Dagur - 09.06.1986, Side 7
Umsjón: Kristján Kristjánsson
9. júní 1986- DAGUR-7
tið 2. deild
;tal sigri
savík
dagskvöld með einu marki gegn
tveimur.
Völsungar voru mun frískari í
byrjun og sóttu stíft en erfiðlega
gekk að nýta þau færi sem gáfust.
Njarðvíkingar fengu aðeins tvær
sóknir í hálfleiknum svo heitið geti
og þeir náðu að skora í annarri þeirra.
Var það Jón Ólafsson sem það gerði
um iniðjan hálfleikinn. Völsungar
héldu áfram að pressa að marki
Njarðvíkinga eftir markið en ekkert
gekk. í hálfleik var staðan 1:0.
Völsungar héldu uppteknum hætti
í síðari hálfleik, þ.e.a.s. sækja án
árangurs. Njarðvíkingar fengu þrjú
upphlaup í síðari hálfleik og náðu að
bæta við öðru marki í einu þeirra.
Haukur Jóhannsson skoraði þá
glæsilegt mark af löngu færi efst í
bláhornið á 80. mfn.
Völsungar náðu síðan aðeins að
klóra í bakkann skömmu fyrir leiks-
lok er Kristján Olgeirsson skoraði af
stuttu færi. Var oft æði fjölmennt inn
í vítateig Njarðvíkinga síðustu mín
en þeir stóðu af sér alla sókn Völs-
unga og fóru enn einu sinni heim
með öll stigin frá Húsavík án þess að
eiga nema örlítið í leiknum.
Völsungar náðu ekki upp þeim
baráttuneista sem hefur vantað í lið-
ið og því fór sem fór. Það voru að-
eins þeir Vilhelm Fredriksen og
Birgir Skúlason sem sýndu sín réttu
andlit.
Hjá Njarðvíkingum var markvörð-
ur þeirra langbestur.
HJ/KK
ð 3. deild
)ll vann
öarfiröi
skora eina mark leiksins. Hólmar
Ast\’aldsson komst upp að enda-
mörkum renndi boltanum út á Eyjólf
sem skoraði af öryggi.
Tindastóll réði lögum og lofum á
vellinum allan leikinn og fékk nokk-
ur góð færi sem ekki tókst að nýta.
Varnarleikur liðsins var mjög góður
og fengu Valsmenn ekki eitt einasta
færi í leiknum.
Það verður þó að segjast að Vals-
menn gáfust aldrei upp og þeir eiga
örugglega eftir að standa sig í sumar.
vann
Eskifiröi
menn voru meira með boltann en
Leiftursmenn náðu þó að skapa sér
hættulegri færi. í hálfleik var staðan
1:0.
Austramenn náðu að jafna leikinn
um miðjan síðari hálfleik úr víta-
spyrnu. En Leiftursmenn voru ekki á
því að gefa neitt eftir og skömmu
síðar skoraði Halldór Guðmundsson
sigurmarkið fyrir Leiftur með glæsi-
legu marki af 25 m færi. Var sigur
liðsins sanngjarn og hafa Ólafsfirð-
ingar sett stefnuna beina leið í 2.
deildina á ný.
I
1. deild kvenna:
íslandsmótið 4. deild
Hvöt vann UMFS
Hvöt sigraði UMFS í 4. deild-
inni í knattspyrnu á Blönduósi
á föstudagskvöld með einu
marki gegn engu. Mark Hvatar
skoraði þjálfari liðsins Garðar
Jónsson úr vítaspyrnu á 30.
mín. leiksins.
Leikurinn var lítið fyrir augað
mikið um kýlingar fram og til
baka. Dalvíkingar börðust þó vel
allan leikinn ákveðnir í að ná í
stig en heimamenn fóru frekar
rólega yfir þrátt fyrir sigur.
Dalvíkingar fengu upplagt færi
til að jafna 3. mín. fyrir leikslok
er þeir fengu dæmda vítaspyrnu.
En Auðunn Sigurðsson mark-
vörður varði lélega spyrnu Björns
Friðþjófssonar auðveldlega við
mikinn fögnuð heimamanna.
Daginn eftir léku Dalvíkingar
gegn Kormáki á Hvammstanga
og unnu öruggan sigur 3:1 þrátt
fyrir að vera undir í hálfleik 1:0.
Mörk Dalvíkinga skoruðu Einar
Hólm 2 og Guðjón Stefánsson 1.
Mark Kormáks skoraði Albert
Jónsson:
Tp Golfverslun
J| Dcmd-Bctmwéir
* • fiftlfclrálamim .ioAn etmí
Golfskálanum Jaðri sími 22974.
Tvö töp
Þórs
Kvennalið Þórs í knattspyrnu
fór suður um helgina og lék
sína fyrstu leiki í 1. deildinni.
Á laugardag gegn KR og í gær
gegn Val og töpuðust báðir
lcikirnir.
KR-stelpurnar komust í 1:0
strax á 3. mín. leiksins með
marki úr vítaspyrnu. Þórsstelp-
urnar náðu að jafna um miðjan
fyrri hálfleikinn en KR-stelpurn-
ar náðu að bæta við öðru marki
fyrir hlé og þannig var staðan í
hálfleik.
