Dagur


Dagur - 27.01.1986, Qupperneq 9

Dagur - 27.01.1986, Qupperneq 9
Jeiklist 27. janúar 1986 - DAGUR - 9 í skjóli bak við heiminn Leikfélag Akureyrar sýnir Silfur- túnglið eftir Halldór Kiljan Laxnes. Leikstjórn og búningar: Haukur J. Gunnarsson. Leikmynd: Örn Ingi. Lýsing: Ingvar Björnsson. Hljómsveitarstjórn og útsetningar: Edward Frederikssen. Höfundur lags við barnagælu: Jón Nordal. Silfurtúnglið segir frá ungri stúlku, Lóu, sem á góðan mann, barn og lítið hús, í litlum bæ við lygnan fjörð, í skjóli bak við heiminn. Hún syngur gjarn- an ljúfa barnagælu fyrir dreng- inn sinn. Þessu fórnar hún til þess að verða fræg og syngja fyrir allan heiminn. Hún lendir í klóm fégráðugra manna, sem skríða fyrir auðugum útlending- um og láta sér nægja botnfallið af menningu stórborganna. Þetta eru ómanneskjulegir braskarar sem eru tilbúnir að selja hvað sem er, jafnvel vini sína, þjóð og föðurland, bara til að græða. En Lóa þolir ekki frægðina og falska ímynd skemmtanalífsins. Hún tapar öllu; frægðinni, eiginmanni, barni, jafnvel sjálfri sér, og hún syngur aldrei fyrir allan heim- inn. Silfurtúnglið var skrifað 1954 og var hörð ádeila nóbelsskálds- ins á íslenskt þjóðfélag þess tíma. En þetta verk á fullt er- indi á fjalirnar í dag; boðskapur þess er sígildur. Þetta er harm- leikur, en hann er líka fullur af húmor, sem oft á tíðum er bein- skeyttur. Boðskapur verksins, um efnishyggjuna gagnvart manneskjunni, hlýtur að vekja umhugsun hjá leikhúsgestum. í verkinu eru líka ótal smáatriði, sem höfða til manns; þaulhugs- aðar og meitlaðar setningar, sem innihalda mikla heims- speki. Og boðskapurinn kemst til skila, án þess að leikhúsgest- um leiðist. Haukur J. Gunnarsson fer þá leið við uppsetninguna, að vera raunveruleikanum trúr. Hann dregur fram myndir frá árinu 1954. Haukur hefur áður gert góða hluti með Leikfélagi Ak- ureyrar og þar stendur Bréfber- inn frá Arles upp úr. Heilt yfir hefur Hauki tekist vel til með Silfurtúnglið. Þó voru nokkrar minniháttar brotalamir á sýn- ingunni; ég nefni aðgerðarlitla og langdregna senu að tjalda- baki í Silfurtúnglinu, á meðan Lóa er að syngja, sem dæmi. Vilborg Halldórsdóttir vinnur leiksigur í þessari sýningu. Hún nær vel fram sakleysi og hlýju hjartarþeli Lóu. Og norðlenski framburðurinn fór henni oftast vel í munni, þó stundum yrði hann full tilgerðarlegur. Theódór Júlíusson leikur Feilan og gerir það vel. Þó fannst mér vanta í sköpun hans örlítið meiri andstyggð og læ- vísi. Sunna Borg leikur ísu, sýslumannsdótturina, sem varð fræg og fékk að syngja fyrir all- an heiminn. Sunna bregst ekki frekar en fyrri daginn. Ellert A. Ingimundarson kemst vel frá Óla, eiginmanni Lóu. Ekki var ég þó alveg sáttur við leik hans í upphafi sýningarinnar; þá fannst mér stundum eins og hann væri að lesa textann af bók og framganga hans var ögn óörugg. En sennilega má skrifa þetta á reikning frumsýning- arskjálfta. Árni Tryggvason fer með kómiskt hlutverk Lauga, föður Lóu, og það gerir hann eins og honum einum er lagið. Laugi er stórskemmtilegur karl hjá Árna. Þráinn Karlsson leikur drykkjusjúklinginn og afbrota- manninn Róra og skilar því hlutverki af alúð. Útlenda for- stjórann Peacock leikur Marinó Þorsteinsson. Hann var ögn óöruggur í Silfurtúngls- atriðinu og skilaði ekki þeim heimsmanni, sem maður átti von á. Það mætti segja mér, að hann hafi ekki fundið sig í rauð- köflótta jakkanum, sem var eini búningurinn sem ég sætti mig ekki við. Hins vegar náði Marinó sér á strik í lokaatriðinu og þar kom heimsmaðurinn. Pétur Eggerz lék aflraunamann- inn, en náði því miður aldrei að gera úr honum heilsteypta pers- ónu, að því er mér fannst. í minni hlutverkum voru Þór- ey Aðalsteinsdóttir, Barði Guð- mundsson, Erla B. Skúladóttir, Sigríður Pétursdóttir, Haraldur Hoe Haraldsson, Kristján E. Hjartarson og Björg Baldvins- dóttir. Öll skiluðu þau sínu, en samt hafði ég það á tilfinning- unni, að leikstjórinn hefði mátt leggja meiri alúð í sum þessara hlutverka. Það var eins og leik- ararnir væru stundum ekki al- veg vissir um hvað þeir ættu að gera við sig. Eftirminnilegust er Björg Baldvinsdóttir, sem skap- aði stórkómiska drykkfellda söngkonu. Leikmyndir Arnar Inga eru raunverulegar og falla vel að verkinu. Sérstaklega var innra fordyri Silfurtúnglsins hugvits- samlega gert. Sú mynd undir- strikaði boðskap verksins. En leikmyndirnar eru viðamiklar og erfiðar í skiptingum. Þrátt fyrir það tókst að framkvæma þær á undraskömmum tíma, að vísu á full hávaðasaman hátt. Jón Nordal samdi hugljúft lag við barnagæluna hennar Lóu og Edward Frederiksen hefur út- sett það fyrir uppfærslu LA. Þar hefur honum tekist mjög vel til. Þrátt fyrir þá agnúa sem ég hef hér tilgreint, þá var sýning Leikfélags Akureyrar á Silfur- túnglinu eftirminnileg. Agnú- arnir eiga margir hverjir eftir að slípast af sýningunni og kostirn- ir vega langt um þyngra. Þess vegna er ástæða til að hvetja Akureyringa og nærsveitamenn til að láta þessa sýningu ekki fram hjá sér fara. Góða skemmtun. Gísli Sigurgeirsson. unanniít Sambands- Árshátíð Sambands íslenskra samvinnufélaga var haldin á Hótel Sögu í Reykjavík um fyrri helgi. Þar m var margt um manninn og allir skemmtu sér konung- lega, eins og vera ber. Meðfylgjandi myndir eru frá hátíðinni. Erlendur Einarsson, framkvæmdastjóri Sambandsins, og Vahir Arnþórsson, stjórnarformaöur þess, ásamt eiginkonum sínum. Stjúpsystur gerðu mikla lukku á hátíðinni. & Sólveig og Eysteinn í léttum dansi.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.