Dagur - 26.03.1986, Qupperneq 16
★ Barkar
og slöngur
STRAUNIRflr
ÞJÓNUSTA MEÐ LOFT- HÁÞRÝSTI- OG RAFMAGNSVÖRUR
Furuvöllum 1 • 600 Akureyri • Sími 96-26988
„Forsjálni er misjöfn“
- þegar menn leggja í fjallaferðir
„Hér er sól og blíða og öllum líður vel,“ sagði foringi skátanna í talstöðvarsamtali við Ólaf Kjartansson í gær-
morgun. Mynd: KGA.
Fjallaferðir hafa löngum
heillað og á seinni árum hafa
sífellt fleiri og fleiri tekið sig
upp og farið til fjalia, m.a.
um páska. Forsjálni er mis-
jöfn og skjótt skipast veður í
lofti. Því hefur oft þurft að
kalla út björgunarsveitir til að
leita að ferðalöngum sem
hafa villst eða týnst vegna
slæms veðurs eða bilana í
útbúnaði og farartækjum.
Nú í dag er 25 manna hópur
skáta á aldrinum frá 15 ára í
fimm daga ferð á Flateyjardal.
Þau ganga á skíðum og bera
með sér allan þann mat og
útbúnað sem þau þurfa til að
geta legið úti, í svo til hvaða
veðri sem er, svo dögum skiptir.
Skátarnir hafa vikum saman
undirbúið þessa ferð undir
styrkri stjórn reyndra foringja
þar sem þau eru búin undir að
geta mætt ólíkustu aðstæðum,
án þess að lenda í vandræðum.
Þau hafa reglulegt talstöðvar-
samband við Ólaf Kjartansson
sem er þeirra tengiliður í bæn-
um og sér um að miðla upplýs-
ingum um líðan og gengi skát-
anna til aðstandenda. Ef þetta
unga fólk væri tekið til fyrir-
myndar í því hvernig á að
umgangast náttúruna með virð-
ingu og varkárni væru líklega
færri útköllin þar sem hópar
manna þurfa að rífa sig upp í
dýra og erfiða leit að vanbúnum
ferðamönnum. En sem betur
fer eru þeir fleiri sem ekki verða
fyrir skakkaföllum og komast
hljóðlaust og hjálparlaust allra
sinna ferða. -yk.
„Sé ekki að lausn
sé í sjónmáli“
- segir Davíð Jónsson rafeindavirki, en þeir eru nú
farnir að ráða sig annað í vinnu
Drangey
seldi í
Þýskalandi
Sauöárkrókstogarinn Drangey
SK-1 seldi í gærmorgun í
Þýskalandi 120 tonn fyrir 377
þúsund mörk eða 6,7 milljónir
íslenskra króna.
Meðalverð var rúmlega 56 kr.
fyrir kg sem er nokkuð gott mið-
að við aflasamsetningu, en aflinn
var að langmestu leyti grálúða og
karfi. Hásetahlutur var um 80
þúsund krónur. Togarinn mun nú
sigla heim á leið en halda síðan á
veiðar og selja aftur í Þýskalandi
áður en skipið fer í miklar breyt-
ingar þar um 20. apríl.
„Eg sé ekki aö það sé nein
lausn í sjónmáli og menn eru
farnir aö ráða sig í vinnu
annað,“ sagði Davíð Jónsson
rafeindavirkjameistari og
verkstjóri hjá Pósti og síma á
Akureyri er Dagur ræddi við
hann í gær um uppsagnir raf-
Þrír þrautþjálfaöir jökla-
menn frá Akureyri sem allir
eru félagar í Flugbjörgunar-
sveitinni héldu sl. laugardag í
snjóbíl inn í Gæsavötn, en
þaðan ætluðu þeir að labba
yfír Vatnajökul.
Kapparnir þrír eru að gera
sína þriðju tilraun til að komast
yfir Vatnajökul. Árið 1984 urðu
þeir frá að hverfa vegna þess að
einn þeirra þjáðist af snjóblindu
eindavirkja hjá Pósti og sima
og Ríkisútvarpinu.
Eins og fram hefur komið í
fréttum sögðu 9 rafeindavirkjar
hjá Pósti og síma á Norðurlandi
upp störfum, 5 á Akureyri, einn á
Blönduósi og Sauðárkróki, tveir
á Húsavík og auk þess tveir raf-
og í fyrra lenti einn þeirra,
Kristján Hálfdánarson í jökul-
sprungu sem landsfrægt varð.
