Dagur - 09.06.1986, Page 12
Akureyri, mánudagur 9. júní 1986
Mttil
tölmæðingar
Tölvutækisf.
Gránufélagsgötu 4, 2. hæð ■ Akureyri • Sími 9*6-26155
A Atvinnuástand í fiskiðnaöi:
Astandió verst
á Húsavík
„Þetta hefur gengið ágætlega
undanfarið. Það hafa þrjú skip
landað á síðustu dugum með
ágætisafla og von er á Hrím-
bak með eitthvaö á annað
hundrað tonn,“ sagði Einar
Óskarsson hjá IJtgerðarfélagi
Akureyringa.
Skipin sem hér um ræðir eru
Kaldhakur, sem landaði sl.
mánudag, með 220 tonn, Slétt-
bakur, sem landaði sl. þriðjudag,
ineð 109 tonn og Harðbakur, setu
landaði sl. miðvikudag, með
u.þ.h. 210 tonn.
Ástandið er liins vegar ekki
jafn gott á Húsavt'k. Tryggvi
Finnsson hjá Fiskiðjusamlagi
Húsavíkur sagði að það væri
frekar lítið um afla þessa dagana,
enda lítið af bátaflotanum í
gangi. Einnig væri verið að
Siglufjörður:
Tærinp í
hitaveitu-
logninm
Þann 26. febrúar síðastliðinn
tók Orkustofnun vatn úr hita-
veituholu 11 í Skútudal og
kannaði efnasamsetningu þess.
A bæjarstjórnarfundi nú
nýverið var lögð fram greinar-
gerð frá Orkustofnun þar sem
vatnið er dæmt gott til neyslu.
„Meginástæðan fyrir því að
þetta var kannað var að starfs-
maður Orkustofnunar tilkynnti
að hann myndi verða á ferð urn
Norðurland á þessum tíma,"
sagði fráfarandi bæjarstjóri á
Siglufirði, Óttar Proppé. „Niöur-
staðan varð, eins og menn höfðu
reyndar átt von á, að talsverð
tæring heföi komið fram í lögn-
inni, en hún er úr asbesti. Það er
því óhjákvæmilegt að endurnýja
þarf lögnina á komandi árum og
þá með rörum úr einhverju betra
efni," sagði Óttar.
Þess má geta að fram kemur í
fundargerð bæjarstjórnar að
mælt sé með að notuð verði stál-
rör eða hugsanlega hitaþolin
plaströr við endurbætur og
endurnýjun á lögninni í framtíð-
inni. JHB
breyta togaranum Júlíusi Hav-
steen í frystitogara fyrir rækju
þessa dagana og því heldur dauft
yfir rækjuvinnslunni. Tryggvi
sagði þetta b'reyta miklu, því
unnt yrði að frysta hluta af rækj-
unni til sölu beint og afkoma
útgerðarinnar yröi betri.
Þorsteinn Ásgeirsson, fram-
kvæmdastjóri Hraðfrystihúss
Ólafsfjarðar, sagði að togararnir
hefðu ckkert landað síðustu vik-
una á Ölafsfirði. Ólafur bekkur
hefði síðast landað mánudaginn
26. maí, þá 127 tonnum. Sólberg-
ið hefði reyndar landað unt svip-
að leyti en einungis verið með 40
tonn þar sem bilun hefði komið
upp í því eftir stuttan tíma. Þor-
steinn sagði enn fremur að von
væri á báðum togurunum með
þokkalegan afla. „Það er næg
vinna hér á Ólafsfirði og verður
það áfram, a.m.k. eitthvað fram
á haustið," sagði Þorsteinn að
lokum.
„Það hefur verið svona reyting-
ur hjá smærri bátunum og nú ný-
lega landaði togarinn 83 tonnum
af ísfiski og 40 tonnum af frosn-
um fiski," sagði Jóhann Jónsson
hjá Hraðfrystihúsi Þórshafnar.
„Annars er nú þetta árvissa milli-
bilsástand þar sem aflinn dettur
niður, en það nær svona frá lok-
um vertíðar um miðjan maí og
eitthvað fram í júní. Þá fer hann
að glæðast aftur og svo bætist
kolinn við í júlí eða ágúst. Ann-
ars er hér næg atvinna og batn-
andi tíðarfar en það er mikið at-
riði, menn sætta sig við minni afla
þegar veðrið skánar svona,"
sagði Jóhann Jónsson hjá Hrað-
frystihúsi Þórshafnar. JHB
Frá Brekkuhlaupinu s.l. laugardag.
Mynd: BV.
Vallhólmi:
Verksmiöjan verður
starfrækt í sumar
Málefni graskögglaverksmiðj-
unnar Vallhólma hafa verið
nokkuð í brennidepli undan-
farið. Fyrir nokkru var verk-
siniðjan auglýst til sölu í kjöl-
far greiðslustöðvunar fyrir-
tækisins. Eitt kauptilboð barst
frá Kaupfélagi Skagfirðinga.
Tilboðið hljóðar upp á 16,9
millj. króna metið til núvirðis
af fjármálaráðuneytinu, sem
greiðast á 15 árum. Stjórn
Vallhóma hefur fyrir sitt Ieyti
samþykkt tilboðið.
