Dagur - 09.06.1986, Síða 11
Námskeið fýrir
nýliða í lögreglunni
Dagana 3.-5. júní fór í fyrsta
sinn fram námskeið fyrir
nýliða í lögreglunni á Akur-
eyri. Námskeiðið fór fram í
íþróttahöllinni á Akureyri og
voru þátttakendur 15 talsins.
Blaðamenn Dags komu við í
íþróttahöllinni og ræddu við
aðstandendur og þátttakend-
ur.
Ólafur Ásgeirsson, aðstoðaryf-
irlögregluþjónn, sagði að nám-
skeiðið, sem væri bæði bóklegt
og verklegt, væri hugsað fyrir
nýliða sem ekki hefðu farið í lög-
regluskólann. Bóklega þáttinn
sæju þeir heimamenn um en
verklegi þátturinn væri í höndum
Jóns Bjartmarz, þjálfara hjá lög-
regluskólanum í Reykjavík.
„Bóklegi þátturinn er aðallega
fólginn í kennslu í skýrslugerð og
umferðarreglum, fræðslu um
fíkniefni, hjálp í viðlögum,
o.s.frv. í verklegu þjálfuninni eru
svo kennd ýmis tök, menn eru
þjálfaðir í að nota kylfur, labba í
takt og bera sig almennt vel, að
ógleymdri þrekþjálfun. Og í gær
fórum við svo í sund á Lauga-
landi og gengum úr skugga um að
þeir væru allir vel syndir.“
Ólafur sagði þetta námskeið
koma á ágætum tíma þar sem
óvenjumikið væri af nýliðum í
lögreglunni nú. „Flestir þeirra
hafa aldrei komið í búning fyrr,
aðeins örfáir þeirra hafa verið hjá
okkur áður. Hins vegar er ágætt
að það komi fram að allir þessir
menn eru valdir úr stórum hópi
umsækjenda. Þeir þurfa að leggja
fram ýmis gögn og ferill þeirra er
vandlega rannsakaður þannig að
ég held mér sé óhætt að segja að
við séum með bestu mennina."
Ólafur sagðist telja mjög nauð-
synlegt að hafa námskeið sem
þetta hér á Akureyri, liðið væri
einfaldlega orðið það fjölmennt
að allt of dýrt væri að senda
mannskapinn til Reykjavíkur.
Einnig væri mjög erfitt að finna
tíma til þess. „Tíminn setur okk-
ur miklar skorður. Auðvitað væri
miklu æskilegra að hafa þetta
námskeið lengur en þrjá daga, en
menn eru að ljúka skólunum
fyrst núna og sumarleyfin að
hefjast og þá þurfa mennirnir að
vera tilbúnir," sagði Ólafur
Ásgeirsson að lokum.
Jón Bjartmarz, þjálfari, sagði
að sér litist vel á mennina. „Þeir
eru auðvitað mjög misjafnir en
það er enginn áberandi lélegur og
margir eru ágætir. Það er aðal-
lega þrekið sem þeir mættu æfa
betur.“ Jón sagði enn fremur að
auðvitað væri tíminn ákaflega
stuttur en á sambærilegum nám-
skeiðum í Reykjavík væri ekki
varið nema þrernur dögum í
verklega þjálfun þannig að þetta
væri ekkert einsdæmi hér. JHB
„Hefði ekki viljað
fara beint í
búninginn“
9. júní 1986 - PAGUP -11
111 .....
Haugsugubailcar
2-6 tommu
.
STRAUMRASSF
ÞJÓNUSTA MEÐ LOfT- HÁÞRÝSTT OG RAFMAGNSVÖRUR
Furuvöllum 1 • 600 Akureyri • Sími 96-26988
Öngulsstaðahreppur
Þar sem engir framboðslistar voru lagðir fram, fyrir
tilskilinn framboðsfrest þann 20. maí sl., verður
kosning til hreppsnefndar og sýslunefndar óbundin.
Eftirtaldir aðilar sem síðast voru kjörnir í ofantaldar
nefndir, hafa skorast undan endurkjöri:
Hörður Garðarsson, Rifkelsstöðum I, til
hreppsnefndar og sýslunefndar.
Sigurgeir Garðarsson, Staðarhóli, til
hreppsnefndar.
Minnum á lækkun kosningaaldurs í 18 ár, miðað við
kjördag.
Kjörfundur verður settur í félagsheimilinu Freyvangi
kl. 10.00 að morgni laugardagsins 14. júní næst-
komandi.
Brúnum 27. maí 1986.
Kjörstjórnin.
Tbaneæ
Rafmagnsgítarar og rafmagnsbassar
Mikið úrval.
Verð frá kr. 12.500.00,
með vandaðri tösku.
Húsvíkingar - Þingeyingar
41585
er símanúmer Ingibjargar Magnúsdóttur
blaðamanns Dags.
Skrifstofan er að Stóragarði 3.
Opið frá kl. 9-11 f.h.
- segir Hólmar Svansson lögregluþjónn
„Mér iíst bara alveg ágætlega á
þetta. Æfingamar eru að vísu
mjög stífar en þær eru líka
mjög góðar,“ sagði Hólmar
Svansson, einn nýliðinn á nám-
skeiðinu.
„T.d. keyrði hann mann alveg
gjörsamlega út í gær þannig að
maður var með mikla strengi í
morgun en þetta sýnir manni
bara hvað maður er lélegur."
Hólmar sagðist telja námskeið
sem þessi bráðnauðsynleg. „Ég
hefði ekki viljað fara beint í bún-
inginn og út á götu. Æfingarnar
kenna manni ýmislegt, t.d. æfð-
um við handtökur í gær og þá sá
maður hvað það skiptir miklu að
við séum samhentir, það er það
sem gildir. Lögreglan á nefnilega
ekki að standa í slagsmálum,"
sagði Hólmar Svansson. JHB
Hinir geysivinsælu
DAIHATSU
bílar til afgreiðslu strax.
Allar almennar
bílaviðgerðir.
Umboð
Varahlutir
□aihatsu Viðgerðir
r
BILVIRKI sf.
Fjölnisgötu 6 * Sími 23213