Dagur - 09.06.1986, Síða 1
69. árgangur
Akureyri, mánudagur 9. júní 1986
105. tölublað
Aldarafmæli KEA:
2000 manns i
veislu í Höllinni
- Auöhumla og mjaltastúlkan afhjúpuð, tónleikar með Rikshaw og
fleira í tilefni afmælisins.
inn að kvöldi 20. júní
A þessu ári á Kaupfélag Ey
fírðinga aldarafmæli, en félag-
ið var stofnað 19. júní 1886 af
Þjófnaður
úr bíl
Að sögn lögreglumanna víða
um Norðurland var helgin
róleg. Ein bílvelta varð við
Grænalæk í Mývatnssveit.
Ekki urðu meiðsl á fólki en
bíllinn mun vera töluvert
skemmdur.
Á Akureyri voru 2 teknir fastir
aðfaranótt sunnudags, grunaðir
um þjófnað á fatnaði úr bíl. Stóð
bíllinn við hótel í bænum. Kom-
ust mennirnir inn í bílinn og stálu
37 flíkum, aðallega leðurjökk-
um. Pað var fyrir árvekni lög-
reglumanna að málið upplýstist.
Tóku þeir eftir að bíllinn stóð
opinn og skammt frá sátu þjóf-
arnir í öðrum bíl, voru þeir
drukknir og virtist ekkert umhug-
að að koma sér í burtu. Voru þeir
látnir sofa úr sér og hafa nú játað
þjófnaðinn.
Lögreglan á Akureyri tók 5
fyrir of hraðan akstur um helg-
ina. Var einn á 130 km. hraða og
mun verða sviptur ökuleyfi. 2
minniháttar árekstrar urðu í
bænum, án meiðsla á fólki. Tvö
rúðubrot urðu um helgina, var
brotin rúða í Fatahreinsun Vig-
fúsar og Árna í Hólabraut og í
Landsbankanum. Einn var tek-
inn fyrir ölvun við akstur. Að
sögn lögreglumanna var nokkuð
mikil ölvun og gleðskapur í mið-
bænum aðfaranótt sunnudags, en
allt fór þó friðsamlega fram.
-HJS
Jón G. Sólnes
látinn
Jón G. Sólnes varð bráðkvaddur
á heimili sínu í gærmorgun. Jón
var fæddur 30. september 1910
og lést því á 76. aldursári. Jón
vann mikið að málefnum Akur-
eyrar og Norðurlands. Hann sat
bæjarstjórn í áratugi, átti sæti á
Alþingi nokkur ár og var banka-
stjóri Landsbankans til fjölda
ára. Dagur vottar ættingjum og
aðstandendum Jóns samúðar-
kveöjur.
nokkrum bændum í Eyjafírði.
Starfsemin var smá í sniðum í
upphafí, en stofnun fyrstu
samvinnusölubúðarinnar á
Akureyri árið 1906 lagði
grundvöllinn að framtíðinni.
KEA er öflugasta og umsvifa-
mesta kaupfélag landsins og
veitir yfir 1000 manns atvinnu.
Nú rekur KEA tvo tugi versl-
ana á Akureyri og öðrum byggð-
um Eyjafjarðar og félagið sinnir
einnig vinnslu og sölu landbúnað-
ar- og sjávarafurða, útgerð,
ýmiss konar iðnaði og þjónustu.
Það er eitt stærsta fyrirtæki
landsins. í tilefni af afmælinu
verður aðalfundur félagsins hald-
inn 18. júní í Samkomuhúsi
bæjarins. Þann 19. júní verður
hátíðarfundur við Mjólkursam-
lag KEA og hefst hann kl. 13.30.
Að lokinni setningu fundarins
verður helgiathöfn í umsjá
Sigurðar Guðmundssonar,
vígslubiskups. Hjörtur E. Þórar-
insson, stjórnarformaður KEA
mun flytja hátíðarræðu. Nokkur
ávörp verða flutt og ýmiss konar
skemmtiatriði. Á þessum fundi
verður stærsta listaverk landsins,
Auðhumla og mjaltastúlkan,
afhjúpað. Hátíðarfundurinn er
öllum opinn og verður vinna hjá
KEA felld niður þennan dag.
