Dagur - 09.06.1986, Page 6
6 - DAGUR - 9. júní 1986
Erlingur
til Noregs
„Jú það er rétt, ég er búinn að
ákveða að spila handbolta með
norska 1. deildarliðinu Fred-
riksborg SKI næsta vetur,“
sagði Erlingur Kristjánsson
handknattlciks- og knatt-
spyrnumaður úr KA er blaða-
maður Dags innti hann eftir
þeim málum.
„Ég fer út um leið og knatt-
spyrnuvertíðinni lýkur í haust.
Ég kem til með að vinna í Noregi
í vetur en fer svo næsta vetur í
íþróttaháskóla í Oslo í fram-
haldsnám," sagði Erlingur sem
hefur rétt lokið námi við íþrótta-
kennaraskólann á Laugarvatni.
Ekki þarf að fjölyrða um það
hversu slæmt það er fyrir KA að
missa Erling. Jafnt handknatt-
leiks- sem knattspyrnulið.
Erlingur Kristjánsson.
Aöal-
fundur
Aðalfundur foreldrafélags KA
fer fram í Lundarskóla fimmtu-
daginn 12. júní kl. 20.30. stund-
víslega.
Stefán jóhnnnsson markvörður KR ver hér vel aukaspyrnu hjá Júlíusi Tryggvasyni í leiknum á föstudagskvöld.
, Mynd: BV
Islandsmótið 1. deild:
KR vann Þór í
mjög lélegum leik
-1:0 á grasvelli Þórs á laugardag
„Þetta er nú ekki það versta
sem ég hef séð til strákanna en
þetta er líka ansi langt frá því
að vera það besta. Okkur vant-
ar að binda endahnútinn á
sóknarleikinn og ef okkur fer
ekki að takast að skora þá er
ekki bjart framundan. Svo
held ég að slæmur völlur hafi
komið í veg fyrir að leikmönn-
um tækist að sýna sínar bestu
hliðar.“ Þetta sagði Björn
Arnason þjálfari Þórs eftir tap-
leikinn gegn KR á föstudags-
kvöldið var. Sigur þessi sem er
fyrsti sigur KR á Akureyri síð-
an 1977 fleytti liðinu í efstu sæti
deildarinnar en Þórsarar eru í
því næst neðsta með 4 stig.
Leikurinn var slakur og var
nánast ekkert um skemmtilegan
samleik sem gat glatt augað.
Leikmönnum tókst illa að hemja
boltann og einkenndist leikurinn
af miðjuþófi og kýlingum. Eina
góða marktækifæri fyrri hálfleiks
féll í hlut KR-inga er Hálfdán
Örlygsson skaut föstu skoti sem
Baldvin markv. Þórs varði naum-
lega á marklínu.
Seinni hálfleikur var líkur
þeim fyrri en þó brá fyrir heldur
skemmtilegri töktum. Halldór
Áskelsson átti hörku skot í stöng
í upphafi hálfleiksins. Seinna
átti svo Júlíus Tryggvason gott
skot úr aukaspyrnu en markvörð-
ur KR varði af stakri snilld. En
KR-ingar áttu líka sín færi og á
76. mín. fékk Ásbjörn Björns-
son boltann inn fyrir vörn Þórs og
skoraði örugglega framhjá Bald-
vini sem kom hlaupandi út á
móti. Stuttu seinna skoraði Einar
Arason fyrir Þór en markið var
dæmt af vegna rar.gstöðu.
íslandsmótið 2. deild:
Jafntefli á Slgló
í lélegum leik
Það var rislág knattspyrna sem
leikmenn KS og ÍBÍ sýndu síð-
astliðið föstudagskvöld. Það
var sparkað bæði hátt og langt
og þeir kaflar í leiknum þar
sem liðin náðu einhverju spili
voru bæði stuttir og fáir.
Höfðu áhorfendur á orði að
þetta væri slakasti leikur sem
þeir hefðu séð lengi.
Siglfirðingar voru enn án
nokkurra sinna bestu manna og
er greinilegt að þessi forföll há
liðinu nokkuð. Heimamenn byrj-
uðu mun betur og skoruðu strax
á 6. mín. þegar Hafþór komst
upp að endamörkum og renndi
fyrir markið. Þar kom Gústaf
Björnsson þjálfari og bókstaflega
tæklaði boltann í mark ÍBÍ. Var
það mjög klaufalegt hjá ísfirðing-
unum. KS-ingar sóttu fast áfram
og minnstu munaði í tvígang að
þeim tækist að bæta við mörkurn.
Á þessum tíma keyrðu þeir upp
hraðann en virtust ekki ráða við
hann því seinni hluta hálfleiksins
réðu Isfirðingar mun meira gangi
mála.
Tvisvar skapaðist hætta við
mark heimamanna, fyrst eftir
skot Isfirðinga af löngu færi í
þverslá og í seinna skiptið eftir
langt innkast Jóns Oddssonar
Strax í upphafi síðari hálfleiks
fengu Siglfirðingar aukaspyrnu
rétt utan markteigs sem ekkert
varð úr. Á 52. mín. jafna svo
ísfirðingar. Jón Oddsson átti
skalla að markinu, Baldur Ben-
ónýsson besti varnarmaður KS-
liðsins ætlaði að skalla frá en var
svo óheppinn að skalla í eigið
mark óverjandi fyrir Ómar
markvörð.
