Dagur - 09.06.1986, Síða 10
iii..i-ma -- -Hí-t’ hw.> '■!
10 - DAGUR - 9. júní 1986
Ford Cortina árg. 77 til sölu og
niðurrifs. Einnig til sölu barnabíl-
stóll. Uppl. í síma 61227 í hádeg-
inu og á kvöldin.
Til sölu Skoda 120 LS árg. '84.
Ekinn 27 þús. km.
Skoda 120 LS árg. ’82. Ekinn 23
þús. km.
Skoda 120 L árg. '82. Ekinn 18
þús. km.
Skálafell.
Sími 22255.
Tónlistarskóli Skagafjarðar-
sýslu vill ráða píanó- og tré-
blásturskennara til starfa næsta
vetur. Upplýsingar í síma 95-
6232 og 95-6438.
Okkur vantar starfskraft, strák
eða stelpu á aldrinum 15-25 ára
til vinnu í nætursölu um helgar.
Uppl. í Pylsuvagninum Ráðhús-
torgi.
Pésa pylsur.
SveitadvöI
14 ára strákur óskar að komast i
sveit. Upplýsingar í síma 26258
eftir kl. 20.00.
Tökum að okkur daglegar ræst-
ingar fyrir fyrirtæki og stofnan-
ir. Ennfremur allar hreingerningar,
teppahreinsun og gluggaþvott. Ný
og fullkomin tæki.
Securitas, ræstingadeild, sími
26261.__________
Hreingerningar, teppahreinsun,
gluggaþvottur.
Tökum að okkur hreingerningar á
íbúðum, stigagöngum og stofnun-
um, einnig teppahreinsun með
nýrri djúphreinsivél sem hreinsar
með góðum árangri. Vanir og
vandvirkir menn. Aron í síma
25650 og Tómas í síma 21012.
Hreingerningar-Teppahreinsun.
Tökum að okkur teppahreinsun,
hreingerningar og húsgagna-
hreinsun með nýjum fullkomnum
tækjum. Gerum föst verðtilboð ef
óskað er. Uppl. í síma 21719.
Grjótgríndur
Bifreiðaeigendur.
Smíða grjótgrindur á allar tegundir
bifreiða með stuttum fyrirvara.
Ýmsar gerðir fyrirliggjandi. Verð
frá kr. 2.000- Ásetning á
staðnum. Sendi í póstkröfu. Uppl.
gefur Bjarni, Lyngholti 12, sími 96-
25550 eftir kl. 19.00. Um helgar
eftir samkomulagi.
íbúð óskast.
Tvær stúlkur og 2ja ára barn vant-
ar 3ja herb. íbúð sem fyrst. Helst í
Glerárhverfi. Upplýsingar í síma
21602 á kvöldin.
Óska eftir 3ja-5 herb. íbúð á
leigu. Ekki blokkaríbúð. Uppl. í
síma 61506.
Ef þig vantar góðan leigjanda
þá er hann hér.
Ungt par með barn bráðvantar
2ja-3ja herb. íbúð í langan tíma.
Vegna símaleysis vinsamlegast
sendið tilboð til afgreiðslu Dags
merkt: 13.
Húsnæði óskast t.d. 3ja-4ra her-
bergja íbúð fyrir 6 menntaskóla-
nema næsta vetur.
Helst sem næst Menntaskólanum.
Góðri umgengni heitið. Tilboö ósk-
ast fyrir 20. júní í síma 41349.
Ég er reglusöm skolastúlka og
óska að taka á leigu herbergi í
haust sem næst Verkmennta-
skólanum, helst með eldunarað-
stöðu.
Guðrún Pálína sími 62300.
Gæludýr
Búðin þín - Allt fyrir dýrin. Ódýr
hundabein. Vítamín alls konar.
Katlit kaldsandurinn.
Tilboð.
Hamstrabúr og hamstur kr. 1000.
Líttu inn. Sendum í póstkröfu.
Opið 14-18 sími 96-24840.
Skrautfiskabúðin Hafnarstræti
94, bakhús.
Óska eftir tvíburakerru helst
með skýli beint á móti hvort öðru.
Tvíbreiður kemur einnig til greina.
Uppl. í síma 41007.
Teppahreinsun-Teppahreinsun.
Hreinsið teppin sjálf. Leigjum út
nýjar hreinsivélar til hreinsunar á
teppum, stigagöngum, bílaáklæð-
um og húsgögnum.
Teppaland Tryggvabraut 22,
sími 25055.
Ökukennsla.
Vilt þú læra á bíl eða bifhjól?
Lærið á hagkvæman og öruggan
hátt á nýja GM Opel Ascona 1600.
Útvega öll prófgögn og vottorð.
Egill H. Bragason, ökukennari,
símar 23347 * 22813.
Toyota prjónavél.
Verð 8 þúsund. Uppl. í síma
24596.
Drengjareiðhjól til sölu.
Til sölu þriggja gíra KALKOF
drengjareiðhjól. Verð 6 þúsund kr.
Upplýsingar í síma 23134 eftir kl.