Að sögn Sigurðar Þórðarsonar
skrifstofustjóra í fjármálaráðu-
Hofsós:
Hráefnisskortur
er fyrirsjáanlegur
„Það er frekar dauft hljóðið í
okkur hérna. Við vorum búnir
að búa okkur undir að vinna
mikinn afla í sumar, en fyrir-
sjáanlegur er skortur á hráefni
vegna bilunarinnar á Skafta.
En við vonumst til að fá hrá-
efni að, höfum góð orð frá
ýmsum aðilum en ekkert visst.
Munum við endurgreiða þeim
aðilum sem eru tilbúnir að láta
okkur í té hráefni, í því sama
þegar togararnir okkar verða
komnir á veiðar,“ sagði Gísli
Kristjánsson framkvæmda-
stjóri Hraðfrystihússins á
Höfðingleg gjöf til VMA
Verkmenntaskólanum á Akur-
eyri hefur borist höfðingleg
gjöf frá Kaupmannafélagi
Akureyrar. Voru það 100 þús-
und krónur, sem verja á til
kaupa á búnaði til nýrrar vél
ritunarstofu skólans.
„Þessi gjöf sýnir þann hug sem
margir bera til Verkmenntaskól-
ans. Þarna er atvinnulífið enn
einu sinni að styðja við bakið á
Verkmenntaskólanum og sannar
að skólinn og atvinnulífið tengj-
ast sterkum böndum," sagði
Bernharð Haraldsson.
í bréfi frá 24. maí sem Kaup-
mannafélagið sendi skólanum
segir: „Stjórn Kaupmannafélags
Akureyrar ákvað á fundi sínum í
dag að veita krónur 100 þúsund
til kaupa á búnaði í hina nýju vél-
ritunarstofu Verkmenntaskólans.
Einnig með loforði um meira
fjármagn síðar. Stjórnin fagnar
tilkomu þessarar nýju vélritunar-
stofu og óskar skólanum velfarn-
aðar." Undir bréfið skrifar for-
maður Kaupmannafélagsins
Birkir Skarphéðinsson.
í Verkmenntaskólanum er
mjög öflugt viðskiptanám sem
útskrifar stúdenta og nemendur
með almennt verslunarpróf.
Bernharð sagði að menn úr
atvinnulífinu leituðu til skólans
þegar vantaði fólk í starf og til
sumarafleysinga og væri það eitt
dæmið um áhuga á starfsemi
skólans. gej-
Hofsósi þegar Dagur hafði tal
af honum.
Þess má geta að þessi sömu orð
í sambandi við útvegun á hráefni
viðhafði Marteinn Friðriksson
hjá Fiskiðjunni á Sauðárkróki,
enda bæði þessi frystihús háð afla
togara ÚS. Því er ástandið á
Hofsósi mjög svipað og á
Króknum, aðeins örugg vinna
þessa viku. Móttaka silungs frá
bændum er frystihúsinu á Hofsósi
nokkur búbót og skapar tölu-
verða atvinnu. Silungurinn er
aðallega fluttur ferskur til Frakk-
lands og er markaðurinn nokkuð
traustur. Þessi útflutningur geng-
ur vel, en menn óttast svolítið að
vandamál geti komið upp þegar
hitna fer í veðri. Silungsveiði hef-
ur verið góð undanfarið.
Átta trillur eru gerðar út frá
Hofsósi og einn stærri bátur. Afli
var góður í vor, en aflabrögð
hafa verið treg undanfarið. -þá
neytinu sem hefur með málefni
verksmiðjunnar aö gera, hefur
tilboðið verið tekið fyrir á ríkis-
stjórnarfundi og fékk jákvæða af-
greiðslu þar, en auðvitað væri
salan háð vissum skilyrðum. Þar
sem greiðslustöðvun væri hjá
fyrirtækinu væri málið í höndum
skiptaráðenda og það færi auðvit-
að eftir því hvort um semdist við
kröfuhafa, en mismunur á tilboð-
inu og kröfunum er um 40 millj.
Að sögn Halldórs Jónssonar
sýslumanns Skagfirðinga er ekk-
ert hægt að segja um þetta mál á
þessu stigi. Greiðslustöðvunin
næði til 12. ágúst og málið þess
vegna ekki komið til sín, það
væri hjá lögfræðingi ráðuneytis-
ins.
Að sögn Sigurðar hjá fjármála-
ráðuneytinu má fullvíst telja að
verksmiðjan verði starfrækt í
sumar og þá á vegum Kaupfélags
Skagfirðinga, en félagið lagði
fram leigutilboð fyrir nokkru sem
gerir ráð fyrir tveim milljónum í
ársleigu. -þá
Veður:
Norðlæg átt
næstu daga
Næstu 2-3 sólarhringa verður
fremur hæg norðlæg átt ríkjandi
á Norðurlandi, samkvæmt upp-
lýsingum Veðurstofu Islands í
gær. Það verður frekar þungbúið
og trúlega einhver súld eða væta
öðru hvoru. Hiti verður á bilinu
6-10 stig. Á miðvikudag eða
fimmtudag snýst trúlega í sunn-
anátt aftur og þá mun hlýna
eitthvað.