Til að minnast þessara tíma-
móta hefur öllum starfsmönnum
og mökum þeirra verið boðið til
veislu í íþróttahöllinni við Þór-
unnarstræti. Einnig hefur verið
boðið þangað aðalfundarfulltrú-
um KEA ásamt mökum, auk
annarra gesta. Sökum mikils
fjölda reyndist nauðsynlegt að
skipta kvöldverðargestum í tvo
hópa. Sá fyrri kemur í höllina að
kvöldi 19. júní, en seinni hópur-
Gera má
ráð fyrir að alls verði um 1000
gestir í höllinni hvort kvöld.
Ymislegt verður til skemmtunar í
höllinni, má þar nefna að Páll
Jóhannesson syngur við undirleik
Ólafs Vignis Álbertssonar.
Félagið hefur ekki gleymt ungu
kynslóðinni því kvöldið 21. júní
verða tónleikar fyrir hana í
íþróttahöllinni. Hljómsveitin
Rikshaw frá Reykjavík leikur.
Boðsmiðum vegna þessara tón-
leika verður m.a. dreift í kvöld-
verðinum. -HJS
Frá Sjómannadeginum á Akureyri.
Málefna samningur meirihlutans
„Jafnræði með
flokkunum“
- að mínu mati, segir Gunnar Ragnars
Eins og fram hefur komið í
fjölmiðlum hefur Sigfús Jóns-
son verið ráðinn bæjarstjóri á
Akureyri næsta kjörtímabil.
Að sögn Gunnars Ragnars fá
Sjálfstæðismenn forseta bæjar-
stjórnar, en ekki er ákveðið
hver það verður. „Við munum
ákveða það strax eftir helg-
ina“, sagði Gunnar.
Bæjarstjóri hefur verið for-
maður bæjarráðs og svo mun
verða áfram, að sögn Gunnars. í
hverri 5 manna nefnd bæjarins
fær Sjálfstæðisflokkur 2 menn og
Alþýðuflokkur 1. Varðandi for-
mennsku í helstu nefndum fær
Sjálfstæðisflokkur formennsku í
veitustjórn, atvinnumálanefnd,
hafnarstjórn, byggingarnefnd og
skólanefnd, Alþýðuflokkur fær
skipulagsnefnd. „Að mínu mati
er jafnræði með flokkunum, mið-
að við styrkleika. Alþýðuflokk-
urinn óskaði eftir því að Sigfús
yrði ráðinn bæjarstjóri og við gát-
um fyllilega sætt okkur við það.
Við erum með formennsku í
fleiri nefndum en Alþýðuflokk-
ur. sem er eðlilegt þar sem Sjálf-
stæðisflokkurinn er stærri‘‘,sagði
Gunnar. -HJS
Aðalfundur Slippstöðvarinnar
5 milljon kr. halli
á rekstrinum
- geri ekki of mikið úr þessum halla, segir Gunnar Ragnars forstj.
„Reksturinn hjá okkur á síð-
asta ári var viðunandi miðað
við aðstæður. Það var í fyrsta
skipti í 13 eða 14 ár sem var
svolítill halli á rekstrinum,
rúmar 5 milljónir“, sagði
Gunnar Ragnars, forstjóri
Slippstöðvarinnar í samtali við
Dag, en aðalfundur Slipp-
stöðvarinnar var haldinn á
laugardag.
Sagði Gunnar að velta Slipp-
stöðvarinnar síðastliðið ár hefði
verið rúmar 400 milljónir og hall-
inn væri rúmlega 1% af veltu.
„Ég geri ekkert of mikið úr þess-
um halla, afskriftir eru 11 millj-
ónir, fjármunamyndun í fyrirtæk-
inu er 7-8 milliónir og greiðslu-
staða batnar. Auðvitað vildi
maður heldur sjá hagnað, en það
er svo að þessi iðnaður hefur átt í
erfiðleikum síðastliðin 3 ár og ég
held að við höfum komist nokk-
uð vel í gegnum þá erfiðleika og
það sé bjartara framundan.“
Aðspurður um verkefni fram-
undan sagði Gunnar að nær ein-
göngu væri unnið í viðgerðum
núna, nýsmíðar væru aðeins rað-
smíðabátarnir sem eftir væri að
ljúka við og yrði það gert í haust.
“Við sjáum ekki langt fram í
tímann, en ég held að við séum
með verkefni út þetta ár og ég er
ekkert svartsýnn á að við munum
ná verkefnum áfram,“ sagði
Gunnar. -HJS
„Urslit
kosninganna
eru vissu-
lega
áhyggju-
efni“
- segir
Guömundur
Bjarnason ritari
Framsóknar-
flokksins.
sjá bls. 9