7 á kvöldin.
HOHNER munnhörpur margar
gerðir. Verð frá kr. 50.00.
Tónabúðin, sími 22111.
Eftirtaldar járnsmiðavélar til
sölu:
Harris logsuðutæki ásamt stórum
kútum. Rafsuðuvél fyrir 220 V
straum. Vélsög (hjakksög) fyrir
220 V. Borvél sem stendur á
borði, mótorlaus. Fimm metra
langt vinnuborð úr járni ásamt
skrúfstykki. Steðji og stór bretta-
skífa. Einnig er til sölu harmonika
120 bassa. Uppl. í síma 22097
eftir kl. 7 á kvöldin.
Barnavagn • Bíll.
Til sölu Silver Cross barnavagn.
Verð 15. þúsund. Einnig Auto
Bianci árgerð 77 til niðurrifs. Til-
boð óskast. Uppl. veitir Hafsteinn í
sfma 25400 á vinnutíma.
Skjólbelti.
I skjólinu getur þú látið fegurstu
rósir blómstra. Hugsaðu því um
framtíðina, og gerðu þér skjól.
Höfum, eins og undanfarandi ár,
úrvals víðir. 75. cm. 3. ára gamlar
á aðeins 33. kr. Sendum hvert á
land sem er.
Gróðrarstöðin Sólbyrgi.
sími: 93-5169.
Klæði og geri við bólstruð
húsgögn. Áklæði og leðurlíki í
úrvali. Látið fagmann vinna verkið.
Sæki og sendi tilboð í Btærri verk.
Bólstrun Björns Sveinssonar,
Geislagötu 1, sími 25322.
Heimasími 21508.
Bifreiðaverkstæðið
Þórshamar hf.
v/Tryggvabraut sími 22700.
Tökum að okkur réttingar
og bílamálun.
Vönduð vinna.
Góð þjónusta.
Fundartímar AA-samtakanna á
Akureyri.
Mánudagur kl. 21.00
Þriðjudagur kl. 21.00
Miðvikudagur kl. 12.00
Fimmtudagur kl. 21.00
Föstudagur kl. 12.00
Föstudagur kl. 21.00
Föstudagur kl. 24.00
Laugardagur kl. 14. CO
Laugardagur kl. 16.00
Laugardagur kl. 24.00
Sunnudagur kí. 10.30
Annar og síðasti fimmtudagsfund-
ur í mánuði er opinn fundur svo og
föstudagsfundur kl. 24.00.
Guðni Helgason frá Kálfborgará í
Bárðardal nú til heimilis að Hlíð-
argötu 4, Akureyri, var áttræður
laugardaginn 7. júní.
Munið minningarspjöld kven-
félagsins Hlífar.
Allur ágóði rennur til Barnadeild-
ar FSA. Spjöldin fást í Bókabúð-
inni Huld, Blómabúðinni Akri,
símaafgreiðslu sjúkrahússins og
hjá Laufeyju Sigurðardóttur Hlíð-
argötu 3.
Minningarkort Krabbameinsfélags
Akureyrar fást í Bókabúð Jónas-
ar.
Minningarkort Akureyrarkirkju
fást í verslununum Bókval og
Huld.
Minningarkort Hjarta- og
æðaverndarfélags Akureyrar fást í
Bókabúð Jónasar og Bókvali.
Minningarkort vegna sundlaugar-
byggingarinnar í Grímsey fást í
Bókval.
Sállaus lifir enginn
maður og mállaus
lifir enginn þjóð
- eftir Marlín J.G. Magnússon
Nú er árið 1112 á tíðartöflu
íslands frá landnámi Ingólfs Arn-
arsonar árið 874 á rómversku
töflunni, og er íslenzka málið þá
jafn gamalt. Vel hefði mátt halda
upp á þetta ár meðal ai)ra íslend-
ínga í heimi, sem Ár málsins, þar
sem menntamálaráðherra íslands
hefir gert það að lögboði að allir
eigi samtök í því að hreinsa,
auka, fegra og vernda íslenzkt
mál.
Sállaus lifir enginn maður, og
mállaus lifir engin þjóð.
Raunhyggja leiðir alla til skiln-
ings á því hversu nauðsynlegt það
er að hver og einn styðji vandað
íslenzkt mál eftir getu, eins og
málið er orðið fullnuma og
fagurt, skáldamálið sjálft. Fram-
farir á íslandi hafa verið afar
miklar á öllum sviðum mannfé-
lagsins og vitanlega útheimtist
það, að nýyrði bætist við málið.
Sum nýyrði, sem ég hefi séð á
prenti, eru mjög heppileg, en
sum ekki, og eins eru mörg orð
sem slæðst hafa inn í daglegt
meginmálið svo slæm, að þarf að
útrýma þeim sem allra fyrst. Ég
hefi trú á því, að yngra fólkið
verði helzt til þess að hreinsa
málið gamla og góða, svo að það
megi endast önnur ellefu hundr-
uð ár! Pað verður gert með því
að athuga það, sem er rangt, og
fara rétt með.
