessar hækkanir
verður kaffi áfram ódýr drykkur
miðað við marga aðra og það
gildir þá fyrir fólk að fara vel með
kaffið.” gk.-
Allt fullt á
framsóknarvist
A föstudagskvöld verður ann-
að af þremur keppniskvöldum
í félagsvist á Hótel KEA. Það
eru framsóknarfélögin á Akur-
30% raunlækkun árgjalda
til Fjórðungssambandsins
Framlög sveitarfélaga til Fjórðungssambands Norð- lendinga verða þau sömu í ár og þau voru í fyrra, þrátt fyrir að tekjur sveitarfélaga hækki í krónutölu á milli ára um rúm- 1 lega 30%. Ástæða þessarar lækkunar er sú, að á síðasta fjórðungsþingi Norðlendinga var ákveðið að grípa til ýmissa ráðstafana til sparnaðar í rekstri. Par má m.a. nefna að milliþinganefndir voru lagðar niður að strjálbýlisnefnd
Bæjarstjórn Akureyrar vísaði til bæjarráðs á ný:
ucjbjuioijuiii nnuiujfiui wiouui iii uvujuiiuuo u ny.
Heimild til endurráðn
ingar eftir sjötugt
Samþykkt bæjarráðs Akureyrar
frá 16. janúar um heimild til að
endurráða starfsmcnn bæjarins
eða stofnana hans í hálft starf á
tímavinnukaupi eftir 70 ára aldur
var vísað til bæjarráðs á ný, eftir
töluverðar umræður í bæjar-
stjórn í gær. Skoðanir voru þar
mjög skiptar um málið og töldu
sumir bæjarfulltrúar ekki óeðli-
legt að starfslok væru við sjötugt
og ménn þyrftu ekki að fara í
grafgötur með það. Á hinn bóg-
inn var upplýst að með þessu
væri í raun ekki verið að breyta
neinu, því tíðkast hefði að leyfa
mönnum að vinna fram yfir
sjötugt. STAK mun einnig fjalla
um þctta mál áður en til af-
greiðslu kemur á ný.
í samþykktinni segir svo:
„Heimilt er að endurráða
mann, sem náð hefir 70 ára aldri
og lætur af föstu starfi hjá Akur-
eyrarbæ eða stofnunum hans, í
annað starf á tímavinnukaupi,
allt að hálfu starfi.
Laun vegna endurráðningar til
starfa, sem falla undir kjara-
samninga verkalýðsfélaga, greið-
ast skv. þeim samningum, en ella
greiðist tímavinnukaup skv. 2.
tölulið, gr. 1.2.2. í aðalkjara-
samningi starfsmanna Akureyr-
arbæjar.
Starfsmaður, sem óskar að
ráða sig til vinnu eftir sjötugt
samkvæmt þessum skilmálum,
skal sækja um það skriflega til
viðkomandi stofnunar.
Ákvörðun um ráðningu sam-
kvæmt þessari grein skal tekin af
bæjarstjóra að fenginni umsögn
yfirmanns viðkomandi stofnunar
og umsögnum þeirra sérfræð-
inga, sem talið er rétt að leita til
hverju sinni. Hafa skal náið sam-
starf við starfsmanninn um með-
ferð málsins.“ HS
undan skilinni, felld voru niður
framlög til sérverkefna og loks
var ákveðið að færa iðnráðgjafa-
starfsemina til iðnþróunarfélaga
sveitarfélaganna.
Þessi sparnaður gaf olnboga-
rými til að lækka árgjöld sveitar-
félaga úr 0,50% í 0,35% af álagn-
ingartekjum og Jöfnunarsjóðs-
framlögum. Parna er um 30%
raunlækkun að ræða.
Ef gengið er út frá því að öll
sveitarfélög á Norðurlandi eigi
aðild að iðnþróunarfélögum og
greiðslur sveitarfélaga til þeirra
verði 0,5% af álögðum útsvör-
um, fasteignasköttum og að-
stöðugjöldum, má reikna með að
heildarframlög sveitarfélaga til
iðnþróunarfélaga verði 5,3 millj-
ónir króna í ár, miðað við 34%
tekjuhækkun á milli ára. Lækkun
árgjalda til Fjórðungssambands-
ins miðað við sömu verðlags-
forsendur er um 1860 þúsund
krónur. Sú upphæð samsvarar
35% af greiðslu sveitarfélaganna
til iðnþróunarfélaga. Sparnaður
vegna Fjórðungssambandsins er
þannig notaður til að mæta út-
gjöldum vegna iðnráðgjafastarf-
seminnar. BB.
eyri sem sjá um félagsvistina
og er þetta því sannkölluð
framsóknarvist.
Fyrsta félagsvistin var sl. föstu-
dag og komust færri að en vildu.
Samtals var spilað á 43 borðum,
eða með öðrum orðum öllum
lausum borðum á KEA að
undanskildum þeim sem upptek-
in voru í matsalnum. Þeir sem
kepptu voru því 172 að tölu.
Verðlaun eru veitt fyrir hvert
kvöld og einnig heildarverðlaun
að loknum þremur kvöldum.
Næst verður spilað á föstudags-
kvöld, eins og áður sagði, og
framsóknarvistinni lýkur síðan 7.
febrúar. Að lokinni keppni það
kvöld verður hamonikudansleik-
ur. HS
Fjórir
bílar í
árekstri
Fjórir bflar lentu í árekstri í
gærdag á mótum Oddeyrar-
götu og Brekkugötu á Akur-
eyri. Til að byrja með skullu
saman þrír bflar en þegar lög-
reglumenn voru að vinna á
vettvangi kom sá fjórði og ók
inn í þvöguna og áttu lögreglu-
menn fótum fjör að launa.
Fram að kvöldmat í gær urðu
fjórir aðrir árekstrar á Akureyri.
Ékið var á brúarstólpa við Eyja-
fjarðará, annar ók á lóðagirðingu
við Hafnarstræti. Þá urðu tveir
árekstrar á Glerárgötu og voru
nokkrar skemmdir í öllum þess-
um árekstrum en meiðsli engin.
Mjög mikil hálka var á götum
bæjarins. gk-.