Dagur - 24.06.1986, Síða 3
24. júní 1986 - DAGUR - 3
Skotlandssigling á skútum:
„Það eina sem
þjakar okkur
er sólbruni"
- segir Sævar Sigurðsson
„Við erum nú staddir í Þórs-
höfn í Færeyjum í 20 stiga
hita og sólskini. Við höfum
verið hér í þrjá daga og það
eina sem þjakar okkur er sól-
bruni,“ sagði Sævar Sigurðs-
son á föstudag, en eins og
komið hefur fram hér í blað-
inu eru hann og félagar hans
á leið til Skotlands á seglskút-
unni Isold. Með í förinni eru
tvær aðrar skútur, þær Silja
frá Isafiröi og Nína frá
Dalvík.
„Við lögðum af stað 13. júní
frá Dalvík og sigldum til Nes-
kaupstaðar með viðkomu á
Raufarhöfn. Á Neskaupstað
náði þriðja skútan okkur en hún
tafðisi á Dalvík og lagði af stað
u.þ.b. 20 klst. á eftir okkur. Þar
stoppuðum við ekki nema einn
dag og sigldum af stað þaðan
aðfaranótt 17. júní áleiðis til
Færeyja. Veðrið var þá leiðin-
legt, rigning og mjög kalt en
við höfðum góðan byr og vorum
því fljótir til Færeyja, en við
tókum land í Fuglafirði kl. 4
aðfaranótt 19. júní. Seinni part-
ur siglingarinnar var reyndar
sérlega ánægjulegur, hægur
sunnanvindur og sólskin, eða
bara eins og það á að vera. í
gær, fimmtudag, fórum við svo
til Þórshafnar og verðum þar í
dag og nótt en höldum þá úfram
til Skotlands," sagði Sævar.
Sævar sagði að ferðin hefði
gengið að óskum, engar tafir
eða bilanir og að þeir hefðu
haldið áætlun sem þeir hefðu
gert í upphafi. „Við erum alveg
í sjöunda himni og ef eitlhvað
er, þá er meiri hugur í mönnum
nú en þegar lagt var af stað,“
sagði Sævar Sigurðsson að
lokum. JHB
Hótel Borg:
Samkeppni
um lög
við „gömlu
dansana"
- Skilafrestur til 10. júlí
DNG á World fishing:
„Framleiðslunni sýndur
mikill áhugi"
- að sögn Kristjáns Jóhannessonar, framkvæmdastjóra
í Bella center í Kaupmanna-
höfn var í síðustu viku haldin
mjög stór sjávarútvegssýning,
World fishing. Sýning þessi er
haldin á fjögurra ára fresti og
er sú stærsta í heimi. Mörg
íslensk fyrirtæki tóku þátt í
þessari sýningu og þeirra á
meðal var DNG, Slippstöðin
og Oddi frá Akureyri. Kristján
Jóhannesson, framkvæmda-
stjóri DNG var á sýningunni
og hann var spurður hvernig
viðtökur hans fyrirtæki hefði
fengið á sýningunni.
„Það sem gerðist hjá okkur var
að framleiðslunni var sýndur
mikill áhugi. Sýningin var mjög
góð og ég held að öll íslensku
fyrirtækin hafi verið ánægð. Við
fengum þarna mikið að vinna úr
og tíminn verður að leiða í Ijós
hvað verður úr því. Við förum
ekki á svona sýningar til að selja
í stykkjatali, heldur til að ná í
umboðsmenn og sambönd. Ef
rétt verður haldið á spöðunum
skilar þetta vonandi einhverjum
árangri. Eftir þessar sýningar
sem við höfum farið á erum við
komnir með sambönd svo til út
um allan heim.“ -HJS
Hundur drepur fimm lömb
í Austur-Fljótum í Skagafírði
gerðist það í síðustu viku að
fjárhundur var staðinn að því
Það lítur út fyrir að líf og fjör
verði í göngugötunni á Akur-
eyri í sumar. Að minnsta kosti
eru menn æstir í að fá að selja
þar varning af ýmsu tagi, eink-
um þó ávexti og grænmeti.