Ég hef veitt því athygli að eftir-
farandi orð eru daglegt mállýti,
er ófegrar íslenzkt mál:
Kannski. Upphaflega var þetta
ritað kann að skje, og þaðan af
ské, og þá ske, en er nú orðið ski,
sem er málleysa. Rita mætti nú
kannské á nútíðar máli, þar sem
stafurinn é er kominn í staðinn
fyrir je, sem áður var.
Ort. Þetta er dagleg málvilla
blaðamanna, rithöfunda og fleiri,
oa er í Orðabók Menningarsjóðs
'xJlS. 491. Þetta á víst að vera
beyging á orðinu að yrkja, og á
að vera orkt, en ekki beyging á
orðinu að yrða, sem kemur þó
aldrei fram sem ort, heldur yrt.
Horfið. Á víst að tákna eitt-
hvað, sem ekki er lengur sjáan-
legt, en þetta á að vera hvorfið -
nefnilega það, sem er komið í
hvarf. Annars má rita horfið á
þetta, ef eitthvað er til að horfa
á.
Sótt. Þetta óhræsis orð er um
of misnotað í prentmáli, ritmáli
og talmáli. Að sönnu er til sótt,
og er stundum smitandi, en þeir,
sem misnota þetta orð, eru ekki
að tala um sjúkdóm, heldur um
það að sækja, og á þá að vera
sókt en ekki sótt.
Hefur. Þetta orð, sem merkir
að hefja, er illilega misnotað fyrir
orðið hefir, sem merkir að hafa.
Þarna eru tvö fullgíld alíslenzk
orð, sem hafa þó algjörlega ólíka
meiningu, og má ekki misnota
þau orð, enda engin þörf á því.
Tvískinning. Lesið hefi ég í
Morgunblaðinu þar sem þing-
maður er ávarpaður þannig að
hann svarar því, að þarna sé ver-
ið með tvískinning.
Sjálfsagt hefir meiningin verið
sú, að hinn væri með tvískynj-
ung, en það er tal, sem má skynja
á tvo vegu.
Sagt er að fornorðið at sé
hvorfið úr íslenzku máli, en svo
er ekki þar sem eru forskeytin að
orðunum atkvæði og athygli, og
eins fleiri orðum. I raun mætti
rita í nútíðar máli aðkvæði og
aðhygli, fyrst að talið er réttritun
að sleppa at fyrir að.
Veik. Nú les maður í íslenzk-
um blöðum. . . hann veik
sér. . . í staðinn fyrir að hann
vék sér. Þessi mistök eru af kæru-
leysi.
Kvóta. Þetta er eitt leiðinleg-
asta og klaufalegasta nýyrðið í
'slenzku máli, og hefir enga
meiningu. Þarna er verið að
herma eftir framburði orðsins
quota, en það er eitt af mörgum
latínskum orðum í enskri tungu.
Orðið quota, þýðir þó ekki
annað en tilhlutun á íslenzku
máli, og má sleppa latínunni.
Eilítið. Upphaflega var þetta
ritað tveimur orðum ei lítið, og
eins eigi lítið, sem merkir ekki
lítið.
Ævi. Þetta er ekki íslenzkt orð
heldur uppgerð, þar sem ekki er
vitað af æ-vi. Við vitum ekki
hvað ævarandi vi gæti verið.
Þarna á að rita æfi, dregið af æfð
- lífsþróttur - æfiskeið.
Til er viðurkennd réttritun í
reikningstölum, en bankar, verzl-
anir, og eiginlega allir á íslandi
fara algjörlega öfugt með það, og
hafa brotapunkta alls staðar þar
sem kommur eiga að vera, og
kommur þar sem brotapunktur á
að vera. Ég var spurður að því
hér vestra í bankanum, sem ég
verzla við, hvað allir þessir brota-
punktar ættu að tákna, og mátti
ég útlista það fyrir þeim, að þetta
væri öfugt notað á íslandi.
Kommur eiga að gera grein-
arskil milli milljóna, þúsunda, og
svo hundruða, en ef um brot úr
einum er að ræða þá kemur
brotapunkturinn og táknar hvað
marga hluti úr einum er um að
ræða. Til dæmis: 1000,168.25,
sem táknar 25/100 af einum í
tíunda reikningi. Þetta er orðin
alheims réttritun.
Þó tekur fram úr öllum skiln-
ingi á reikningsréttritun þegar
maður les í blaði, frá íslandi:
1,64% fjárframlag til vegamála.
Þarna á að vera brotapunktur og
ritast 1.64%. Komman þarna
villir öðrum skilningi á þessu, þar
sem ekki er um greinarskil milli
þúsunda og hundruða að ræða.
íslenzka stílsetjunarfélagið ætti
að taka upp þetta réttritunar-
form á reikningstölum, og eigin-
lega standa þeir sig betur en aðrir
með hreinsun á málinu að öllu
leyti.
Með virðingu og vinsemd,
Með virðingu og vinsemd,
Marlín J.G. Magnússon,
rithöfundur Kanada.