Dagur - 19.03.1986, Page 6
6 - DAGUR - 19. mars 1986
Áhuginn leyndi sér ekki hjá
konunum sem mættar voru í
Vaxtarræktina í kjallara
íþróttahallarinnar á Akureyri
á mánudagskvöldið. Þarna
voru þær á öllum aldri og lyftu
lóðum, toguðu og teygðu líkani-
ann eftir ákveðnu prógrammi
og gáfu ekkert eftir. Blaða-
maður og Ijósmyndari Dags
litu við í Vaxtarræktinni og
fylgdust með konunum nokkra
stund.
Það var sumsé kvennatími í
Vaxtarræktinni og á milli tuttugu
og þrjátíu konur mættar.
Kvennatímar eru þrisvar í viku, á
mánudags- og fimmtudagskvöld-
um á milli kl. 20.30 og 22.00 og á
laugardögum frá 14.30-16.00.
Annars er opið alla virka daga frá
16.00-22.00 og þá fyrir bæði kyn-
in og um helgar er opið frá kl. 10
á morgnana til 3 á daginn. Þannig
að ailir sem áhuga hafa á líkams-
rækt ættu að geta fundið sér
tíma.
„Kvennatímarnir hafa verið
ákaflega vinsælir undanfarið,“
sagði Sigurður Gestsson, en hann
er kunnur vaxtarræktarmaður.
„Samt hafa konur verið dálílið
fcimnar að hafa sig af stað, en
eftir fyrsta tímann er hindrunin
yfirstigin."
Vaxtarrækt hófst á íslandi árið
1981, að sögn Sigurðar og byrj-
uöu akureyrskir áhugamenn þá
þegar. í fyrstu var æft í Lundar-
skóla, en síðan fluttu vaxtarrækt-
armenn sig niður í íþróltahöll og
voru um tíma með aðstöðu á
annarri hæð Hallarinnar. Fyrir
ári síðan fengu þeir aðstööu í
kjallara hússins í sal sem er um
250 fermetrar að stærð.
Sigurður smíðaði öll tæki sjálf-
ur og sagði hann að ekki hefði
verið hægt að koma þessu á fót
öðruvísi því tækin eru óhemju
dýr. „Ég er búinn að eyða um
2500 vinnustundum í að koma
þessu upp," sagði Sigurður,
„Þetta er allt lífið. Það má eigin-
lega segja aö vaxtarræktin og lífs-
stíllinn sem henni fylgir sé hálf-
gerð hugsjón. Stundir þú vaxtar-
rækt verður þú einnig að ástunda
hollt líferni."
Síðastliðið mánudagskvöld
voru þær Kristjana ívarsdóttir og
Guðrún Reynisdóttir leiðbein-
endur, en báðar hafa þær stund-
að vaxtarrækt af kappi og eru í 10
manna keppnisliði sem fer héðan
frá Akureyri á Islandsmót í vaxt-
arrækt sem haldið verður þann
13. apríl.
Guðrún sagði að í kvennatím-
ana mættu konur frá aldrinum 16
ara og upp í 50 ára. „Konur
koma hingað í mismunandi lík-
amlegu ástandi, en þetta er þann-
ig íþrótt að fólk velur sjálft það
sem hentar því best,“ sagði Guð-
rún.
Farið er eftir ákveðnu
prógrammi, fyrst eru upphitun-
aræfingar, síðan er farið í tækin.
Fólk getur svo þróað eigið
prógramm þegar það hefur
stundað líkamsrækt um tíma.
Að sögn Sigurðar Gestssonar
þá eru um 100 manns sem stunda
líkamsrækt reglulega á Akureyri.
„Annars gengur þetta í bylgjum.
Það er toppur í þessu á veturna,
en þegar veðrið fer að skána, þá
vill fólk frekar vera úti _við. En
áhugi á líkamsrækt er mikill á
Akureyri og við höfum átt tals-
vert af íslandsmeisturum.“
Kem til að fá hreyfingu
Olga Björg Sigþórsdóttir lyfti lóð-
um af kappi, en gaf sér þó smá-
stund til að ræða við okkur. „Ég
byrjaði hérna í fyrrasumar, en
tók mér pásu og er að byrja aftur
núna. Ég kem hingað til að fá
einhverja hreyfingu. Ég hef ekki
áhuga á að stunda aðrar íþróttir
og finnst þetta því ágætt. Það er
gaman að fást við tækin, ég set
mér það markmið að þyngja
æfingarnar og næ þannig ár-
angri,“ sagði Olga Björg.
Ekkert elsku mamma!
„Við tökum alltaf skorpu hérna
annað slagið,“ sögðu þær Brynja
Björnsdóttir og Birna Guðjóns-
dóttir.
„Hingað kemur þú og getur
breytt líkamsformi þínu. Þetta er
púl og ef þú hefur vilja þá getur
þú séð árangur. Við komum
hingað þrisvar í viku og erum
minnst einn og hálfan tíma í
einu.“
Þær Brynja og Birna sögðust
byrja á upphitunaræfingum,
skella sér síðan í tækin og að lok-
um eru gólfæfingar í akkorðið,
eins og þær stöllur orðuðu það.
„Hér dugar ekkert elsku
mamma. Maður verður að kýla á
þetta. Og fara rennandi sveittur
út.“
Brynja og Birna sögðust vinna
allan daginn og það væri svolítið
erfitt að hafa sig af stað, „en það
Brynja og Birna: „Förum sælar og ánægöar heim eftir púlið.“
Myndir: - KGA.
„Ég hef ekki áhuga á að stunda aðr-
ar íþróttir,“ sagði Olga Björg Sig-
þórsdóttir.
er ofboðslega gaman þegar mað-
ur er kominn.“
„Það er afskaplega gott að
koma hingað. Það er hægt að ná
árangri á stuttum tíma, hægt að
brenna staðbundinni fitu ef
áhersla er lögð á vissa líkams-
hluta. Og þar fyrir utan safnar
maður andlegu þreki líka. Og fer
sæll og ánægður heim til sín eftir
púlið.“ -mþþ
Guðrún Reynisdóttir og Kristjana ívarsdóttir
Vaxtarræktinni.