KR-stelpurnar bættu svo við
þriðja markinu í síðari hálfleik.
En Þórsstelpurnar náðu að
minnka muninn í lokin er Lára
Eymundsdóttir gerði sitt annað
mark.
Leikurinn við Val var frekar
ójafn, Valsliðið töluvert betra.
Þórsstelpurnar börðust vel og
það var ekki fyrr en eftir miðjan
síðari hálfleik sem Valsstelpurnar
náðu að skora. Þær bættu svo við
öðru marki fyrir leikslok og 2:0
urðu úrslit leiksins.
Arni Þór Freysteinsson skorar þriðja mark KA með góðu skoti frá vítateig.
Mynd: BV
íslandsmótið 2. deild:
Staðan
2. deild
Staöan í 2 deild íslands-
mótsins í knattspyrnu af
loknuin leikjum helgarinnar
er þessi:
Völsungur-IJMFN 1:2
KS-lBl 1:1
KA-Þróttur 3:1
Einherji-Selfoss 0:0
Víkingur-Skallagrímur 9:0
KA 4 2-2-0 10: 4 8
UMFN 4 2-2-0 9: 5 8
Selfoss 4 2-2-0 6: 2 8
Víkingur 4 2-1-1 14: 4 7
KS 4 1-3-0 6: 5 6
Völsungur 4 1-2-1 5: 3 5
Einherji 4 1-2-1 4: 7 5
ÍBÍ 4 0-3-1 8:10 3
Þróttur 4 0-1-3 5: 9 1
Skallagrímur 4 0-0-4 1:19 0
Möridn það eina
sem gladdi augað
„Ég er ekkert sérlega ánægður
með leikinn í sjálfu sér en
þetta eru þrjú stig. Liðið er á
uppleið og ég er bjartsýnn á
framhaldið,“ sagði Gústaf
Baldvinsson þjálfari KA eftir
að lið hans hafði unnið örugg-
an sigur á Þrótti í 2. deildinni í
knattspyrnu á laugardag.
Leikurinn fór frekar rólega af
stað og lítið var um fallegt spil
hjá liðunum. Fyrsta færið kom á
10. mín. er Nikulás Jónsson
Þróttari átti skalla framhjá marki
KA eftir aukaspyrnu. 2. mín. síð-
ar komst Tryggvi í færi hinum
megin er hann fékk boltann í
vítateig Þróttar úr löngu innkasti
en gott skot hans fór af varnar-
manni í horn.
KA-menn héldu áfram að
sækja og á 19. mín. kom fyrsta
markið. Sendur var hár bolti inn í
teig Þróttar, Tryggvi náði að
nikka boltanum út til Hinriks
sem kom á fleygiferð og skoraði
með góðu skoti í bláhornið hjá
Guðmundi markverði. Eftir
markið gerðist fátt markvert
fram að hléi nema á 32. mín. átti
Erlingur lúmskt skot að marki
Þróttar eftir hornspyrnu en Guð-
mundur markvörður bjargaði
vel. í hálfleik var staðan 1:0.
Þróttar náðu einu þokkalegu
skoti í byrjun síðari hálfleiks sem
er KA sigraði Þrótt 3
Haukur markvörður varði.
Það var svo á 63. mín. að KA
bæti við öðru marki og var þar
Bjarni Jónsson að verki. Hann
fékk boltann frír á markteigs-
horni frá Árna Freysteinssyni og
skoraði af öryggi í fjærhornið.
Árni átti aðra góða sendingu fyrir
markið skömmu síðar á Helga
Jóhannsson en skot hans fór í
hliðarnetið.
Á 73. mín. kom þriðja mark
KA. Árni fékk þá sendingu inn
fyrir vörn Þróttar, hljóp með
boltann að markinu og skaut svo
af vítateig góðu skoti í hornið.
Var Guðmundur markvörður
mjög illa staðsettur þegar Árni
skoraði. KA-menn héldu áfram
að sækja og á 81. mín. átti Helgi
enn eitt skotið framhjá marki
Þróttar eftir góða fyrirgjöf frá
Hinriki. Stuttu seinna komst
Árni inn í vítateig Þróttar en nú
sá Guðmundur við honum og
varði í horn. Var þetta síðasta
hættulega færi KA í leiknum.
Síðustu mín. hresstust Þróttar-
ar örlítið eða öllu heldur að KA-
menn fóru að slaka á og á 85.
mín. skoraði varamaðurinn Birg-
ir Sigurðsson eina mark Þróttar
af stuttu færi eftir fyrirgjöf frá
Sigurði Hallvarðssyni. Sigurður
var svo sjálfur á ferðinni mín.
seinna er hann fékk boltann einn
1
og óvaldaður á markteig en lélegt
skot hans fór vel framhjá. Úrslit-
in því 3:1 fyrir KA og liðið trónir
á toppnum í 2. deildinni.
Frískastir í liði KA að þessu
sinni voru þeir Þorvaldur
Örlygsson, Helgi Jóhannsson og
Árni Freysteinsson. Tryggvi
Gunnarsson var óvenju daufur í
þessum leik.
Þróttaraliðið er slakt og á eftir
að lenda í strögli í sumar. Menn
eins og Kristján Jónsson léku
langt undir getu í þessum leik.
Góður dómari leiksins var
Guðmundur Stefánsson.