Dagur - 09.06.1986, Blaðsíða 5
9. júní 1986 - DAGUR - 5
eflaust fáir grein fyrir hve
mikið andlegt og líkamlegt
álag fylgir þessum árstíma
hjá þeim sem búa með fé.
Það sem helst plagar bændur
núna er vorleysi. Fjárbændur sjá
ekki fram á að geta sleppt alveg á
næstunni, enginn gróður kominn.
En það eru ekki bara dökkar
hliðar á búskapnum. Hjá Svavari
hafa verið óvenju margar þrí-
lembdar ær þetta vorið og frjó-
semi því mikil.
Þegar ær ber þremur lömbum
er yfirleitt eitt lambið tekið og
það vanið undir einlembu. Það
tekst í flestum tilvikum vel. Ef
þrjú lömb ganga undir á er hætt
við að eitt verði út undan, því
ærin hefur ekki nema 2 spena.
Ákaflega rökrétt.
Þeir sem einhvern tíma hafa
komið nálægt sauðburði hafa tek-
ið eftir því að rollurnar vilja
aðeins sín eigin lömb, hin fá
heldur betur fyrir ferðina ef þau
nálgast of mikið, svo ekki sé tal-
að um ef þau reyna að komast á
spena. Það er alveg merkilegt að
rollan skuli alltaf þekkja sín lömb
aftur, þó þau séu innan um 30, að
því er manni virðist, nákvæmlega
eins lömb. Þetta er stórmerkilegt
eðli. Sagði Svavar að þrílembdar
ær yrðu mjög sárar þegar eitt
lambið væri tekið, þó þær haldi
tveimur eftir. Þær jarma stundum
í nokkra daga á eftir, vilja fá
afkvæmið aftur. En við skulum
vona að vorið fari að koma, svo
ekki sé talað um sumarið, svo
blessuð litlu lömbin geti haldið á
vit frelsisins og dvalið þar sumar-
langt við þyt í grasi og lækjarnið.
-HJS
Passa-
myndir
Gott úrval
mynda-
ramma
mynd
LJÓSMVN DASTOFA
Sími 96-22807 • Pósthólf 464
Glerárgötu 20 602 Akureyri
Alltaf blundað í mér að búa
- Helgi Hallsson, bóndi á Kálíborgará í Bárðardal í stuttu spjalli
Á bænum Kálfborgará í Bárð-
ardal býr Helgi Hallsson, '
ásamt fjölskyldu. Fjölskyldan
flutti af mölinni, nánar tiltekið
frá Akureyri, síðast liðið vor
að Kálfborgará. Helgi er frá
Arndísarstöðum, sem er næsti
bær við Kálfborgará, en Jó-
hanna, kona hans, frá Akur-
eyri. Á ferð blaðamanna Dags
um Bárðardalinn var þeim
bent á að tala við Helga vegna
þess að hann fékk ekki nægan
mjólkurkvóta.
„Ég er með 13 kýr og 52 kindur
og fékk 25.000 lítra mjólkur-
kvóta, sem ég er nú búinn með.
Ég hefði þurft að fá 35-40.000
lítra yfir árið. Hvað ég geri við
mjólkina? Ég sel hana, fæ 6 kr.
fyrir lítrann í staðinn fyrir rúm-
lega 20 kr. Það skrítnasta við
þetta er að það vantar alltaf
mjólk í mjólkurbúið til að halda
framleiðslunni gangandi. Þetta
verður vonandi leiðrétt á næsta
verðlagsári. Búskapurinn gengur
ágætlega, það eru engin vanhöld
á skepnum eða slíkt. Aðalvanda-
málið er að fá að selja það sem
hægt er að framleiða, ráðunautar
virðast ekki vita hvað á að gera.
Menn eru komnir langt frá þeim
sem framleiða þegar þeir sitja í
bændahöllinni fyrir sunnan. Þeir
menn sem þurfa að skipta kvót-
anum eiga sjálfsagt erfitt.“
Helgi er lærður húsasmiður og
starfaði við það er hann bjó á
Akureyri. „Það blundaði alltaf í
mér að fara að búa. Ég hefði ekki
farið úr bænum ef mér hefði ekki
líkað betur við sveitina, reyndar
vann ég mest úti í sveit þó ég
byggi í bænum." Helgi hefur tek-
ið að sér smá verkefni í smíðum í
sveitinni. „Ég hef nú lítið unnið
við smíðarnar, það eru nokkur
verkefni sem ég hef trassað. Það
er nóg að gera á búinu, sauðburði
er að ljúka og þó kindurnar séu
ekki margar eru þær að þessu all-
an sólarhringinn.“ Við vorum þá
ekkert að tefja önnum kafinn
bóndann lengur og kvöddum.
-HIS
Einnig sérstakt afmælisverð á
þvottavélum og þurrkurum
Þvottavél 5304
Þvottavél 8015
Þurrkari
Allar herrabuxur
í herradeild
með
10% afslætti.
Allir kjólar í vefnaðarvöru
deild með 10% afslætti.
SÍMI
(96)21400
Tilboð þessi gilda tU afmælisdags KEA 19. júní.