Dagur - 09.06.1986, Side 9
9. júní 1986 - DAGUR - 9
Ríkisstjómin hefur þurft
að taka eifiðar ákvarðanir
- og það hefur komið niður á fylgi flokksins,“
segir Guðmundur Bjarnason ritari Framsóknarflokksins í viðtali við Dag
„Úrslit þessara sveitarstjórnar-
kosninga koma mér nokkuð á
óvart, einkum þó úrslitin hjá
okkur á Norðurlandi eystra.
Tapið hjá Framsóknarflokkn-
um þar er u.þ.b. 2% meira en
meðaltalstap yfir Iandið,“
sagði Guðmundur Bjarnason
alþingismaður og ritari Fram-
sóknarflokksins er hann var
inntur álits á úrslitum nýaf-
staðinna kosninga.
„Petta er vissulega áhyggjuefni
og við hljótum að verða að skoða
hug okkar um hvað þarna er á
ferðinni. Vafalaust hefur lands-
málapólitíkin sitt að segja. Fram-
sóknarflokkurinn hefur verið í
ríkisstjórn um langt skeið og
samstarf við Sjálfstæðisflokkinn
hefur alltaf reynst okkur þungt í
skauti. Ríkisstjórnin hefur þurft
að taka erfiðar ákvarðanir í efna-
hags- og atvinnumálum og gripið
til nauðsynlegra en óvinsælla
aðgerða á sumum sviðum at-
vinnulífsins svo sem í landbúnaði
og sjávarútvegi. Þessar aðgerðir
eru eflaust ofarlega í hugum fólks
en við treystum því að þær muni
styrkja efnahags- og atvinnulífið
þegar til lengri tíma er litið. Þá
hafa húsnæðismálin verið erfið
mál undanfarin misseri og okkur
hefur ekki tekist að koma því
nægilega á framfæri við almenn-
ing að þær breytingar sem gerðar
voru á húsnæðislöggjöfinni í
þinglokin munu gerbreyta að-
stöðu húsbyggjenda til hins
betra, þannig að nánast er um
byltingu að ræða.“
-Hvað um flokksstarfið telur
þú það vera nógu öflugt?
„Það er ýmislegt í okkar vinnu-
brögðum sem við þurfum að taka
til endurskoðunar. Við þurfum
að endurskipuleggja flokksstarfið
og taka það til sérstakrar athug-
unar hvernig við högum okkar
málflutningi og áróðri. Okkur
hefur greinilega ekki gengið nógu
vel að koma málflutningi okkar á
framfæri við almenning. Við höf-
um góðan málstað að berjast fyr-
ir og höfum ávallt reynt að vinna
af heilindum og ábyrgð, hvort
sem er í ríkisstjórninni, á Alþingi
og í sveitarstjórnum um allt land.
Kannski má líka segja að við
þingmenn kjördæmisins höfum
ekki lagt þessum sveitarstjórnar-
kosningum nægilegt lið. Þar sem
Framsóknarflokkurinn hefur
ekki ráðið sér framkvæmdastjóra
ennþá, hef ég að ósk framkvæmda-
stjórnar Framsóknarflokksins
annast rekstur flokksskrifstof-
unnar í Reykjavík að undan-
förnu og haft nóg að gera við að
sinna því. Ég reyndi að gera það
sem ég gat þaðan en auðvitað
hefði maður heldur kosið að vera
fyrir norðan og taka virkan þátt í
slagnum þar. Kannski hefði mað-
ur fengið einhverju áorkað. En
við þurfum greinilega að taka
skipulagningu flokksstarfsins til
endurskoðunar, bæði hvað varð-
ar skrifstofuna og félagslega upp-
byggingu flokksins svo og mál-
gögnin.
Það er til dæmis athyglisvert
hversu vel Alþýðuflokkurinn
kemur út úr kosningunum með
tilliti til þess að hann hefur ekk-
ert sterkt málgagn á bak við sig.
Sterkir og útbreiddir fjölmiðlar
virðast ekki hafa haft nein úr-
slitaáhrif í þessum kosningum."
-Hvað um framboðslista
flokksins í sveitarstjórnarkosn-
ingunum. Voru þeir ef til vill ekki
nógu sterkir?
