Dagur - 27.01.1986, Síða 5
lesendahorniá
27. janúar 1986 - DAGUR - 5
Dýrt læknisvottorð
- Bréfritara þykir dýrt að fá vottorð hjá læknum
Kæri Dagur.
Mig langar að vita hvort þú
getur leyst úr forvitni minni. Svo
er mál með vexti, að ég var
staddur inni á læknamiðstöð hér
um daginn og inn kemur maður
sem er að sækja læknisvottorð.
Ég sé að hann er eitthvað að
ræða við stúlkuna og þau ræða
saman. Hann fer svo að tala við
mann þarna inni og segir, að sér
þyki læknisvottorðin orðin dýr.
Það þurfi að greiða þrjú hundruð
þrjátíu og sex krónur fyrir þau,
en það kosti þrjú hundruð tuttugu
og fimm krónur að fara til sér-
fræðings. Ég spyr, getur það ver-
ið rétt og satt, að læknar taki
þessa upphæð fyrir vottorð, sem
tekur tvær til þrjár mínútur að
rita. Ég botna ekki í bessu og
þannig er því eflaust varið með
Með fyrirfram þökk.
Forvitinn bæjarbúi.
Svar:
Við leituðum svara við þessum
spurningum bréfritara hjá
Heilsugæslustöðinni. Þar var
okkur tjáð, að læknisvottorð
kostaði 336 kr. Tilvísun til sér-
fræðings kostar hins vegar ekki
annað en viðtalsgjald hjá lækni,
sem er 100 kr., en viðtal hjá sér-
fræðingi kostar 325 kr. nema fyrir
örorku- og ellilífeyrisþega. Þeir
greiða 130 kr.
Lesendabréf
Við hvetjum lesendur til að koma úr felum og láta
skoðanir sínar í Ijós hér í lesendahorninu.
Símiiin er 24222
Þeir sem skrifa merkja bréfin; Dagur, Strandgötu 37,
Akureyri, „lesendahornið“. Þeir sem vilja geta feng-
ið bréf sín birt undir dulnefni, en fullt nafn verður
samt sem áður að fylgja til ritstjórnar.
Sama gildir um þá sem hringja; við birtum erindi
þeirra undir dulnefni, en það verður ekkert birt ef
viðkomandi segir ekki til nafns í símann.
Sumum þykir læknisþjónustan dýr, en fæstir vilja þó vera án heimilislæknis
og fara því í langar biðraðir til að ná í einn slíkan.
„Klökknar njólu...“
Laufey Sigurðardóttir frá Torfu-
felli hringdi og sagðist hafa séð í
blaðinu leiðréttingu Einars Krist-
jánssonar á vísnaþætti Jóns frá
Garðsvík en Jón hafði eignað Ól-
ínu Jónasdóttur vísu eftir Einar.
Við þennan lestur kvaðst Lauf-
eyju hafa dottið í hug að gefa les-
endum Dags á að líta sýnishorn
af kveðskap Dýrólínu Jónsdóttur
sem bjó alla sína ævi í Skagafirði.
Líklega mun það hafa verið hún
sem Jón frá Garðsvík átti við en
kallaði Ólínu Jónasdóttur.
Eitt sinn kvað Dýrólína:
Klökknar njólu kalda brá,
kemur ról á fossinn,
þegar hólar freðnir fá
fyrsta sólarkossinn.
Öðru sinni kvað hún um jörð
sem hafði verið ofnýtt:
Margt til bóta guð þér gaf,
en gæðin hljóta að falla.
þú ert mótuð ágirnd af
upp að rótum fjalla.
Og enn kvað Dýrólína um
kvöld:
Allt er hljótt um haf og sund
hulið óttu skýlu.
Tárast nótt en grátin grund
gengur rótt til hvílu.
Jiögni.____
Nóttin
Það er kunnara en frá þurfi að
segja, að maðurinn þarfnast
svefns. En hér eins og svo oft
áður, sannast hið fornkveðna,
að hóf er best á hverjum hlut. Er
reyndar vafamál hvort er betra,
of mikill eða of lítill svefn.
Sumir eiga í miklum erfiðleik-
um með að sofna en aðrir eru í
mestum vandræðum með að
vakna. Frægur maður sagði
einhverju sinni, að tvennt væri
það, sem hann ætti bágt með
að sætta sig við í lífinu: Að
hátta á kvöldin og fara á fætur
á morgnana. Mikið til í því.
Annars er það verðugt rann-
sóknarefni aö rannsaka sof-
andi menn. Sumir eru svo ger-
samlega meðvitundarlausir, að
þótt himinn og jörð færist,
myndu þeir ekki rumska. Aðrir
sofa svo laust, að þeir loka
naumast augunum og hrökkva
upp með andfæium „ef lóa
verpir frammi (firði."
Athugull og skarpgreindur
kunningi minn, minnti mig á það
um daginn, að bæjarstjómar-
langa
kosningar væru í nánd. Mætti í
því sambandi búast við því að
„pólitíkusar" innan og utan
bæjarstjórnar, færu að rumska
og jafnvel vakna af fjögurra ára
værum blundi. Að vonum þótti
mér þetta mikil og váleg tíðindi.
Það er augljóst að sofandi
menn (og konur), gera nálega
ekkert illt af sér og reyndar ekk-
ert gott heldur. En af vakandi
mönnum og konum er við öilu
að búast, - góðu og illu. Það
hiýtur þess vegna að fylgja því
nokkur áhætta að hafa allan
þennan „pólitíkusa“ skara glað-
vakandi. En ætli við verðum
samt ekki að taka þessa
áhættu, Kfið er hvort sem er
„lotterC'.
Við getum svo líka huggað
okkur við þá líffræðilegu stað-
reynd, að eftir stranga vor-
vöku, eru „pólitíkusar'1 trúlega
svefnþurfi. Má. þá búast við að
þeir fái fjögurra ára svefnfrið á
ný. Eins og kerlingin sagði: Þeir
gera þá ekkert til bölvunar á
meðan. Högni.
Við eigum úrval afgleri f öllum stærðum og gerðum.
Sjáum einnig um viðhald og endurnýjun á gleri
og gerum föst verðtilboð.
Hafðu samband í dag og kynntu þér möguleikana.
ÍSPAN
21332,22333
œ
>
VIDHALD OG NÝSMÍDI
Smíðum glugga, útihurðir, innihurðir, skápa,
eldhúsinnréttingar, baðinnréttingar.
Leggjum dúka og parkett og útvegum öll efni.
Föst verðtilboð í vinnu og efni.
Hafðu samband í dag og kynntu þér möguleikana.
Aðalgeir&ViÖor
21332,22333