Auk Kristjáns eru í ferðinni
félagar hans Friðrik Sigurðsson
og Rúnar Jónsson og óljósar
fregnir eru af því að fjórði rnað-
urinn sé með í för. Sem fyrr
sagði eru þeir allir þrautþjálfað-
ir og sætta sig grcinilega ekki
við „ófarirnar" undanfarin ár og
ætla að vinna sigur í baráttunni
við Vatnajökul. gk-.
eindavirkjar hjá Ríkisútvarpinu á
Akureyri.
Davíð sagði að einn fimm raf-
eindavirkjanna hjá Pósti og síma
á Akureyri væri að flytja til
Reykjavíkur og a.m.k. tveir aðrir
hefðu fengið tilboð um vinnu. Þá
sagðist hann vita að rafeindavirk-
inn á Blönduósi væri búinn að
ráða sig í aðra vinnu og sá á
Sauðárkróki væri á leið til
Reykjavíkur.
„Það er hlaupin svo mikil stífni
í þetta mál að ég tel ekki líkur á
því að menn komist að sam-
komulagi á næstunni. Fjármála-
ráðherra hefur lýst því yfir að
hann ræði ekki við okkur nema
við snúum fyrst til vinnu en við
erum fastir fyrir á móti. Við
myndum þó mæta til vinnu í ein-
hvern tíma a.m.k. ef við hefðum
loforð fyrir því að við okkur yrði
talað.
Annars hefur okkur verið til-
kynnt að við séum ekki lengur á
launaskrá hjá Pósti og síma og
það túlka ég auðvitað þannig að
menn þar séu búnir að viður-
kenna uppsagnir okkar,“ sagði
Davíð Jónsson. gk-.
Ætla sér að
sigra jökulinn
Flugleiðir:
3000
manns til
og frá
Akur-
eyri
„Það er miðað við að páska-
ferðir hafi byrjað um miðjan
dag í gær og standi fram á
þriðjudag eftir páska. Á þess-
um tíma fljúga Flugleiðir 21
ferð með Fokkervélum og 5
þotuferðir með Boeing 727.
Að sjálfsögðu er þetta breyt-
ingum háð og fer eftir veðri
og breytingum á eftirspurn,“
sagði Gunnar Oddur Sigurðs-
son umdæmisstjóri Flugleiða á
Akureyri um ferðir Flugleiða
milli Reykjavíkur og Akureyr-
ar.
Bókaðir farþegar frá Reykja-
vík til Akureyrar eru 1154 og á
biðlista eru 184, eða samtals 1338
farþegar í þessum 26 ferðum frá
Reykjavík. Frá Akureyri til
Reykjavíkur eru bókaðir 1298
farþegar og 253 á biðlista eða
1551 farþegi. Gunnar áleit að
munur á fjölda farþega til og frá
Akureyri væri vegna þess að
nokkuð af fólki væri þegar komið
til Akureyrar í páskafrí.
Varðandi biðlistana sagði
Gunnar Oddur að margt af því
fólki sem væri á þeim listum væri
bókað á annað flug, en óskaði
eftir breytingum. Einnig sagði
hann að búast mætti við tölu-
verðri aukningu á farþegafjölda
fram á síðasta dag. „Það verður
að koma öllum á áfangastað og
verða gerðar breytingar eftir því
sem við verður komist,“ sagði
Gunnar Oddur.
Flugleiðir hafa tekið á leigu
Fokker-vél í Bretlandi og hafa
því yfir eðlilegum flugflota að
ráða þegar páskaferðirnar kom-
ast í fullan gang. gej-
Akureyri:
Innheimta
bæjargjalda
gengur vel
„Innheimta bæjargjalda geng-
ur eðlilega fyrir sig nú sem
endranær,“ sagði Rafn Hjalta-
lín bæjargjaldkeri á Akur-
eyri.
„Við finnum engar breytingar
frá fyrri árum og menn standa
mjög vel í skilum með bæjargjöld
og fasteignagjöld. Það er ekkert
sem bendir til þess að breytingar
verði þar á,“ sagði Rafn. Vegna
umræðna um fátæktarmörk að
undanförnu var hann spurður
hvort innheimtumenn bæjarins
hefðu orðið varir við breytingu á
fjárhagsgetu fólks. „Það eru allir
fátækir í rauninni og margir eiga
erfitt um stundarsakir, en það er
ekki meira en verið hefur,“ sagði
Rafn Hjaltalín. gej-