Stuttu síðar munaði minnstu
að ísfirðingum tækist að ná for-
ystunni er boltinn fór í stöngina
og þaðan fyrir markið þar sem
Ómar markvörður náði að kló-
festa boltann. ísfirðingarnir voru
sterkari aðilinn á vellinum í síð-
ari hálfleik en náðu þó ekki að
skapa sér nein færi til viðbótar.
Aftur á móti áttu Siglfirðingar
nokkrar verulega hættulegar
skyndisóknir. Jafntefli voru sann-
gjörn úrslit í leiknum.
Bestir í liði KS voru Gústaf
Björnsson og Hafþór Kolbeins-
son og virðast þeir félagar ná
mjög vel saman á vellinum.
1 liði ísafjarðar var Benedikt
Einarsson aftasti varnarmaður-
inn bestur og Jón Oddsson var
einnig góður.
Ólafur Sveinsson dómari hafði
góð tök á leiknum en að venju
höfðu heimamenn ýmislegt að
athuga við störf línuvarðanna
meðan á leiknum stóð. -bá
Kaldur Bcnónýsson varð fyrir því óláni
að skora sjáHsmark.
Eftir leikinn veittust nokkrir
óánægðir áhorfendur að dómara
og línuvörðum og er það ósiður
sem óvert er að herma eftir
útlendum. í stuttu máli tilþrifalít-
ill leikur þar sem jafntefli hefði
verið sanngjörn úrslit.
Staðan
1. deild
Staðan í 1. deild Islands-
mótsins í knattspyrnu er 1:0
þessi: IA-FH
ÍBK-ÍBV 1:0
UBK-Víðir 0:1
Þór-KR 0:1
Valur-Fram 1:1
KR 5 2-3-0 7:2 9
ÍA 5 2-2-1 5:2 8
Víðir 5 2-2-1 3:3 8
Valur 5 2-1-2 7:4 7
FH 5 2-1-2 6:5 7
UBK 4 2-1-1 3:2 7
ÍBK 5 2-0-3 3:7 6
Fram 4 1-2-1 3:3 5
Þór 4 1-1-2 3:4 4
ÍBV 4 0-1-3 1:9 1
Reynir vann
Leikni
Reynir Árskógsströnd sigraði
Leikni Fárskrúðsfirði með tveim-
ur mörkum gegn engu í 3. deild-
inni í knattspyrnu á laugardag.
Reynir var betra liðið og vann
sanngjarnan sigur.
___íþróttic_
íslandsmót
UMFNs
„Ég var ánægöur með þennan leik
að mörgu leyti en við nýttum ekki
öll þau færi sem við fengum og því
fór sem fór. Við áttum svo til allan
leikinn og sköpuðum okkur ótal
færi sem ekki nýttust,“ sagði
Kristján Olgeirsson leikmaður
Völsungs í knattspyrnu eftir að lið
hans hafði tapað heima fyrir
Njarðvík í 2. deildinni á föstu-
3. deild
Þróttur N.
vann Magna
- á Grenivík 2:0
Þróttarar frá Neskaupstað unnu
nokkuð öruggan sigur á Magna frá
Grenivík er liðin mættust á Greni-
víkurvelli í 3. deildinni í knatt-
spyrnu á laugardag. Úrslitin urðu
2:0 og voru þau úrsiit sanngjörn.
Þróttarar hófu leikinn af miklum
krafti og strax á fyrstu mín. leiksins
lá boltinn í marki Magna. Það var
Bergvin Haraldsson sem skoraði.
Þróttarar héldu áfram að sækja og
Marteinn Guðgeirsson náði að bæta
við öðru marki fyrir hlé og þannig
var staðan í hálfleik.
Leikurinn jafnaðist í síðari hálf-
leik án þess þó að Magnamenn næðu
að ógna marki Þróttara að neinu viti.
Úrslitin því 2:0 fyrir Þrótt.
íslandsmóti
Tindastc
Val Rey
Eftir slakan leik á móti Reyni um
síðustu helgi náðu Tindastóls-
menn að rísa úr öskustónni að
nýju austur á Reyðarflrði á laug-
ardaginn. Það var aldrei spuming
hvort liðið var betra og sigur
Tindastóls í minnsta lagi.
Fljótlega í leiknum fengu Stólarnir
dæmda vítaspyrnu er Eyjólfi var
brugðið innan vítateigs. En Björgvin
Pálsson markvörður Vals varði
spyrnu Eiríks Sverrissonar. Skömmu
síðar ná svo Tindastólsmenn að
Leiftur
Austra I
Leiftursmenn héldu áfram sigur-
göngu sinni í b-riðli 3. deildar í
knattspyrnu á föstudagskvöld. Þá
sóttu þeir Austra á Eskifirði heim
og fóru burt með öll þrjú stigin í
sanngjörnum 2:1 sigri á heima-
mönnum. Trónir íiðið nú á toppi
deildarinnar eftir þrjár umferðir.
Leiftursmenn mættu ákveðnir til
leiks og náðu að skora strax á 3. mín.
Var þar að verki Óskar þjálfari Ingi-
mundarson eftir að hafa fengið
stungusendingu inn fyrir vörn Austra
frá Halldóri Guðmundssyni. Heima-