Dagur - 27.01.1986, Blaðsíða 3
27. janúar 1986 - DAGUR - 3
Kolbeinsey komin heim:
Fánar blöktu
við hún!
Fánar blöktu við hún á Húsa-
vík s.l. föstudagsmorgun er
togarinn Kolbcinsey kom á
ný til heimahafnar sinnar.
Þungu fargi var létt af Hús-
víkingum sem tóku fagnandi
á móti skipi og skipshöfn.
„Það er hlý tilfinning að vera
kominn aftur á skipinu hingað og
mér líður geysilega vel. Mér er
efst í huga baráttuvilji manna
hér í bænum við að endur-
heimta skipið," sagði Benjamín
Antonsson skipstjóri á Kol-
beinsey er Dagur ræddi við
hann við komu skipsins. Benja-
mín sagði að reynt yrði að halda
til veiða um helgina. „Ég var
svolítið efinn um það hvort tæk-
ist að endurheimta skipið, en
undir niðri trúði ég því ekki að
við myndum missa þetta góða
skip,“ sagði hann.
Undirmönnum á skipinu var
sagt upp vinnu í haust en 6 yfir-
menn héldu launum, þar af þrír
á launum hjá Fiskveiðasjóði. -
Við komu skipsins til Húsavík-
ur ræddi blaðamaður Dags við
hásetana Ómar Vagnsson og
Ómar Vagnsson og Jóel Þórðarson hásetar.
Myndir: IM
Kolbeinsey siglir inn í höfnina á Húsavík sl. föstudagsmorgun.
Jóel Þórðarson og spurði hvern-
ig þeim væri innanbrjósts á þess-
ari stundu og til hvaða ráða þeir
hefðu gripið ef Kolbeinsey
hefði ekki endurheimst.
„Þetta er allt Ijómandi gott og
við erum mjög ánægðir að vera
búnir að fá skipið aftur, en ég
átti alveg eins von á að við
fengjum það ekki. Maður bjó
við óöryggi, hafði ekkert að
gera og það hefði ekkert verið
til ráða nema fara héðan og
leita sér að vinnu,“ sagði Ómar.
„Mér líður alveg rosalega vel
og er ánægður með þetta,“ sagði
Jóel. Hann er nýorðinn faðir og
byrjaður að búa. „Ég hefði far-
ið að heiman til að leita mér að
vinnu en fjölskyldan hefði ekki
flutt þótt skipið hefði ekki kom-
ið aftur. Ég var nýbúinn að
kaupa hús, og var reyndar alltaf
bjartsýnn og vissi að skipið
kæmi aftur,“ sagði Jóel.
IM/Húsavík.
Benjamín Antonsson skipstjóri.
/
Bakarameistarar:
34% hækkun
á kökum
og brauðvörum
Um síðastliðin áramót barst
Landssambandi bakarameist-
ara í hendur ákvörðun fjár-
málaráðherra um álagningu
30% vörugjalds á kökur og
ýmsar brauðvörur. Landssam-
band bakarameistara hefur
mótmælt þessari óvæntu og
ósanngjörnu skattlagningu og í
ítarlegum viðræðum við fjár-
málaráðherra hvatt hann ein-
dregið til að láta af henni.
Fjármálaráðherra hefur verið
algjörlega ófáanlegur til þess.
Sú aðferð, sem fjármálaráðu-
neytið hefur nú ákveðið varðandi
framkvæmd innheimtunnar, er
talsvert auðveldari en sú, sem
fyrirhuguð var. I’ótt tekist hafi að
draga verulega úr upphaflegum
skattlagningaráformum fjármála-
ráðherra, verður því miður ekki
hjá því komist, að skattheimta
þessi hafi um það bil 3-4% verð-
hækkun í för með sér.
Innlendir framleiðendur búa
við margfalt hærra verð en keppi-
nautar þeirra á margvíslegum
afar mikilvægum hráefnum.
Landssamband bakarameistara
treystir því, að þrátt fyrir þau
viðhorf fjármálaráðherra til
brauð- og kökugerðar, sem fram
koma í áðurnefndri skattlagn-
ingu, sé hann eftir sem áður
hlynntur íslenskum iðnaði, og að
hann muni því gera ráðstafanir til
að draga úr þeim óhagstæðu
áhrifum, sem skattlagningin hef-
ur á samkeppnisstöðu barkarí-
anna.
Mú er þorrinn að byrja.
Ætlar þú að halda þorrablót?
Þá er Alþýðuhúslð rétti staðurinn.
V/ið bjóðum glæsilega veitíngasali fyrir allt að
270 manna samkvaemi og kappkostum að
veita þá bestu þjónustu sem völ er á
baeði í mat og drykk.
Erum byrjaðir að taka niður pantanir
fyrir fermingarveislur. Sendum heim.
Hafðu samband tTmanlega í síma 212X6.
RÁÐSTEFNU- OQ VEITIMGAÞJÓriUSTA
SKipagötu 14, pósth 895.602 Akureyri, simi 96.-21216