Dagur - 27.01.1986, Qupperneq 8
8 - DAGUR - 27. janúar 1986
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 95., 99. og 102. tbl. Lögbirtingablaðsins
1985 á fasteigninni Óseyri 7, Akureyri, þinglesinni eign Híbýli
hf., fer fram eftir kröfu innheimtumanns ríkissjóðs á eigninni
sjálfri föstudaginn 31. janúar 1986, kl. 15.00.
Bæjarfógetinn á Akureyri.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 52., 65. og 68. tbl. Lögbirtingablaðsins 1985
á fasteigninni Fjölnisgata 6, b og c hluta, Akureyri, þinglesinni
eign Norðurfells hf., fer fram eftir kröfu Benedikts Ólafssonar
hdl. og innheimtumanns ríkissjóðs á eigninni sjálfri föstudag-
inn 31. janúar 1986, kl. 17.15
Bæjarfógetinn á Akureyri.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 5., 9. og 13. tbl. Lögbirtingablaðsins 1983 á
fasteigninni Grenilundi 7, Akureyri, þinglesinni eign Tryggva
Pálssonar, fer fram eftir kröfu Veðdeildar Landsbanka
islands, Gunnars Sólnes hrl., bæjargjaldkerans á Akureyri og
Ólafs Gústafssonar hdl. á eigninni sjálfri föstudaginn 31. jan-
úar 1986, kl. 16.00.
Bæjarfógetinn á Akureyri.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 95., 99. og 102. tbl. Lögbirtingablaðsins
1985 á fasteigninni Hjarðarlundi 4, Akureyri, þinglesinni eign
Halldórs Ásgeirssonar, fer fram eftir kröfu Guðmundar Ingva
Sigurðssonar hrl. og Jóns Kr. Sólnes hrl. á eigninni sjálfri
föstudaginn 31. janúar 1986, kl. 16.15.
Bæjarfógetinn á Akureyri.
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á Sæbóli, Akureyri, þinglesinni eign Sigur-
rósar Steingrímsdóttur o.fl., fer fram eftir kröfu Guðjóns
Steingrímssonar hrl., Ólafs B. Árnasonar hdl., bæjargjaldker-
ans á Akureyri, Benedikts Ólafssonar hdl. og Jóns Ólafssonar
hrl. á eigninni sjálfri föstudaginn 31. janúar 1986, kl. 17.00.
Bæjarfógetinn á Akureyri.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 73., 80. og 84. tbl. Lögbirtingablaðsins 1985 s
á fasteigninni Helgamagrastræti 7, Akureyri, þinglesinni eign
Péturs Helgasonar og Ásu Ásbergsdóttur, fer fram eftir kröfu
innheimtumanns ríkissjóðs, bæjargjaidkerans á Akureyri,
Árna Pálssonar hdl. og Ólafs Thoroddsen hdl. á eigninni sjálfri
föstudaginn 31. janúar 1986, kl. 15.15.
Bæjarfógetinn á Akureyri.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 128., 130. og 133. tbl. Lögbirtingablaðsins
1983 á fasteigninni Mánahlíð4, efri hæð, Akureyri, þinglesinni
eign Benedikts Hallgrímssonar, fer fram eftir kröfu Veðdeildar
Landsbanka Islands, Ólafs B. Árnasonar hdl. og Gunnars
Sólnes hrl. á eigninni sjálfri föstudaginn 31. janúar 1986, kl.
13.45.
Bæjarfógetinn á Akureyri.
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á Strandgötu 37, hluta neðri hæð, Akureyri,
þinglesin eign Birnu Óskarsdóttur o.fl., fer fram eftir kröfu
Ólafs Gústafssonar hdl., Ólafs B. Árnasonar hdl., innheimtu-
manns ríkissjóðs, Steingríms Þormóðssonar hdl. og Sigríðar
Thorlacius hdl. á eigninni sjálfri föstudaginn 31. janúar 1986,
kl. 14.00.
Bæjarfógetinn á Akureyri.
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á Hjallalundi 17A, Akureyri, talin eign Jóns
Carlssonar, fer fram eftir kröfu gjaldheimtunnar í Fteykjavík,
Jónasar A. Aðalsteinssonar hrl., Landsbanka Islands og
Gunnars Sólnes hrl. á eigninni sjálfri föstudaginn 31. janúar
1986, kl. 14.45.
Bæjarfógetinn á Akureyri.
^jiorðlensk fyrirtæki.__
Blikkrás hefur
Elsti starfsmaður blikksmiðjunnar, Gústaf Júlíusson.
Myndir: KGA
næg verkefni
- Bjartsýnistónn í Oddi Halldórssyni og Karli Magnússyni,
eigendum þessa nýja fyrirtækis
Blikkrás heitir nýtt fyrirtæki á
Akureyri, - eða ætti e.t.v.
frekar að segja gamalt fyrir-
tæki með nýju nafni -. Fram til
síðustu áramóta hefur fyrir-
tækið verið rekið sem blikk-
smíðadeild járnsmiðjunnar
Varma. Nú hafa tveir ungir
menn, Oddur Halldórsson og
Karl Magnússon, tekið hús-
næðið og tækin á leigu og hafið
rekstur blikksmiðjunnar
Blikkrásar sf.
Karl hafði verið verkstjóri
blikksmiðjunnar í nokkur ár en
Oddur hafði komið víðar við.
Var áður hjá Varma en hafði í
millitíðinni farið austur á land til
að vinna við blikksmíði.
Oddur Halldórsson og Karl Magnússon.
Þegar útsendarar Dags litu inn
hjá þeim félögum um daginn
voru þeir hinir bröttustu, sögðust
hafa nóg verkefni fram á mitt ár
að minnsta kosti, sem er meira en
ýmsir aðrir geta sagt þar sem fá
verkefni eru fyrirsjáanleg í þessari
iðngrein, sem og öðrum greinum
byggingariðnaðar.
Starfsmenn fyrirtækisins eru 7
að meðtöldum eigendunum og er
m.a. í þeim hópi eini kvenblikk-
smiðurinn á landinu, Freydís
Halldórsdóttir. „Við erum
blikksmiðir og með því að vinna
hér báðir erum við í nánari snert-
ingu við framleiðsluna. Þannig
erum við færari um að sjá van-
kanta í rekstrinum og að sníða
þá af,“ sagði Oddur.
Að sögn þeirra félaga kemur
það niður á blikksmiðum eins og
öðrum byggingariðnaðarmönn-
um þegar framkvæmdir dragast
við opinberar byggingar, en þar
er einmitt algengt að setja þurfi
upp loftræstikerfi og annað sem
veitir blikksmiðum vinnu.
Þó var bjartsýnistónn í þeim
félögum og sögðust þeir ætla að
bjóða í verk utan Akureyrar og
töldu sig standa vel að vígi í þeim
efnum, t.d. í samanburði við
sunnlenskar blikksmiðjur. -yk.
Freydís Halldórsdóttir, eini kvenblikksmiðurinn á landinu.