Bæjarráð Akureyrar hefur
samþykkt fjórar umsóknir um
leyfi til torgsölu á grænmeti og
ávöxtum, en þær eru frá Gísla
að hafa sært nokkur lömb til
ólífís.
Um fyrri helgi fundust í grennd
Þór Jóhannssyni (Cosimo Fucci)
og eru þeir félagar þegar farnir
að selja varning sinn, Halldór
Torfi Torfason, Héðinn Björns-
son og Sigurður Malmquist hafa
einnig sótt um leyfi fyrir torgsölu.
Þá hefur Bjarni Tómasson
einnig fengið leyfi fyrir útimark-
að í göngugötunni til sölu á föt-
um og gjafavöru. -mþþ
við bæinn Stóru-Brekku lífvana
lömb sem særð höfðu verið til
ólífis. Héldu menn þá að skað-
valdurinn væri tófa sem sést hafði
á þessum slóðum. Var strax haf-
ist handa með leit á tófunni, sem
fannst eftir tveggja daga leit og
var þá skotin. En sú aftaka dugði
ekki til, þar sem skömmu seinna
fundust tvö lömb illa særð á sömu
slóðum. Upp komst svo um skað-
valdinn, fjárhund þar í sveit,
þar sem hann var að seilast til
tvílembings innan girðingar, en
móðir hans náði að reka vágest-
inn á flótta. Hundurinn gafst ekki
upp og réðst á næsta lamb sem á
vegi hans varð. Hundur þessi var
að sjálfsögðn aflífaður samstund-
is. Hann hafði verið í umsjá eig-
andanna í fimm ár, verið notaður
talsvert við fé og aldrei sýnt neitt
þessu líkt fyrr. -þá
Nóg af ávöxtum
- í göngugötunni í sumar
SPENNUM
BELTIN
sjálfra
okkar
vegna!
Nú styttist í aö skilafrestur í
danslagakeppni Hótel Borgar í
Reykjavík renni út og því fer
hver að verða síðastur að skila
inn lögum í keppnina.
Þessi keppni er öllum opin en
aðeins verður tekið á móti lögurn
sem hæfa hinum hefðbundnu
„gömlu dönsum“. Ef ætlast er til
að lögin séu sungin, þurfa að
fylgja þeim góðir, sönghæfir
textar.
Lögin þurfa að vera á nótum,
með bókstafahljómum og gjarn-
an á hljómsnældum ef hægt er,
merkt dulnefni.
Þrenn verðlaun verða veitt:
Krónur 50 þúsund, 25 þúsund og
10 þúsund. Skilafrestur er til 10.
júlí n.k.
Allt að 25 lög verða tekin til
flutnings og væntanlega hefst
keppnin sunnudaginn 21. sept-
ember á Hótel Borg. Merkja skal
lögin „Danslagakeppnin Hótel
Borg, 101 Reykjavík.
Áðstandendur keppninnar
vonast eftir góðri þátttöku og
skemmtilegum lögum. Og þá er
bara að setja sig í stellingar og
hrista eins og eitt lag fram úr
erminni, senda það suður og sjá
svo hvað setur. BB.
Góða ferð
í fríið
Sumarfatnaðurinn
ífríÍð Ml TT \
er kominn beint frá 1N L11 j/\
í Danmörku og HndHgfOfS
í Svíþjóð.
Jakkar, buxur, pils og
blússur, litasamsetningar
í stíl.
Léttur og þægilegur.
Allar stærðir.
Aðlaðandi
er konan ánægð
Greiðslukort Visa Eurocard
\~Ji5liUfe,ií)lu.n Jyteinunnat
Hafnarstræti 98 • Akureyri • Simi (96) 22214-
LETTIfl
1l
Lettisfelagar
Farið verður í Sörlastaði föstudaginn 27. júní.
Lagt af stað frá réttinni ofan við golfvöllinn kL 18
stundvíslega. Farangur verður fluttur fyrir þá sem
þurfa. Nánari upplýsingar í símum 25532 (Jónas),
23605 (Hólmgeir) og 24422 (Sigurlaug).