„Það er erfitt fyrir mig að segja
til um það, en mín skoðun er sú
að listar okkar hafi verið skipaðir
góðu og vel hæfu fólki. Auðvitað
hefur mjög mikið að segja að
framboðslistarnir séu sterkir. í
sveitarstjórnarkosningum er ekki
síður verið að kjósa menn en
málefni. Þess vegna þarf ávallt að
vanda mjög valið af frambjóð-
endum og velja fóik sem er til-
búið til að takast á við þessi mál
af miklum krafti. Stjórnmála-
vafstur útheimtir mikla vinnu og
menn verða að fara út í stjórnmál
af áhuga fyrst og fremst. Það fólk
sem fer í framboð verður að
leggja mikið á sig.
Með þessu er ég ekki að segja
að það ágæta fólk sem vann fyrir
Framsóknarflokkinn í þessum
kosningum hafi ekki lagt sig
fram. Eg vil þakka öllu því fólki
sérstaklega. Það lagði mikið á sig
þótt kosningarnar færu öðruvísi
en að var stefnt og þetta fólk
hefði í raun átt skilið.
Sums staðar fóru þessar kosn-
ingar vel. í nokkrum sveitarfé-
lögum fékk Framsóknarflokkur-
inn góða útkomu og þar má
minna á staði eins og Akranes,
Patreksfjörð, Seyðisfjörð og
Selfoss, svo einhverjir séu nefnd-
ir og í okkar kjördæmi má minna
á Raufarhöfn. Þar hélt flokkur-
inn fylgi sínu og bætti örlitlu við
sig hlutfallslega. Þetta sýnir það
að ef menn vinna af miklum
krafti er hægt að ná árangri.
Mér finnst það einnig umhugs-
unarvert að útkoma Framsóknar-
flokksins skuli ekki vera betri
með tilliti til þess að enginn
flokkur lagði eins mikla áherslu á
að gæta jafnræðis milli kynja og
að gera hlut ungs fólks sem
stærstan við röðun á framboðs-
lista. Þetta virðist ekki hafa haft
eins mikið að segja og menn
gerðu ráð fyrir. Éf við tökum
Akureyri sem dæmi vann sá listi
mest á sem hafði fæst kvenfólk í
efstu sætunum og tiltölulega
hæsta meðalaldurinn. Þetta
finnst mér athyglisvert."
- Tengsl Framsóknarflokksins
og samvinnuhreyfingarinnar eru
oft gerð að umræðuefni fyrir
kosningar og andstæðingar
flokksins nota þetta óspart gegn
honum. Hvað vilt þú segja um
þetta atriði?
„Við þurfum að taka samstarf
flokksins og samvinnuhreyfingar-
innar til endurskoðunar. í mín-
um huga er þetta samstarf ekkert
leyndarmál og á alls ekki að vera
það. En einhvern veginn er það
að verða svo í hugum fólks að
samvinnuhreyfingin er ekki það
afl og sá máttur sem hún hefur
verið. Fólk sem vinnur hjá sam-
vinnuhreyfingunni hugsar ekki á
sama hátt til síns atvinnuíyrirtæk-
is og gert var hér áður fyrr og tel-
ur e.t.v. að pólitísk þátttaka sam-
vinnuhreyfingarinnar eigi að vera
með nokkuð öðrum hætti en ver-
ið hefur. Þar á ég við það að auð-
vitað hlýtur samvinnuhreyfingin
að þurfa að eiga eða hafa pólit-
ískt afl í forsvari fyrir sig og það
hefur Framsóknarflokkurinn
vissulega reynt að vera í gegnum
árin. Einhver hugarfarsbreyting
hefur samt orðið hjá fólki og
samvinnuhreyfingin og þar með
kaupfélögin hafa neikvæða merk-
ingu í hugum margra og Fram-
sóknarflokkurinn hefur goldið
þess í nokkrum mæli. Þessu verð-
um við að breyta.
Þegar svo að eitthvað bjátar á í
atvinnulífinu einhvers staðar úti
um land kemur strax upp sú krafa
að kaupfélagið á staðnum eða
samvinnuhreyfingin hlaupi undir
bagga og reyni að leysa málin.
Það tel ég reyndar að hún eigi að
gera en mér finnst að hinn
almenni kjósandi eigi að meta
það og virða þegar hann gengur
til kosninga, meta það við sam-
vinnuhreyfinguna og það stjórn-
málaafl sem mest og dyggilegast
hefur stutt við bakið á þeirri
hreyfingu.“ BB.