Dagur - 09.06.1986, Page 3
Ný verslun í Sunnuhlíð
viku var opnuð ný verslun í verslunarmiðstöðinni í Sunnuhlíð. Hún ber heitið Gallery mynd
og eigendur eru Þórhallur Jónsson og Inga Vestmann. Gallery mynd, eins og nafnið gefur til kynna,
sérhæfir sig í sölu mynda af ýmsum stærðum og gerðum og eru þær í römmum. Þórhallur Jónsson sagði
að þarna fengjust myndir „við allra hæfi,“ og verðið væri frá 330 kr. og upp í 3100 kr.
Viðgerð á Akureyrarkirkju
Á næstu dögum verða vinnu-
pallar reistir við Akureyrar-
kirkju þar sem lagfæra á þak-
rennur og endurnýja klæðn-
ingu á kirkjunni að utan. Verk
þetta hefur staðið til nokkuð
lengi og er nú ákveðið að Ijúka
því í einum áfanga.
Hinn 17. nóvember sl. voru 45
ár liðin frá því Akureyrarkirkja
var vígð. Allan þann tíma hefur
kirkjan staðið á brekkubrún sem
eins konar tákn bæjarins og verið
í forgrunni á flestum myndum af
bænum. Frá upphafi hefur kirkj-
an líka haft sama útlit og í engu
verið breytt frá fyrstu gerð.
Þannig hefur hún á sinn hljóðiáta
hátt minnt á þann sem ekki
breytist þótt annað sé hverfleika
háð og breytingum undirorpið.
En fastheldni við ytra útlit ráða
líka friðunarsjónarmið. Kirkjuna
teiknaði sem kunnugt er Guðjón
Samúelsson, þáverandi húsa-
meistari ríkisins, og er hún meðal
þekktustu verka hans og af mörg-
um talin í röð fegurstu bygginga
hérlendis. Þegar huga þarf að
viðgerðum eða breytingum verð-
ur því ætíð að hafa samráð við
embætti húsameistara. Svo var
einnig gert nú þegar ákveðið var
að lagfæra þær skemmdir sem
orðið hafa á steinmulningsklæðn-
ingu og þakrennum kirkjunnar.
Talið var að þær lagfæringar biðu
sér ekki til bóta en jafnframt að
endurnýja yrði klæðninguna í
heild sinni til að koma í veg fyrir
litar- og áferðarmun.
Sóknarnefnd hefur nú falið
Híbýli hf. að annast þessar fram-
kvæmdir og verkstjóri verður
Gísli Bragi Hjartarson. Taldi
nefndin rétt að skýra bæjarbúum
frá þessum framkvæmdum þar
sem búast má við að vinnupallar
verði reistir við kirkjuna innan
tíðar og síðan færðir til eftir því
sem verkinu miðar. Byrgja verður
glugga á þeim stað sem unnið er
hverju sinni því að mikilva^t er
að myndrúðurnar verði ekki fyrir
skemmdum. Áætlað er að verkið
taki 2-3 mánuði.
Óhjákvæmilegt er að þessi
framkvæmd hafi einhver óþæg-
indi í för með sér fyrir þá sem til
kirkjunnar koma. Þó er von
sóknarnefndar að hún valdi
sem minnstri röskun á starfi
kirkjunnar, enda verður vinna
ætíð lögð niður þegar athafnir
fara fram. Talið var hagkvæmast
að vinna verkið í einum áfanga
bæði með tilliti til kostnaðar og
annarra aðstæðna, en ljóst er að
hér er bæði um vandasama og
fjárfreka aðgerð að ræða. Því er
mikils um vert að hún njóti skiln-
ings og stuðnings innan safnaðar-
ins.
Fréttatilkynning frá
Sóknarnefnd Akureyrarkirkju.
Passíukórinn:
Syngur „Sköpunina"
eftir Hayden
Lokatónleikar Passíukórsins á
Akureyri verða í íþrótta-
skemmunni á Akureyri 18.
júní n.k. Eru tónleikarnir
tileinkaðir 100 ára afmæli
Kaupfélags Eyfirðinga.
Arnheiður Eyþórsdóttir sem er
einn söngvara í kórnum sagði að
kaupfélagið hefði styrkt kórinn
mjög vel og þess vegna væri eðli-
legt að tileinka KEA þessa tón-
lceland seafood corporation!
Vömskortur háð
fyrirtækinu að undanfömu
- Seldi fiskafurði á Bandaríkjamarkað fyrir
um þrjú þúsund milljónir króna
um til sölu dró úr möguleikum
fyrirtækisins.
Miðað við sama tíma í fyrra er
þó um verulega aukningu á verð-
mæti að ræða eða 525 milljónir
króna. í maí voru seldar
fiskafurðir fyrir 10,6 milljónir
dollara, en fyrir 9,8 milljónir
dollara í maí í fyrra.
Guðjón B. Ólafsson fram-
kvæmdastjóri Iceland Seafood
Corporation segir að vöruskortur
hafi verið mikill að undanförnu
og erfitt sé að geta sér til um
langtímaáhrif þess að geta ekki
annað eftirspurn á Bandaríkja-
markaði. í maí hefði í fyrsta sinn
borið á því að jafnvel þorskflök
hafi ekki verið fáanleg en þar fyr-
ir utan hefðu karfi og grálúða ver-
ið illfáanleg og einnig hefði verið
hægt að selja mikið meira af
rækju.
Fyrstu fimm mánuöi ársins
hefur Iceland Seafood Corpor-
ation, sölufyrirtæki Sambands-
ins selt fiskafurðir í Bandaríkj-
unum fyrir tæpar þrjú þúsund
milljónir króna. Ljóst er aö
salan hefði getað orðið miklu
meiri, en skortur á fiskafurð-
leika.
Lokaverkefnið er ekki af lak-
ara taginu, en það er „Sköpunin“
eftir Joseph Hayden. Hafa kór-
félagar æft verkið frá áramótum.
Einsöngvarar með kórnum á
flutningi „Sköpunarinnar“ verða
Sólrún Bragadóttir sópran, Berg-
þór Pálsson bassi og Mikael Jón
Clarke tenór. Um 30 manns voru
starfandi með kórnum í vetur.
gej-
SPENNUM
BELTIN
sjálfra
okkar
vegna!
éí júnf 1986 - ÖXgÚr - 3
ér
Tilkynning
frá Bfla- og vélaverkstæði Hjalta Sigfússonar
Arskógsströnd.
Vinsamlega athugið breytt símanúmer.
Framvegis verða símanúmer okkar:
Skrífstofa 61810
Verkstæði 61811
Bíla- og vélaverkstæði Hjalta Sigfússonar.
0
HEILSUGÆSLUSTÖÐIN
Á AKUREYRI
Krabbameinsleit
Konur takið eftir!
Leitarstöðin verður lokuð í júlí og ágúst vegna
sumarleyfa.
Notið nú vel skoðunardagana í júní, ennþá lausir
tímar. Tímapantanir eru sem áður alla virka daga frá
kl. 08.00-17.00 í síma 25511.
Starfsfólk Krabbameinsleitarstöðvarinnar.
Ritstjórn
Auglýsingar
Afgreiðsla
Sími (96) 24222